Morgunblaðið - 22.09.2001, Side 19
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 22. SEPTEMBER 2001 19
FYRSTA áfanga í einkavæðingu
Landssímans lauk í gær þegar sölu
lauk á 16% heildarhlutafjár fyrirtæk-
isins til starfsmanna þess og almenn-
ings og opnuð voru tilboð frá fagfjár-
festum í 8% hlutafjárins. Alls seldist
hlutafé fyrir um 2 milljarða af þeim
tæpu 10 milljörðum að kaupverði sem
í boði voru eða samtals um 5% af
heildarhlutafé Símans og er það ekki
nóg til að hægt sé að skrá fyrirtækið á
Verðbréfaþingi Íslands.
Tilboð í tilboðshluta hlutafjárút-
boðs Símans voru opnuð í gær að við-
stöddum bjóðendum. Alls bárust 19
tilboð frá 18 aðilum, að heildarnafn-
verði fyrir tæplega 152,3 milljónir
króna en að heildarkaupverði fyrir
um 879,2 milljónir króna. Alls hljóða
tilboðin upp á 2,16% af heildarhlutafé
Símans. Þess ber þó að geta að eftir
er að kanna hvort tvö tilboðanna eru
gild. Hæsta tilboðið í tilboðssölunni
hljóðaði upp á gengið 5,815 en það var
frá Hótel Egilsstöðum ehf. sem
skráði sig fyrir 50 milljóna króna hlut
að nafnvirði. Enn er hins vegar ekki
ljóst hvort tilboðið er gilt, vegna þess
að það var óundirritað. Lægsta gengi
í tilboðum fagfjárfesta var 5,70 en
vegið meðalgengi tilboðanna var
5,773.
Alls skráðu sig um 2.600 manns í
útboði á 16% hlutafjár til starfsmanna
Landssímans og almennings, fyrir
um 1.200 milljónum króna. Heildar-
þátttakan í þessum fyrsta hluta út-
boðsins er því um 2 milljarðar króna.
Að lokinni almennri sölu og tilboðs-
sölu verða 25% af hlutafé Landssím-
ans seld kjölfestufjárfesti.
Samkvæmt skilyrðum Verðbréfa-
þings Íslands þurfti að selja 15% af
hlutabréfum Landssímans í almennri
sölu til að félagið fengi skráningu á
þinginu til að tryggja dreifða eignar-
aðild. Aðeins seldust hins vegar um
5% hlutafjársins í almenna útboðinu
og því fær Landssíminn ekki skrán-
ingu á Verðbréfaþingi Íslands. Þann-
ig er ljóst að á þriðja þúsund manns
eiga nú hlutabréf í óskráðu félagi.
Ekki verjanlegt að selja
Landssímann á útsölu
Hreinn Loftsson, formaður fram-
kvæmdanefndar um einkavæðingu,
segir það hafa komið sér á óvart
hversu fáir lífeyrissjóðir og stærri
sjóðir tóku þátt í útboðinu og hversu
þeir sem tóku þátt í því hafi skráð sig
fyrir litlum hlutum. „Ég bjóst við að
fleiri myndu nýta sér þetta tækifæri.
Menn eru augljóslega varir um sig,
enda er markaðurinn greinilega í
lægð. Það er hins vegar engan bilbug
á okkur að finna. Það liggur fyrir að
það er verulegur áhugi fyrir þátttöku
í kjölfestusölunni og það skiptir
miklu. Nú er þessi áfangi að baki, al-
menningur og fagfjárfestar hafa
fengið tækifæri til að taka þátt í út-
boðinu og nú liggur niðurstaðan fyrir.
Næsti áfangi hefst á mánudag en þá
kemur í ljós hverjir vilja taka þátt í
kjölfestufjárfestasölunni og einka-
væðing Landssímans heldur áfram
eins og ekkert hafi í skorist.“
Hreinn segir dræma þátttöku í út-
boðinu alls ekki sýna að verðlagning
Landssímans hafi verið of há. „Það
hafa ýmir viðurkennt að verðmatið sé
nærri lagi. Margir hafa hins vegar
kallað eftir verðlækkun vegna að-
stæðna á markaði. Það er ekki verj-
anlegt fyrir ríkissjóð að selja Lands-
símann á útsölu. Sennilega tekur það
lengri tíma að selja fyrirtækið en ætl-
að var í fyrstu.“
Hreinn segir að áfram verði unnið
að því að fá Landssímann skráðan á
Verðbréfaþing Íslands. Hann bendir
á að fá og lág tilboð hafi borist í útboði
Áburðarverksmiðjunnar fyrir fjórum
árum sem síðan hafi verið seld á góðu
þegar tækifæri gafst. „Við munum
halda áfram að selja hlut í Landssím-
anum og hugsanlega hefst þriðji
áfangi sölunnar fyrr en ætlað var,
jafnvel strax í kjölfar kjölfestusölunn-
ar sem átti að hefjast næsta haust.
