Morgunblaðið - 28.10.2001, Page 6
FRÉTTIR
6 SUNNUDAGUR 28. OKTÓBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ
VIKAN 21/10 – 27/10
ERLENT
INNLENT
FÆKKA mun neyð-
arskýlum á næstunni en
innan Slysavarnafélags-
ins Landsbjargar hefur
verið ákveðið að loka
nokkrum skýlum. Ræður
því m.a. slæm umgengni
um skýlin við þjóðvegi.
Ekkert neyðarskýli verð-
ur á heiðum við hring-
veginn milli Reykjavíkur
og Akureyrar þar sem
skýlinu á Öxnadalsheiði
hefur verið lokað og skýli
Vegagerðarinnar á
Holtavörðuheiði verður
selt.
LEIÐTOGAR stjórn-
arandstöðuflokkanna
hafa lagt fram á Alþingi
tillögu til þingsályktunar
um að nefnd allra flokka
verði falið að leita leiða
til sátta um breytingar á
lögum um stjórn fisk-
veiða.
LAGÐAR hafa verið
fram í byggingarnefnd
Reykjavíkur teikningar
með fyrirspurn um að
breyta verslunarhúsnæð-
inu Kjörgarði við Lauga-
veg í hótel. Gert er ráð
fyrir að reisa viðbót-
arhæð á húsið og að her-
bergi geti verið 109.
EKKI hefur samist í
kjaradeilu sjúkraliða og
ríkisins og hefur félag
þeirra aftur boðað þrjú
þriggja daga verkföll á
næstu vikum.
BAUGUR hefur lýst yf-
ir áhuga á að kaupa úti-
standandi hlutabréf í
bresku verslunarkeðjunni
Arcadia Group. Verð-
hugmyndir eru 63–67
milljarðar króna en fyrir
á Baugur 20%.
Fengu sýklalyf
gegn miltisbrandi
FIMMTÁN manns var gefið sýklalyf
gegn hugsanlegu smiti miltisbrands sl.
mánudag. Fólkið komst í snertingu við
hvítt duft sem talið var að gæti inni-
haldið miltisbrandsgró þegar tímaritið
Economist var opnað á skrifstofum
borgarendurskoðunar. Taldi lögreglan
ástæðu til að taka á málinu af fullri al-
vöru og voru skrifstofurnar lokaðar
tímabundið.
Verri ávöxtun
lífeyrissjóða
TÖLUR um ávöxtun lífeyrissjóða
landsmanna benda til þess að ávöxtun
sjóðanna verði lakari á þessu ári en því
síðasta en þá var meðalávöxtun þeirra
neikvæð um 0,7%. Er ástæðan ekki
síst lækkandi verð á hlutabréfum hér-
lendis og erlendis. Meðalávöxtun sjóð-
anna var 8,8% árin 1995 til 1999 en hún
var þó mjög misjöfn.
Tvær konur biðu
bana í bílslysi
TVÆR konur á þrítugsaldri létust í
bílslysi á Nesjavallavegi á föstudag.
Voru þær í fólksbíl sem ökumaður
virtist missa stjórn á og snerist á veg-
inum í veg fyrir jeppa sem kom á móti.
Konurnar voru báðar í aftursæti fólks-
bílsins. Ökumaður og farþegi slösuð-
ust einnig og ökumaður jeppans slas-
aðist lítillega.
Sendiráð opnað
í Japan
ÍSLENDINGAR opnuðu sendiráð í
Japan á fimmtudag. Sendiherra er
Ingimundur Sigfússon og var Halldór
Ásgrímsson utanríkisráðherra við-
staddur. Halldór átti daginn áður
óvæntan fund með Koizumi, forsætis-
ráðherra Japans.
IRA hefur afvopnun
í fyrsta sinn
BROTIÐ var blað í sögu átakanna á
Norður-Írlandi á þriðjudag þegar
Írski lýðveldisherinn (IRA) hóf af-
vopnun í fyrsta sinn frá því hann hóf
vopnaða baráttu sína gegn breskum
yfirráðum fyrir 30
árum. Leiðtogar
Bretlands, Írlands,
Bandaríkjanna og
fleiri ríkja fögnuðu
ákvörðun IRA og
sögðu hana mikil-
vægan áfanga í átt
að varanlegum friði
á Norður-Írlandi.
