Morgunblaðið - 22.09.2001, Blaðsíða 45
KIRKJUSTARF
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 22. SEPTEMBER 2001 45
Kvöldmessa pró-
fastsdæmisins
í Grensáskirkju
ANNAÐ kvöld, sunnudagskvöldið
23. sept., verður kvöldmessa í
Grensáskirkju og hefst hún kl. 20.
Sr. María Ágústsdóttir héraðs-
prestur prédikar og þjónar fyrir
altari ásamt sóknarpresti Grensás-
safnaðar, sr. Ólafi Jóhannssyni. Við
útdeilingu aðstoða prestur heyrn-
arlausra, sr. Miyako Þórðarson, og
skóladjákni KSH, Ragnhildur Ás-
geirsdóttir. Þessi messa er sameig-
inleg messa allra safnaðanna í
Reykjavíkurprófastsdæmi vestra í
tilefni af því að fastir liðir kirkju-
starfsins eru nú komnir í gang að
nýju eftir sumarhlé en sameiginleg-
ar messur við upphaf vetrarstarfs
hafa verið haldnar í prófastsdæm-
inu um árabil. Messuformið er mjög
einfalt en lagt upp úr því að eiga
helga stund í húsi Drottins til að
stilla saman strengi í lofgjörð og
bæn og taka við Drottni sjálfum í
orði hans og heilögu sakramenti. Að
messu lokinni verður á boðstólum
kaffi og meðlæti. Ánægjulegt væri
að sem flest fólk kæmi, úr öllum
sóknum prófastsdæmisins og því
margvíslega kristilega félags-, líkn-
ar- og þjónustustarfi sem hér er
unnið.
Fríkirkjan Hafn-
arfirði – breyttur
guðsþjónustutími
Í VETUR verða guðsþjónustur í
Fríkirkjunni í Hafnarfirði annan
hvern sunnudag kl. 13. Vakin er at-
hygli á þessum breytta messutíma
sem vonandi verður til þess að
sunnudagurinn nýtist þeim betur
sem mæta til guðsþjónustu. Verður
fyrsta guðsþjónustan á þessum
breytta messutíma á morgun,
sunnudaginn 23. september. Þá
verða kvöldvökur haldnar í kirkj-
unni eitt sunnudagskvöld í mánuði
kl. 20 og verður fyrsta kvöldvakan
sunnudaginn 30. september. Nú er
barnastarf kirkjunnar í Fríkirkj-
unni Hafnarfirði hafið að nýju kl. 11
alla sunnudagsmorgna í vetur. Ein-
ar Eyjólfsson.
Fermingarbörn
við messu í
Hallgrímskirkju
MESSA og barnastarf verður í
Hallgrímskirkju sunnudag. Báðir
prestar safnaðarins þjóna við mess-
una. Félagar úr Mótettukór Hall-
grímskirkju syngja undir stjórn
Harðar Áskelssonar. Eins og und-
anfarin ár er sá háttur hafður á að
börnin eru með í messunni fram að
prédikun en fá þá fræðslu, söng og
bænir við sitt hæfi. Fermingarbörn
vetrarins verða boðin velkomin til
starfa í messunni en þau og for-
eldrar þeirra eru sérstaklega hvött
til þátttöku í þessari messu. Eftir
messu verður stuttur fundur um
fermingarfræðsluna. Í lok ágúst var
fermingarnámskeið sem flest ferm-
ingarbörnin tóku þátt í. Þessi hópur
hittist áfram í vetur en þau sem
ekki voru með á námskeiðinu fá
hefðbundna fræðslu sem hefst með
messu sunnudagsins.
Alfa-námskeið
í Neskirkju
KYNNINGARKVÖLD verður
haldið í Neskirkju mánudaginn 24.
september kl. 19. Sagt er frá nám-
skeiðinu í fyrirlestri og að honum
loknum eru umræður og fyrir-
spurnir yfir kaffibolla og loks
skráning. Alfa er 10 vikna námskeið
um kristna trú og tilgang lífsins.
