Morgunblaðið - 28.10.2001, Side 21
mið. Sumar listahátíðir byggjast al-
gjörlega á því að kaupa inn list, og
það er misjafnt hve hátíðirnar
leggja mikla áherslu á að koma eig-
in list á framfæri. Við leggjum
mikla áherslu á að gera það, þótt
við viljum líka fá hingað góða lista-
menn utanfrá. Þeir stóru erlendu
listamenn sem hafa komið á
Listahátíð gegnum árin hafa gefið
okkur alveg ný viðmið, og sýnt okk-
ur eitthvað sem við þekktum ekki
áður. Þess vegna eigum við ekki að
flytja inn aðra listamenn en þá
bestu – og frekar fólk sem er að
hefja ferilinn en þá sem hafa verið í
sviðsljósinu lengi. Listahátíð hefur
reyndar verið mjög heppin hvað
þetta varðar. Pavarotti var upp á
sitt allrabesta þegar hann kom
hingað, þó svo að hann hafi ekki
fyllt Laugardalshöll. Hann var bara
ekki þekktari hér þá en það.“
Hljóðverk eftir Finnboga og kamm-
erverk eftir Jón Nordal
Það vekur strax athygli þegar
dagskrá Listahátíðar er skoðuð, að
tónlistarviðburðir eru ekki síður
merkir og margir en undanfarin ár,
enda löng hefð fyrir sterkum tón-
listarprófíl á hátíðinni. Fiðluleikar-
inn Maxim Vengerov er þegar tal-
inn einn þriggja bestu fiðluleikara
heims í dag, 26 ára gamall. June
Anderson er stórstjarna í óperu-
heiminum, og þykir standa ein sem
arftaki þeirrar frægu söngkonu
Joan Sutherland í mörgum þekkt-
ustu hlutverkum Donizettis, Bell-
inis og Verdis. Sígaunasveitin Taraf
de Haïdouks hefur vakið mikla at-
hygli á síðustu árum, enda er tón-
list hennar algjörlega einstök.
Kúbumennirnir sem hingað koma
urðu frægir á einni nóttu þegar
þeir sungu Banana Boat Song í af-
mæli Harrys Belafontes í fyrra.
Þeir eru hljómsveit án hljóðfæra.
Syngja það sem annars er spilað –
hvort sem það eru saxófónar eða
dillandi hrynsveit. Fengur verður
að nýju verki eftir Jón Nordal sem
Kammersveit Reykjavíkur frum-
flytur á hátíðinni, og eflaust munu
margir stefna á tónleika Sigur Rós-
ar og Kronos kvartettsins, en það
hlýtur að teljast stórviðburður á
heimsmælikvarða. Listahátíð hefur
pantað nýtt hljóðverk af Finnboga
Péturssyni myndlistarmanni, og
verður það sýnt á opnun Listahátíð-
ar. Myndlistarsýningar á Listahátíð
verða margar og fjölbreyttar, en
forvitnilegt verður fyrir Íslendinga
að sjá sýningu hollenska lista-
mannsins Aernout Mik, sem sagður
er brjóta öll lögmál listarinnar og
vekja upp ótal spurningar um eðli
hennar og innihald. Ekki er á aðra
viðburði hallað þótt trúlega verði
stærsti viðburðurinn á hátíðinni Ís-
landsfrumflutningur á Hollendingn-
um fljúgandi eftir Wagner, í upp-
færslu nafntogaðra Wagnerista.
Í samtökum evrópskra listahátíða
Nýr ballett eftir Auði Bjarna-
dóttur byggður á Sölku Völku verð-
ur frumsýndur, Pétur Grétarsson
og Sigurður Flosason verða með af-
ar spennandi verkefni sem heitir
„Raddir þjóðar“ þar sem þeir nota
gamlar upptökur og spinna með
þeim. Ólafur Elíasson verður með
sýningu í Gallerí i8 og í Hafnarhús-
inu verður stór samtímasýning ís-
lenskra myndlistarmanna, svo eitt-
hvað sé nefnt. Tvær leiksýningar
koma að utan, sem eru sérstaklega
ætlaðar börnum, „Týndar mömmur
og talandi beinagrindur“ frá Pero
leikhúsinu verður í Gerðubergi og í
Íslensku óperunni verður spænska
sýningin „Ambrossia“, svo eitthvað
sé nefnt. Þess má geta að Listahá-
tíð var tekin inn í Samtök evrópska
listahátíða EFA nú í vikunni, en
þar eiga 80 listahátíðir aðild og inn-
gönguskilyrði eru mjög ströng.
Listahátíð var ein þriggja hátíða
sem voru teknar inn á aðalfundi í
leynilegri atkvæðagreiðslu eftir að
4 framkvæmdanefndir samtakanna
höfðu mælt með inngöngu.
Sígaunasveitin Taraf de Haïdouks. begga@mbl.is
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 28. OKTÓBER 2001 21
Lið-a-mót
FRÁ
Apótekin
H
á
g
æ
ð
a
fra
m
le
ið
sla
FRÍHÖFNIN
Tvöfalt sterkara
með gæðaöryggi