Morgunblaðið - 28.10.2001, Blaðsíða 58
ÍSLENSKA gamanleikritið Blessað
barnalán er fyrsta verkið sem Leik-
félag Akureyrar setur upp á þessu
leikári. Frumsýnt var um síðustu
helgi og var því mikið um dýrðir í
leikhúsinu gamla.
Höfundurinn, Kjartan Ragn-
arsson, var viðstaddur frumsýn-
inguna en hann samdi verkið handa
Leikfélagi Reykjavíkur fyrir rúm-
um tuttugu árum og naut það mik-
illa vinsælda og gekk lengi fyrir
fullu húsi á fjölum Iðnó. Þetta er í
fyrsta sinn síðan þá sem verkið er
sett upp aftur í atvinnuleikhúsi.
Leikstjóri uppfærslunnar á Ak-
ureyri er Þráinn Karlsson og koma
alls ellefu leikarar fram í henni,
þ.á m. góðkunningjar akureyrskra
leikhúsunnenda á borð við Sögu
Jónsdóttur, Aðalstein Bergdal,
Sunnu Borg og Skúla Gautason.
LA frumsýndi Blessað barnalán um síðustu helgi
Í hópi vinsælustu
gamanleikrita
Kjartan Ragnarsson, höfundur verksins, og Jón Þórisson, sem sá um
leikmynd og búninga, heilsa upp á leikarana Aðalstein Bergdal, Þor-
stein Bachmann og Sögu Jónsdóttur í lok frumsýningarinnar.
Saga Jónsdóttir leikkona og Þráinn
Karlsson leikstjóri brostu út að eyrum
að lokinni frumsýningu.
Morgunblaðið/KristjánLeikkonurnar María Páls-
dóttir og Laufey Brá Jóns-
dóttir glaðbeittar í lok
frumsýningarinnar.
FÓLK Í FRÉTTUM
58 SUNNUDAGUR 28. OKTÓBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ
Tangarhöfða 2,
110 Reykjavík,
www.bilabudrabba.is
JÓLIN NÁLGAST!
VINSÆLA AMERÍSKA JÓLASKRAUTIÐ
KOMIÐ. SKOÐIÐ EINNIG SÝNISHORN
Á HEIMASÍÐUNNI OKKAR.
EINNIG NOKKRAR VÖRUR Á
TILBOÐSVERÐI. VERÐ FRÁ 399.
FYRSTIR KOMA - FYRSTIR FÁ!
SÍMI 564 0000 - www.smarabio.is
Sýnd kl. 2, 5.10, 8 og 10.30. Mán kl. 5.10, 8 og 10.30.
Sýnd kl. 3.30, 5.40, 8
og 10.20.
Sýnd kl. 2 og 4. Mán kl. 4.
Með íslensku tali
Moulin Rouge er án efa
besta mynd ársins hingað til...
E.P.Ó. Kvikmyndir.com
Empire
SV Mbl
DV
Rás 2
Ótrúlegar tæknibrellur, brjáluð spenna og veisla fyrir augu og eyru.
Þú hefur aldrei séð annað eins.
Nýjasta sýnishornið úr Lord of the Rings er sýnt á undan
Ótrúlegar tæknibrellur, brjáluð spenna og veisla fyrir
augu og eyru. Þú hefur aldrei séð annað eins.
Nýjasta sýnishornið úr
Lord of the Rings er sýnt á undan
Miðasala opnar kl. 13
Sýnd kl. 5.40, 8 og 10.15.Sýnd kl. 2, 4, 6, 8 og 10. Mán kl. 4, 6, 8 og 10.
Stórstjörnurnar Julia Roberts, Billy Crystal, Catherine Zeta-Jones og John
Cusack fara hér á kostum í stórskemmtilegri rómantískri gamanmynd sem
fjallar um fræga fólkið, ástina og önnur skemmtileg vandamál.
5 hágæða bíósalir
MOULIN
ROUGE!
FRUMSÝNING
Hausverkur
Frá framleiðendum Big Daddy kemur drepfyndin gamanmynd um klikkaðar kær-
ustur og vitlausa vini! Hvað gera bestu vinir Silvermans þegar kærastan er að
eyðileggja ævinlangan vinskap? Þeir ræna henni að sjálfsögðu!!! Þú deyrð úr hlátri!
