Morgunblaðið - 22.09.2001, Blaðsíða 50

Morgunblaðið - 22.09.2001, Blaðsíða 50
DAGBÓK 50 LAUGARDAGUR 22. SEPTEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar: 569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156, sérblöð 569 1222, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RIT- STJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.100 kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 190 kr. eintakið. Skipin Reykjavíkurhöfn: Málmey fer í dag. Fréttir Stuðningsfundir fyrr- verandi reykingafólks. Fólk sem sótt hefur námskeið gegn reyk- ingum í Heilsustofnun NLFÍ í Hveragerði, fundur í Gerðubergi á þriðjudag kl. 17.30. Mannamót Bólstaðarhlíð 43. María Marteinsdóttir, fótaað- gerðafræðingur byrjar 1. okt. Pantanir í síma 691-0659. Félag eldri borgara í Hafnarfirði, Hraunseli, Reykjavíkurvegi 50. Ganga kl. 10, rúta frá miðbæ kl. 9:50. Á mánudag verður fé- lagsvist kl. 13. Á þriðju- dag verður saumar og brids. Pútt á vellinum við Hrafnistu kl. 14. Félag eldri borgara, Reykjavík, Ásgarði Glæsibæ. Kaffistofan er opin virka daga kl. 10- 13. Matur í hádeginu Haustlitaferð til Þing- valla í dag, laugardag, 22. september, kvöld- verður og dansleikur í Básnum. Leiðsögn Pál- ína Jónsdóttir og Ólöf Þórarinsdóttir. Brottför frá Ásgarði Glæsibæ kl. 14. Sunnudagur: Fé- lagsvist kl. 13.30. Dans- leikur kl. 20. Caprí-tríó leikur fyrir dansi. Mánudagur: Brids kl. 13. Þriðjudagur: Skák kl. 13 og alkort spilað kl. 13.30. Námskeið í framsögn og upplestri hefst fimmtudaginn 27. september kl. 16.15. Kennari Bjarni Ingv- arsson. Skráning hafin á skrifstofunni. Heim- sókn og fræðslukynning hjá Íslenskri erfða- greiningu föstudaginn 28. september. Brottför frá Ásgarði Glæsibæ kl. 14. Ath. takmarkaður fjöldi þátttakenda. Skráning hafin á skrif- stofu FEB. Brids nám- skeið byrjar mið- vikudagskvöldið 3. október kl. 19.30 í Ás- garði Glæsibæ, kennari Ólafur Lárusson, upp- lýsingar og skráning á skrifstofu.Silfurlínan er opin á mánu- og mið- vikudögum kl. 10-12. Upplýsingar á skrif- stofu FEB kl. 10-16 s. 588-2111. Félagsstarf aldraðra Garðabæ. Snyrti- námskeið byrjar 25. sept. kl. 9. Spænska hefst 27. sept. kl. 12.15. Leshringur á Bókasafni Garðabæjar byrjar 1. okt kl. 10.30. Búta- saumur byrjar 3. okt. kl. 16 í Garðaskóla. Leshringur á Bókasafni Álftaness byrjar 10. okt. kl. 15. Nánar www.fag.is. Sími 565 6622. Gerðuberg. Sund og leikfimiæfingar í Breið- holtslaug á vegum ÍTR á mánudögum og fimmtudögum kl. 19.30, umsjón Edda Bald- ursdóttir íþróttakenn- ari. Boccia á þriðju- dögum kl. 13 og föstudögum kl. 9.30, umsjón Óla Kristín Freysteinsdóttir. Allar veitingar í veitingabúð Gerðubergs. Upplýs- ingar um starfsemina á staðnum og í síma 575- 7720. Félag eldri borgara, Kópavogi. Púttað verð- ur á Listatúni í dag, laugardag, kl. 11. Mæt- um