Morgunblaðið - 20.10.2001, Side 29
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 20. OKTÓBER 2001 29
Kringlukast
20% afsláttur
af Triumph undirfatnaði
Kringlunni 8-12, sími 553 3600, www.olympia.is
SAMKÓR Kópavogs heldur afmæl-
istónleika í Salnum í dag kl. 16, en
kórinn er 35 ára. Stjórnandi kórsins
er Julian Hewlett, píanóleikari er
Jónas Sen og einsöngvarar á tónleik-
unum eru þau Hallveig Rúnarsdóttir
sópran og Þorbergur Skagfjörð Jós-
efsson bassi.
Á efnisskrá eru íslensk og erlend
lög.
Samkór Kópa-
vogs í Salnum
TVÆR sýningar á Píkusögum verða
í Bæjarleikhúsinu í Vestmannaeyj-
um í dag og á morgun kl. 21.
Píkusögur eru eftir bandaríska
rithöfundinn Eve Ensler, en það er
Sigrún Edda Björnsdóttir sem leik-
stýrir Halldóru Geirharðsdóttur, Jó-
hönnu Vigdísi Guðmundsdóttur og
Sóleyju Elíasdóttur í sýningunni.
Píkusögur
í Eyjum
LEIKFÉLAG Kópavogs frumsýnir
gamanleikritið Hinn eini sanni eftir
Tom Stoppard, í Hjáleigunni, Fé-
lagsheimili Kópavogs, í kvöld kl. 22.
Leikstjóri sýningarinnar er Bjarni
Guðmarsson og taka níu leikarar
þátt í henni.
Gamanleikur
í Hjáleigunni
FYRIR skemmstu bárust Ljós-
myndasafni Reykjavíkur að gjöf
nokkrar ljósmyndir sem teknar
voru í miðbæ Reykjavíkur á síðari
hluta 19. aldar og um aldamótin
1900. Ljósmyndirnar verða til sýn-
is á Reykjavíkurtorgi, 1. hæð
Borgarbókasafns Reykjavíkur,
Grófarhúsi, Tryggvagötu 15, í dag.
Um er að ræða 11 myndir og má
ætla að séu frá tímabilinu 1880-
1909. Að öllum líkindum eru þær
teknar af Sigfúsi Eymundssyni.
Reykjavík um aldamótin 1900
SÖNGSVEIT Hafnarfjarðar heldur
tónleika í Miklagarði í Skagafirði í
kvöld kl. 20.
Stjórnandi kórsins er Elín Ósk
Óskarsdóttir. Efnistök kórsins eru
lög úr óperum og vínartónlist.
Sungið
í Miklagarði
TÓNLISTARFÉLAG Vestur-Húna-
vatnssýslu er tíu ára á þessu ári og
efnir af tilefninu til tónleika með ungu
húnvetnsku tónlistarfólki í félags-
heimilinu Ásbyrgi í dag kl. 15. Gestir
á tónleikunum verða ungir línudans-
arar, sem koma frá Skagaströnd.
Ungt tónlistar-
fólk í Ásbyrgi
BRYNHILDUR Guðmundsdóttir
opnar málverkasýninguna Flökt
[taktur einsemd snerting] á Cafe
Presto, Hlíðasmára 15 í Kópavogi, í
dag kl. 15. Verkin eru unnin á þessu
ári. Sýningin stendur til 23. nóvem-
ber. Hún er opin virka daga kl. 10-23,
um helgar kl. 12-18.
Málverk á
Cafe Presto
DANSKI rithöf-
undurinn og teikn-
arinn Carl Quist
Møller segir börn-
um nokkrar lyga-
sögur í Söguher-
bergi Norræna
hússins í dag kl. 14,
og er það liður í
sýningunni Köttur
út í mýri. Dagskráin fer fram á
dönsku og íslensku með aðstoð Mar-
grétar Lóu Jónsdóttur skáldkonu.
Þá er Sturla Böðvarsson sam-
gönguráðherra næstur ráðherra til
að lesa upp í Söguherberginu á
morgun kl. 13.
Lyga- og
ráðherrasögur
Sturla
Böðvarsson
UPPLESTUR úr barnabókum verð-
ur á Súfistanum, bókaverslun Máls
og menningar, Laugavegi 18, í dag
kl. 11. Lesið úr bókunum Dverga-
steini eftir Aðalstein Ásberg Sig-
urðsson, Spólu systur eftir Gillian
Johnson og Þegar Brandur litli týnd-
ist eftir Sven Nordquist.
Lesið úr
barnabókum
GERT/ógert er yfirskrift einkasýn-
ingar Önnu Eyjólfsdóttur sem hún
opnar í báðum sölum Listasafns
ASÍ í dag kl. 16. Í miðjum Ásmund-
arsal hefur hún komið fyrir tveim-
ur líkönum úr krossviði, annars
vegar af salnum sjálfum og hins
vegar af Gryfjunni. Líkönin eru í
hlutfallinu 1 á móti 10. Inni í þess-
um líkönum hefur hún komið fyrir
tillögum að tveimur verkum, ann-
ars vegar um pólitík og hins vegar
um umhverfi. „Líkan Ásmundarsals
er verk sem fjallar um pólitík. Þar
er ég að vinna með ráðherrana í
ríkisstjórn Davíðs Oddssonar. Í lík-
ani Gryfju er tillaga að verki sem er
nokkurs konar samræða milli mín
og borgarumhverfisins,“ segir
Anna.
Í neðri sal safnsins, Gryfju, er
hluti af fyrri verkum Önnu.
Þetta er fimmta einkasýning
Önnu en auk þess hefur hún tekið
þátt í fjölda samsýninga.
Sýningin stendur til 4. nóvember.
Safnið er opið alla daga nema
mánudaga kl. 14-18.
Morgunblaðið/Kristinn
Anna Eyjólfsdóttir við eitt líkana sinna í Ásmundarsal.
Fjallar um pólitík og umhverfi
MENNINGARMÁL