Morgunblaðið - 02.11.2001, Qupperneq 55

Morgunblaðið - 02.11.2001, Qupperneq 55
MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 2. NÓVEMBER 2001 55 með sér ferskan blæ frumkvæðis og framvarðar í skólastarfi. Þeir sem tileinkuðu sér þau gildi, voru tilbúnir að hasla sér völl og takast á við ný verkefni. Hans tók að sér skólastjórn í Vest- urbæjarskólanum í Reykjavík 1958. Þar fann hann sér nýjan og víðari vettvang til starfa. Þessi vettvangur veitti honum tækifæri til starfa að fé- lagsmálum skólastjóra. Í nóvember 1958 kallaði hann til fundar nokkra skólastjóra og lagði fram hugmynd að stofnun Skólastjórafélags Ís- lands. Markmið félagsins var skýrt mótað af hans hálfu: að stuðla að um- bótum í fræðslu- og uppeldismálum þjóðarinnar, að vinna að aukinni menntun skólastjóra, að stuðla að kynningu meðal félagsmanna. Í þessum félagsskap kynntist ég nánar hinum félagsdjarfa manni. Þetta félag í samstarfi við hans nánu stjórnarmenn, stóð að yfirgrips- miklu starfi. Þarna fóru fram fagleg- ar umræður, hvetjandi markmið voru sett fram og kjarnyrt skoðana- skipti, alþjóðleg viðhorf kynnt, en síðast en ekki síst ómetanlegar ánægjustundir á fundum og ferða- lögum innanlands og erlendis í tengslum við námskeiðin. Í þessu starfi stóð Hans í forystu ásamt sínum sterku og hugmynda- ríku stjórnarmönnum að ógleymdri henni Sigrúnu, hinum trausta bak- hjarli hans í lífi og starfi. Þessi fé- lagshópur vann óslitið fram til 1978. Á þessum tíma voru haldin átta fræðslu- og kynningarmót skóla- stjóra. Síðustu árin sátum við saman í kyrrð, en þokkalegu annríki á síð- degi ævihlaupsins sem félagar í EKKÓ, kór félags kennara á „síð- degislaunum“. Þar eru saman komn- ir syngjandi kennarar sem lokið hafa sínum starfstíma við framfærslu þegna og þjóðarbús. Síðasta samkoma okkar var á samkomu Úrvals-Útsýnar á Hótel Sögu hinn 19. okt. Þar gekk Hans í fararbroddi kórsins til söngs. Að loknu ljúfu klappi sungum við auka- lagið „Ég að öllum háska hlæ, hafi Sóns á ströngu. Mér er sama nú hvort næ nokkru landi eða öngu.“ Þessi heiðursmaður er kvaddur og lending hans er fyrir löngu tryggð sem umbun fyrir allt það mikla og óeigingjarna starf hans að menntun, menningu og gleði fyrir þjóð sína, þegna og nánustu félaga. Innileg samúðarkveðja til fjöl- skyldunnar. Blessuð sé minning hans. Hjörtur Þórarinsson. Mér er ljúft og sárt í senn að setja nokkur orð á blað. Göfugmenni er gengið enn göngu sína í hinzta stað. Fyrstu kynni okkar Hans heitins voru á sviði skólamennskunnar sem kennarar, söngkennarar, kórstjórn- endur og skólastjórar, kynni sem urðu ævilöng og aldrei bar skugga á. Hann var þeim mannkostum gæddur, sem opnuðu leiðir til beztra kynna og fölskvalauss vinfengis. Dagfarslega hóglátur, vinhlýr og yf- irlætislaus, en samtímis harla glögg- ur, skipulagður, markviss og ákveð- inn á sinn fágaða hátt. Þessum eiginleikum búinn var hann hvers manns hugljúfi og vinsæll, einnig meðal nemenda sinna. Ekki var há- reystin um hann. Kennslustarfið leit hann alvarleg- um augum og reisti því háan staðal í djúpri virðingu fyrir manngildi og mannkostum. „Þetta starf,“ sagði hann, „er mikilvægast allra starfa hvers og eins þjóðfélags næst á eftir skólamennsku heimilanna, þar sem fyrsta og allraveigamesta mótun, fræðsla og stefnumörkun fer fram. Þar sem grundvöllurinn er byggður og fyrstu hornsteinarnir lagðir. Sjáðu, Jón. Við erum bara númer tvö sem kennarar á eftir foreldrunum sjálfum, sem eru fyrstu kennarar. En eigi að síður, sem skólamenn, meðhöndlum við það dýrmætasta sem þjóðin á, börnin og unglingana, mótum þau og mörkum þeim stefnu inn í framtíðina sjálfum þeim til blessunar og þjóðfélaginu til far- sældar. Og þegar til kjarnans er klif- ið, veltur allt á þessari fyrstu mótun og veganestinu, sem við gefum.