Morgunblaðið - 22.09.2001, Page 2
FRÉTTIR
2 LAUGARDAGUR 22. SEPTEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ
Fylgstu
með
nýjustu
fréttum
www.mbl.isMilan Stefán Jankovic spáir í
úrslitaleik ÍBV og ÍA / B3
Kvennasveit Kjalar til Frakk-
lands í EM í golfi / B1
4 SÍÐUR16 SÍÐUR
Sérblöð í dag
Á LAUGARDÖGUM L a u g a r d a g u r22.
s e p t e m b e r ˜ 2 0 0 1
LÍTIÐ sem ekkert miðaði í sam-
komulagsátt í kjaradeilu sjúkraliða
og viðsemjenda þeirra, ríkisins, sveit-
arfélaga og sjálfseignarstofnana, á
fundum samningsaðila í gær. Náist
ekki samkomulag um nýjan kjara-
samning fyrir 1. október nk. munu um
700 sjúkraliðar sem starfa hjá sjúkra-
húsum og heilsugæslustöðvum um
land allt og tveimur sjálfseignarstofn-
unum, Grund og Ási í Hveragerði,
hefja þrjú þriggja daga verkföll um
mánaðamótin auk þess sem uppsagn-
ir um hundrað sjúkraliða hjá ríkinu
munu taka gildi. Magnús Pétursson,
forstjóri Landspítala – háskóla-
sjúkrahúss, kveðst þó í samtali við
Morgunblaðið vongóður um að samn-
ingar náist áður en boðaðar verkfalls-
aðgerðir hefjast. „Ég er mjög bjart-
sýnn á að samningar náist fyrir þann
tíma,“ segir hann. „Ég held að það sé
mjög sterkur vilji í þá átt hjá stjórn-
endum spítalanna sem og hjá for-
manni Sjúkraliðafélags Íslands.“
Aðspurður segir Magnús að komi
til verkfalls muni það koma verst nið-
ur á starfsemi skurð- og lyflækninga-
deilda Landspítalans – háskóla-
sjúkrahúss. „Ef ekki sér til lands í
þessari deilu fyrir miðja næstu viku
verðum við að fara að semja starf-
semina að því.“
Mikilvægt að
deilan leysist
Magnús ítrekar þó að hann treysti
því að deilan leysist áður en grípa
þurfi til slíkra aðgerða. „Það er mik-
ilvægt fyrir spítalana að deilan leys-
ist. Um er að ræða mikilvægan hóp
starfsmanna fyrir spítalana og viljum
við leggja mikið á okkur til þess að
ekki þurfi að koma til verkfalla.“ Að-
spurður tekur hann þó fram að báðir
aðilar þurfi að láta af kröfum til að
samningar náist.
Kristín Á. Guðmundsdóttir, for-
maður Sjúkraliðafélags Íslands, sagði
í samtali við Morgunblaðið síðdegis í
gær að lítið sem ekkert hefði miðað í
samkomulagsátt á fundum samninga-
nefnda félagsins og samninganefnda
ríkisins, launanefndar sveitarfélaga
og fulltrúa sjálfseignarstofnana á
fundum þeirra í gær. Hún segir að
boðaðar verkfallsaðgerðir og upp-
sagnir muni ná til samtals um 800
sjúkraliða en um 1.500 félagar eru í
Sjúkraliðafélagi Íslands. Aðspurð
segir hún að enn sé ekki búið að fara
yfir undanþágubeiðnir frá stofnunum
sem lenda í verkfallsaðgerðum og því
sé ekki vitað hve margir af þeim
sjúkraliðum sem boðað hafa verkfall
muni fá undanþágu til að starfa í
verkfallinu. „Undanþágunefndin
vinnur að því þessa dagana.“
Kristín segir að enn beri mikið í
milli í kjaradeilunni en aðspurð segir
hún að sjúkraliðar hafi frá árinu 1994
miðað launakjör sín við kjör lögreglu-
manna og tollvarða. Segir hún að
sjúkraliðar hafi dregist nokkuð aftur
úr þessum stéttum auk þess sem þeir
hafi ekki notið sama launaskriðs og
aðrar heilbrigðisstéttir að undan-
förnu.
