Morgunblaðið - 31.05.2001, Síða 29

Morgunblaðið - 31.05.2001, Síða 29
ERLENT MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 31. MAÍ 2001 29 KOSNINGABARÁTTAN í Bret- landi tók á sig persónulegan blæ í gær þegar Verkamannaflokkurinn, sem er í ríkisstjórn, afhjúpaði vegg- spjald þar sem blandað var saman mynd úr fortíðinni – Margréti Thatcher – og aðvörun um framtíð- ina. Myndin á spjaldinu var í öllum dagblöðum Bretlands í gær, en á henni má sjá William Hague, leið- toga Íhaldsflokksins, og hafði vöru- merki Thatchers, hárgreiðslan, ver- ið sett inn á myndina. „Förum og kjósum – annars kom- ast þau að,“ segir í aðvöruninni á spjaldinu. Tilgangurinn með því er að sýna að Hague hafi ekki tekist að sleppa úr skugga forsætisráð- herrans fyrrverandi, ekki náð að móta sína eigin stefnu og veita flokknum sjálfur forystu. Thatcher var forsætisráðherra Bretlands frá 1979 til 1990. Talsmaður Tonys Blairs forsætis- ráðherra, Alastair Campbell, sagði að forysta, efnahagsmál og opinber þjónusta yrðu nú að þungamiðjunni í kosningabaráttu Verkamanna- flokksins. Hann gagnrýndi Hague fyrir að skorta framtíðarsýn og vera eini maðurinn í Bretlandi sem ekki vissi að tími Thathchers væri liðinn. Íhaldsmenn svöruðu fyrir sig með því að gagnrýna Verkamannaflokk- inn fyrir að falla í gryfju „persónu- dýrkunar“ með stanslausri upphafn- ingu á Blair. Mikil áhrif Thatchers Thatcher hefur haft mikil áhrif á baráttuna fyrir kosningarnar, sem fram fara 7. júní. Í síðustu viku, þegar hún kom fyrst fram, lýsti hún því yfir að hún myndi aldrei taka upp hinn sameiginlega gjaldmiðil Evrópusambandsríkja. Er þetta mun sterkari afstaða en opinber stefna Íhaldsflokksins varðandi evr- una. Þetta dró fram í dagsljósið óein- ingu innan Íhaldsflokksins um stefnuna í Evrópumálum og gaf Verkamannaflokknum líka kjörið tækifæri til að spyrja hver sé eig- inlega við stjórnvölinn. John Major, sem tók við forsætisráðherraemb- ættinu af Thatcher, sagði í gær að veggpsjaldið væri „bæði barnalegt og óheiðarlegt“. Blair hefði sagt að hann vildi einbeita sér að málefnum „og það væri svo sannarlega hress- andi ef hann myndi í rauninni gera það,“ sagði Major í viðtali við BBC. Thatcher sagði sjálf í viðtali, sem tekið var upp í fyrradag, að Íhalds- menn ættu enn möguleika á að sigra í kosningunum, þrátt fyrir að skoð- anakannanir sýni að þeir hafi allt að 19% minna fylgi en Verkamanna- flokkurinn. „Allar kosningar eru býsna erfiðar. Ég hef barist í þeim mörgum og tapað fáum ... Ég held að við eigum góða möguleika núna. Við höfum stórkostlegu fólki á að skipa.“ Reuters Kosningaveggspjald Verkamannaflokksins sett upp í London í gær. Kosningabaráttan í Bretlandi Thatcher skýtur upp kollinum London. AFP. SVISSNESKA lyfjafyrirtækið Hoff- mann La Roche tilkynnti í gær, að það hygðist segja upp 3.000 starfs- mönnum í lyfjaframleiðsludeildum sínum í nokkrum löndum. Fækkunin verður mest í Palo Alto og Nutley í Bandaríkjunum; í Wel- eyn í Englandi og í Basel í Sviss. Í fréttatilkynningu frá fyrirtækinu segir, að stefnt sé að því að auka söl- una og lækka kostnað með það fyrir augum að tryggja aukinn hagnað í framtíðinni. Fyrirhugað er, að fækk- un starfsmanna komi til fram- kvæmda á næstu tveimur eða þrem- ur árum. Hjá fyrirtækinu starfa alls um 65.000 manns víða um heim. Eins og kunnugt er hefur Hoff- mann La Roche verið í samstarfi við deCODE, móðurfélag Íslenskrar erfðagreiningar. Hoffmann La Roche fækkar fólki SAMKOMULAG náðist í gær í deilunni innan Evrópusambands- ins um tillögu Þjóðverja þess efn- is að í aðildarsamningum við Mið- og Austur-Evrópuríki yrði kveðið á um allt að sjö ára aðlögunar- tíma frjálsra flutninga vinnuafls milli þeirra og núverandi aðild- arríkja ESB. Þjóðverjar kröfðust slíks aðlög- unartíma þar sem þeir óttast að ódýrt vinnuafl streymi inn á vinnumarkað þeirra frá Austur- Evrópu. Spánverjar höfðu hins vegar lýst því yfir að þeir gætu ekki stutt tillöguna nema þeir fengju tryggingu fyrir því að fjár- styrkir ESB til fátækra héraða í Suður-Evrópu yrðu ekki skertir eftir að Mið- og Austur-Evrópu- ríkin fengju aðild að Evrópusam- bandinu. Spænskir embættis- menn sögðu þó í gær að þeir myndu styðja tillöguna og kváð- ust hafa fengið vilyrði fyrir því að hinar aðildarþjóðirnar tækju til athugunar ósk þeirra um að styrkir verði ekki skertir. Ólíklegt að sam- komulag náist um tíma- áætlun stækkunar Óttast hefur verið að deilan um aðlögunartímann stofni áformun- um um stækkun Evrópusam- bandsins í hættu. Mið- og Austur- Evrópuríki hafa lagst gegn tillögu Þjóðverja og segja að aðlögunar- tíminn sé of langur. Göran Persson, forsætisráð- herra Svíþjóðar, hóf í gær tíu daga ferð til höfuðborga ESB- ríkjanna til að undirbúa leiðtoga- fund sambandsins í Gautaborg 15.–16. júní. Persson vonast til þess að geta leyst ýmis deilumál sem tengjast áformunum um stækkun ESB, meðal annars deil- una um aðlögunartímann. Sænskir embættismenn sögðu þó í gær að ólíklegt væri að leiðtogar ESB-ríkjanna myndu samþykkja skýra áætlun um hvenær ríkin í Mið- og Austur- Evrópu fengju aðild að sam- bandinu. Ungverjar, Slóvenar, Tékkar og Pólverjar vonast til þess að fá inngöngu í sambandið árið 2004. Deila þýskra og spænskra stjórnvalda um stækkun Evrópusambandsins Spánverjar féllust á tillögu Þjóðverja um aðlögun Berlín, Stokkhólmi. Reuters, AFP.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.