Hvert kvöld hefst á léttum kvöld-
verði. Að honum loknum er fyrir-
lestur, umræðuefni útskýrt og rætt
í hópum. Einu sinni á námskeiðinu
er farin helgarferð. Námskeiðið
veitir innsýn í grundvallaratriði
kristinnar trúar. Án efa eiga efn-
istök og uppbygging dagskrár sinn
þátt í hversu vinsælt Alfa-nám-
skeiðið er. Þetta er annað Alfa-
námskeiðið í Neskirkju en yfir 50
manns skráðu sig á námskeiðið á
liðnu ári. Alfa er upprunnið hjá
Holy Trinity Bromton kirkjunni í
London. Áætlað er að á þessu ári
verði haldin 20.000 námskeið í
meira en 120 löndum. Alfa hefur
verið þýtt á a.m.k. 44 tungumál og
þau skipta hundruð þúsundum sem
sótt hafa Alfa-námskeið. Verð:
Námskeið, vinnubók, helgarferð
með fæði og létt máltíð öll kvöldin
8.900 kr. Skráning í Neskirkju í s.
511 1560, á netfanginu neskirkja-
@neskirkja.is og á kynningarkvöld-
inu. Fyrirlesari er séra Örn Bárður
Jónsson.
Kirkjudagur
Langholtssafnaðar
ÁRLEGUR kirkjudagur Lang-
holtssafnaðar verður sunnudaginn
23. september. Hátíðamessa verður
kl. 11 og tekur barnastarfið einnig
þátt í upphafi messunnar en síðan
fer unga fólkið inn í safnaðarheimili
með Gunnari og Bryndísi. Sérstakir
gestir á þessum kirkjudegi verða
djassleikararnir Sigurður Flosason
saxófónleikari og Kjartan Valdi-
marsson píanóleikari. þeir munu
fyrst spila á undan messunni en
síðan flytja með Kór Langholts-
kirkju þætti úr verki Duke Ellinton
„Sacred Concert“. Það verk er Kór
Langholtskirkju að æfa ásamt Re-
quiem eftir Nils Lindberg, og verða
verkin flutt á tónleikum 24. nóv-
ember ásamt Stórsveit Reykjavík
og einsöngvurum. Við messuna
verður séra Petrína Mjöll Jóhann-
esdóttir boðin velkomin til þjónustu
í söfnuðinum en þeirri þjónustu
mun hún gegna tímabundið við hlið
sóknarprests. Eftir messuna geta
kirkjugestir fengið sér vöfflur og
kaffi í safnaðarheimilinu sem und-
irbúið er af kvenfélaginu og kostar
vöfflukaffið 250 kr. fyrir fullorðna
en ókeypis er fyrir börnin.
Vetrarstarfið í Langholtskirkju
er nú allt komið af stað og verður
hægt að kynna sér starfið eftir
messuna. Sóknarprestur.
Æðruleysismessa
í Dómkirkjunni
FYRSTA æðruleysismessa hausts-
ins verður í Dómkirkjunni sunnu-
daginn 23. september kl. 20:30.
Messan er sem jafnan tileinkuð
fólki sem leitar bata eftir tólfspora-
leiðinni. Úr hópi þess kemur ein-
hver og segir reynslusögu úr lífi
mörkuðu af baráttu og von. Hörður
Torfason söngvaskáld kemur fram
og heiðrar samkomuna með söng
sínum. Anna Sigríður Helgadóttir
og Bæðrabandið sjá að öðru leyti
um tónlist. Sr. Jóna Hrönn Bolla-
dóttir leiðir samkomuna, sr. Jakob
Ágúst Hjálmarsson flytur hugleið-
ingu og sr. Anna Sigríður Pálsdóttir
leiðir fyrirbæn. Í lokin er veitt fyr-
irbæn og blessun með smurningu.