Næstu fundir deilenda í kjaradeil-
unni hafa verið boðaðir á mánudag og
þriðjudag.
Ekkert miðar enn
í samkomulagsátt
VASAHNÍFUR og myndir af
Osama bin Laden, Hitler og Mussol-
ini fundust í farangri spænsks
manns, sem kom með flugvél frá
Grænlandi til Reykjavíkur á fimmtu-
dag. Að sögn Jóns Karls Ólafssonar,
framkvæmdastjóra Flugfélags Ís-
lands, þótti maðurinn grunsamlegur
auk þess sem lögregla í Grænlandi
hafði haft afskipti af honum og var
því ákveðið að leita í farangri manns-
ins áður en hann færi um borð í vél-
ina.
Sérvitringur
Búið var að taka hnífinn af mann-
inum auk þess sem hann hafði ekki
aðgang að neinum handfarangri en
allur farangur hans var settur í hólf.
Lögreglan í Reykjavík tók á móti
manninum við komuna til Reykja-
víkur og segir Jón Karl að í ljós hafi
komið að maðurinn væri „spænskur
sérvitringur“.
Að sögn Jóns Karls fannst þó ein-
hverjum farþegum uppákoman
óþægileg.
Vasahnífur
og myndir
tekin af
Spánverja
HÆSTIRÉTTUR hefur dæmt
skipstjóra til að greiða 400 þúsund
krónur í sekt fyrir fiskveiðibrot
með því að hafa lagt úr höfn til
fiskveiða á fiskiskipi, sem hafði
leyfi til veiða með dagatakmörk-
unum, án þess að tilkynna Fiski-
stofu um upphaf veiðiferðarinnar.
Var dómur Héraðsdóms Vest-
fjarða frá 26. apríl sl. þar með
staðfestur.
Bar því við að ekki hefði ver-
ið unnt að ná símasambandi
Skipstjórinn sætti ákæru ríkis-
saksóknara fyrir fiskveiðibrotið og
bar því við að ekki hefði verið unnt
að ná símasambandi á þeim stað
þar sem hann lagði úr höfn.
Hæstiréttur taldi hins vegar að
ákærða hefði borið að sjá svo um
að honum væri fært að tilkynna
um upphaf veiðiferðar sinnar er
hann lét úr höfn í umrætt sinn.
Taldi Hæstiréttur að það væri á
ábyrgð ákærða að ásetja sér að
halda úr höfn án þess að fullnægja
skýlausri skyldu sinni.
Dóminn kváðu upp hæstarétt-
ardómararnir Haraldur Henrýs-
son, Ingibjörg Benediktsdóttir og
Markús Sigurbjörnsson. Verjandi
ákærða var Jakob R. Möller hrl.
en Bragi Steinarsson vararíkissak-
sóknari sótti málið.
Tilkynnti ekki upphaf
veiðiferðar
Dæmdur til
að greiða
400 þús.
króna sekt
Sérútbúinn
gripaflutn-
ingavagn
Morgunblaðið/Ásdís
Ingólfur Helgason bílstjóri t.v. ásamt Herluf Nelsen, fyrrverandi eiganda vagnsins.
HINGAÐ til lands hefur verið flutt-
ur allsérstakur vagn. Vagninum,
sem getur verið einnar, tveggja eða
þriggja hæða, allt eftir þörfum, er
ætlað það hlutverk að flytja skepn-
ur og hefur sláturhús Kaupfélags
Skagfirðinga keypt bílinn af Herluf
Nelsen sem flutti hann inn til lands-
ins.