Það er hluti af áhættu sem menn taka
í almennu útboði af þessu tagi að ekki
náist þau skilyrði sem sett hafa verið
fyrir skráningu. Þetta er hins vegar
tímabundið ástand að mínu mati.
Landssíminn er örugg og góð eign,
fyrirtækið er verðmætt og við mun-
um halda áfram að reyna að tryggja
að það nái skráningu,“ segir Hreinn.
Útboðið hefði ekki getað
verið á verri tíma
Þórarinn V. Þórarinsson, forstjóri
Landssímans, segir dræma þátttöku í
útboðinu ekki hafa komið sér veru-
lega óvart, þótt vissulega sé hún treg-
ari en hann átti von á. „Við höfðum
skynjað mikla óánægju með verðið á
fyrirtækinu, bæði meðal stofnana-
fjárfesta og almennings. Við skynjuð-
um það hins vegar í kynningarstarf-
inu og á viðbrögðum almennt að
styrkur Landssímans er óumdeildur
og því endurspeglar dræm þátttaka
ekki brostnar væntingar gagnvart
fyrirtækinu. Þetta er öllu heldur
gagnrýni markaðarins á verðlagn-
inguna, því þótt verðmæti fyrirtæk-
isins sé mikið er verðlagning hluta-
bréfa ekki endilega í samræmi við
það. Það hefði sennilega ekki verið
hægt að finna verri tíma til að fara
með fyrirtækið á markað en einmitt
núna, allir verðbréfamarkaðir heims-
ins hafa fallið um tugi prósenta og það
gerði þessa sölu fremur óaðlaðandi út
frá verðlagningunni. Meginatriðið er
þó það að ríkið er ekki lengur eini eig-
andi Landssímans, félagið er orðið al-
menningshlutafélag þótt það muni
taka einhvern tíma að fá það skráð.
Næsta viðfangsefni er að finna kjöl-
festufjárfesti fyrir félagið en það hafa
komið fram miklar efasemdir meðal
stofnanafjárfesta á að ekki lægi fyrir
hver myndi taka við stefnumörkun fé-
lagsins, með stjórnarmeirihluta og
sem kjölfestufjárfestir. Ég trúi því að
þegar þeirri óvissu verður létt af að
þá komi þessi mál til endurmats hjá
fjárfestum,“ segir Þórarinn.
Undirbúningur
til fyrirmyndar
Guðmundur Guðmundsson, for-
stöðumaður fyrirtækjaráðgjafar
Búnaðarbanka Íslands sem annaðist
útboðið, segir að markaðir séu mjög
þungir og erfiðir um þessar mundir.
„Það er ljóst að fjárfestar eru hikandi
og hafa fallið frá því að taka þátt í út-
boðinu vegna þeirrar óvissu sem nú
ríkir á markaðnum. Við teljum eftir
sem áður að Landssíminn standi und-
ir því verði sem í boði var. Ég tel að
allur undirbúningur útboðsins hafi
verið til fyrirmyndar og þar er mikil
vinna að baki,“ segir Guðmundur.
Aðeins seldust um 5% hlutabréfa í fyrsta áfanga einkavæðingar Landssímans
Fær ekki
skráningu
á VÞÍ
Morgunblaðið/Jim Smart
Gunnar Ragnars, stjórnarmaður í Landssímanum, Þórarinn V. Þórarins-
son, forstjóri Landssímans, Guðmundur Guðmundsson, forstöðumaður fyr-
irtækjaráðgjafar Búnaðarbankans, og Friðrik Pálsson, stjórnarformaður
Landssímans, við opnun tilboða í tilboðshluta útboðs Símans í gær.