Morgunblaðið - 31.05.2001, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 31.05.2001, Blaðsíða 17
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 31. MAÍ 2001 17 NÝR Höfðingi fór að sjást á götum Reykjavíkur 23. jan- úar síðastliðinn. Sá er dekkj- aður og tilheyrir Borgar- bókasafni Reykjavíkur. Þetta er nýi bókabíllinn og Gunnar Karlsson myndlist- armaður myndskreytti hann. Nafnið á bílnum er það sama og á forvera hans, sem þjón- aði borgarbúum í yfir 40 ár, fyrst sem strætisvagn og síð- an í rúm 30 ára sem bókabíll. Hinn nýi bókabíll er af teg- undinni Scania og kemur hingað með öllum búnaði frá Kiitokori-verksmiðjunni í Finnlandi. Morgunblaðið leit inn í bíl- inn á dögunum, þar sem hann stóð sína vakt uppi við Selás- Víkurás, en í Árbæ er ekkert bókasafn. Þar voru til svara Svanhildur Skaftadóttir bókavörður og Jóhann Már Jónsson bílstjóri sem reynd- ar hefur einnig gegnt stöðu bókavarðar. „Höfðingi leggur upp frá Bústaðasafni og er mættur á fyrsta staðinn 13.30 og er svo á ferðinni klukkutíma á hverjum stað til klukkan 21. Í júlí og ágúst er hann í sum- arfríi og gengur því ekki, og í september tekur við ný áætl- un,“ sögðu þau, og bættu því við, að eins væri með hinn bókabílinn, Stubb, sem einn- ig er kominn á aldur, enda orðinn 30 ára. Þrír bílstjórar skiptast á um að aka bílun- um. „Við erum búin að bíða eft- ir þessum nýja bókabíl mjög lengi. Sá gamli var orðinn 45 ára og ansi lítið spennandi fyrir lánþega sem og okkur hin sem unnum í honum. Því má segja að þetta sé algjör bylting. Þessir tveir bílar, sá gamli og nýi, eru ekki sam- bærilegir á neinn hátt. Þessi er svo bjartur og hreinn og fínn þannig að þetta er bara allt annað.“ Um 4.000 bækur í Höfðingja Að sögn þeirra eru lánþeg- arnir aðallega gamalt fólk og börn, þ.e.a.s. hópur sem á erfiðara en aðrir með að komast á bókasöfnin. „Við reynum að vera á þeim stöð- um þar sem þörfin er mest og lengst er á söfnin.“ Í Höfðingja eru um 4.000 bækur. Aðspurð hvernig væri farið að því að velja bækur til að fara með um höfuðborgarsvæðið sögðu þau að náttúrlega væri reynt eftir bestu getu að hafa bóka- kostinn sveigjanlegan, hann m.ö.o. tæki breytingum. „Við reynum að skipta og taka inn nýjar bækur, eftir því sem okkur finnst lánþegar vera að slægjast eftir og það sem lítið hreyfist er tekið úr umferð. Við vitum nokkurn veginn hvað er mest spenn- andi í augum þeirra sem hingað koma því við kynn- umst fólkinu. Einnig geta lánþegar hringt og pantað hjá okkur bækur, annaðhvort beint hingað eða á Bústaða- safn. Og svo höfum við líka komið með bækur í næsta skipti á eftir, ef einhver hefur spurt um eitthvað sem við þá höfðum ekki þá stundina í bílnum. Þannig að ýmsir möguleikar eru í stöðunni.“ Aðsóknin breytileg eftir árstíðum og öðru En hvernig skyldi vera með aðsóknina í bókabílinn? Ætli fólk komi meira yfir harðasta vetrartímann en á miðju sumri? „Jú, ekki er hægt að neita því, að aðsókn er breytileg eftir árstíðum,“ sögðu þau. „Það má kannski segja að einmitt þessi tími núna sé ró- legastur, þegar skólar eru að hætta. Svo getur þetta líka verið breytilegt á hverjum stað frá einum tíma til ann- ars. Það getur verið fámennt í nokkur skipti, en svo allt í einu er fyllist bíllinn af áhugasömum lánþegum. Það er sem sagt mjög erfitt að átta sig á þessum málum.“ Að lokum voru þau spurð um hvort ekki færi að stytt- ast í að hinn bókabíllinn, Stubbur, færi að hætta fyrir aldurs sakir. „Ja, a.m.k. langar okkur, sem vinnum við þetta, ósköp mikið til að fá annan bíl, ekki hvað síst eftir reynsluna af þessum nýja Höfðingja. Hvað verður er þó óljóst. En þörfin er ótvírætt fyrir hendi, það er deginum ljós- ara,“ sögðu þau Svanhildur og Jóhann, hæstánægð í hin- um glæsilega Scania-bíl. Algjör bylting Morgunblaðið/Sigurður Ægisson Svanhildur Skaftadóttir bókavörður og Jóhann Már Jóns- son bílstjóri í dyrum nýja Höfðingja. Reykjavík Starfsfólk Borgarbókasafns Reykjavíkur á varla orð til að lýsa hrifningu sinni á nýja bókabílnum Í HINUM nýja bókabíl er málum þannig