Morgunblaðið - 31.05.2001, Qupperneq 44

Morgunblaðið - 31.05.2001, Qupperneq 44
UMRÆÐAN 44 FIMMTUDAGUR 31. MAÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ Velkomin í Laugardalinn í sumar! 5. júní-24. ágúst Verð kr. 12.500 Fyrir hverja er Sóknarskóli Ians Rush? Hann er fyrir stúlkur og drengi á öllum aldri. Leikmenn sem hafa gaman af því að skora mörk. Alla þá sem ekki leika í fremstu víglínu en vilja bæta leik sinn og ná valdi á sóknarknattspyrnu. Allir fá þjálfun við sitt hæfi, sama hvaða stöðu þeir leika. Af hverju ættu foreldrar að setja börn sín í Sóknarskóla Ians Rush og Þróttar? Umhverfi skólans er gott og öruggt og skólinn er skemmtilegur. Skólinn krefst aga af nemendum sínum en blæs þeim heilbrigði og íþróttamennsku í brjóst. Heilbrigð sál í hraustum líkama. Hvað býður Sóknarskóli Ians Rush og Þróttar nemendum? Kennslu og þjálfun í hæsta gæðaflokki. Nike bol og Nike bolta. Hápunktur sumarstarfs Sóknarskóla Ians Rush og Þróttar er úrvalsdeildin. Einnar viku námskeið sem Ian Rush stýrir sjálfur. Námskeiðið er ætlað ungum knattspyrnumönnum, stelpum og strákum, sem vilja læra enn meira í fótbolta. Lærið af æfingum sem Ian Rush hefur notað á ferli sínum með Liverpool, Juventus, Leeds, Newcastle, Wrexham, Chester og velska landsliðinu. Verð kr.12.5 0 Hádegismatur innifalinn. SKRÁNING og upplýsingar frá kl. 10-16 alla virka daga í síma 580 5900. Ath. takmarkaður fjöldi á hvert námskeið. ÞAÐ er löngu sannað hve skað- legar reykingar eru heilsu. Mun styttra er síðan farið var að ræða um skaðsemi óbeinna reykinga, en ýmislegt er þegar sannað í þeim efnum. Börn sem búa við óbeinar reykingar fá frekar efri loftvega- sýkingar, eyrnabólgur og astma og vísbendingar eru um aukna tíðni illkynja sjúkdóma hjá þeim. Sann- að er að óbeinar reykingar auka líkur á bæði lungnakrabbameini og kransæðasjúkdómum. Þrátt fyrir þetta vantar mikið á að tryggður sé réttur fólks til að anda að sér reyklausu lofti. Oft er talað um að verið sé að brjóta mannréttindi á reykingafólki sem ekki fær að reykja hvar sem er. Þetta er öfugsnúið í ljósi þess að einungis 25% fullorðinna Íslend- inga reykja en 75% gera það ekki. Gagnvart börnum er óréttlætið jafnvel enn augljósara og mörg þeirra búa enn við óbeinar reyk- ingar á heimili og í fjölskyldubíl. Ef skoðaðar eru reykingar allra landsmanna óháð aldri er hlutfall reykinga án efa talsvert undir 20%. Fæst veitingahús bjóða raun- verulega reyklaust svæði og oftar en ekki er einungis um sýndar- mennsku að ræða þegar boðið er reyklaust borð. Þannig eru borð hlið við hlið, annað merkt reyk- laust en við hitt má reykja. Að sjálfsögðu mengar reykurinn allt loft í viðkomandi rými. Þetta er því rétt eins og að merkja í einu horni sundlaugar „Hér og bara hér má pissa og kúka í laugina“. Lítill hluti hótelherbergja er reyklaus og á flestum ef ekki öllum börum, kaffihúsum og skemmtistöðum er reykt um allt. Starfsfólk á þessum síðastnefndu stöðum býr við mikla reykmengun í vinnutíma sínum og þar eru fótum troðin ýmis ákvæði vinnuverndarlaga, sem annars gilda á vinnustöðum. Sá sem vinn- ur stóran hluta