Morgunblaðið - 31.05.2001, Blaðsíða 25
NEYTENDUR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 31. MAÍ 2001 25
Danir greiða langhæst verð fyrir
matvöru í Evrópusambandinu og
segja dönsku neytendasamtökin
ástæðuna ekki aðeins skattlagn-
ingu heldur ekki síður fákeppni.
Gerður var samanburður á
neysluverði í öllum fimmtán að-
ildarlöndum ESB og reyndist
danska innkaupakarfan nærri því
tvöfalt dýrari en sú spænska, þar
sem verðið var lægst.
Borið var saman verð á algeng-
um matvörum, svo sem kart-
öflum, eggjum, osti, mjólk, jógúrt,
beikoni, laxi, banönum og kíwí.
Verðið var samanlagt 1.560 ísl.
krónur á Spáni en 2.600 ísl. krón-
ur í Danmörku. Næsthæsta verð-
ið var í Hollandi, 2.340 ísl. krónur
og þriðja hæsta í Svíþjóð, Frakk-
landi og Belgíu á 2.260 ísl. krón-
ur.
Sem dæmi um verð má nefna
að Danir greiða 33% hærra verð
fyrir lax en íbúar ESB að jafnaði
og 75% hærra verð fyrir kart-
öflur. Virðisaukaskatti á mat er
kennt um hátt verð í Danmörku
en sé hann dreginn frá sitja Dan-
ir engu að síður á botninum með
dýrustu innkaupakörfuna. Villy
Dyhr hjá dönsku neytendasam-
tökunum kennir fákeppni um en
þrjár stórar verslanakeðjur eru
alls ráðandi á dönskum matvöru-
markaði. Þetta á einnig við um
matvælaframleiðendur, t.d. ráða
Arla mjólkurbúin um 90% danska
markaðarins.
Talsmenn verslananna vísa
þessu flestir á bug, segja harða
samkeppni í gangi og kenna op-
inberum gjöldum og háum laun-
um um. Dyhr segir það ekki rétt
þar sem laun séu svipuð í Svíþjóð
og Hollandi þótt verð á matvöru
sé þar miklu lægra.
Í áðurnefndri innkaupakörfu
voru:
1 kg perur
6 egg
250 gr gouda-ostur
2 l mjólk
500 gr svínakótilettur
1 l ávaxtajógúrt
250 gr beikon
500 gr lax
250 gr urriði
1 kg bananar
500 gr kiwi
Verðkönnun á ýmsum matvörum í 15 aðildarlöndum innan Evrópusambandsins
Matvöruverð reyndist
langhæst í Danmörku
Kaupmannahöfn. Morgunblaðið.
Er varasamt að sjóða
kaffi í álkönnum?
Getur það haft heilsuspillandi
áhrif að sjóða til dæmis kaffi í ál-
könnu og elda mat í álpottum?
Níels Breiðfjörð Jónsson efna-
fræðingur hjá eiturefnasviði Holl-
ustuverndar ríkisins segir ekki vera
einhlítt svar við spurningunni en
notkun álkanna og potta sé umdeild,
sumir telja það vera hættulaust fyr-
ir líkamann en aðrir hættulegt þar
sem ál er talið losna úr pottum og
könnum og safnast fyrir í fólki.
„Gallinn er sá að áhrif áls á heilsu
hafa lítið verið rannsökuð. Sumir
hafa horn í síðu þess í ýmsu sam-
hengi, hafa meðal annars rakið
tengsl þess til Alzheimer-sjúkdóms-
ins.“ Notkun á áli hefur aukist mjög
á undanförnum árum, að mati Níels-
ar, m.a. notkun áldósa og alls kyns
álumbúða undir matvæli.
Í stað áls er unnt að nota króm-
stál eða rústfrítt stál en sumar teg-
undir eru eitraðar og henta því alls
ekki sem ílát undir mat og drykki.
Er neysla hrárra
eggja varasöm?
Í Danmörku hafa neytendur ver-
ið varaðir við að borða hrá egg því
rekja má margar sýkingar til
neyslu á þeim. Hefur komið upp
salmonella í eggjum hérlendis?
„Við höfum ekki fundið salmon-
ellu í varphænsnum eða eggjum hér
á landi,“ segir Jarle Reiersen dýra-
læknir alifuglasjúkdóma hjá yfir-
dýralækni.
„Aðalforsenda fyrir þessum ár-
angri sem hefur náðst hér á landi er
að stofnarnir eru lausir við salmon-
ellu. Varphænustofnarnir koma frá
Noregi og þar eru þeir prófaðir
vikulega með tilliti til salmonellu.
Innfluttir stofnar eru síðan prófaðir
á meðan þeir eru í sóttkví. Síðan
gerum við prófanir við slátrun en
varphænum hér á landi er slátrað
rúmlega eins árs. Íslenskir neytend-
ur eiga því að geta áhyggjulausir
neytt eggja þótt þau séu ekki soðin
fyrst.“
Spurt og svarað
um neytendamál
NÝKAUP hefur hafið inn-
flutning á nýuppteknum
kartöflum frá Frakklandi.
Verðið er 399 krónur til að
byrja með en mun lækka á
næstu vikum. Fyrst um sinn
eru kartöflurnar fluttar með
flugi til landsins þar sem
fyrsta uppskera þolir ekki
flutning með skipi sökum
stutts geymsluþols.
Nýjar kart-
öflur frá
Frakklandi
DILBERT
mbl.is