Morgunblaðið - 28.10.2001, Page 26
Í
LJÓSI þeirra umræðna
sem orðið hafa á und-
anförnum vikum um erfiða
fjárhagsstöðu einstakra
leikhúsa í Reykjavík og
óskir þar að lútandi um að
þau njóti aukins opinbers
stuðnings er kannski rétt að skoða
hvað felst í hugtakinu markaðslist
sem er þýðing á enska hugtakinu
„commercial art“. Hugtakið getur
átt við hvers konar listviðburð og
segir ekkert um gæðin þar sem
skilgreiningin felst eingöngu í eðli
fjármögnunarinnar.
Markaðsleikhús er leikhús sem
byggir starfsemi sína á framlögðu
áhættufjármagni einkaaðila, þar
sem verkefni eru
valin með það í
huga að þau njóti
hámarks-
aðsóknar og skili
fjárfestum aftur
útlögðum pen-
ingum sínum og helst nokkrum
hagnaði. Til að þetta megi takast er
reynt að hafa allar stærðir jöfn-
unnar vel þekktar; velja vinsæl og
örugg verkefni, velja þekkta leik-
ara og hæfa listræna stjórnendur.
Nýlegt og gott dæmi úr tónlistarlíf-
inu eru tónleikar José Carreras og
Sigrúnar Hjálmtýsdóttur í Laug-
ardalshöllinni. Þar voru listræn
gæði í hæsta flokki en einkaaðilar
lögðu fram fé í því skyni að aðsókn
að tónleikunum skilaði þeim hagn-
aði.
Einkenni á markaðsleikhúss-ýningum í stórborgum Vest-urlanda, s.s. West End í Lond-
on og á Broadway í New York, er
að þær eru unnar af ýtrustu fag-
mennsku og þar má sjá þekktustu
leikarana í návígi við áhorfendur.
Frumuppfærslur eru þó sjaldgæf-
ar, þó helst ef um nýja söngleiki er
að ræða, eftir þekkta höfunda,
hefðbundin leikrit þurfa að sanna
sig rækilega áður en fjárfestar
leggja peninga sína í uppfærslur á
þeim. Það er ekki tilviljun að þá
sjaldan kemur upp sýning á drama-
tísku leikriti á Broadway er mark-
aðssetning hennar fólgin í ræki-
legri undirstrikun á einmitt þeirri
staðreynd. Gullöld hinna drama-
tísku leikrita á Broadway leið undir
lok á 6. áratugnum með Tennessee
Williams og Edward Albee, á und-
an honum höfðu Arthur Miller og
Eugene O’Neill ráðið ferðinni. Að
O’Neill undanskildum lifðu þessir
höfundar allir sjálfa sig; Miller hef-
ur t.a.m. verið óþreytandi gagnrýn-
andi amerísks leikhúss og talið það
fjandsamlegt skapandi leikritun
einmitt vegna hinnar vægðarlausu
kröfu um söluhæfni verkanna.
Leikhúsrekstur í Bandaríkjunum
er gott dæmi um skil milli markaðs-
leikhúss og annars konar leik-
húsrekstrar. Það er þó ekki eins
einfalt og virðist við fyrstu sýn. Í
fyrsta lagi verja opinber yfirvöld
verulegum fjármunum til stuðnings
við listir og fer stuðningurinn að
miklu leyti í gegnum stofnunina
The National Endowment for the
Arts. Leikhúsin skilgreina sig einn-
ig á tvo vegu; annars vegar er um
að ræða hrein markaðsleikhús eins
og fyrirfinnast á Broadway og nán-
ast í öllum stærri borgum Banda-
ríkjanna. Þá eru önnur leikhús sem
njóta styrkja bæði opinberra aðila
og úr einkageiranum sem skil-
greina sig sem „non-profit theat-
res“ en í því felst einfaldlega að
leikhúsið sjálft nýtur allra hugs-
anlegra tekna sem það aflar, ut-
anaðkomandi fjármagn er stuðn-
ingur en ekki fjárfesting. Þetta er
mjög skýrt og vefst ekki fyrir
bandarísku leikhúsfólki þegar efnið
ber á góma. Í stærri borgum Evr-
ópu hafa ávallt þrifist einkaleikhús
sem gera út á hagnað og engum
hefur nokkru sinni dottið í hug að
þau væru hugsanlegir samkeppn-
isaðilar um styrki hins opinbera til
listastarfsemi.
