Morgunblaðið - 31.05.2001, Page 10
FRÉTTIR
10 FIMMTUDAGUR 31. MAÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ
Á besta árstíma í nóvember
FEGURSTU BORGIR HEIMS:
RIO de Janeiro-Buenos Aires og
Iguazu-fossar,
við bestu aðstæður
fyrir minna en hálfvirði,
11-12 dagar, hægt að framlengja.
Nú eru 100 fyrstu
sætin farin, en við
bjóðum 50 viðbótarsæti
á afsláttarkjörunum
aðeins til 7. júní.
Munið lækkað verð!
Pöntunarsími: 56 20 400
Ferð aldamótaársins
SUÐUR-AMERÍKA
SAMÞYKKT bæjarráðs Árborgar
um að flytja starfsemi leikskólans
Árbæjar í fyrirhugaðan nýjan leik-
skóla í Fosslandi hefur valdið deil-
um innan bæjarfélagsins. Meðal
annars hefur bæjarstjórn borist
undirskriftalisti frá 300 íbúum á
Selfossi og áskorun frá foreldra-
ráði leikskólans þar sem fyrirhug-
aðri staðsetningu leikskólans er
mótmælt og skorað á bæjarstjórn-
ina að endurskoða hana.
Þessir aðilar vilja að nýr leik-
skóli rísi á horni Erlurima og
Langholts frekar en í Fosslandi.
Þeir telja mun meiri þörf fyrir
leikskóla í Erlurima, þar sem að
þar og í hverfunum í kring búi
fleiri barnafjölskyldur en í ná-
grenni Fosslands. Leikskólinn Ár-
bær sem er nú í notkun verður rif-
inn niður vegna stækkunnar á
Hótel Selfossi en hann stendur
skammt frá staðnum þar sem fyr-
irhugaður nýr leikskóli í Fosslandi
á að rísa.
Mikil bílaumferð á
milli hverfa á morgnanna
„Við viljum fá leikskóla þangað
sem flest börnin búa. Til stóð að
byggja nýja leikskólann á horni
Erlurima og Langholts en nú hef-
ur annað verið ákveðið og foreldr-
ar ekkert verið spurðir álits á
staðsetningu,“ segir Inga Úlfsdótt-
ir, formaður foreldraráðs Árbæjar.
Halldór Gunnarsson, einn þeirra
sem stóðu að undirskriftasöfnun
meðal bæjarbúa, segir brýnt að
leikskóli rísi í Erlurima sem fyrst
þar sem mikið af barnafólki bæj-
arins búi þar og í hverfunum í
kring.
„Eins og staðan er í dag eru
tengingarnar á milli hverfanna
ekki nógu góðar t.d. er oft mjög
þung umferð á milli hverfa á
morgnana og sjáum við fram á að
hún muni aukast með tilkomu leik-
skóla í Fosslandi.“
Hann segir að ef leikskóli myndi
rísa í Erlurima væri auk þess stutt
í útivistarsvæði sem nýst gætu í
starfi leikskóla. „Einu hugsanlegu
rökin sem við sjáum fyrir því að
leikskólinn rísi í Fosshverfi, eru ef
hann muni rísa fyrr en leikskóli í
Erlurima því það vantar tilfinn-
anlega leikskólapláss og mörg
börn eru á biðlista.“
Verður tekið fyrir
í bæjarstjórn
Karl Björnsson, bæjarstjóri Sel-
foss, segir að undirskriftarlistinn
sem borist hefur frá bæjarbúum
og áskorun foreldrafélagsins verði
tekin fyrir á bæjarstjórnarfundi 1.
júní.
„Valið stóð á milli þessara
tveggja lóða og að athuguðu máli í
samráði við skipulagssérfræðing
samþykkti bæjarráð Árborgar að
byggja leikskóla í Fosshverfi, með-
al annars á grundvelli þess að búið
er að samþykkja byggingu leik-
skóla og grunnskóla í Suðurbyggð
sem er mjög skammt frá lóðinni í
Erlurima. Ekki er búið að tíma-
setja þær framkvæmdir en gert er
ráð fyrir að starfsemi leikskólans í
Fosslandi hefjist í júlí á næsta
ári.“
* + , - * *
!
Staðsetning
nýs leikskóla
umdeild
REYKJAVÍK gerðist nýlega aðili
að samstarfsneti borga um hinn
vestræna heim, sem kallast Borgir
morgundagsins, eða Cities of To-
morrow. Upphaf þessa samstarfs
má rekja til ársins 1993, þegar
Bertelsmann- stofnunin í Þýska-
landi veitti tveimur borgum verð-
laun fyrir að skara fram úr hvað
stjórnsýslu og starfsemi varðar og
urðu Christchurch og Phoenix í
Bandaríkjunum fyrir valinu. Upp
frá því hefur stofnunin rekið sam-
tökin Borgir morgundagsins og
kemur Richardson hingað til lands
til að miðla af reynslu sinni, en
hann hefur verið framkvæmda-
stjóri Christchurch síðustu ár.