starfsævi sinnar á slíkum stað er í aukinni hættu á að fá tóbakstengdan sjúkdóm, sem alltaf er alvarlegur og oft ban- vænn. Þarna vinna m.a. þungaðar konur og þær þeirra sem ekki reykja þurfa nauðugar að útsetja börn sín fyrir tóbaksreyk. Hann er fóstri svo skaðlegur að ekkert eitt gæti minnkað fóstur- og nýbura- dauða á Íslandi jafnmikið og ef það tækist að koma í veg fyrir að þungaðar konur útsetji sig eða verði útsettar fyrir honum. Nokkr- ir þekktir íslenskir skemmtikraft- ar sem ekki reyktu hafa dáið úr sjúkdómum sem trúlega voru af völdum langvinnra óbeinna reyk- inga í vinnutíma þeirra. Í nýjum tóbaksvarnalögum sem samþykkt voru á Alþingi fyrr í þessum mánuði eru vissar fram- farir í þá átt að tryggja réttinn til reykleysis. Þar segir í annrri máls- grein: „Virða skal rétt hvers manns til að þurfa ekki að anda að sér lofti sem er mengað af tóbaks- reyk af völdum annarra.“ Í beinu framhaldi er síðan sagt: „Þeir sem bera ábyrgð á barni skulu stuðla að því að það njóti réttar skv. 2. mgr., einnig þar sem reykingar eru ekki bannaðar.“ Einnig eru hert ákvæði varðandi einmitt veitngahús, þannig að nú skal meirihluti rýmis vera reyklaus og það einnig tryggt að aðgangur að því rými liggi ekki um reykinga- svæði. Miðað við það hvernig því miður allt of mörg veitingahús, að ekki sé talað um kaffihús, hafa staðið sig fram að þessu er ástæða til að fólk veiti þeim aðhald og gangi eftir rétti sínum til reykleys- is. Ég skora á landsmenn, bæði þá sem reykja og hina sem ekki gera það, að skera upp herör gegn óbeinum reykingum. Sjónarmið hvorra tveggja geta farið saman í þessum efnum. Reykingamenn ekkert síður en annað fólk eru til- litssamir og kæra sig ekki um að menga loft fyrir öðrum, allra síst viðkvæmu lífi eins og börnum og þunguðum konum. Fólk í dag, hvort sem það reykir eða ekki, vill að sú þjónusta sem það kaupir sé góð. Því þarf að gera kröfur til þeirra aðila sem selja okkur þjón- ustu eins og á veitingahúsum, kaffihúsum, börum og skemmti- stöðum um að koma til móts við mismunandi þarfir. Markaðurinn krefst þess að þeim sem ekki reykja, væntanlega >80% við- skiptavina, bjóðist algjörlega reyk- laus aðstaða og samtímis bjóðist hinum 20% sem vilja reykja að- staða til að gera það, án þess að búa við augngotur eða aðfinnslur eins og oft er í dag. Viljir þú raun- verulega reyklaust svæði, biddu þá um það og mundu að tryggja rétt barnanna sem kannski eru með í för. Ef slíkt svæði er ekki til má reyna að fara á næsta veitinga- eða kaffihús. Ástandið nú er víða þannig að það er hliðstætt því að það viðgengist að ákveðinn hópur fólks gerði þarfir sínar í sameig- inleg vatnsból okkar og að enginn hefði neitt við það að athuga. Hvort tveggja er óhollt og getur valdið dauða, að borða saurgerla og anda að sér tóbaksreyk. Eigum við rétt á reyklausu lofti? Pétur Heimisson Reykingar Ég skora á landsmenn, bæði þá sem reykja og hina sem ekki gera það, segir Pétur Heimisson, að skera upp herör gegn óbeinum reykingum. Höfundur er læknir á Egilsstöðum og meðlimur í félagi Lækna gegn tóbaki.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.