“ Þannig mat hann starf sitt sem kennari og skólastjóri. Og sammála vorum við algjörlega um, eins og hann sagði: „Almennt er börnunum kennt allt of lítið, þegar hinn ungi hugarheimur er alopinn fyrir hverj- um fróðleik sem vera skal, og skjót- leiki tileinkunarinnar með ólíkind- um. Þau iðka nefnilega hina háspekilegu kenningu okkar, að „móðir alls lærdóms er endurtekn- ingin“. Og hvað gera smábörnin ann- að en að tala og masa stanslaust? Og sjáðu. Þau tileinka sér móðurmálið á ótrúlega skömmum tíma miðað við fullorðna, svo ekki sé talað um roskna, sem ætla að nema ný tungu- mál.“ … „Já, en verðum við nú ekki oft nokkuð þreytt á þrotlausu mas- inu í þeim?“ spurði ég. „Jú, en það eru mistök okkar,“ svaraði hann. „Ættum við þá ef til vill að hvetja þau til að masa meira og meira um fleira og fleira?“ spurði ég aftur. „Ja, því ekki það? Sennilega myndu þau tileinka sér heilmikið annað með sambærilegum hraða og þau grípa móðurmálið sjálft,“ svaraði hann … Þetta var Hans, skólamaðurinn. Hans unni tónlist mjög, lifði og hrærðist í henni og kenndi söng alla ævi og var mikill áhugamaður um al- mennan söng. Ég minnist þess frá kennara- og skólastjóraþingum okk- ar, að hann lagði fram söngvahefti, sem hann hafði tekið saman til sam- söngs á mannfundum okkar og hvatti mjög til að taka lagið. Slíku hefur hann haldið áfram, framleitt söngvahefti fyrir ýmsa sönghópa, ekki síst síðustu árin, einnig fyrir eldri borgara. Ég vissi til þess, að hann var nýbúinn að fá sér vandaða tölvu til að geta unnið þetta verk sem hraðast og bezt. Segja má, að hann hafi lifað fyrir sönginn. Nánust urðu kynni okkar þó, hvað söng snertir, þegar ég tók að mér að stjórna kór eftirlaunakennara, EKKÓ-eftirlaunakennarakórnum. Í kórsöngnum var hann góður liðsmaður. Þelmjúk bassaröddin, yf- irtónarík og hljómþýð féll vel inn og fyllti upp. Þar var hann heill og óskiptur sem og í öllu, er hann fékkst við. Æfingarnar sótti hann óskeikult, jafnvel þótt lasinn væri og með hita. Nótur las hann vel, tónnæmur og söng rétt … Þetta var Hans, tónlist- arunnandinn. Er við gengum út að lokinni söng- æfingu fimmtudaginn 18. október tjáði hann mér, að nú ætti að senda hann til Hveragerðis til hressingar um tíma. „En ef þú þarft á mér að halda skrepp ég í bæinn og syng með ykkur. Jólasöngurinn er framundan, og svo er það árshátíðin,“ sagði hann. Ég bað hann að hugsa nú bara vel um sjálfan sig og hvílast frá körfuhörkunni í mér. Daginn eftir, hinn 19., sungum við á Hótel Sögu fyrir ferðaskrifstofurn- ar Úrval-Útsýn yfir rúmlega 300 manns. Með stafinn sinn í hendi fór Hans fyrstur inn á söngsvæðið og sagði um leið og hann gekk framhjá mér: „Ég læt mig hafa það að standa á þessum söngpöllum.“ (Venjulega sat kórinn á söngæfingum, hann orð- inn þreyttur, enda ekkert ungmenni lengur.) Til Hveragerðis fór hann mánu- daginn hinn 22. Miðvikudagskvöldið 24. gekk hann til náða, en lézt í svefni þá nótt. Fékk þannig friðsælt andlát eins og bezt verður á kosið, enda hvíldin kærkomin eftir langan anna- saman ævidag. Daginn eftir, fimmtu- daginn hinn 25., er við mættum til söngæfingar, fréttum við andlát hans. Þetta hafði allt gerzt svo skjótt eitt af öðru aðeins með nokkurra daga mun, að andlátsfregnin var okkur öllum í rauninni mikið