Morgunblaðið - 28.10.2001, Page 25
Verkinu er ætlað að sýna and-
stæður og tekst vel til í tónlistinni.
Þar hrópa tærir tónar kórsins á móti
dimmum tilbúnum raftónunum.
Staðsetning Hljómeykis og upp-
hækkaður pallurinn var ágætis
lausn. Kórinn hafði yfir sér mynd-
rænt yfirbragð. Hann minnti á dóm-
ara í dómsal enda hærra uppi en
dansararnir. Einföld staðsetningin
gaf kórnum svip dómara sem dæma
hvað er blekking og hvað er veru-
leiki. Þar tókst vel til með andstæð-
ur. Kórinn og rafmagnstónlistin er
það sem stendur upp úr í verkinu.
Uppsviðs hanga ferhyrningar úr
loftinu sem mynda kassa og á sviðinu
standa kassar í röð. Dansararnir
koma inn á sviðið, tylla sér á kass-
ana, glaðbeittir eins og vinir úti í
garði á góðum sumardegi. Létt gít-
artónlist dunar og einn dansaranna
tekur sig út úr hópnum og dansinn
hefst. Yfirbragð dansaranna er létt
og dansinn er leikandi með endur-
teknum einföldum hreyfingum.
Kassarnir eru notaðir til að dansa á,
sitja á og dansa með. Gleðin heldur
áfram þar til hressileg tónlistin
stoppar og ljósin slokkna. Fát og
fum kemur á dansarana. Þetta var
ekki það sem áætlað var en menn
bjarga sér og í myrkrinu draga dans-
ararnir vasaljós upp úr kössunum.
Hefst þá varaáætlunin eða Plan B,
sem er gjörningur í kolniðamyrkri
með vasaljós. Skuggamyndum er
varpað á veggi og loft, líkaminn lýst-
ur upp og ljósgeislar gleyptir. Tón-
list er samin á staðnum með slætti á
kassana eða með því að mynda
áhersluhljóð fyrir þá sem dansa.
Einn laumar sér annað veifið út úr
hópnum með vasaljós og birtist
skömmu síðar með stiga, skreyttum
vasaljósunum. Rafmagnið kemst á
aftur og fyrra andrúmsloft verksins
tekur við. Í lok verksins slokkna ljós-
in en eftir stendur upplýstur stigas-
kúlptúrinn eða Plan B. Þetta dans-
verk er andstæða hinna verkanna á
undan. Það hefur yfir sér hlýlegt og
glaðlegt yfirbragð. Hreyfigerðin í
verkinu er mjög einföld og ekki eins
krefjandi fyrir dansarana og í verk-
unum á undan. Dansararnir endur-
taka hreyfingarnar sem er gott fyrir
augað þegar þær eru vel fram-
kvæmdar. Höfundur kann þá list að
semja dansverk fyrir ólíka og mis-
langt komna dansara. Dansararnir
nutu þess að dansa verkið og fengu
karldansararnir loksins notið sín.
Gaman var að fylgjast með Guð-
mundi Helgasyni sem blómstraði í
verkinu. Höfundur er fær hug-
myndasmiður og eru hugmyndir
hennar oft myndrænar. Þannig tókst
vel til með notkun kassanna. Þeir
komu skemmtilega út í meðför dans-
aranna en voru þess á milli til prýði á
sviðinu. Kaflann Plan B hefði mátt
stytta. Sumar hugmyndirnar gengu
vel upp, eins og skuggamyndirnar og
að gleypa ljósið, aðrar voru verkinu
ofauknar og þær hefði að skaðlausu
mátt fella út.
Þetta glaðbeitta, létta og leikandi
dansverk var kærkominn endir á at-
hyglisverðu danskvöldi Íslenska
dansflokksins. Flokkurinn hefur yfir
að ráða reyndum og hæfileikaríkum
kvendönsurum sem eflast með
hverju dansverki. Það verður spenn-
andi að fylgjast með nýliðum flokks-
ins sem vonandi fá sinn tíma til að
aðlagast dansstíl flokksins en það er
engum greiði gerður með því að
spenna bogann of hátt. Íslenski
dansflokkurinn fer ótroðnar slóðir
með þessari haustsýningu og heldur
áfram að vekja fólki forvitni. Byrj-
unin lofar góðu um framhaldið á
vetri komanda.
Morgunblaðið/Golli
„Þetta glaðbeitta, létta og leikandi dansverk var kærkominn endir á athyglisverðu danskvöldi Íslenska dans-
flokksins,“ segir meðal annars í umsögninni um sýningu Ólafar Ingólfsdóttur, Plan B.
Lilja Ívarsdótt ir
Danshöfundur: Ólöf Ingólfsdóttir.
Tónlist: Hallur Ingólfsson. Dans-
arar: Guðmundur Helgason, Guð-
mundur Elías Knudsen,
Hildur Óttarsdóttir, Hlín Diego
Hjálmarsdóttir, Katrín Ingvadóttir,
Katrín Ágústa Johnson,
Trey Gillen.
PLAN B
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 28. OKTÓBER 2001 25
Heimsferðir
bjóða nú ein-
stakt tækifæri til að komast í sólina fyrir áramótin á hreint ótrúlegum
kjörum. Það er 25 stiga hiti á Kanarí, frábært veðurfar og þú getur
notið haustsins við frábærar aðstæður. Þú bókar ferðina núna og
tryggir þér síðustu sætin og 4 dögum fyrir brottför, hringjum við í þig
og látum þig vita hvar þú gistir, og á meðan á dvölinni stendur nýtur
þú þjónustu reyndra fararstjóra okkar allan tímann.
Verð kr. 49.905
Verð fyrir manninn, m.v. hjón
með 2 börn, 2–11 ára, flug,
gisting og skattar. 20. nóvember,
23 nætur.
Skógarhlíð 18, sími 595 1000. www.heimsferdir.is
Verð kr. 59.950
Verð fyrir mann, m.v. 2 í íbúð,
gisting, skattar. 20. nóvember,
23 nætur. Ferðir til og frá flug-
velli, kr. 1800.
Út 20. nóvember - Heim 13. des.
Aðeins 20 sæti
Stökktu til
Kanarí
20. nóvember
frá kr. 49.905