David Trimble,
sem sagði af sér
embætti forsætisráðherra n-írsku
stjórnarinnar vegna tregðu IRA til að
afvopnast, hvatti flokk sinn til að taka
aftur upp stjórnarsamstarf við Sinn
Fein, stjórnmálaflokk IRA.
Jarðgangaslys í Sviss
kostaði 11 manns lífið
TALIÐ er að ellefu manns hafi farist í
miklum eldi sem blossaði upp í St.
Gotthards-jarðgöngunum í Sviss á
miðvikudag þegar tveir flutningabílar
rákust saman.
St. Gotthards-göngin eru lengstu
vegagöng í Evrópu og einn mikilvæg-
asti samgönguhlekkurinn á milli norð-
ur- og suðurhluta álfunnar.
Björgunarmönnum tókst að ná tök-
um á eldinum á fimmtudag. Hitinn í
göngunum eftir slysið varð allt að
1.200 gráður, nógu mikill til að bræða
málma.
Flest fórnarlambanna eru talin hafa
kafnað, annaðhvort inni í bílunum eða
þegar þau reyndu í örvæntingu að
komast á brott af slysstaðnum. Flestir
bílanna í göngunum brunnu. „Þetta er
hryllingur, eyðileggingin er alger,
ólýsanlegur harmleikur,“ sagði forseti
Sviss, Moritz Leuenberger.
David Trimble
YFIR 350 manns
drukknuðu þegar skip
með um 400 flóttamenn
sökk í grennd við eyjuna
Jövu í Indónesíu um síð-
ustu helgi. Talið er að
fólkið hafi viljað komast
til Ástralíu. Flestir hinna
látnu voru Írakar, en
einnig voru um borð Ír-
anar, Afganar, Pakistanar
og Alsíringar.
BANDARÍSKAR her-
þotur hófu loftárásir á
varnarsveitir talibana við
Kabúl og fleiri mik-
ilvægar borgir í Afganist-
an í byrjun vikunnar til
að auðvelda bandalagi
afganskra andstæðinga
talibana, Norðurbandalag-
inu, að hefja stórsókn.
BANDARÍKJAHER
var gagnrýndur á
fimmtudag fyrir að beita
umdeildum sprengjum,
svonefndum klasa-
sprengjum, í árásunum á
Afganistan. Talsmaður
Sameinuðu þjóðanna
sagði að átta óbreyttir
borgarar hefðu látið lífið
þegar klasasprengjum
hefði verið varpað á af-
ganskt þorp á mánudags-
kvöld.
ÍSRAELSSTJÓRN
ákvað á fimmtudag að
hefja hægfara brottflutn-
ing herliðs síns frá bæjum
á heimastjórnarsvæðum
Palestínumanna á Vest-
urbakkanum, að því til-
skildu að Palestínumenn
virtu vopnahléssam-
komulag. Ísraelar sendu
herliðið inn í sex bæi til
að hafa hendur í hári Pal-
estínumanna sem myrtu
ísraelskan ráðherra.
FYRIR um níu árum lauk fram-
kvæmdum við um 900 metra lang-
an og tæplega þriggja metra háan
varnargarð á milli Markarfljóts og
Húsadals í Þórsmörk. Þá höfðu
sumir á orði að garðurinn væri
óþarflega öflugur, en hann er um
sex metra breiður efst og breikkar
með miklu grjóti neðst í um 10
metra. Garðurinn er samt ekki öfl-
ugri en svo að á dögunum brast
hann og kom um 150 metra langt
skarð í hann vegna vatnselgs í
Markarfljóti. Önnur mannvirki á
svæðinu sluppu nema hvað skörð
komu í veginn og þar sem áður var
gróinn sandur er nú urð og grjót
og vatnið flæðir víða um, þó að
ljóst sé að það hafi verið mun
meira þegar mest gekk á.