Barna- og æsku-
lýðssamvera
í Fríkirkjunni
BARNA- og æskulýðssamvera í
Fríkirkjunni í Reykjavík á sunnu-
dag.. Stundin er á venjulegum
messutíma klukkan 11. Eftir sam-
verustundina verður að vanda farið
niður að tjörn og öndunum gefið
brauð. Fermingarbörn þessa og síð-
asta árs ásamt fjölskyldum hvött til
að mæta. Æskulýðsstarfið í vetur
(2001–2002). Eftir stundina verður
sérstakur fundur með fermingar-
börnum þessa og síðasta árs í safn-
aðarheimilinu þar sem farið verður
yfir dagskrá vetrarins.
Sjáumst hress og í stuði.
Safnaðarstarf Fríkirkjunnar
í Reykjavík.
Kvöldguðsþjón-
ustur með nýrri
tónlist í Seljakirkju
VETRARSTARF Seljakirkju er nú
óðara að taka á sig mynd. Hluti af
myndinni eru lofgjörðarguðsþjón-
ustur með nýrri tónlist þriðja
sunnudagskvöld í mánuði. Þorvald-
ur Halldórsson söngvari sér um
tónlistina en prestar Seljakirkju
þjóna fyrir altari. Þess má geta að
Þorvaldur er ráðinn af söfnuðum
Reykjavíkurprófastsdæmis eystra
til að þjóna þeim í tónlist og söng.
Fyrsta guðsþjónustan með þessu
formi verður sunnudagskvöldið 23.
september og hefst kl. 20. Fólk er
hvatt til að kynna sér þessa nýjung
í safnaðarstarfi Seljakirkju.
Haustlitaferð
aldraðra í Neskirkju
FÉLAGSSTARF aldraðra í Nes-
kirkju hefst á ný í dag laugardaginn
22. september kl. 13. Farið verður í
haustlitaferð til Þingvalla. Ekið til
baka um Grafning. Kaffiveitingar í
Ingólfshvoli. Þátttaka tilkynnist á
skrifstofunni í síma 511-1560 milli
kl. 10-12.
Safnaðarstarf
Lágafellskirkja. Mánudagur: Fjöl-
skyldusamvera fyrir foreldra og
börn þeirra frá kl. 13.30–15.30 í
safnaðarheimilinu, Þverholti 3, 3.
hæð. Al-Anon fundur í kirkjunni kl.
21.
SÚ tíð er liðin að fólk spyrji sig
hvort Guð fari í sumarfrí. Þegar
litið er yfir sumarsviðið í Reykja-
víkurprófastsdæmi vestra blasa
víða við fullar kirkjur af börnum
og unglingum. Sumarnámskeið
voru haldin í mörgum kirknanna
við mikla gleði foreldra og barna,
og þrjár sóknir héldu ferming-
arnámskeið vikuna fyrir skóla-
byrjun. Þau sóttu á þriðja hundrað
ungmenna úr Dómkirkju-, Hall-
gríms- og Nesprestaköllum. Í Hall-
grímskirkju var tekið á móti á
sjötta hundrað vinnuskólakrökk-
um á fjölmörgum listadögum skól-
ans með áherslu á heim kirkjulist-
arinnar. Þá áttu sömuleiðis ótalin
leikjanámskeiða- og leikskólabörn
erindi í kirkjuna og þáðu lifandi
fræðslu um sr. Hallgrím Pét-
ursson og frú Guðríði.