háttað að fremst eru bækur ætlaðar fullorðnum en aftur í er barnadeildin og þar er að sjálfsögðu reynt að vera með það sem krökkunum þykir eftirsóknarvert. Þegar Morgunblaðið var þar á ferð komu Elvar Heimisson, 10 ára, Jóna Svandís Halldórs- dóttir, 9 ára, og Marta Bryn- dís Matthíasdóttir, 8 ára, inn í bílinn. Þau búa öll í Árbæ og eru í Selásskóla. Aðspurð sögðust þau aldr- ei fyrr hafa komið í bílinn til að fá lánaðar bækur. „Nei, ég hef aldrei komið hingað en pabbi segir stund- um við mig að ég ætti að fá mér merki til að geta komið hingað og náð í bækur. En ég gleymi því bara alltaf. Kannski man ég það núna, þegar svona flottur bíll er kominn,“ sagði Elvar. Jóna sagðist alltaf hjóla með vinkonu sinni í bóka- safnið í Gerðubergi í Breið- holti og það gæti tekið um eina klukkustund hvora leið. Hún var í fyrsta skipti að koma í bílinn og ákvað að skila nokkrum bókum sem höfðu verið fengnar að láni í Gerðubergi. Henni fannst Höfðingi flottur. Marta sagðist oft hafa séð þennan bíl en aldrei þó tekið bækur að láni. Hún hafi samt kíkt inn í hann einu sinni áð- ur. Hins vegar hafi hún kom- ið nokkrum sinnum í gamla bílinn. Jóna var búin að sanka að sér nokkrum bókum um dýr sem hún ætlaði að fá lánaðar. „Þær eru handa litla frænda mínum sem verður þriggja ára í desember. Hann kemur stundum í heimsókn og þá les ég fyrir hann dýrabækur. Hann hefur mjög gaman af húsdýrum.“ En fyrir sig hafði Jóna tekið bókina „Vaski grísinn Baddi“ og „Dagbók Berts“ og eitthvað fleira. Marta kvaðst helst lesa léttar bækur, eins og t.d. bókina um vaska grísinn. En Elvar sagðist lesa alls konar bækur. Höfð- ingi er flottur Morgunblaðið/Sigurður Ægisson Jóna Svandís Halldórsdóttir, Marta Bryndís Matthíasdóttir og Elvar Heimisson sitjandi í einu af bólstruðu sætunum í nýja bókabílnum. INGIBJÖRG Sólrún Gísla- dóttir borgarstjóri hefur lagt fram tillögu í borgarráði um stofnun hverfismiðstöðvar í vesturbænum sem fái nafnið Vesturgarður. Ráðgert er að opna hverfismiðstöðina í byrj- un næsta árs. Að sögn Ingibjargar er hugmyndin fólgin í því að íbú- ar geti á einum og sama staðnum sótt fjölþætta þjón- ustu, meðal annars tengda leikskólum og grunnskólum. „Þetta hefur tekist mjög vel í Grafarvogi og þar eru menn mjög ánægðir með þetta fyr- irkomulag,“ segir Ingibjörg um hverfismiðstöðina sem þar er starfrækt. „Það er einnig hægt að fá hverfislögreglu og heilsu- gæslu inn í þetta samstarf. Og menn hafa einfaldlega metið það svo að betri árangur náist til að mynda í forvarnastarfi með þessum hætti.“ Lagt er til að í miðstöðinni verði samþætt þjónusta og rekstur á vegum Félagsþjón- ustunnar, ÍTR, Fræðslumið- stöðvar og Leikskóla Reykja- víkur en tillagan að stofnun miðstöðvarinnar er komin frá forstöðumönnum fyrrnefndra stofnana. Í greinargerð með tillög- unni segir að það sé stefna borgaryfirvalda að færa þjón- ustu nær íbúum og styrkja hverfi borgarinnar. Segir þar að í starfsáætlun stofnananna fyrir árið 2001 sé gert ráð fyr- ir því að opnuð verði þjón- ustuskrifstofa í vesturbæ sem þjóni þessum markmiðum. Tilgangurinn með stofnun Vesturgarðs yrði að bæta fjöl- skylduþjónustu við íbúa á svæðinu. Ingibjörg Sólrún segir það grundvallaratriði í þessu að störf og verkefni séu flutt frá miðlægum stofnunum og út í hverfismiðstöðvarnar. „Að öðrum kosti værum við að lengja leiðsluna. Ef fólk þyrfti fyrst að fara út í hverf- ismiðstöðina og síðan út í ein- hverja af miðlægu stofnunun- um á borð við Leikskóla Reykjavíkur eða Fræðslumið- stöð,“ segir hún. Lagt er til að í Vesturgarði verði boðið upp á félagsþjón- ustu, skólaþjónustu, sálfræði- og kennsluráðgjöf, leikskóla- ráðgjöf og eftirlits- og sér- fræðiþjónustu við leikskóla. Þá er lagt til að þar verði starfsemi sem hafi umsjón með daggæslu í leikskólum, starfsemi tengdri forvörnum, húsaleigubótum, heimaþjón- ustu, liðveislu og tómstundum auk fjárhagsaðstoðar. Mun hýsa samþætta fjölskylduþjónustu Borgarstjóri vill opna nýja hverfismiðstöð Vesturbær
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.