áfall. Þessi sívökuli og söngelski félagi horfinn úr hópnum okkar – og það svona skjótlega þvert ofan í vonina að sjá hann endurhresstan til söngs á ný! EKKÓ kveður Hans með djúpri virðingu og innilegu þakklæti fyrir ómetanlegan og sívökulan stuðning í söngnum og þann góða félags- og sönganda sem hann bar jafnan með sér. Hlýjar samúðarkveðjur sendir kórinn einnig eftirlifandi ástvinum hans. Sjálfur kveð ég þennan dygga og trausta kórþegn minn með söknuði og trega, en jafnframt í djúpu þakk- læti fyrir næmleik hans í að fylgja mér í túlkun og blæbrigðum, og ekki sízt fyrir sönggleðina, sem ljómaði af honum og vakti mér eldmóð. Blessuð sé minning hans. Jón Hjörleifur Jónsson. Þeim fækkar smátt og smátt sem forystu höfðu um stofnun Skóla- stjórafélags Íslands. Nú hefur einn af frumkvöðlunum, Hans Jörgens- son, kvatt þessa jarðvist. Þegar Skólastjórafélagið var stofnað 1960 var Hans skólastjóri við Vesturbæjarskóla í Reykjavík. Hann gerðist skólastjóri við þann skóla 1958 en hafði áður lengst af verið kennari fyrst á Akureyri og síðan á Akranesi. Á Akranesi var hann virk- ur í bæjarmálum og sat í bæjarstjórn í tvö kjörtímabil. Hann var þar í for- ystu í tónlistarmálum og kom víðar við í félagsmálum. Hann tók virkan þátt í skátahreyfingunni og þar hóf- ust kynni þeirra Vilbergs heitins Júl- íussonar skólastjóra sem ásamt Hans á mestan heiður af stofnun Skólastjórafélagsins. Á fyrsta fundi félagsins var Hans kjörinn formaður og gegndi því frá 1960 til 1976 eða lengur en nokkur annar. Félagið var þá einkum fagfélag en ekki sjálf- stætt félag innan Kennarasambands Íslands eins og nú. Barátta þessara frumkvöðla reyndist afar farsæl. Þeim tókst að sameina nær alla skólastjóra barna- skólanna undir sinn hatt, en þá var annað félag fyrir gagnfræðaskólana. Hans og Vilbergur voru óþreytandi í því að standa fyrir fræðslumótum fé- lagsins og voru þau haldin þriðja hvert ár. Mótin stóðu í vikutíma og makar skólastjóra mættu með þeim á þessi mót. Þarna komust á kynni sem entust alla ævi. Á þessum mót- um voru alltaf fengnir fyrirlesarar frá útlöndum sem stóðu framarlega í skólamálum. Oftast komu þeir frá einhverju Norðurlandanna og stund- um voru þessi mót haldin erlendis. Þetta hafði mjög góð áhrif á sam- skipti manna og þjappaði stéttinni saman. Félagið naut virðingar út á við og verk þess voru vel metin af yf- irvöldum menntamála. Mótin sem hér er minnst á eru öll- um ógleymanleg sem þau sóttu. Það var ekki síst Hans að þakka sem með ótrúlegri elju var vakandi og sofandi yfir því að gera samvistirnar sem bestar. Hann var góður músíkmaður og spilaði á orgel og söngheftin sem hann tók saman og prentaði með nót- um voru þykkar bækur. Hann æfði alltaf hóp manna sem voru eins kon- ar forsöngvarar á þessum mótum. Þá voru alltaf fjölbreyttar kvöldvök- ur. Þegar menn voru að efast um að hlutirnir gengju þá kom Hans alltaf til skjalanna og sagði að þetta væri ekki mikið mál, við myndum ná þessu ef við legðum okkur fram. Honum var ekki gjarnt að gefast upp og hans mikla jákvæðni og glaða lund kom flestu fram sem hann ætl- aði. Hann átti ríkan stuðning þar sem Sigrún kona hans var en þau voru mjög samstillt og höfðu til að bera mikinn metnað fyrir félagsins hönd. Blessuð sé minning hennar. Hans var farsæll skólastjóri sem stýrði skóla sínum af látleysi og án hávaða. Vesturbæjarskóli var þá til húsa í gamla Stýrimannaskólanum og þótt skólinn væri ekki fjölmennur miðað við marga barnaskóla þá var þar oft þétt setinn bekkurinn því húsakynnin voru