Enginn var viðstaddur þegar
ósköpin dundu yfir en talið er að
þau hafi átt sér stað einhvern tíma
á tímabilinu frá því síðla 14. októ-
ber til 16. október sl. Helgi Jó-
hannesson, verkfræðingur hjá
Vegagerðinni, segir að tvennt hafi
getað gerst. Annaðhvort að vatnið
í Markarfljóti hafi verið orðið svo
mikið að það hafi runnið yfir varn-
argarðinn með þeim afleiðingum
að hann hafi rofnað eða að vatnið
hafi skollið þannig á honum að það
hafi grafið undan grjótinu, sem þá
hafi sigið og þannig komið skarð í
hann.
Orkustofnun er með vatnshæð-
armæli fyrir ofan Emstrubrýr í
Markarfljóti, en gögn þaðan hafa
ekki enn verið sótt og fyrr en það
hefur verið gert verður ekki hægt
að segja til um hvað hafi gerst, að
sögn Helga. Hann segir að aldrei
hafi séð á garðinum nema hvað
einu sinni hafi endinn aðeins aflag-
ast. Vel væri fylgst með honum og
aldrei hafi verið nein merki um að
kaflinn sem brast væri að gefa sig.
Þar er smá hlykkur á garðinum og
því mæðir einna mest á honum þar.
Þegar garðurinn var byggður var
mikið landbrot í gangi og þá rann
Markarfljótið aðeins vestar, en nú
rennur það meðfram garðinum.
Hlaup líklegast
Óskar Sigurjónsson, „faðir Aust-
urleiðar“ og fyrrverandi fram-
kvæmdastjóri fyrirtækisins, átti
stóran þátt í því að Vegagerðin og
Landgræðslan komu garðinum
upp. Hann er gjörkunnugur svæð-
inu og eftir að hafa skoðað vegs-
ummerki telur hann að um hlaup í
ánni hafi verið að ræða. Vegfar-
andi hafi líka sagt sér að hann hafi
aldrei séð eins mikið í fljótinu og
um það leyti sem talið er að varn-
argarðurinn hafi látið undan. „Það
hlýtur einhver stífla í Emstruánni
eða einhvers staðar að hafa losn-
að,“ segir hann.
Krossá hefur verið erfið yf-
irferðar undanfarna daga og ekki
á allra færi en þegar komið er fyr-
ir Merkurranann sést hvað vatns-
elgur Merkurfljótsins hefur farið
yfir stórt svæði. Fleiri hundruð
metra yfir veginn að hlíðinni og
meðfram nýja flugvellinum beggja
vegna auk þess sem vatnið hefur
runnið meðfram varnargarðinum
sunnan megin. Skörð eru í veg-
inum og fína efnið hefur runnið úr
honum. Ennfremur hefur efni
runnið úr varnargarðinum sunnan
megin á um 50 metra kafla.
Óskar segir að fyrir nokkrum
árum hafi verið mikið flóð í fljótinu
og þá hafi gamli flugvöllurinn far-
ið, en því kennt um að garðurinn
hafi ekki verið nógu langur. „Þá
voru miklir vatnavextir en garð-
urinn hreyfðist ekki,“ segir hann.
Austurleið er með nokkra skála í
dalnum og sluppu þeir eins og
flugvöllurinn. „Fyrst garðurinn fór
í sundur hefði getað farið verr,“
segir Óskar en telur samt að húsin
séu ekki á hættusvæði.
Grjótið í garðinn var tekið hin-
um megin við Markarfljót og má
reikna með að það verði gert aftur
vegna viðgerðarinnar en beðið
verður með framkvæmdir þar til
vatnsyfirborð fljótsins hefur lækk-
að, að sögn Helga Jóhannessonar.
Morgunblaðið/Golli
Litið yfir skarðið í varnarveggnum. Vatnið flæddi að Merkurrananum til vinstri og beggja vegna flugvallarins.
Varnargarður brast í Húsadal í Þórsmörk
„Hefði getað farið verr“
Morgunblaðið/Golli
Skörð eru á veginum inn í Húsadal og grjót er yfir öllu.
Umhverfið í Húsadal í
Þórsmörk er ekki eins
og áður. Grjót og vatn
þar sem áður var gró-
inn sandur og 150
metra skarð mynd-
aðist í varnargarði sem
átti að standast öll
hlaup. Steinþór Guð-
bjartsson og Kjartan
Þorbjörnsson skoðuðu
vegsummerki.
steg@mbl.is