öll og reynum með okkur. Vesturgata 7. Hálfs- dagsferð. Fimmtudag- inn 27. sept. kl. 13. Far- ið verður á sýningu á útskurðarverkum eftir Siggu á Grund sem tek- ur á móti hópnum í Sjó- minjasafni Íslands í Hafnarfirði. Ekið verð- ur til Krísuvíkur. Krísu- víkurkirkja skoðuð. Kaffiveitingar í Bláa lóninu, skoðunarferð um Grindavík. Leið- sögumaður Nanna Kaaber, athugið tak- markaður fjöldi, sækja þarf farmiðana fyrir þriðjudaginn 25. sept. Haustfagnaður verður fimmtudaginn 11. októ- ber, kvöldverður, skemmtiatriði, söngur, dans og fleira. Nánar auglýst síðar, upplýs- ingar í síma 562-7077. Norðurbrún 1, Furu- gerði 1 og Hæð- argarður 31. Farin verður haustlitaferð í Bása við Þórsmörk 27. sept. ef veður leyfir. Hafa skal með sér nesti til dagsins, hlý föt og góða skó. Leið- sögumaður Helga Jörg- ensen. Lagt af stað frá Norðurbrún 1 kl. 8.30 og síðan teknir farþeg- ar í Furugerði og Hæð- argarði. Skráning í Norðurbrún í síma 568- 6960, Furugerði í síma 553-6040 og í Hæð- argarði í síma 568-3132. Kirkjustarf aldraðra, Digraneskirkju. Opið hús á þriðjudag kl. 11. Leikfimi, matur, helgi- stund og fleira. Sjálfsbjörg, félagsheim- ilið Hátúni 12. Opið hús kl. 14. Félag fráskilinna og einstæðra. Fundur í kvöld kl. 21 í Konnakoti Hverfisgötu 105, Nýir félagar velkomnir. Munið gönguna mánu- og fimmtudaga. Bústaðakirkja, starf aldraðra hefst með haustferð miðvikudag- inn 26. sept. kl. 13 frá kirkjunni. Skráning og upplýsingar fyrir 25 sept. hjá kirkjuverði s. 553-8500 eða Sigrúnu s. 864-1448. Kvenfélag Óháða saf- aðarins. Félagsfundur verður haldinn í Kirkjubæ þriðjudaginn 2. okt kl. 20.30. Fund- arefni: Kirkjudagurinn. Minningarkort Minningarkort Lands- samtaka hjartasjúk- linga fást á eftirtöldum stöðum á Suðurlandi: Í Vestmannaeyjum: hjá Axel Ó. Láruss. skó- verslun, Vest- mannabraut 23, s. 481- 1826. Á Hellu: Mosfelli, Þrúðvangi 6, s.487-5828. Á Flúðum: hjá Sólveigu Ólafsdóttur, Versl. Grund s. 486-6633. Á Selfossi: í versluninni Íris, Austurvegi 4, s. 482-1468 og á sjúkra- húsi Suðurlands og heilsugæslustöð, Ár- vegi, s. 482-1300. Í Þor- lákshöfn: hjá Huldu I. Guðmundsdóttur, Odda- braut 20, s. 483-3633. Minningarkort Lands- samtaka hjartasjúk- linga fást á eftirtöldum stöðum á Reykjanesi. Í Grindavík: Bókabúð Grindavíkur, Vík- urbraut 62, s. 426-8787. Í Garði: Íslandspósti, Garðabraut 69, s. 422- 7000. Í Keflavík: Bóka- búð Keflavíkur Penn- anum, Sólvallagötu 2, s. 421-1102 og hjá Ís- landspósti, Hafnargötu 89, s. 421-5000. Í Vog- um: hjá Íslandspósti b/t Ásu Árnadóttur, Tjarn- argötu 26, s. 424-6500, í Hafnarfirði: Bókabúð Böðvars, Reykjavík- urvegi 64, s. 565-1630 og hjá Pennanum- Eymundssyni, Strand- götu 31, s. 555-0045. Minningarkort Lands- samtaka hjartasjúk- linga fást á eftirtöldum stöðum í Reykjavík: Skrifstofu LHS, Suð- urgötu 10, s. 