Morgunblaðið - 02.11.2001, Qupperneq 14

Morgunblaðið - 02.11.2001, Qupperneq 14
SUÐURNES 14 FÖSTUDAGUR 2. NÓVEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ SAMNINGUM vegna stækkunar Fjölbrautaskóla Suðurnesja er að ljúka og standa vonir til að hægt verði að hefjast handa við nýja við- byggingu á næsta ári. Ólafur Jón Arnbjörnsson, skólameistari FSS, segir stækkunina mjög brýna enda hafi nemendum fjölgað jafnt og þétt síðustu árin. Þar að auki sé von á verulegri fjölgun nemenda eftir tvö ár, þegar fjölmennir árgangar koma upp úr grunnskólum á Suðurnesjum. Ólafur segir að menn séu búnir að ná sátt um stærð viðbyggingarinnar og samþykki menntamálaráðuneytis- ins og sveitarfélaga á Suðurnesjum liggi fyrir. Gert er ráð fyrir framlagi vegna byggingarinnar á fjárlögum en hins vegar hefur ekki verið gengið frá formlegum samningum, að sögn Ólafs. Samkvæmt samkomulaginu sem nú liggur fyrir er gert ráð fyrir allt að 3.000 fermetra viðbyggingu. „Megin- hugmyndin er einnig sú að láta fara fram nauðsynlegar breytingar á eldri hlutanum, sem er úr sér genginn, og þar þarf að fara í endurbætur,“ segir Ólafur. Nemendum mun fjölga um 150 á hverju ári Búið er að byggja nokkrum sinn- um við skólann frá því að FSS tók til starfa árið 1976. Nemendafjöldi er nú kominn upp í 760 í dagskóla auk hátt í 200 nemenda í öldungadeild. „Nem- endum hefur fjölgað stöðugt, eins og á svæðinu öllu, þar sem fjölgun hefur verið yfir landsmeðaltali síðustu árin. Síðan er það, sem gerir þetta mál brýnt, að eftir tvö ár byrja að koma inn mjög stórir árgangar og næstu tíu árin þar á eftir úr grunnskólum. Hingað koma um 85% af hverjum ár- gangi og það er um 25% fjölgun í ár- göngum í grunnskólum. Þá erum við að tala um 150 nemenda fjölgun hér næstu fjögur árin á eftir og þá verð- um við ansi illa sett. Þannig að það er mjög brýnt að fara í þetta núna og það sýna því allir stuðning, jafnt ráðuneyti menntamála sem Suður- nesjamenn,“ segir Ólafur. Hann segir að nú sé verið að und- irbúa frágang við lokagerð samnings um framkvæmdir til að leggja fyrir þá aðila sem fjármagna bygginguna, þ.e. ríkið og sveitarfélög á Suðurnesj- um. „Ég er að gera mér vonir um að gengið verði frá samningum nú á haustdögum og hægt verði að byrja á næsta ári og helst í vor.“ Samningum að ljúka vegna stækkunar FSS Stækkun brýn vegna fjölgunar nemenda Morgunblaðið/Þorkell Fjölbrautaskóli Suðurnesja í Reykjanesbæ. Reykjanes NEMENDAFÉLAG Fjölbrautaskóla Suðurnesja opnaði í gær nýja heima- síðu félagsins. Vefslóðin er http:// www.nfs.is og leysir hún af hólmi eldri síðu sem var ekki eins góð og lítið notuð. Ellert Hlöðversson, for- maður nemendafélagsins, segist mjög ánægður með árangurinn. „Það sem hægt er að finna á síð- unni eru fréttir af starfi félagsins, hvað er á döfinni og myndir af liðn- um atburðum. Þá verður vefkosn- ing, þar sem sett verður fram ný spurning í hverri viku og gestir síð- unnar geta valið um svör. Afmæl- isbarn dagsins í skólanum verður valið, en einnig verða þarna grunnupplýsingar um NFS; hverjir sitja í stjórnum og ráðum, ásamt hlutverki og lögum félagsins,“ segir Ellert. Hvernig kviknaði hugmyndin að heimasíðunni? „Heimasíða NFS var fyrst sett upp fyrir þremur árum, en síðurnar hafa fram til þessa verið lítið kynntar og ekki nógu aðgengilegar nemendum. Við erum nú að reyna að bæta úr því. Síðan er gagnagrunnstengd og því auðvelt að uppfæra hana, auk þess sem hún er viðhaldslítil og verður því væntanlega mikið notuð.“ Hver er tilgangur síðunnar? „Við erum í samvinnu við skólann að reyna að efla tengsl og byggja upp og efla jákvæða ímynd hans með því að gera hann sýnilegri. Við opnum með þessu skólann fyrir um- heiminum og sýnum allt það upp- byggilega og skemmtilega starf sem hér fer fram,“ segir Ellert og vill að lokum þakka gjorby.internet fyrir að útvega lén fyrir síðuna og Ástþóri Inga Péturssyni sem bjó hana til. Morgunblaðið/Sigríður Hjálmarsdóttir Ellert Hlöðversson, formaður NFS, er ánægður með nýju heimasíðuna. Nemendur FSS opna nýja heimasíðu Reykjanesbær SLÖKKVILIÐ Brunavarna Suður- nesja æfði í fyrrakvöld reykköfun og