þröng. Ég minnist þess er ég kom þangað í heimsókn einhverju sinni hve nægjusamur hann var með vinnuaðstöðu fyrir sjálfan sig. Hans var þeirrar gerðar að gera miklar kröfur til sjálfs sín og hugsa um að standa sig í því sem honum var trúað fyrir en alltaf jafn tilbúinn að hliðra til fyrir öðrum. Hvað kennsluna varðaði þá gat hann brugðið sér í að kenna flestar grein- ar. Honum var létt um að taka að sér tónlistarkennsluna eða söng- kennsluna eins og hún var kölluð á þessum árum. Þá lá kennsla í smíðum vel fyrir honum enda var hann meistari í húsasmíðum og vann á yngri árum jafnan við byggingar á sumrin. Hann var duglegur að afla sér aukinnar menntunar. Margar ferðir fór hann utan á námskeið og til að kynnast skólamálum þar. Veturinn 1956–57 var hann við framhaldsnám við Kennaraháskól- ann í Danmörku og hann sótti öll fræðslumót Skólastjórafélagsins. Þegar Hans lét af störfum sem skólastjóri 1980 hóf hann störf sem framkvæmdastjóri Samtaka aldr- aðra við byggingar íbúða fyrir þá. Þar kom hann ótrúlega miklu í verk. Reyndar var hann orðinn formaður þeirra samtaka 1977 eftir að hafa verið þar í stjórn um nokkurn tíma. Hann var virkur félagi í Félagi kenn- ara á eftirlaunum og góður liðsmað- ur í kór þess félags nánast til dauða- dags. Áhuginn alltaf samur við sig. Nú hittir svo á að þann sama dag og hann er borinn til grafar er að hefjast aðalfundur Skólastjóra- félagsins. Ég veit að hann hefði verið þar viðstaddur eins og jafnan áður þótt hann væri löngu hættur störf- um. Kannski fylgist hann með fund- inum af hærri sjónarhóli. Um leið og ég færi Hans alúðarþakkir fyrir fórnfúst en happasælt starf að skóla- málum flyt ég sérstakar kveðjur frá stjórn Skólastjórafélags Íslands. Við Ingibjörg þökkum löng og gleðileg samskipti um áratuga skeið. Innileg- ar samúðarkveðjur eru færðar börn- um og öðrum ættingjum hins látna. Kári Arnórsson. Kveðja frá Skólastjóra- félagi Íslands Látinn er Hans Jörgensson fyrr- verandi skólastjóri. Hans var í for- ystusveit þeirra skólastjóra sem stóðu fyrir stofnun Skólastjórafélags Íslands. Á stofnfundi félagsins 12. júní 1960 var hann kjörinn formaður. Hann lét af formennsku árið 1976 og hafði þá veitt félaginu forystu í sex- tán ár eða lengur en nokkur annar hefur gert. Hans var mjög ósérhlífinn maður og allt hans mikla starf fyrir félagið var ólaunuð vinna. Hann var einn af aðalhvatamönnunum að fræðslumót- um skólastjóra og drifkrafturinn í að koma þeim á. Þessar samkomur voru stéttinni mikils virði og sameinuðu hana í baráttu fyrir bættu skólastarfi og skerptu vitundina um mikilvægi stjórnunar í farsælu skólastarfi. Hann var fulltrúi félagsins í sam- skiptum við yfirvöld menntamála og laginn við að leiða mál félagsins til farsælla lausna. Skólastjórafélag Íslands stendur í mikilli þakkarskuld við frumherjana og ekki síst þá sem mótuðu starfið fyrstu árin. Hans fylgdist vel með fé- laginu eftir að hann hafði látið af störfum og sótti aðalfundi og árshá- tíðir félagsins til hinstu stundar. Þannig stendur á í dag að um sama leyti og útför hans fer fram er verið að setja aðalfund félagsins. Ég er þess fullviss að hann verður þar með okkur í andanum, jafnum- hyggjusamur og hann var um hag fé- lagsins. Fyrir hönd Skólastjórafélags Ís- lands færi ég honum alúðar þakkir fyrir fórnfúst og gæfuríkt starf. Þorsteinn Sæberg, formaður SÍ. Kveðja frá Samtökum aldraðra Þegar heiðursmaður lýkur lífs- göngu sinni er það saga lífsins að endurtaka sig sem hún hefur ávallt gert og mun ævinlega gera. En þá er