552-5744, 562-5744, fax 562-5744, Laugavegs Apóteki, Laugavegi 16, s. 552- 4045, hjá Hirti, Bón- ushúsinu, Suðurströnd 2, Seltjarnarnesi, s. 561-4256. Minningarkort Lands- samtaka hjartasjúk- linga fást á eftirtöldum stöðum á Vesturlandi: Á Akranesi: Bóka- skemmunni, Stillholti 18, s. 431-2840, Dalbrún ehf., Brákarhrauni 3, Borgarnesi og hjá El- ínu Frímannsd., Höfða- grund 18, s.431-4081. Í Grundarfirði: Hrann- arbúðin, Hrannarstíg 5, s. 438-6725. Í Ólafsvík hjá Ingibjörgu Pét- ursd., Hjarðartúni 1, s. 436-1177. Minningarkort Lands- samtaka hjartasjúk- linga fást á eftirtöldum stöðum á Austfjörðum. Á Seyðisfirði: hjá Birgi Hallvarðssyni, Botna- hlíð 14, s. 472-1173. Á Neskaupstað: blóma- búðin Laufskálinn, Kristín Brynjarsdóttir, Nesgötu 5, s. 477-1212. Á Egilsstöðum: Blóma- bær, Miðvangi, s. 471- 2230. Á Reyðarfirði: hjá Grétu Friðriksd., Brekkugötu 13, s. 474- 1177. Á Eskifirði: hjá Aðalheiði Ingimund- ard., Bleikárshlíð 57, s. 476-1223. Á Fáskrúðs- firði: hjá Maríu Ósk- arsd., Hlíðargötu 26, s. 475-1273. Á Hornafirði: hjá Sigurgeir Helga- syni, Hólabraut 1a, s. 478-1653. Minningakort Breið- firðingafélagsins eru til sölu hjá Sveini Sig- urjónssyni s. 555-0383 eða 899-1161. Í dag er laugardagur 22. septem- ber, 265. dagur ársins 2001. Haust- jafndægur. Orð dagsins: Flý þú æskunnar girndir, en stunda rétt- læti, trú, kærleika og frið við þá, sem ákalla Drottin af hreinu hjarta. (II.Tím. 2, 22.) 6 8 11 15 22 1 24 12 3 10 17 21 4 9 13 18 23 14 5 19 7 20 2 16 K r o s s g á t a LÁRÉTT: 1 kræsni, 8 hefur gagn af, 9 innihaldslaus, 10 söng- flokkur, 11 skjóða, 13 nytjalönd, 15 fjöturs, 18 kona, 21 spil, 22 skjóta af byssu, 23 ókurteisir menn, 24 gata í Reykja- vík. LÓÐRÉTT: 2 ávallt, 3 hafa áhrif, 4 skjálfa, 5 tekur, 6 stúlka, 7 tölustafur, 12 kaffibæt- ir, 14 ílát, 15 sjávar, 16 svínakjöt, 17 deilur, 18 hárs, 19 sigruð, 20 drjóla. LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU: Lárétt: 1 atlot, 4 belgs, 7 dúkur, 8 regin, 9 næm, 11 form, 13 orga, 14 ógnar, 15 hrár, 17 matt, 20 ári, 22 lofar, 23 liðna, 24 tæran, 25 tunna. Lóðrétt: 1 andóf, 2 lýkur, 3 turn, 4 barm, 5 lægir, 6 sunna, 10 ærnar, 12 mór, 13 orm, 15 hollt, 16 álfar, 18 arðan, 19 tjara, 20 árin, 21 illt. VIÐ hjónin ókum upp á Akranes nýlega. Við heim- sóttum byggðasafnið þeirra í Görðum. Þetta er skemmtilegt safn og vel upp sett og mikinn fróðleik þar að finna. Í safninu var okkur bent á að skoða safnaskálann, sem nýlega var opnaður þar við hliðina. Í skálanum er safn Land- mælinga Íslands, íþrótta- safn og síðast en ekki síst safn, sem nefnist Steinaríki Íslands. Þarna er ákaflega fallegt safn, mjög skemmtilega uppsett og ótrúlega fjöl- breytt. Það vakti undrun okkar hversu mikið úrval var þarna af íslenskum steinum. Ekki skemmdi það hversu umsjónarmaður safnsins var fús að fræða