björgun úr fimm hæða nýbygg- ingu við Aðalgötu í Reykjanesbæ. Að sögn Jóns Guðlaugssonar, vara- slökkviliðsstjóra, þótti tilvalið að halda æfingu í byggingunni á þessu byggingarstigi og var húsið fyllt af reyk og fórnarlömbum úr Björg- unarsveitinni Suðurnes komið fyrir víðsvegar um húsið. Slökkviliðinu barst síðan tilkynn- ing í gegnum neyðarlínuna með hefðbundnum hætti. Þegar á stað- inn var komið voru reykkafarar sendir inn í bygginguna til að leita að fórnarlömbunum og þá var körfubíll slökkviliðsins notaður til að bjarga fólki af efri hæðum húss- ins. Æfingin miðaði að því að æfa reykkafara í að vinna í margra hæða fjölbýlishúsum og sjá hvernig gengi að rýma slíkt húsnæði og bjarga fólki út með tækjabúnaði slökkviliðsins af efri hæðum, þegar ekki væri hægt að fara eftir stiga- göngum og hefðbundnum leiðum. „Það má segja að æfingin hafi tekist vel. Húsið er í byggingu og aðstæður voru því erfiðar en þetta tókst vel. Það var mikill reykur settur þarna inn, sviðsreykur sem er hættulaus þannig að óhætt var að láta fólk bíða þarna eftir björg- un. En hann er þó það þéttur að reykkafarar sáu ekki handa sinna skil,“ sagði Jón. Meðal þess sem var sett í svið í æfingunni var að bjarga einstak- lingi undan bretti sem hrunið hafði yfir viðkomandi, sem reyndar var dúkka, og þurfti að losa hann und- an okinu. Til þess voru notaðir loft- púðar og önnur tæki til þess að lyfta þungum hlutum og þurftu slökkviliðsmenn að vinna með reykköfunartækjum og öðrum bún- aði. Nýr slökkviliðsbíll á leið til landsins Æfingin vakti nokkra athygli vegfarenda og segir Jón að sumir hefðu spurt hvort um raunveruleg- an eldsvoða væri að ræða, enda reykurinn mikill. Hann segir hins vegar að fólk sé ekki óvant því að sjá slökkviliðið á ferðinni við æfing- ar. Meðal annars er nýlokið árlegu átaki í öllum leikskólum Reykja- nesbæjar, þar sem skólarnir eru rýmdir og starfsfólk frætt um brunavarnir og viðbrögð í eldsvoða. Að sögn Jóns er slökkviliðið að verða vel búið tækjum eftir að þriggja ára átaki í þeim efnum var hrundið í framkvæmd. „Það hefur gengið mjög vel og hefur verið staðið myndarlega að því,“ segir Jón. Hann segir að í dag fari í skip í Noregi nýr slökkviliðsbíll frá Ros- enbauer í Noregi, sem ætti að vera kominn til landsins eftir vikutíma. Að sögn Jóns er um að ræða öfl- ugan Scania slökkviliðsbíl sem koma mun sér vel fyrir Brunavarn- ir Suðurnesja á komandi árum. Brunavarnir Suðurnesja með æfingu við Aðalgötu Fólki bjargað úr fimm hæða byggingu Ljósmynd/Hilmar Bragi Bárðarson „Fórnarlambi“ bjargað undan bretti sem hrunið hafði yfir viðkomandi. Reykjanesbær FJÖLDI ungra knattspyrnumanna mætti í Festi í Grindavík á dög- unum. Tilefnið var uppskeruhátíð eftir árið en alls stunduðu ríflega 230 knattspyrnumenn af báðum kynjum knattspyrnu lungann úr árinu. Veitt voru ýmis verðlaun. Þá er orðið ljóst hverjir þjálfa þessa efni- legu krakka fyrir næsta sumar en það eru Milan Stefán Jankovic og Jón Ólafur Daníelsson. Jón Ólafur tekur til starfa í byrjun janúar en verið er að ganga frá ráðningu hans sem þjálfara kvennaflokka, 7. flokks, 6. flokks og 5. flokks drengja. Milan Stefán Jankovic mun sjá um þjálfun 4. flokks, 3. flokks og 2. flokks karla og afreks- hóps. Morgunblaðið/Garðar Páll Vignisson Margir fengu verðlaun og viðurkenningar á uppskeruhátíð yngri knattspyrnumanna í Grindavík. Mikið af efni- legum knatt- spyrnumönnum Grindavík REYKJANESBÆR mun styrkja Norðuróp sérstaklega vegna óperu- sýningar félagsins í bæjarfélaginu. Menningar- og safnaráð treysti sér ekki til að veita Norðurópi styrk af sínu takmarkaða ráðstöfunarfé við úthlutun á því á dögunum en hvatti bæjarstjórn til að styrkja óperuhóp- inn sérstaklega. Var vísað til þess að óperuveislan í haust hefði verið mikil og jákvæð auglýsing fyrir bæinn sem menningarbæ og sjálfsagt að bregð- ast við á jákvæðan og hvetjandi hátt. Bæjarráð hefur af þessu tilefni lagt til að 300 þúsund kr. aukafjárveiting verði veitt til menningar- og safnar- áðs og því falið að afgreiða erindið. Norðuróp fær styrk Reykjanesbær
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.