Richardson hefur haldið fyrir-
lestra og stjórnað vinnuhópum með
starfsmönnum borgarinnar síðustu
daga, þar sem hann hefur hvatt þá
til að spyrja sig hver þeirra sýn sé á
borgina og hver þróun hennar ætti
að vera næsta áratuginn. „Allar
borgarstjórnir þurfa að sinna
ákveðnu þjónustuhlutverki, en til
viðbótar við það geta þær unnið
markvisst að því að auka lífsgæði
íbúanna,“ segir Richardson. Hann
segir að þetta vilji starfsmenn
Reykjavíkurborgar greinilega
gera. Hann segir mikilvægt að
borgarstjórnir reyni að gera sér
grein fyrir því, hvernig það sé að
búa í borginni þeirra og þær spyrji
sig spurninga eins og hvernig ung-
lingum líði þar og hvort þeim finn-
ist þeir hafa næg tækifæri til að
þroskast og dafna. Einnig að þær
spyrji sig hvernig borgarbúum líði
heima hjá sér, hvort margir séu
einangraðir og einmana og t.d.
hversu margir þekki nágranna
sína. „Sum svörin veit borgar-
stjórnin kannski, en aðalatriðið er
að í Reykjvík hafið þið borgar-
stjórn, sem vill vita þessi atriði og
trúir að það sé hluti af starfi hennar
að hafa þessi svör á reiðum hönd-
um. Borgarstjóranum ykkar er
greinilega áfram um að íbúar borg-
arinnar eigi greiðan aðgang að
stjórnkerfi borgarinnar. Samfélag-
ið hér mun þróast á næstu árum og
með markvissri stefnu er hægt að
hafa áhrif á það hvernig hún
þróast.“
Þétting byggðar nauðsynleg
Richardson segir erfitt fyrir
hann að dæma um hvernig sé að
lifa í Reykjavík og hvaða mála-
flokkum mætti gefa betri gaum.
„Ég get bara sagt hvaða áhrif
borgin hefur á mig. Ég er sleginn
yfir því að sjá hvað það er mikið
þróunarstarf hér í gangi, t.d. er
verið að byggja um alla borgina.
Það þarf að hugsa vel um úthverfin
og passa að byggðin dreifist ekki á
of stórt svæði. Það er mikilvægt að
huga að þéttingu byggðar, t.d. til
þess að kostnaður við samgöngur
rjúki ekki upp úr öllu valdi. Hér er
of langt milli húsa. Á Íslandi er
mjög hátt hlutfall útivinnandi fólks,
bæði hjá konum og körlum. Fólk á
barneignaraldri vinnur mikið og
myndi ég því halda, að krefjandi
verkefni bíði borgarinnar í barna-
gæslu og öðru sem tengist börnum
og uppeldi þeirra. Richardson seg-
ir að Reykjavíkurborg hafi sýnt
áhuga á að kynna sér í gegnum
samstarfsnetið, hvernig þessum
málum er háttað í öðrum borgum,
sem hafa þróast mjög hratt eins og
Reykjavík og sem hafa náð góðum
árangri í málaflokknum.
Meðal þess sem borgirnar sem
eru aðilar að samskiptanetinu
gera, er að skoða lífsgæði í borg-
unum. Richardson segir að tilgang-
urinn sé ekki að bera lífsgæðin
saman, heldur sjá hvaða starfsað-
ferðir hafi reynst happadrjúgar.
Hann segir að t.d. væri fróðlegt að
vita hvað Reykvíkingar eru ánægð-
astir með í borginni sinni, til að
hægt sé að hlúa að því þannig að
þau atriði haldist fyrir næstu kyn-
slóðir. „Ég spurði þrjá Reykvík-
inga þessarar spurningar og fékk
þrjú mismunandi svör. Einn nefndi
Elliðaár, annar Reykjavíkurhöfn
og sá þriðji Hallgrímskirkju. Gam-
an væri að sjá hver 10–12 algeng-
ustu svörin við þessari spurningu
yrðu.“
Getum forðast mistök annarra
borga í málum innflytjenda
Richardson segir, að á meðal
þeirra verkefna sem nú er unnið að
í samstarfi borganna sé, hvernig
megi gera borgir barnvænlegri,
hvernig hægt sé að fá eldri borgara
til að taka í auknum mæli þátt í
samfélaginu, eftir að þeir setjast í
helgan stein og skoða hvernig Net-
ið getur nýst í stjórnkerfum borg-
anna, þannig að það nýtist sem
flestum íbúum. Meðal þeirra verk-
efna sem Reykjavík hefur sýnt
áhuga á að taka þátt í, er hvernig
hægt er að auka samfélagsvitund
íbúanna og hvernig best sé að taka
á móti innflytjendum. Richardson
segir þetta verkefni geta skipt
miklu máli hér á landi, þar sem Ís-
lendingar hafi mjög litla reynslu í
málaflokknum.
„Reykjavík getur ekki borið sig
saman við aðrar borgir á Íslandi og
því er þetta samstarf mjög mikil-
vægt. Á þennan hátt getið þið
byggt á reynslu annarra borga og
forðast mistök annarra.“
Reykjavík getur lært
af öðrum borgum
Michael Alan
Richardson, borg-
arframkvæmdastjóri
Christchurch á Nýja-
Sjálandi, sem er talin í
fremstu röð vel rek-
inna borga, hefur und-
anfarna daga miðlað
starfsmönnum
Reykjavíkurborgar af
reynslu sinni.
Morgunblaðið/Arnaldur
Mike Richardson telur að nauðsynlegt sé að þétta byggð í Reykjavík
og huga að málefnum er snúa að börnum og barnauppeldi.
ÞEIR óðu reykinn, þeir
Hólmgeir og Guðmundur,
sem vinna við breikkun
vegarins við Laugaland í
Hörgárdal, þegar ljósmynd-
ari Morgunblaðsins átti þar
leið hjá. Um er að ræða
tæplega fjögurra kílómetra
langan vegarkafla, frá
Krossastöðum á Þelamörk
að vegamótum Ólafsfjarð-
arvegar. Framkvæmdir
munu standa yfir í allt sum-
ar og er víst betra að
minna vegfarendur á að
sýna aðgát þegar þeir fara
þarna hjáen bæði þarf að
bora og sprengja fyrir nýja
veginum.
Borað og
sprengt við
Laugaland
í Hörgárdal
Morgunblaðið/RAX