Morgunblaðið - 28.10.2001, Síða 31
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 28. OKTÓBER 2001 31
ÞAÐ var þétt setinn bekkurinn á
Myndlistarþingi Sambands íslenskra
myndlistarmanna og Myndstefs sem
haldið var í fyrirlestrarsal Listasafns
Reykjavíkur – Hafnarhúss á föstu-
dag, en þar var saman kominn fjöldi
myndlistarmanna, forstöðumanna
listastofnana og gallería, forráða-
menn menningarmála og annað fag-
fólk á sviði myndlistarmála.
Efnt var til þingsins í því skyni að
ræða stöðu mála í íslenskum mynd-
listarheimi á breiðum grundvelli. Um-
ræður fyrirlesara og þinggesta tóku
til fjölmargra brýnna málefna sem
sett voru í samhengi við þróun mála á
sviði myndlistar í nágrannalöndun-
um. Á þinginu, sem stóð frá kl. 10 til
17, flutti á annan tug manns úr ólíkum
geirum myndlistarmála erindi og tók
þátt í pallborðsumræðum. Beindust
umræður að skilgreiningu myndlistar
í upplýsingasamfélagi, möguleika við
nýtingu upplýsingatækni til kynning-
ar og miðlunar myndlistar á alþjóða-
grundvelli og réttindamál myndhöf-
unda voru rædd í ljósi örrar þróunar
á sviði fjöl- og margmiðlunar. Á síðari
hluta þingsins var íslenskur mynd-
listarmarkaður til umræðu. Rætt var
um þörf þess að skilgreina hlutverk
myndlistarstofnana og einkarekinna
gallería, verðmyndun í myndlist var
rædd, neikvæð áhrif málverkafölsun-
armálsins á íslenskan myndlistar-
markað, kostnaður myndlistarmanna
við sýningarhald og möguleikar við
eflingu markaðar fyrir íslenska
myndlist hérlendis annars vegar og
erlendis hins vegar voru auk þess
rædd.
Ljóst er af þeim breiðu skoðana-
skiptum og viðhorfum sem fram
komu á þinginu að mikil þörf er fyrir
öfluga umræðu um skilgreiningu
myndlistarmála á Íslandi, m.t.t. mót-
unar vænlegra skilyrða fyrir mynd-
listarsköpun og miðlun myndlistar
sem verðmæta. Hátt bar þá umræðu
að horfa bæri til þess alþjóðlega mynd-
listarheims og -markaðar sem þróast
hefði á undanförnum árum og að leita
yrði leiða til eflingar tengsla við þenn-
an markað og leita yrði raunhæfra og
stórhuga leiða til þess, en talað var um
„einangrun íslenska myndlistarheims-
ins“ í því sambandi. Í samantekt þátt-
takenda pallborðsumræðna í lok
þingsins kom fram að menn væru al-
mennt ánægir með þá umræðu sem
fram hefði komið á þinginu og ítrekaði
Eiríkur Þorláksson, forstöðumaður
Listasafn Reykjavíkur, að þörf væri á
að halda umræðunni áfram á opinber-
um vettvangi.
Stefnumótun borgarinnar
Í ávarpi sínu til þingsins sagði Ingi-
björg Sólrún Gísladóttir borgarstjóri
að fyrir lægi að Reykjavíkurborg
mótaði skýra stefnu um hlutverk sitt
gagnvart myndlistarsköpun í borg-
inni. Ítrekaði borgarstjóri að slík
stefnumótun kallaði á skýra afstöðu,
og yrði þar að taka mið af aðstæðum
hverju sinni til þess að tryggja að það
fé sem borgin hefur til ráðstöfunar á
því sviði verði nýtt á sem bestan hátt.
Bætti hún við að menningarmála-
nefnd Reykjavíkurborgar hefði á
undanförnum misserum unnið á
markvissan hátt að slíkri mótun.
Upplýsti borgarstjóri um nokkur
grunnatriði í þeirri stefnu, þ.e. að
Reykjavíkurborg yrði efld sem höf-
uðborg mennta og menningar í land-
inu með frjóu menningar- og listalífi,
sem styrkti sjálfsmynd og samkennd
þjóðarinnar. Þá væri stefnt að því að
menning og listir verði snar þáttur í
uppeldi og kennslu í Reykjavík, verði
aðgengilegar borgarbúum og gestum
og einkennist af þrótti og metnaði. Að
í manngerðu umhverfi borgarinnar
verði skýrleiki, saga og listræn sjón-
armið ávallt höfð í heiðri og að menn-
ingarlíf í borginni einkennist af víð-
sýni og gagnkvæmri virðingu í
samskiptum fólks af ólíkum toga.
Sagði borgarstóri mikið starf fyrir
höndum að finna réttar leiðir til að
framfylgja þessum háleitu markmið-
um. Síðar á þinginu tilkynnti Knútur
Bruun, stjórnarformaður Myndstefs
og kynnir þingsins, fyrir hönd menn-
ingarmálanefndar Reykjavíkurborgar
að nefndin hefði ákveðið að koma á fót
Listskreytingasjóði sem í rynni 1%
heildarkostnaðar við nýbyggingar
annars vegar og viðhaldskostnað hins
vegar.
Þörf fyrir umræðu
um myndlist
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Að myndlistarþingi loknu á föstudag var boðið til móttöku í nýuppgerðu
húsnæði SÍM í Hafnarstræti 16, þar sem Ingibjörg Sólrún Gísladóttir
borgarstjóri afhenti Pjetri Stefánssyni, formanni SÍM, húsið formlega.
Ljóst er af þeim breiðu
skoðanaskiptum sem
fram komu á myndlist-
arþingi að mikil þörf er
fyrir umræðu um mynd-
listarmál á Íslandi.
Heiða Jóhannsdóttir
sat þingið.
heida@mbl.is