okkur um það, sem þarna bar fyrir augu. Í steinasafninu er veit- ingastofa og fengum við okkur kaffi þar og gæddum okkur á gómsætum tertum. Enginn er svikinn af að fara þarna inn og viljum við þakka kærlega fyrir okkur. Næst tökum við barna- börnin með til að sýna þeim gamla tímann og þetta stórgóða steinasafn. Ferðalangar. Um braggalíf ’30–’55 Í KASTLJÓSI Sjónvarps- ins í gærkveldi var rætt við ungan kvikmyndagerðar- mann vegna frumsýningar myndar hans um braggalíf í Reykjavík. Þar skýrði hann ásókn fólks í að fá inni í bröggum með því, að nánast ekkert hefði verið byggt af íbúðar- húsnæði í Reykjavík aldar- fjórðunginn 1930 til 1955. Ekki höfðu hinir jafn- ungu viðmælendur hans neitt við þetta að athuga. Ég vona, að heimildaöflun piltsins við gerð myndar- innar hafi ekki verið unnin af sömu hroðvirkni og hann hefur viðhaft við að afla sér þessara upplýsinga. Raun- ar getur hann alls ekki hafa leitað í smiðju til neins eftir þessum fróðleik og tæpast haft fyrir því að kynna sér fólksflutninga innanlands á stríðsárunum og eftir þau, hvað þá hinar miklu bygg- ingaframkvæmdir í bænum einmitt þennan aldarfjórð- ung. Að vísu mátti á pilt- inum skilja, að hann byggi utanlands, en tæpast afsak- ar það slíka fáfræði hjá manni, sem þykist vera að gera heimildarkvikmynd um ákveðið tímabil í sögu Reykjavíkur. Vigfús Magnússon, Stigahlíð 42, R. Ágrafin hvaltönn ÉG hef áhuga á að eignast (kaupa) hvaltönn með ágröfnu seglskipi á hvorri hlið. Ég hef sérstakan áhuga á þeirri tegund sem sjómenn skáru í á 19. öld eftir hvalveiðileiðangra. Þeir sem gætu liðsinnt mér vinsamlega hafið samband við: D. Jones, 16 Lastingham Court, Laleham Road, Staines, Middlesex TW 18-INW England. U.K. Maðurinn í Keflavík MAÐURINN í Keflavík sem hringdi út af gefins sófa sl. miðvikudag er beð- inn að hafa samband aftur í síma 554-1830. Tapað/fundið Treck-reiðhjól í óskilum BLÁTT Treck-reiðhjól fannst við Tómasarhaga. Upplýsingar í síma 552- 7056. Fjallahjól týndist við Bónus SVART WHEELER 5800- fjallahjól með skrautmerki á hnakki og brúngylltum framgaffli týndist hjá Bón- usversluninni við Smiðju- veg sl. laugardag. Skilvís finnandi láti vita í síma 690- 6278 eða 557-9096. Dýrahald Kettlingur fannst í Heiðarási GULBRÖNDÓTTUR kettlingur, 3-5 mánaða fannst í Heiðarási í Árbæj- arhverfi. Eigandi hafi sam- band í síma 899-4107. VELVAKANDI Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15. Netfang velvakandi@mbl.is Steinaríki fallegt safn Morgunblaðið/Billi Verið er að rífa bragga við Rauðavatn. Víkverji skrifar... HALLÓ,“ heyrðist í hinum endalínunnar, „þetta er hjá Halló, okkur langar að kynna þér nýju gjaldskrána okkar ...