Morgunblaðið - 28.10.2001, Side 24
LISTIR
24 SUNNUDAGUR 28. OKTÓBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ
ÍSLENSKI dansflokkurinn ríður
á vaðið þetta haustið með þrjú frum-
samin dansverk öll eftir íslenska
danshöfunda. Fyrsta verk kvöldsins
er „Da“ eftir Láru Stefánsdóttur,
samið við samnefnda Fantasíu fyrir
sembal eftir Leif Þórarinsson. Verk-
ið hefst á dansi fjögurra para við
sembalspil Guðrúnar Óskarsdóttur.
Kvendansararnir eru klæddir í
fjólubláa síða kjóla en karldansar-
arnir í ljósar buxur og skyrtur. Í
dansverkinu er vitnað í „Ertu sögnin
að fljúga“ ljóð eftir Elísabetu K. Jök-
ulsdóttur. Þar er minnst á vængja-
lausa manneskju sem þráir að fljúga
yfir fjall en fjallið gæti allt eins verið
manneskjan sjálf.
Hreyfingarnar sýna hugmyndir
um vængjaslátt og flug. Dansstíll
Láru einkennist gjarnan af hreyf-
ingaflæði þar sem fléttaðar eru sam-
an fettur og brettur, rykkir og
skrykkir. Hún notar langar, teygðar
hreyfingar sem enda í rykk þar sem
þær brotna eða beyglast saman.
Tónlistin er frek á eyrað og sækir í
að yfirdrífa dansverkið. Lára semur
á köflum á móti tónlistinni sem mild-
ar áhrifin. Dansverkið og tónlistin
innihalda dramatísk átök og ljóð-
rænu í bland sem dönsurunum geng-
ur ágætlega að finna sig í. Kvendans-
arar dansflokksins eru vanir
dansgerð Láru og dönsuðu af öryggi.
Nýliðar dansflokksins þurfa sýnu
meiri tíma til að aðlagast hreyfigerð
hennar og tekur höfundur lítið tillit
til þess í verkinu. Þar af leiðandi litu
þeir þunglamalegir út á köflum. Ná-
lægð dansaranna við áhorfendur var
mikil sem gerði það að verkum að
þegar margir hreyfðu sig í einu,
dreifðir um sviðið var ómögulegt að
sjá heildarsvip á verkinu. Það er
óhætt að segja að „Da“ sé krefjandi
fyrir auga og eyra. Fallegir dúettar
paranna standa upp úr í þessu dans-
verki og óhætt er að segja að það
hafi verið þakklátt að heyra ljúfa
sembaltónana í lok verksins við ró-
legar hreyfingar dansaranna.
Næst á dagskrá var 10 mínútna
langt dansverk Katrínar Hall,
stjórnanda Íslenska dansflokksins.
Verkið er mótað út frá tónlistarhug-
mynd Barry Adamson en hann er
einn af höfundum tónlistarinnar í
verkinu. Hann segir kveikjuna að
verkinu hafa verið togstreituna sem
myndast við árekstur blekkingar og
veruleika. Árekstur þessara tveggja
andstæðna er túlkuð í verkinu með
tónspennu sem aldrei er leyst. Tón-
spennan er sköpuð af tveim ólíkum
hljóðgjöfum, raftónlist á móti
mannsröddinni. Dansverkinu er ætl-
að að endurspegla tónlistina og tog-
streituna sem verður á milli þessara
ólíku afla eða heima. Dansverkið
hefst á röddum Hljómeykis sem
samanstóð að þrettán söngvurum.
Söngvurunum var snyrtilega komið
fyrir uppsviðs þar sem þeir stóðu í
hnapp á misháu undirlagi. Raftónlist
brýtur sér farveg inn á milli radd-
anna og kallast þessir ólíku tónar á
um stund. Hlín Diego birtist í dyra-
gættinni hliðarsviðs, flóðlýst í rign-
ingunni. Hún er hvítklædd og ráfar
ráðvillt inn á sviðið. Þar bíður henn-
ar Katrín Johnson og saman dansa
þær hraðan dans sem einkennist af
snerpu. Guðmundur Elías og Jesus
De Vega koma inn í dansinn en eru
aðallega í stuðningshlutverki við
kvendansarana. Höfundur notar
gjarnan lægstu hæð, það er gólfið í
sinni dansgerð og eru hreyfingarnar
sem hún notar hraðar og snöggar.
Dansinn mæðir á kvendönsurunum
og eru karldansararnir notaðir til að
styðja við eða halda á kvendönsurun-
um.
Þeir virkuðu óöruggir í hreyfing-
um og eins og þeir þyrftu meiri tíma
til að venjast dansgerð höfundar.
Dansararnir voru klæddir í and-
stæða liti, konur í hvítt og karlar í
svart. Andstæður þeirra náðu ekki
lengra þar sem lítið fór fyrir tog-
streitu eða árekstrum á milli dans-
aranna. Til þess að svo yrði þyrfti
meira mótvægi við hraðan, kaldan og
einsleitan dansinn.
Fljúgandi vængjalaus –
dansandi leikandi létt
LISTDANS
B o r g a r l e i k h ú s i ð
Í s l e n s k i
d a n s f l o k k u r i n n
Danshöfundur: Lára Stefánsdóttir.
Tónlist: Leifur Þórarinsson.
Tónlistarflutningur:
Guðrún Óskarsdóttir.
Dansarar: Guðmundur Helgason,
Guðmundur Elías Knudsen, Hildur
Óttarsdóttir, Hlín Diego Hjálm-
arsdóttir, Jesus De Vega, Katrín
Ingvadóttir, Katrín Ágústa John-
son, Trey Gillen. Lýsingarhönn-
uður: Elfar Bjarnason. Búningar:
Stefanía Adólfsdóttir. Sviðsmynd:
Stígur Steinþórsson.
DA
Danshöfundur: Katrín Hall. Tónlist:
Pan Sonic og Barry Adamson. Tón-
listarflutningur: Hljómeyki. Dans-
arar: Guðmundur Elías Knudsen,
Hlín Diego Hjálmarsdóttir, Jesus
De Vega, Katrín Ágústa Johnson.
MILLI HEIMA
UNNUR Fad-
ila Vilhelms-
dóttir píanó-
leikari heldur
tónleika í
Stykkishólms-
kirkju í dag,
sunnudag, kl.
17. Flutt verð-
ur Píanósónata
op. 31 í Es dúr
eftir L. v.
Beethoven,
Ballaða nr. 4 eftir F. Chopin og
Píanósónata nr. 8 eftir S.
Prokofieff.
Unnur lauk píanókennara-
og einleikaraprófi frá Tónlist-
arskólanum í Reykjavík og
doktorsprófi í píanóleik í
Bandaríkjunum. Hún kennir
nú við Tónlistarskóla Kópa-
vogs.
Píanótón-
leikar í
Stykkis-
hólmi
Unnur
Fadila
Vilhelmsdóttir