Nýjung: Þorvaldur Halldórsson
í útrás. Nú á haustdögum er nýtt
verkefni að fara af stað í samvinnu
við Reykjavíkurprófastsdæmi
eystra. Þorvaldur Halldórsson
söngvari hefur verið ráðinn til
prófastsdæmanna tveggja í vetur
og mun hann heimsækja hvern
söfnuð mánaðarlega. Alls tilheyra
átján kirkjur þessu svæði og hefur
Þorvaldur þegar skipulagt fjöl-
breytta dagskrá vetrarins að
mestu leyti í samráði við stað-
arpresta. Sem dæmi um það sem
þegar hefur verið gert má nefna
að skólabyrjunarmessa var haldin
26. ágúst við þvottalaugarnar í
samstarfi við sóknarprest Laug-
arneskirkju. Þá var eldri borg-
urum boðið til súpu og söng-
samveru í Háteigskirkju fyrsta
sunnudag í september að lokinni
messu. Hlutverk Þorvaldar á slík-
um stundum er að leggja til
ramma og laða að með tónlist sinni
en prestar og djáknar annast að
mestu hið talaða orð. Þarna er á
ferðinni útrás kirkjunnar þar sem
saman fer léttleiki, glaðværð og
helgihald. Hefur þetta fyr-
irkomulag gefist vel, t.a.m. í Ár-
nes- og Rangárvallaprófasts-
dæmum á liðnu sumri, þar sem
gamlar dægurperlur liðu til lofts í
bland við sálma- og gospelsöng á
tjaldstæðum og töðugjöldum.
Feðrafræðsla 13. okt. Þá er
einnig vert að geta nýjungar sem
sóknarpresturinn í Grensáskirkju
stendur fyrir nú á haustdögum,
nánar tiltekið laugardaginn 13.
október, í samvinnu við fleiri. Þar
er á ferð feðrafræðsla, en hug-
myndin að henni sprettur af könn-
un Gunnars J. Gunnarssonar sem
leiðir í ljós að trúarleg staða
drengja er mun lakari en telpna.
Þykir brýnt að höfða sérstaklega
til feðra um að gangast við þeirri
ábyrgð sinni að ala skírð börn sín
upp til kristinnar trúar, einkum
drengina sem hafa fyrirmynd sína
að þessu sem öðru leyti í föður sín-
um.
Barna- og æskulýðsstarf. Eitt
fremsta hlutverk kirkjunnar er,
eins og við vitum, að styðja við trú-
aruppeldi heimilanna með marg-
víslegri starfsemi. Það er gott að
geta sagt frá því að starf fyrir
börn og ungmenni, allt frá hvít-
voðungum til 10. bekkinga, er með
miklum blóma hér í prófastsdæm-
inu. Sums staðar er starfið jafnvel
í fullum gangi allt árið, en víðar
markar september upphaf ýmissa
fastra liða. Á bilinu sjötíu til átta-
tíu slíkir hópar koma saman til
samveru í viku hverri, að ótöldum
spurningabörnunum. Þar er að
finna foreldra-/ungbarnamorgna,
sunnudagaskóla, barnakóra, 6–8
ára, 8–9 ára og 10–12 ára hópa,
910- og 112-klúbba, krílakór,
stúlknakór, drengjakór, ævin-
týraklúbb, unglingaklúbb, kirkju-
prakkara, unglingakór, leikhóp og
æskulýðshópa fyrir 8. bekk og 9.–
10. bekk, svo nokkuð sé nefnt.
Tónlistarstarf. Sem dæmi um
gróskumikið tónlistarstarf má
nefna Bústaðakirkju
(www.kirkja.is) en þar starfa, auk
kirkjukórs og kammerkórs,
stúlknakór fyrir 10–16 ára, barna-
kór fyrir 7–9 ára, englakór, sem er
fyrir 5–6 ára, bjöllukór og hljóm-
sveit ungmenna. Starf meðal for-
eldra hins unga kirkjutónlist-
arfólks er einnig víða öflugt og
gott.
Samstarf við skóla eykst með
hverju ári. Þannig má nefna að
Dómkirkjan (www.domkirkjan.is),
hefur í nokkur ár komið að skóla-
dagvistinni í Vesturbæjarskóla
með þeim hætti að boðið er upp á
kirkjustarf á dagvistartímanum.
Svo er einnig í fleiri kirkjum, t.d.
Neskirkju (www.neskirkja.is) og
Laugarneskirkju.