“ Klukkan var níu að kveldi dags og Víkverji ósköp sybbinn eftir langan dag. Hann kunni þó ómögulega við að vera ókurteis og spurði því hvort ekki væri bara hægt að kynna sér málið á Netinu. „Jú, jú, mikil ósköp,“ sagði röddin og kvaddi pent. Víkverji var bara nokkuð ánægður með hversu auðveldlega þetta sölumannssímtal gekk fyrir sig. Kvöldið eftir gall í símanum á ný. Að þessu sinni var það betri helm- ingur Víkverja sem tók upp tólið. „Halló,“ gall í viðmælandanum, „okkur langar að kynna ...“ Óvitandi af símtalinu frá kvöldinu áður lofaði betri helmingurinna að kynna sér málið og þakkaði fyrir sig. Viku síðar í miðjum pastarétti þar sem fjölskyldan nýtti tímann til að reifa viðburði dagsins: „Halló, ertu búin að kynna þér ...?“ Það má eig- inlega segja að það hafi fokið örlítið í Víkverja enda var þetta í þriðja sinn á rúmri viku sem halló-röddin var skyndilega komin inn á heimili hans, óboðin, fyrir utan það að Halló hafði einnig laumað sér í póstkassann ein- hvurn daginn. Víkverji lét því duga að þessu sinni að segja snubbótt: „Takk, við erum að borða.“ Halló skildi sneiðina og baðst afsökunar. x x x HALLÓ var þó ekki af baki dott-inn. Tveimur tímum síðar, mitt í afskaplega spennandi kvikmynd í sjónvarpinu var hann enn kominn á línuna og sótti nú fast að fá að vita hvað Víkverja og/eða maka hans fyndist um nýju gjaldskrána. Það jaðraði við að Víkverji fyndi til stolts yfir að vera svo óstjórnlega eftirsóttur viðskiptavinur að Halló legði svona mikið á sig til að ná til hans en á hinn bóginn var ekki laust við að honum fyndist sem um hrein- ustu ofsóknir væri að ræða. Hann af- réð því að frábiðja sér fleiri símtöl og verður því að lifa án hinnar nýju gjaldskrár Halló um sinn. x x x REYNDAR finnst Víkverja meðólíkindum hversu sölumenn hinna ýmsu fyrirtækja víla ekki fyrir sér að brjóta friðhelgi heimilisins með stöðugum símhringingum og er ágengnin orðin slík að fórnarlömbin – þeir sem hringt er í – verða að grípa til örþrifaúrræða á borð við hreinan og kláran dónaskap til að losna við að eyða lunganum úr kveld- inu í símablaður við bláókunnugt fólk. Þetta er sérstaklega hvimleitt í ljósi þess að sá tími sem nútímamað- urinn hefur til að njóta næðis á heim- ili sínu í faðmi fjölskyldunnar er í mörgum tilfellum ákaflega takmark- aður og því um dýrmætar mínútur að ræða. Víkverji getur ekki hugsað sér leiðinlegri máta en að eyða þeim í slík símtöl og hefur því gert það að ófrávíkjanlegri reglu að kaupa aldrei neitt það sem reynt er að selja hon- um í gegn um síma. Þannig snúast símsöluherferðirn- ar ávallt upp í andhverfu sína – að minnsta kosti í Víkverja tilfelli. Hann hefur nefnilega þurft að neita sér um fjöldann allan af afskaplega freistandi vörum og tilboðum, sem hann hefði eflaust rokið á, ef ekki hefði komið til boðflennusímtal sem rauf notalega kyrrð að kveldi dags. Hvort líf hans sé snauðara fyrir vikið skal hins vegar ósagt látið.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.