Hér uppi á Íslandi hafa verið
gerðar einstakar tilraunir þar sem
einstaklingar hafa lagt peninga
sína í uppsetningu leiksýninga í
þeim tilgangi einum að ná fjár-
munum sínum til baka og gott bet-
ur. Þetta hefur tekist í nokkrum til-
fellum og dæmi um slíkt eru Litla
Hryllingsbúðin sem Hitt leikhúsið
sviðsetti í Óperunni 1984, og annað
þekkt dæmi er uppfærsla Flug-
félagsins Lofts á Hárinu í Óperunni
1995. Sú sýning var reyndar sam-
vinnuverkefni við Þjóðleikhúsið þó
ólíklegt sé að Þjóðleikhúsið hafi
samið um hlutdeild af væntanlegum
hagnaði. Bjarni Haukur Þórsson
hefur einnig fjárfest í leiksýningum
með misjöfnu gengi. Hellisbúinn
skilaði sínu til baka og ríflega það
en þar á undan hafði verulegt tap
orðið á uppsetningu sömu aðila á
Trainspotting. Bjarni Haukur er þó
dæmi um framleiðanda leiksýninga
sem hefur náð allgóðum árangri í
fjárfestingum sínum; hann stendur
nú að baki sýningunni Með vífið í
lúkunum í samvinnu við Leikfélag
Reykjavíkur.
Þ ótt íslensku leikhúsin hafiávallt reynt eftir föngum aðfylla í allar eyður markaðs-
jöfnunnar með öruggum stærðum
hefur oftar en ekki skort á eitt eða
fleiri af ofantöldum atriðum í eft-
irfylgjusýningarnar til að tryggja
örugga útkomu til lengdar. Þannig
reyndi Hitt leikhúsið að endurtaka
leikinn með sinni næstu sýningu,
Rauðhóla-Rannsí, metnaðarfullri
sýningu að mörgu leyti, sem ekki
náði þeirri aðsókn sem að var
stefnt, fjármunir töpuðust og leik-
húsið hætti störfum.
Flugfélagið Loftur fór fram af
miklum krafti eftir sýninguna á
Hárinu, standsetti nýtt leikhús í
Héðinshúsinu við Seljaveg og
nefndi Loftkastalann, en í því sama
húsi hafði verið leikstarfsemi um
tveggja ára skeið (1993–1995) undir
merkjum Leikhúss Frú Emilíu.
Flugfélagið Loftur rak kraft-mikla leikhússtarfsemi í Loft-kastalanum, sýningar á borð
við Latabæ, Rocky Horror, Fjögur
hjörtu, Bugsy Malone og á Sama
tíma að ári, nutu mikilla vinsælda
og lögðu grunninn að þeirri hug-
mynd að hægt væri að reka leikhús
hérlendis á markaðsforsendum.
Metnaður þeirra til nýsköpunar
kom einnig fram í sýningu á nýju
íslensku leikriti, Beinni útsendingu,
eftir Þorvald Þorsteinsson. Vafa-
laust hefur þó stofnkostnaður við
leikhúsið aldrei náðst niður og hann
myndað grunninn að þeim skulda-
hala sem hið sameinaða Leikfélag
Íslands dregur nú.
Það flækir svo málið og hefur
orðið tilefni til endalausra hártog-
ana að stofnanaleikhúsin tvö, Þjóð-
leikhús og Leikfélag Reykjavíkur,
hafa lengstum rekið listræna stefnu
sem byggist á lögmáli markaðs-
leikhússins að því undanskildu að
fjármagnið hefur komið frá op-
inberum aðilum en ekki einkaað-
ilum. Þannig er síðan til komin
krafa Leikfélags Íslands um að
sitja við sama borð hvað samkeppn-
isaðstöðu varðar. Þeirra krafa er í
rauninni sú að fá að vera markaðs-
leikhús með stuðningi hins op-
inbera.
Sjálfstæðu leikhúsin hafa ítrekað
vísað til mikillar aðsóknar að sýn-
ingum sínum og rökstutt til-
verurétt sinn með því. Mikil aðsókn
er til marks um vinsældir en segir
minna um gæði þeirrar leiklistar
sem í boði er. Vandinn er einnig
fólginn í því að erfitt getur verið að
setja mælistiku á listræn gæði og
við bætist að hverjum sýnist sinn
fugl fagur í þeim efnum.
Þrátt fyrir yfirlýsingar í upphafi
um að Flugfélagið Loftur og síðan
Leikfélag Íslands væri leikhús sem
gæti staðið á eigin fótum án op-
inbers stuðnings hefur það í raun
aldrei virst vera neitt sérstakt
keppikefli þeirra, enda spurning
hvaða tilgangi það þjónar að sanna
eitthvað í þeim efnum.
