Morgunblaðið - 31.05.2001, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 31.05.2001, Blaðsíða 4
FRÉTTIR 4 FIMMTUDAGUR 31. MAÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ Louisa Matthíasdóttir 1917-2000. Úr Reykjavík 75x55. © Erfingjar/Myndstef Búnaðarbankans Listgluggi www.bi.is SVARTFUGL er seldur í tonnatali á fiskmörkuðum þrátt fyrir bann við sölu hans í lögum. Einar Karl Har- aldsson, varaformaður Skotveiði- félags Íslands, hefur á undanförnum árum lagt fram kærur til lögreglu vegna netaveiða á svartfugli og sölu hans. Eitt lögregluumdæmi hefur lagt kærumál þess efnis fyrir ríkis- saksóknara. Samkvæmt upplýsingum Íslands- markaðar nam sala á svartfugli mest 25 tonnum árið 1998 og 12 tonnum 1997. Árið 1999 nam salan 10 tonnum. Það sem af er þessu ári hafa rúm 5 tonn verið seld. Er fugl- inn seldur þrátt fyrir bann við sölu hans í lögum um vernd, friðun og veiðar á villtum fuglum og villtum spendýrum. Í 9. gr. laganna segir m.a. að fugla, sem drepast í netum sem lögð eru til fiskveiða eða kópa- veiða, megi hvorki bjóða til sölu, selja, kaupa, gefa né þiggja að gjöf. Lifandi fugla skuli greiða úr neti og sleppa. Egill Jón Kristjánsson, formaður Samtaka uppboðsmarkaða, segir að sölu á svartfugli verði haldið áfram á fiskmörkuðum þangað til þar til bær yfirvöld stöðvi söluna. Einfaldlega ólöglegt Að sögn Einar Haraldssonar er á allra vitorði að tugir þúsunda svart- fugla séu veiddir í net árlega. „Veið- in fer í gegnum fiskmarkaði. Þetta er einfaldlega ólöglegt. Kærur hafa verið lagðar fram hjá lögreglunni í Reykjavík vegna sölu fiskmarkaða í því skyni að reyna að stöðva sölu á þessum ólöglega varningi. Eina kæran sem hefur farið lengra en á borð viðtakanda var hjá sýslumann- inum í Keflavík sem fylgdi málinu eftir, tók skýrslu og sendi ríkissak- sóknara sem fékk málið í febrúar 2000.“ Einar segir það ekki frágangssök þótt sjómenn fái svartfugl óviljandi í net sín. Hann segist hins vegar hafa heimildir fyrir því að sjómenn leggi vísvitandi út net fyrir svartfugl. „Menn hafa verið að safna saman gömlum ýsunetum og notað þau við svartfuglaveiðar og sagst vera á ut- ankvótategund. Þetta er ekki mönn- um sæmandi og þaðan af síður fisk- mörkuðum sæmandi að taka þátt í lögbrotum af þessu tagi.“ Að sögn Egils Jóns Kristjánsson- ar hefur það ekki komið til álita að setja fyrirvara á sölu svartfugls þrátt fyrir bann þess efnis. Hann segir fiskmarkaðina bæði verða við beiðni sjómanna um að selja svart- fugl, um leið og eftirspurn kaupenda sé annað. Hann segir engan vafa leika á því að fiskmarkaðir muni halda áfram sölu svartfugls þangað til þar til bær yfirvöld segja annað. Í sölutölum fiskmarkaðanna er svartfugl nú kallaður SV-bland en ekki svartfugl eins og áður. Segir Egill Jón að því sé ekki að neita að menn vilji kalla hlutina öðrum nöfn- um í ljósi þes að um ólöglega sölu er að ræða. Sölunni haldið áfram uns yfirvöld grípa í taumana Svartfugl seldur á fiskmörkuðum þrátt fyrir bann ÞAU Helen Thompson og Julian Penny reru kajökum sínum frá Sandvík til Eskifjarðar í gær, en þau hyggjast róa hringinn í kring- um landið í sumar. Takist þeim ætl- unarverk sitt verður Helen fyrsta konan til að vinna þetta afrek. Með þessu feta þau í fótspor landa sinna frá Wales, þeirra Nigel Foster og Jeff Hunter sem reru kajökum í kringum landið árið 1977. Helen og Julian lögðu af stað frá Seyðisfirði á fimmtudag, en vegna óhagstæðs veðurs þurftu þau að gista þrjár nætur í Sandvík. Helen sagði í samtali við Morgunblaðið í gærkvöldi að ölduhæðin í gær hefði náð 6-8 metrum. „Þetta var erfiður dagur. Ég held að við reyn- um að forðast svona sjólag fram- vegis því þetta var mjög erfitt.