Morgunblaðið - 22.09.2001, Side 23

Morgunblaðið - 22.09.2001, Side 23
ERLENT MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 22. SEPTEMBER 2001 23 ÞING Rússlands, Dúman, hefur samþykkt umdeilt lagafrumvarp, sem miðar að því að innleiða tak- markaða einkaeign á landi þar eystra. Ráðamenn í Moskvu hafa síð- ustu tíu árin reynt að koma þessari lagabreytingu á en án árangurs. Nú er þess vænst að efri deild þingsins samþykki lögin. Algjör ringulreið hefur einkennt eignarrétt á landi í Rússlandi síðustu árin. Þessu hefur m.a. fylgt mikil spilling auk þess sem erlendir fjár- festar hafa hræðst Rússland af þess- um sökum. Lögin taka til sölu á landi sem ekki er nýtt til landbúnaðar. Kommúnistar hafa ákaft barist gegn þeim með þeim rökum að lögunum nýju fylgi að land komist í hendur út- lendinga og glæpamanna. Rússnesk lög um einkarétt á landi Moskvu. AP. ARNOLD Rüütel var á sérstökum kjörfundi eistneska þingsins í gær kjörinn arftaki Lennarts Meri í emb- ætti forseta Eistlands. Kom sigur Rüütels nokkuð á óvart, en hann er fyrrverandi kommúnisti og var á sovéttímanum forseti eistneska ráð- stjórnarþingsins. Rüütel hafði sigur í annarri um- ferð kosninganna á keppinautnum Toomas Savi, sem er núverandi þingforseti og kemur úr hinum borg- aralega Umbótaflokki. Rüütel fékk 186 atkvæði, tveimur fleiri en nauð- synleg voru til að hljóta tilskilinn meirihluta á kjörfundi þar sem sátu hinir 101 meðlimir eistneska þings- ins og 266 fulltrúar sveitarstjórna landsins. Savi hlaut 155 atkvæði í lokaumferðinni. Tvö atkvæði voru ógild, 23 auð og einn kjörmaður var fjarverandi vegna veikinda. Vinsæll til sveita Hinn hvíthærði Rüütel, sem er 73 ára að aldri, er umdeildur meðal þjóðar sinnar vegna þess ferils sem hann átti sem stjórnmálamaður á sovéttímanum. Þó er langt síðan hann sneri opinberlega baki við kommúnismanum og gegndi forystu- hlutverki í baráttu Eista fyrir því að endurheimta sjálfstæði sitt frá Moskvuvaldinu. Fyrir fáeinum vikum var Rüütel ekki spáð velgengni í kosningunum, en hann er vinsæll meðal almennra borgara í Eistlandi, einkum í dreif- býli, en þar líta margir á hann sem heiðvirðan mann sem ekki lætur draga sig út í pólitískt baktjalda- makk. Margir kjörfundarfulltrúa komu úr dreifbýlissveitarfélögum. Rüütel segist styðja markmið Eistlands um að fá aðild að Evrópu- sambandinu og NATO, en hann og ýmsir aðrir vinstrisinnaðir stjórn- málamenn hafa kvartað yfir því að of miklu púðri sé eytt í aðlögunina að Evrópusamstarfinu en félagslegum vandamálum heima fyrir ekki sinnt sem skyldi. Síðara fjögurra ára kjörtímabil „Íslandsvinarins“ Lennarts Meris rennur út hinn 7. október nk., en ákvæði stjórnarskrárinnar hindruðu að hann gæti gefið kost á sér áfram. Meri hafði fyrir kosningarnar ekki dregið dul á andúð sína á þeim mögu- leika að fyrrverandi kommúnisti yrði arftaki sinn. Hinn 367 manna kjörfundur var kallaður saman í gær eftir að þinginu mistókst að fá niðurstöðu í forseta- kjör í fyrra mánuði. Fjórir frambjóð- endur voru í kjöri í gær og féllu tveir þeirra úr leik eftir fyrri umferð at- kvæðagreiðslunnar. Í síðari umferð- inni stóð valið aðeins á milli Rüutels og Savis. Nýr forseti kjörinn í Eistlandi Rüütel tekur við af Meri Tallinn. AFP. BREZKA stjórnin ákvað í gær að bregða aftur á sama ráð og fyrir sex vikum til að halda lífinu í sáttaum- leitunum á Norður-Írlandi milli kaþ- ólskra lýðveldissinna og sambands- sinnaðra mótmælenda með því að leysa n-írsku heimastjórina upp í einn sólarhring, en með því hafa deil- endur sex vikur til viðbótar til að leysa deiluna um afvopnun Írska lýð- veldishersins (IRA). Nýi fresturinn rennur út 3. nóvember. Norður-Írland Nýr frestur Belfast. AP. MIKIL sprenging, sem líklegast þykir að hafi verið slys, rústaði í gær áburðarverksmiðju í borginni Toulouse í Suðvestur-Frakklandi. Átján létu lífið, 15 til 20 var saknað og um 650 manns voru lagðir inn á sjúkrahús, að því er talsmenn yf- irvalda greindu frá. Hér bera slökkviliðsmenn slasaðan verka- mann á börum úr rústum verk- smiðjunnar. Afl sprengingarinnar var það mikið að brot úr gluggum verk- smiðjubyggingarinnar þeyttust marga kílómetra frá henni og þykkur rauðleitur mengunarreyk- ur lagðist yfir borgina. Verksmiðjusvæðið var lokað af og nærliggjandi skólar, sjúkrahús og önnur hús rýmd. Var borgar- búum ráðlagt að halda kyrru fyrir heima hjá sér í öryggisskyni. AP Sprenging í verk- smiðju í Toulouse

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.