Morgunblaðið - 31.05.2001, Side 49

Morgunblaðið - 31.05.2001, Side 49
UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 31. MAÍ 2001 49 Hefur þú kynnt þér nýju HYDRADERMIE meðferðina? Leitaðu svara hjá Guinot rágjöfum. bjóða í krafti smæðarinnar. Skipulag á Garðaholti, sem liggur að Bessastaðahreppi, hefur líka gjörbreyst að undanförnu. Þar er nú gert ráð fyrir 7–8000 íbúa byggð með skólum, leikskólum, heilsugæslu og annarri þjónustu sem íbúðarkjarna af þeirri stærð fylgir. Það er mitt mat, að m.a. vegna þessara staðreynda sé rétt að leita álits hreppsbúa núna á því hvort fara eigi í formlegar sameiningarviðræð- ur við Garðabæ, þ.e. hvort kjósendur sjálfir vilji að búinn verði til kostur fyrir þá til að kjósa um. Við þá vinnu yrði framtíðin kortlögð í stærra sveitarfélagi og yrði þá horft til allra helstu þátta sem skipta íbúa Bessa- staðahrepps máli og felast í form- legri sameiningartillögu. Á þessum tímapunkti er því með formlegri könnun eingöngu verið að leita álits íbúa Bessastaðahrepps á því, hvort þeir vilji að hreppsnefnd eigi að fara í þetta formlega ferli með Garðabæ eða ekki. Með því að svara þeirri spurningu játandi eða neitandi er fólk ekki að segja já eða nei við sameiningu sveitarfélaganna tveggja, ef um hana yrði kosið síðar. Könnunin 6.–12. júní – viðhorfsrannsókn Af þessu tilefni hefur hreppsnefnd Bessastaðahrepps látið útbúa kynn- ingarbækling með helstu lykiltölum úr sveitarfélögunum tveimur, Bessa- staðahreppi og Garðabæ, auk þess sem ferill sameiningarmálsins síð- astliðið ár er rakinn og skýrt frá því hvað felst í því að fara í formlegt sameiningarferli og búa til tillögu að sameiningu sveitarfélaga. Bæklingur þessi, sem er mjög vandaður og hlutlaus á allan hátt, var unninn af sveitarstjóra Bessa- staðahrepps og síðan sendur hverj- um kosningabærum íbúa sveitar- félagsins til kynningar. Gallup hefur tekið að sér um- rædda viðhorfsrannsókn fyrir hreppsnefndina og mun spyrja sér- hvern kosningabæran íbúa símleiðis í vikunni 6.–12. júní að því hvort hann vilji láta vinna að formlegri at- hugun málsins eða hvort hann vilji það ekki. Með þessu er á eins heiðarlegan og hlutlausan hátt og unnt er verið að leita eftir áliti íbúa Bessastaða- hrepps til framtíðarinnar, þar sem hverjum og einum er í sjálfsvald sett hvað hann sér fyrir sér. Skoðanir okkar sjálfstæðismanna í meirihluta hreppsnefndar Bessa- staðahrepps liggja ef til vill ekki saman um hversu víðtæk sameining sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu á að vera eða hvort hún á yfir höfuð að verða. Það er þó kristalklárt með- al okkar, að við viljum fá fram af- stöðu íbúanna um málið, án þess að leggja þeim skoðanir til. Því er efnt til þessarar könnunar nú og ég bið fólk að forðast að lesa eitthvað annað út úr áformum hreppsnefndar Bessastaðahrepps. Samstarf Bessastaðahrepps við Garðabæ, þennan næsta nágranna okkar, hefur alltaf verið með þeim hætti að hvergi ber skugga á, þótt menn kunni að hafa á því mismun- andi skoðanir sem þar er gert og hef- ur verið gert. Þín skoðun skiptir máli! Í kvöld klukkan 20:30 verður efnt til borgarafundar í hátíðarsal íþróttahúss Bessastaðahrepps. Þar mun Sigfús Jónsson, formaður fyrr- um sveitarfélaganefndar, kynna sameiningarmál sveitarfélaga al- mennt, sveitarstjóri Bessastaða- hrepps mun kynna fyrirhugaða skoðanakönnun og um hvað formleg athugun á sameiningu sveitarfélaga snýst og hreppsnefndarmenn munu tjá sig um málið og sitja fyrir svör- um. Ágæti íbúi Bessastaðahrepps. Ég hvet þig til að mæta og kynna þér málið sjálfur sem gaumgæfileg- ast og taka síðan afstöðu í skoðana- könnuninni, sem Gallup mun fram- kvæma fyrir hreppsnefndina á tímabilinu 6.–12. júní nk. Sameining Með þessu er á eins heiðarlegan og hlut- lausan hátt og unnt er, segir Soffía Sæmunds- dóttir, verið að leita eft- ir áliti íbúa Bessa- staðahrepps til framtíðarinnar. Höfundur er myndlistarmaður og fulltrúi sjálfstæðisfélagsins í hrepps- nefnd Bessastaðahrepps. GAGNASAFN MORGUNBLAÐSINS mbl.is mbl.isFRÉTTIR

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.