Morgunblaðið - 02.11.2001, Page 70

Morgunblaðið - 02.11.2001, Page 70
FÓLK Í FRÉTTUM 70 FÖSTUDAGUR 2. NÓVEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ SÍMI 564 0000 - www.smarabio.is Sýnd kl. 3.30 og 5.40. Sýnd kl. 4. Með íslensku tali Miðasala opnar kl. 15 Sýnd kl. 8 og 10.15. Varúð!! Klikkuð kærasta!  E.P.Ó. Kvikmyndir.com  Empire SV Mbl  DV  Rás 2 MOULIN ROUGE! Hausverkur Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30. FRUMSÝNING Sýnd kl. 3.40, 5.50, 8 og 10.10.Sýnd kl. 3.30, 5.45, 8 og 10.10. B. i. 16. Frá framleiðendum Big Daddy kemur drepfyndin gamanmynd um klikkaðar kærustur og vitlausa vini! Hvað gera bestu vinir Silvermans þegar kærastan er að eyðileggja ævinlangan vinskap? Þeir ræna henni að sjálfsögðu!!! Þú deyrð úr hlátri!Glæsileg leysigeislasýning á undan myndinni. Í KVÖLD halda félögin KFUM og KFUK sína árlegu haust- tónleika en þeir fara fram í húsi félag- anna við Holtaveg. Í framtíðinni er stefnan tekin á að halda tvenna tón- leika árlega, eina á vori og eina á hausti. Fram kem- ur hljómsveit- in Rut en hún er að koma saman aftur eftir 26 ára hlé og hafa meðlimir verið í óðaönn undanfarið að dusta rykið af gömlum slaggígjum og trumbum. Einnig treður ungsveitin Sheep upp og systurnar Erla og Rannveig Káradætur munu syngja. Að síðustu koma þau Bjarni Gunn- arsson og Helga Vilborg Sigurjóns- dóttir fram og flytja gamla söngva með tilheyrandi djasssveiflu. Svo verða einhverjir leynigestir á ferli líka. Það er ekki á hverjum degi sem aldarfjórðungsgamlar sveitir koma fram á nýjan leik og setti Morg- unblaðið sig því í samband við Gunn- ar Jóhannes Gunnarsson, einn með- lima Rutar. „Hljómsveitin hefur ekki hist síð- an hún hélt tónleika í gömlu húsi á Holtaveginum í apríl ’75,“ segir Gunnar. „Reyndar fórum við líka norður til Akureyrar að spila í sama mánuði en þar með var sagan öll.“ Gunnar, sem nú er starfandi lektor við Kennaraháskóla Íslands, segir þá hafa verið unga stráka að leika sér með uppáhaldstónlistina sína. Þeir hafi aðallega verið í einhvers konar þjóðlagarokki, með viðkomu í Bítlunum og Stones. „En við notuðum hana til að fást við kristinn boðskap og viðhorf, þá í textum.“ Hann segir þá ekkert vera svo ryðgaða eftir öll þessi ár. „Þetta smellur saman þegar menn fara að fikta við strengina. Við höfð- um þó orð á því á æfingum að senni- lega væri skynsamlegast að flytja lögin aðeins hægar,“ segir hann hlæjandi. Tónleikarnir hefjast kl. 20 og mun allur ágóði þeirra renna til uppbygg- ingar tónlistarmála innan KFUM og KFUK. Hausttónleikar KFUM og KFUK Hljómsveitin Sheep í stuði. FÖRÐUNARSKÓLINN NO NAME og Naglaskólinn Professionails héldu hina vestrænu hrekkjavöku hátíðlega í fyrsta sinn um síðustu helgi. Þá gafst nemendum tækifæri til að spreyta sig á því að vinna sam- an að hugmynd og útfæra hana á fyrirsætum. Neglurnar voru í fant- asíustíl og förðunin í samræmi við það. Útkoman var stórskemmtileg og hrekkjavökunni til mikils sóma. Ákveðið hefur verið að gera þetta að árlegum viðburði og væntanlega verður markið sett enn hærra að ári. Förðunarskóli NO NAME og Naglaskólinn Professionails eru til húsa í Bolholti 6, 4. hæð. Kristín Stefánsdóttir, snyrti- og förð- unarmeistari, stofnaði Förð- unarskóla NO NAME árið 1997 og frá þeim tíma hafa útskrifast yfir 500 förðunarfræðingar. Skólinn kennir tísku- og ljósmyndaförðun á tólf vikum og hægt er að fara í framhaldsnám í leikhús- og kvik- myndaförðun í aðrar 14 vikur. Nemendur snyrtiskólanna að setja upp hrekkjuandlit og -neglur. „Haustboði“: Förðun eftir Ey- rúnu Jónsdóttur og neglur eftir Rakel Guðbjörnsdóttur. Þetta verk heitir „Ísdrottning- in“ og eru neglur og förðun eftir Kristínu Böðvarsdóttur. Neglur og farði í hrekkjustíl

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.