“ Helen býst við að ferðin fyrir Suð- urland verði varasamasti leggur ferðarinnar. Aðspurð um hvernig hugmyndin að Íslandsförinni kviknaði segir Helen að kajakræðarar séu flestir hrifnir af hringferðum. „Ísland virtist því skemmtileg áskorun. Við höfum reyndar verið að velta því fyrir okkur upp á síðkastið af hverju við völdum ekki hlýrri stað.“ Morgunblaðið/Helgi Garðarsson Í kajökum þeirra Helenar Thompson og Julian Kenny eru vistir til 3–4 vikna. Erfiður róður að baki en varasamasti hlutinn eftir Ætla að róa á kajak umhverfis Ísland á nokkrum vikum DAVÍÐ Oddsson forsætisráðherra lýsti því yfir á fundi nefndar sem vinnur að undirbúningi tillögu fyrir landsfund Sjálfstæðisflokksins um velferðarmál og Samtaka eldri sjálf- stæðismanna í gærkvöldi, að ríkis- stjórnin ynni að undirbúningi þess að fella niður eignarskatta á íbúðarhúsi í áföngum. Húsfyllir var á fundinum. Samtök eldri sjálfstæðismanna voru stofnuð fyrir þremur árum og formaður þeirra er Guðmundur H. Garðarsson, fyrrverandi alþingis- maður. Aldurstakmörk í samtökun- um eru 60 ár. Á fundinum var rætt um það sem snýr að öldruðum í sambandi við almannatrygginga- kerfið og lífeyrismál. „Síðan kom fram í athyglisverðri yfirlýsingu forsætisráðherra að rík- isstjórnin ynni að því að að eignar- skattar á íbúðarhúsnæði yrðu af- numdir. Niðurstaðan á að vera sú að þeir verði horfnir innan nokkurs tíma,“ sagði Guðmundur. Morgunblaðið/Jim Smart Húsfyllir var á fundi Samtaka eldri sjálfstæðismanna í Valhöll í gær. Eignarskattar á íbúðarhúsnæði af- numdir í þrepum RANNSÓKN á skemmdunum sem urðu á þyrlu Landhelgisgæsl- unnar yfir Snæfellsnesi að kvöldi síðasta föstudags er í fullum gangi. Gagnaöflun stendur yfir og er ekki vitað nákvæmlega hvenær niðurstaða getur legið fyrir. Flugslysanefnd fór á vettvang á Snæfellsnesi í gær og skoðaði að- stæður og var veðurfræðingur með í för, en einn þáttur í rann- sókn málsins er mat á veðurfars- aðstæðum. Þá kom fulltrúi frá framleiðanda þyrlunnar hingað til lands í gær vegna atviksins og Norðmaður er væntanlegur hing- að til lands á föstudaginn kemur. Norðmenn hafa sýnt áhuga á að fylgjast með rannsókn málsins vegna þess að þeir eru með sams konar þyrlur í rekstri og svipaðs atviks sem átt hefur sér stað í Noregi í þessum efnum, sam- kvæmt upplýsingum Skúla Jóns Sigurðarsonar, formanns Flug- slysanefndar. Þyrlurannsókn í fullum gangi FÉLAGSDÓMUR hefur dæmt að boðun verkfalls Þroskaþjálfafélags Íslands sé ólögmæt. Þroskaþjálfar, sem starfa hjá íslenska ríkinu, sam- þykktu í atkvæðagreiðslu 4. maí sl. að boða verkfall frá 1. júní nk. og þroskaþjálfar á sjálfseignarstofnun- unum Styrktarfélags vangefinna, Skálatúni og Reykjalundi, sam- þykktu í sömu atkvæðagreiðslu að boða til verkfalls 15. júní. Í verkfallsboðun Þroskaþjálfa- félagsins var gert ráð fyrir því að ríkið hefði samningsumboð fyrir um- ræddar sjálfseignarstofnanir, eins og við síðustu kjarasamninga, enda greiðir ríkið laun starfsmanna þar. Af hálfu ríkisins var fyrir Félags- dómi vitnað til athugasemda með frumvarpi sem varð að lögum um kjarasamninga opinberra starfs- manna, þar sem segir m.a. að ein- ungis þeir sem starfa hjá þeim vinnuveitendum sem tiltekinn kjara- samningur tekur til geta tekið ákvarðanir um hann, svo sem sam- þykkt uppsögn og boðun verkfalls. Af hálfu ríkisins var því haldið fram að þátttaka í atkvæðagreiðslunni af hálfu þeirra félagsmanna Þroska- þjálfafélagsins sem starfa hjá sjálfs- eignarstofnununum hafi verið and- stæð lögum um kjarasamninga opinberra starfsmanna. Þessir aðilar séu sjálfseignarstofnanir eða sjálf- stæðar stofnanir sem fari með sjálf- stætt samningsumboð við gerð kjarasamninga og starfsmenn þeirra teljist ekki til starfsmanna ríkisins. Á þetta sjónarmið féllst Félagsdóm- ur og dæmdi því boðun verkfalls Þroskaþjálfafélagsins ólögmæta. Verkfallsboðun þroskaþjálfa dæmd ólögmæt
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.