eðlilegt að horfa til baka og líta yfir farinn veg. Þegar hinu raunverulega lífstarfi Hans Jörgenssonar sem var kennsla ungmenna og skólastjórn var að ljúka gerðist hann einn af frum- kvöðlum Samtaka aldraðra og var formaður þeirra í ein 12 ár. Það var tími mikils uppgangs hjá félaginu, byggðar voru á vegum þess yfir 170 íbúðir í fimm húsum sem allar hafa þjónað eigendum sínum. Það hafa því verið ófáar stundirn- ar sem Hans eyddi til að framgangur félagsins yrði sem mestur. Fyrst og fremst sem formaður félagsins en einnig sem traustur liðsmaður í því félagi sem varð til við byggingu og búsetu að Aflagranda 40. Samtök aldraðra vilja að leiðarlok- um þakka Hans Jörgenssyni farsæla forystu og mikilvæga leiðsögn í mál- efnum aldraðra. Elsku engillinn minn. Óskaplega er sárt að þurfa að kveðja þig svona fljótt, aðeins tíu ára lítill bróðir. Við sem áttum eftir að gera svo margt saman. En sá tími sem við áttum saman var yndislegur og minningarnar eru margar og þær ylja. Mikið á ég eftir að sakna stund- anna okkar þegar við kúrðum uppi í sófa og hlustuðum á Dýrin í Hálsa- skógi eða Kardemommubæinn. Og þegar við plöntuðum okkur fyrir framan sjónvarpið að horfa á Þum- alínu sem við kunnum utan að, því Þumalína var uppáhalds myndin þín og eina myndin sem þú vildir horfa á. Þú hafðir mikið skap, elsku Stefán og ekki varstu alltaf sáttur við mig þegar ég var að setja á þig spelk- urnar eða láta þig gera æfingar, þá léstu mig oft heyra það. Og iðulega hafðir þú vinninginn og ég tók þig úr spelkunum og þá kom stríðnin í ljós því glottið sem kom á eftir var al- gjört stríðnisglott. Þú varst mikil félagsvera og mér fannst yndislegt að horfa á þig innan um margt fólk, sjá hvað þú naust þess mikið að vera í miðjum kliðn- um. Núna veit ég að þú ert umlukinn tónlist með hinum englunum, syngj- andi og spilandi á öll hljóðfæri himnaríkis, en það var einmitt tón- STEFÁN ÞORBJÖRNSSON ✝ Stefán Þor-björnsson fædd- ist á Héraðshælinu á Blönduósi 26. maí 1991. Hann lést á Fjórðungssjúkrahús- inu á Akureyri 18. september síðastlið- inn og fór útför hans fram frá Hvamms- tangakirkju 28. sept- ember. listin sem gaf þér svo mikið. Þú ljómaðir all- ur ef tónlist var spiluð í kringum þig, stóru fal- legu augun þín glitruðu og fallega brosið þitt var strax komið fram á varirnar og það var oft tónlistin sem bjargaði málunum þegar þér leið illa. Þá sungum við fjölskyldan oft fyrir þig uppáhaldslagið þitt „Þegar Stebbi fór á sjóinn“ eða spiluðum á píanóið og þá var eins og vanlíðanin hyrfi um stund og brosið var fljótt að koma. Elsku Stefán, ég hugsa til þín á hverjum degi með miklum söknuði. Þú gafst mér svo mikið. En góðar og fallegar minningar um yndislegan dreng munu lifa að eilífu. Minning þín er skærasta ljósið í mínu lífi. Ég elska þig. Stóra systir, Hafdís Ólafsdóttir. Já, það er erfitt að kveðja litla bróður sem varð aðeins 10 ára. En þú varst mikið fatlaður svo maður skilur af hverju þú varðst ekki eldri. Eitthvert kvöldið eftir að þú dóst var ég farinn að sofa þegar bíllinn minn fór af stað niðri í herbergi. Mamma, pabbi og Hafdís héldu að ég væri með fjarstýrða bílinn minn en ég var nærri sofnaður. Svo við fórum niður og þá sáum við að þetta var brúni bíllinn minn. Við trúðum því að þetta værir þú. Svo var ég nýbúinn að læra að taka slönguna úr mallanum þínum. Ég var líka nýfarinn að fara aleinn með þig út að labba. Ég vona að guð geymi þig. Ég gleymi þér aldrei. Þinn stóri bróðir, Birkir Þór.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.