Varúð!!
Klikkuð kærasta!
Glæsileg leysigeislasýning á undan myndinni.
LAUF hefur að geyma 14 lög og
texta sem öll eru eftir Hörð Torfa-
son. Lögin byggjast á gróinni hefð
trúbadúrs- og vísnalaga, en Hörður
lætur þann ramma
þó ekki þrengja að
sér. Hér fær hann
til liðs við sig góðan
hóp manna til að
gefa lögunum fjöl-
breyttari og fyllri
hljóm og lagasmíð-
arnar koma stundum við á óvæntum
stöðum. Diskurinn hefst til dæmis á
gospel-laginu „Brekkan“ en þar er
Hörður og kórinn reyndar ekki endi-
lega að syngja Guði til dýrðar heldur
er boðskapurinn fremur sá að
treysta á sjálfan sig: „Ég vil sjá og
sigra/ég sættist ekki á minna.“ Spila-
gleðin er auðheyranleg í „Floginn“
sem er nett „röffaður“ blús og loka-
lagið, „Fíflið“, er í anda rússneskra
tregasöngva. Burðarvirkið er þó
norræn vísnalagahefð þar sem flytj-
andinn tekur sér stöðu við hlið með-
aljónsins og hversdagslífsins með
hógværum laglínum og jarðbundn-
um, oft ádeilukenndum textum.
Þegar Hörður Torfa er annars
vegar, eru textarnir órjúfanlegur
þáttur laganna og ekki ortir aðeins
til skrauts eða uppfyllingar. Rödd
Harðar býr yfir allskyns blæbrigð-
um enda hefur maðurinn kallað sig
„eins manns leikhús“ og getur auð-
veldlega talað fyrir munn allra
þeirra litríku persóna sem hann
sendir á sviðið í lögum sínum. Þarna
má finna rónann á botninum, hræsn-
arann, pervertinn og fleiri, þar sem
Hörður hæðist góðlátlega að for-
dómafullu samfélagi
sem vill baka alla í
sama kökuformi.
Helsti gallinn í þessum
„leikhúslögum“ er að
þótt textarnir séu oft
hnyttnir og skemmti-
legir, þjóna laglínurnar
aðeins þeim tilgangi að
vera undirleikur fyrir
sögurnar en eru ekki
nógu bitastæðar á eig-
in forsendum.
Bestu lög plötunnar
finnst mér þau þar sem
Hörður fer persónu-
legri leið og setur fram
vangaveltur um lífið og
ástina, því þar næst
jafnvægi milli laglínu
og texta og hvort styður við annað,
eins og í lögunum „Takkinn“, „Lauf“
og „Stormur“. Í því síðastnefnda má
finna línurnar: „Þú hefur meir en
væntumþykju vakið/ég vona að sólin
rjúfi gat á þakið“. Mér þótti líka gít-
arleikurinn allur vel heppnaður á
disknum, áberandi fallega mjúkur og
áreynslulaus og jafnvel má heyra
smávegis kántríhljóm hér og þar
sem ekki skemmir fyrir.
Hér er kannski ekki á ferðinni
tímamótaverk á ferli Harðar og hann
fer varlega í brot og beygjur á hefð-
inni, en hins vegar gerir hann hlutina
af einlægni og heiðarleika sem hefja
lög hans og texta upp úr miðjumoð-
inu. Laufin sem hann sendir okkur á
þessu hausti, ættu því ekki að svíkja
aðdáendur flökkuskáldsins þraut-
seiga.
Tónlist
Heiðarleg
haustlauf
Hörður Torfason
Lauf
Ofar/Edda
Lauf. Ný plata frá Herði Torfasyni sem fær
hér til liðs við sig Einar Val Scheving sem
sér um trommur og áslátt, Jón skugga á
bassa og Vilhjálm Guðjónsson „altmulig-
mann“ sem, auk þess að sjá um upp-
tökustjórn og hljóðblöndun, leggur lið við
raddir, gítar, bassa, orgel, slagverk o.fl.
Ofar gefur út, Edda dreifir.
Steinunn Haraldsdóttir
Hörður Torfason hefur ætíð gefið sig allan í
túlkun tónlistar sinnar.
Morgunblaðið/Árni Sæberg