Vagninn er sérútbúinn til flutn-
inga á skepnum, er um 13,5 metrar
að lengd og getur flutt um 400 lömb
eða 80 nautgripi í einu. Brynning-
artæki, loftræstikerfi og mögu-
leikar á að skipta vagninum í hólf
er meðal þess búnaðar sem miðast
að því að sem best fari um skepn-
urnar á ferðalagi þeirra á leið til
slátrunar.
Gólfin í vagninum eru stillanleg
og því er hægt að hafa vagninn ým-
ist einnar, tveggja eða þriggja
hæða eftir því hvaða dýrategund er
verið að flytja og hversu margar
skepnurnar eru.
Vagninn var áður notaður til að
flytja dýr milli Austurríkis og Spán-
ar og var hann margoft sótthreins-
aður og þrifinn áður en leyfi fékkst
til að flytja hann hingað til lands.
HÉRAÐSDÓMUR Reykjavíkur úr-
skurðaði tvo menn um tvítugt í fjög-
urra vikna gæsluvarðhald í gær, að
kröfu lögreglunnar í Reykjavík.
Mennirnir voru handteknir eftir inn-
brot í húsnæði Vegagerðarinnar við
Borgartún aðfaranótt föstudags.
Innbrotsþjófarnir komust inn í húsið
af vinnupalli á fjórðu hæð og höfðu á
brott með sér tækjabúnað og pen-
inga. Mennirnir eru grunaðir um
fleiri innbrot og þjófnaði. Annar
mannanna er á skilorði. Við húsleitir
lögreglu í kjölfar handtöku mann-
anna, fundust munir, sem þeir verða
látnir gera grein fyrir.
Þá handtók lögreglan síðdegis í
gær þriðja manninn, sem talinn er
tengjast málunum.
Dæmdir í
fjögurra
vikna gæslu-
varðhald
DÓMARAFUNDUR í Hæstarétti hefur hafnað
kröfu Ástráðs Haraldssonar, lögmanns Alþýðu-
sambands Íslands, um að allir dómarar Hæstarétt-
ar víki sæti í máli sem ASÍ höfðaði gegn íslenska
ríkinu. Málið varðar lögmæti laga sem stjórnvöld
settu á verkfall sjómanna fyrr á þessu ári.
Alþingi setti lög um miðjan maí sem bundu enda
á verkfall sjómanna. Samkvæmt lögunum átti
Hæstiréttur að tilnefna þrjá menn í gerðardóm
sem tæki ákvarðanir um kjaramál sjómanna. Dóm-
urinn var skipaður í júní og kvað hann upp úrskurð
mánuði síðar. ASÍ höfðaði mál á hendur ríkinu og
krafðist þess m.a. að lögin næðu ekki til þriggja að-
ildarfélaga sem ekki áttu í verkfallsátökum og að
viðurkennt yrði að lögin fælu í sér ólögmæta skerð-
ingu á samningsfrelsi og verkfallsrétti þeirra fé-
laga sem voru í verkfalli. Héraðsdómur Reykjavík-
ur hafnaði öllum kröfunum. Málinu var hins vegar
áfrýjað til Hæstaréttar. Lögmaður ASÍ taldi að
með skipan Hæstaréttar á mönnum í gerðardóm
samkvæmt lögum sem um er deilt í málinu, hefðu
dómendur réttarins komið að framkvæmd laganna
og það leiddi til vanhæfis í skilningi einkamálalaga.
Dómarafundur í Hæstirrétti hafnaði þessum rök-
um.
Dómarar sem dæma munu í málinu eru hæsta-
réttardómararnir Garðar Gíslason, Guðrún Er-
lendsdóttir, Gunnlaugur Claessen, Hrafn Braga-
son, Markús Sigurbjörnsson og Pétur Kr.
Hafstein.
Kröfu Alþýðusambandsins um
að dómarar víki sæti var hafnað
♦ ♦ ♦