Morgunblaðið - 05.10.2001, Side 18
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ
18 FÖSTUDAGUR 5. OKTÓBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ
Tilboð á Löngum
Á dömur
Kr. 1.000
Bómullarnærfatnaður
30% afsláttur
Laugavegi 40, 101 Rvík - sími 551 3577,
fax 561 0484, netfang misty@misty.is
STRAUMAR
T Í S K U V E R S L U N I N
Laugavegur 55, Sími 561 8414.
Í hverju felst
álagningin?
Verið velkomin!
Stretsbuxur frá kr. 2.980 stærðin 38 til 48
Þar sem yfirbyggingin er engin!
15% afsláttur
aðeins á löngum laugardegi
Laugavegi 29, s. 552 4320
Hverfissteinar
2 stærðir. Úrval stýringa
margar stærðir fyrir
skóla, verkstæði og
handverksfólk
HEFILBEKKIR
Laugavegi 55, sími 561 3377.
20% afsláttur
af peysum
Flauelisjakki
kr. 7.990
Litir: Kamel, svartur
Stærðir: S til XL
Leðurlíkisjakki
kr. 7.990
Litir: Svartur, brúnn, kamel
Stærðir: 38-46
Stretsbuxur
kr. 3.990
Gallastretsbuxur
kr. 4.490
Hlýtt haust
Maura vetrarkápur
Dragtir og ullarpeysur
Laugavegi 63, sími 551 4422
Persónuleg þjónusta
ÞREMUR lóðum fyrir almennar
leiguíbúðir í Grafarholti var úthlut-
að á fundi borgarráðs á þriðjudag.
Að sögn Helga Hjörvars, forseta
borgarstjórnar Reykjavíkur, er gert
ráð fyrir byggingu að minnsta kosti
89 leiguíbúða á lóðunum. Mótás hf.
fékk úthlutað lóðum við Þórðarsveig
1 til 9, þar sem 40 íbúðir verða
byggðar, og Búseti lóðum við Þor-
láksgeisla 6 til 34 þar sem verða um
49 íbúðir.
Þetta er fyrsta skrefið í tengslum
við átak í byggingu almennra leigu-
íbúða sem félagsmálaráðherra hefur
kynnt þar sem stefnt er á að reisa
600 leiguíbúðir á almennum leigu-
markaði til viðbótar við þær fé-
lagslegu íbúðir sem verða byggðar
og keyptar á næstu árum.
Það sem markar tímamót við
þessa úthlutun er að sögn Helga að
einkafyrirtæki og stofnanir hafa lýst
sig reiðubúin til að byggja, eiga og
reka almennt leiguhúsnæði.
Lífeyrissjóðirnir, Íbúðalánasjóður
og félagsmálaráðuneytið hafa gefið
út viljayfirlýsingu um fjármögnun á
þessu átaki sem nær til landsins alls.
„Við teljum mjög mikilvægt að
fyrirtækjum og stofnunum séu
sköpuð skilyrði til þess, bæði með
lóðaúthlutun og lánafyrirgreiðslum
Íbúðalánasjóðs til þess að hér geti
þróast almennur leigumarkaður.
Þannig fæst valkostur fyrir fólk að
leigja eins og að eiga húsnæði og
það verður framboð á öruggu leigu-
húsnæði til lengri tíma eins og við
þekkjum frá nágrannalöndum okk-
ar. Það er þess vegna mjög mik-
ilvægt að fá félagasamtök og fyr-
irtæki til að koma inn og mæta
þessum þörfum,“ segir Helgi.
Rakur bílskúr leigður á
40 þúsund krónur á mánuði
Nýmæli í úthlutuninni er að annar
framkvæmdaaðilinn mun leita eftir
undanþágum frá núgildandi bygg-
ingarreglugerðum þ.e. hvað varðar
lágmarksstærðir á einstökum rým-
um íbúða. „Þeir hjá Mótási hf. telja
að þetta hafi leitt til þess að ný
þriggja herbergja íbúð sé 12 til 15
m² stærri en áður var, með tilheyr-
andi hækkun á byggingarkostnaði
og þar með á leiguverði. Þeir hyggj-
ast því byggja íbúðirnar með sem
hagkvæmustum hætti,“ segir Helgi
og kveður íbúðirnar því verða til-
tölulega litlar og byggðar á ódýran
og hagkvæman hátt. „Við munum
einnig vera liðlegir í öllum skilmál-
um við framkvæmdaraðila enda er
mikilvægt að halda byggingarkostn-
aði á leiguhúsnæði í lágmarki.“
Helgi segir almenna leigumark-
aðinn hafa til þessa verið frekar
„gráan“ markað þar sem hafi við-
gengist hlutir sem séu langt í frá að
vera boðlegir. „Aðstæður og kjör á
hinum almenna leigumarkaði eru al-
gerlega óviðunandi. Við erum að fá
dæmi um raka bílskúra sem eru
leigðir út á yfir 40 þúsund krónur á
mánuði og fjölskyldur í 13 m² her-
bergjum sem borga á þriðja tug
þúsunda í mánaðarleigu. Þessu
verður að koma í betra horf,“ sagði
Helgi.
Framkvæmdir við Þórðarsveig og
Þorláksgeisla hefjast á næsta ári og
er gert ráð fyrir að íbúðirnar verði
tilbúnar til útleigu í ársbyrjun 2003.
Sex umsækjendur voru um lóð-
irnar og mun borgarskipulag í fram-
haldinu kanna hvort hægt sé að
koma til móts við óskir hinna um-
sækjendanna.
Um 90 nýjar leiguíbúðir
Grafarholt
SELTJARNARNESBÆR hyggst
áskilja sér rétt til að stækka land-
fyllinguna sem gert er ráð fyrir
utan við Eiðisgranda Reykjavík-
urmegin og ná á inn á land Sel-
tjarnarness. Verður fulltrúum
bæjarins í Samvinnunefnd um
svæðisskipulag höfuðborgarsvæð-
isins falið að bæta því inn í til-
lögur að svæðisskipulaginu.
Í tillögu Neslistans sem sam-
þykkt var samhljóða á síðasta
bæjarstjórnarfundi segir að bær-
inn áskilji sér rétt til að stækka
landfyllinguna þannig að hún nái
lengra frá strönd til samræmis
við það sem lagt er til Reykjavík-
urmegin og að hún megi ná til
vesturs allt þar til kemur að
byggð við Víkurströnd. Kemur
fram að á landfyllingunum megi
gera ráð fyrir bæði íbúðabyggð
og þjónustu.
Í greinargerð með samþykkt-
inni segir að einungis sé um að
ræða heimildarákvæði til að gera
og skipuleggja stærri landfyll-
ingu en þegar er gert ráð fyrir í
þeim tillögum sem liggja fyrir.
„Tryggir þetta ákveðinn rétt inn-
an umrædds svæðis en engar
framkvæmdaskyldur á þessu stigi
málsins enda þarf málið miklu ít-
arlegri umfjöllun fagnefnda áður
en til endanlegrar ákvörðunar
kemur,“ segir í greinargerðinni.
0 # & 1 #
%
!
"
#$%
&
!
$!
$%
'&
( ) ' " $ ! *
&
()
* !+
! ,)
!"#
/*&
'%)
%'
&+
!*
$" !"
%
- '
'
,-%
'&
$ $% &
%' $( )
Vilja möguleika á stærri landfyllingu
Seltjarnarnes