Miðborgarstarfið. Þriðjudaginn
2. október nk. hefst nýr kafli í mið-
borgarstarfi KFUM/K og kirkj-
unnar þegar kristilegt kaffihús
verður opnað í Austurstræti. Þar
verður m.a. boðið upp á kaffi-
húsakvöld á trúarlegum nótum
fyri 16–20 ára á fimmtudögum.
Næturstarf verður frá miðnætti til
kl. 3 bæði aðfaranótt laugardags
og sunnudags í samstarfi við Sam-
hjálp og Maríta. Kolaportsmess-
urnar halda að sjálfssögðu velli,
fjórða hvern sunnudag kl. 14.
Fullorðinsfræðsla. Starf fyrir
fullorðna er að færast í aukana
innan prófastsdæmisins. Í Hall-
grímskirkju (www.hallgrims-
kirkja.is) eru fræðslumorgnar kl.
10 á sunnudögum, þar sem lögð er
áhersla á vandaða fyrirlestra um
málefni kirkju og þjóðfélags. Þá
verður boðið upp á samtalshóp um
hirðisbréf biskups á miðvikudags-
kvöldum í október. Einnig verður
starfræktur sorgarhópur þar frá
miðjum október í samstarfi við
Nýja dögun, samtök um sorg og
sorgarviðbrögð.
Hjónastarf hefur verið í bæði
Neskirkju og Bústaðakirkju. Full-
orðinsfræðsla Laugarneskirkju
(bls. 650 í textavarpinu) hefur fest
sig í sessi á þriðjudagskvöldum kl.
20 og þar eru einnig starfræktir
svokallaðir 12 spora hópar á
mánudagskvöldum. Í Áskirkju er
löng hefð fyrir biblíuleshópum á
fimmtudagskvöldum kl. 20, en
slíkur hópur hefur göngu sína nú
um miðjan október. Þá er ótalið
öldrunarstarf í öllum kirkjum. Ein
nýjung í því starfi eru svokallaðir
endurminningahópar í Langholts-
kirkju.
Kvöldmessur. Kvöldmessur eru
í prófastsdæminu hvert sunnu-
dagskvöld yfir vetrartímann.
Fyrsta sunnudag mánaðarins er
messað í Hallgrímskirkju og Nes-
kirkju, annan sunnudag er djass-
messa í Laugarneskirkju, þann
þriðja æðruleysismessa í Dóm-
kirkjunni og messa með léttu sniði
í Grensáskirkju og loks er rétt að
minna á Tómasarmessuna í Breið-
holtskirkju síðasta sunnudag
hvers mánaðar.
Helgistundir og hádegisbænir Í
mörgum kirkjum prófastsdæm-
isins eru kyrrðar- og bænastundir
á virkum dögum. Alla virka
morgna eru morgunbænir í Laug-
arneskirkju kl. 6.45–7.05. Í Hall-
grímskirkju eru fyrirbænamessur
á þriðjudögum kl. 10.30 og sömu
daga eru lofgjörðarstundir í Laug-
arneskirkju kl. 21. Í Neskirkju og
Háteigskirkju eru kvöldbænir á
miðvikudögum kl. 18. Þá er íhug-
unarstund í Háteigskirkju á
fimmtudögum kl. 19 og í fram-
haldi af henni Taizé-messa kl. 20
(www.hateigskirkja.is).
Kyrrðarstundir í hádegi eru alla
virka daga, á mánudögum í Frið-
rikskapellu, á þriðjudögum í
Grensáskirkju og Áskirkju, mið-
vikudaga í Langholtskirkju, Sel-
tjarnarneskirkju og Dómkirkjunni
og loks á fimmtudögum í Laug-
arneskirkju og Hallgrímskirkju.
Opin hús, ýmist fyrir aldraða eða
alla aldurshópa, eru einnig víða
starfrækt virka daga. Þannig er
nú lífið í kirkjunni þinni. Vertu
velkomin(n).
Sr. María Ágústsdóttir
héraðsprestur.
Blómlegt starf í
Reykjavíkurpró-
fastsdæmi vestra
Grensáskirkja