E kkert sjálfstæðu leikhúsannahefur í raun haft fjárhagslegtbolmagn til að standa við
kjarasamninga um ráðningar laus-
ráðinna leikara eins og þeir eru við
Þjóðleikhús, Leikfélag Reykjavíkur
og Leikfélag Akureyrar. Þegar
þessi leikhús ráða leikara í eitt
verkefni, eitt hlutverk, eru honum
tryggð laun í fjóra mánuði. Miðað
við gildandi kjarasamninga má ætla
að kostnaður leikhússins við slíka
ráðningu sé í kringum eina milljón
króna. Tilboð sjálfstæðu leikhús-
anna hafa verið á allt öðrum
grunni, verktakalaun upp á tiltekna
upphæð sem miðast við 4–6 vikna
æfingatíma og sýningarlaun ef vel
gengur. Það liggur í augum uppi að
allt aðrar tölur eru þar í spilinu og
atvinnuöryggi mun minna. Þetta
verður að hafa í huga þegar gerður
er samanburður á samkeppnishæfi
sjálfstæðra leikhúsa við stofn-
analeikhúsin.
Þó skyldi alls ekki vanmeta þátt
sjálfstæðu leikhúsanna í atvinnu-
möguleikum leikhúsfólks enda er
hann umtalsverður. Hann er þó eðli
málsins samkvæmt tilviljanakennd-
ari og ótryggari en hinna leikhús-
anna. Það er þó lykilatriði í skiln-
ingi á þeirri staðreynd að hér í
okkar smáa samfélagi er fráleitt að
ímynda sér að geti þrifist raunveru-
leg markaðslist, sem stendur fylli-
lega undir rekstri og getur greitt
listamönnum samkeppnishæf laun í
þeirri fullvissu að fjárfestinguna
megi endurheimta með sölu að-
göngumiða á raunverði til almenn-
ings.
Markaðslist í leikhúsunum
Morgunblaðið/KristinnHárið. Sýningin sem hleypti Flugfélaginu Lofti af stokkunum.
AF LISTUM
Eftir Hávar
Sigurjónsson
havar@mbl.is
LISTIR
26 SUNNUDAGUR 28. OKTÓBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ
NICOLA Vitale sýnir nokkur mál-
verk á Gallerí Gangi. Stíll hans er
hreinn og beinn; hlutbundinn en með
sterku táknrænu ívafi. Þau sýna sam-
anþjappaðan heim líkt og bernska
endurminningu. Allt virkar þéttar;
samanrekið og litfjörugt; ekki ósvip-
að því sem við ímyndum okkur að til-
veran líti út í augum smáfólksins.
Þá er málaratæknin sem Vitale
beitir bernsk að vissu leyti. Hand-
bragðið minnir eilítið á myndskreyt-
ingu þar sem allt er á sínum stað, vel
afmarkað af hverjum lit út af fyrir
sig. Hins vegar verður ekki sagt að
hér sé um raunsæja túlkun að ræða
því til þess er myndsviðið of einfalt og
hreint.
Raunar má finna margt í verkum
Vitale sem minnir á metafísíska list
þeirra Carrà og de Cirico, en jafn-
framt eru áhrif Domenico heitins
Gnoli nokkuð augljós, einkum hvað
varðar stærð og nálægð myndefnis-
ins. Líkt og í verkum Gnoli er sem
nærmynd af ákveðnum smáatriðum
þrengi sér út í myndflötinn. Þannig
er rýmið í málverkum Vitale þröngt
og innilokað.
Vitale var uppgötvaður – ef svo má
segja – af franska gagnrýnandanum
Pierre Restany, þeim sama og stóð
þétt á bak við Nýja raunsæið í París, í
lok sjötta áratugarins og byrjun þess
sjöunda. Það er auðvelt að ímynda
sér að fullkomið og hversdagslegt
látleysið í myndum listamannsins
hafi snortið gagnrýnandann. Reynd-
ar er þessi hversdagsleiki einkenn-
andi fyrir ákveðna tegund ítalskrar
listar, einkum þá sem ætlað er að
miðla okkur ævintýri venjulegrar til-
veru.
Það er einmitt þessi stundlega,
ljóðræna kraftbirting sem opinberast
mönnum á hverjum degi í formi hins
sama, sem þó verður einstæður við-
burður sökum þess að aðstæður og
hugarfar ná einhverri nýrri vídd á
gefnum stað og stund. Þá er sem við
sjáum allt í einu hlutina, smáatriðin
og samhengi tilverunnar í réttu og
skýru ljósi. Það eru þessi uppgötv-
unarvænu augnablik daglegrar til-
veru sem Nicola Vitale vill fanga og
miðla okkur, og gott ef honum tekst
það ekki bara þokkalega.
MYNDLIST
G a l l e r í G a n g u r ,
R e k a g r a n d a 8
Til októberloka. Opið eftir sam-
komulagi í síma 5518797.
MÁLVERK
NICOLA VITALE
Goðsögur
hversdagsins
Morgunblaðið/Halldór B. Runólfsson
Eitt af málverkum Nicola Vitale í Galleríi Gangi. Halldór Björn Runólfsson