Morgunblaðið - 02.12.2001, Síða 2
FRÉTTIR
2 SUNNUDAGUR 2. DESEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ
Að sögn lögreglunnar hafa bíla-
innbrot mest áhrif á sveiflur í tíðni
innbrota.
„Það þarf t.d. ekki nema tvo til
þrjá athafnasama innbrotsþjófa til
að brjótast inn í fjölda bíla til að
hleypa upp tölum um fjölda inn-
brota,“ segir Ómar Smári Ármanns-
son aðstoðaryfirlögregluþjónn. „Um
leið og lögreglan hefur náð til
þeirra hefur það áhrif á tíðnina.
Lögreglan leggur þess vegna mikla
ALLS hafa verið framin 1.616 inn-
brot í Reykjavík á tímabilinu janúar
til októberloka og eru bílainnbrot
algengust. Næstalgengust eru inn-
brot í verslanir og fyrirtæki en inn-
brot í íbúðir eru hlutfallslega sjald-
gæf miðað við aðrar tegundir
innbrota.
Innbrotum hefur fjölgað frá árinu
2000 en þá voru tilkynnt 1.428 inn-
brot. Árið þar á undan voru innbrot
hins vegar 1.656. Tilkynntum inn-
brotum fjölgaði jafnt og þétt frá
1991 til 1996, en þá voru flest inn-
brot síðastliðins áratugar, eða 1.978.
Þetta kemur fram í yfirliti lög-
reglunnar í Reykjavík. Ef litið er til
einstakra borgarhluta á þessu ári,
sést að flest innbrotin áttu sér stað í
miðbænum, eða 325 af 1.616 sem til-
kynnt hafa verið. Næstflest innbrot
voru í Bústaðahverfinu, eða 180 og
þá voru 170 tilkynnt innbrot í Árbæ
og Grafarvogi. Tekið skal fram að
tölur um innbrot í einstökum borg-
arhlutum eru byggðar á dagbók
lögreglunnar, þar sem ekki er gerð-
ur greinarmunur á raunverulegu
innbroti og tilraun til innbrots.
áherslu á að koma höndum yfir þá
sem eru virkir í innbrotum.“
Hann segir mismikinn skaða af
innbrotum og tölur um fjölda þeirra
segi ekki alla söguna. Einnig sé
mismunandi eftir hverju þjófar
sækjast. Hann tekur dæmi af inn-
brotum í íbúðarhús, þar sem dæmi
eru um að eingöngu hafi verið stolið
kvennærbuxum eða áfengi, upp í al-
varleg innbrot þar sem verulegum
verðmætum er stolið.
Frá árinu 1997 hefur lögreglan
lagt fram 117 frumkröfur um
gæsluvarðhald til héraðsdóms
vegna auðgunarbrota og hefur verið
fallist á allar kröfurnar að einni
undanskilinni.
Ómar segir að sá tími fari nú í
hönd þegar búast megi við auknu
búðahnupli og innbrotum í bíla.
Talsvert er um að jólapökkum sé
stolið úr bílum og beinir lögreglan
því til fólks að hafa þar varann á.
!" # $!
% # !
!
&
!'
% # !
!(
"
# !)* " +"$!
,!
-" $!
% # !
&! "* !(# ! "!. !
!/*0(
!"
!&1 -"!1 "-!2
)# -!) " ! 3!" #
2!&1 -"!1
"
!# !
" " !1!4( )"!#
'
! 56
'
'
66 !!" # "##
$%#
$&#
$'#
$"#
$##
%#
&#
'#
"#
#
7( )" 0.3"() Innbrot í bíla algengust
allra innbrota í Reykjavík
Jólapakkar í bíl-
um freista þjófa
upphæð á sviði fornleifarannsókna á
kirkjustöðum. Verkefnisstjórn um
trúar- og menningararf bárust 139
umsóknir þar sem sótt var um 490
milljóna kr. styrki.
Vegna fornleifarannsókna bárust
29 umsóknir, samtals að fjárhæð um
200 milljónir króna. Alls bárust því
168 umsóknir um styrki að fjárhæð
690 milljónir.
Kristnihátíðarsjóður var stofnað-
ur til að minnast þess að 1000 ár eru
liðin frá því að kristinn siður var lög-
tekinn á Íslandi. Sjóðnum er ætlað
að starfa til ársloka 2005 og mun rík-
issjóður leggja honum til 100 millj-
ónir fyrir hvert starfsár. Stjórn
sjóðsins skipa Anna Soffía Hauks-
dóttir, formaður, Anna Agnarsdóttir
og Þorsteinn Gunnarsson.
KRISTNIHÁTÍÐARSJÓÐUR út-
hlutaði við athöfn í Þjóðmenningar-
húsinu í gær styrkjum að andvirði 96
milljónir króna vegna 51 verkefnis
sem tengist menningar- og trúararfi
þjóðarinnar og fornleifarannsókn-
um. Hæstu styrkirnir tengjast bisk-
upsstólunum að Hólum í Hjaltadal
og Skálholti.
Sr. Gunnar Kristjánsson fékk 4
milljóna kr. styrk til að rita sögu
biskupsstólanna, 11 milljónir fara til
fornleifarannsókna að Hólum og 9
milljónir vegna rannsókna í Skál-
holti.
168 sóttu um 690 milljónir
Alls voru 43 verkefni styrkt fyrir
um 48 milljónir á sviði menningar-
og trúararfs og 8 verkefni fyrir sömu
Hæstu styrkir
vegna biskups-
stólanna
GERT er ráð fyrir því að þingflokkar
Sjálfstæðisflokks og Framsóknar-
flokks komi saman til fundar í dag,
sunnudag, og ræði tillögur sem uppi
eru um niðurskurð á fjárlögum.
Þriðja umræða frumvarps til fjárlaga
er áætluð nk. föstudag og þá er ætl-
unin að kynna niðurskurð upp á 3–4
milljarða.
Samkvæmt heimildum Morgun-
blaðsins hafa einstök ráðuneyti haft
tillögur vinnuhóps formanns og vara-
formanns fjárlaganefndar auk emb-
ættismanna úr fjármálaráðuneytinu
um niðurskurð í öllum ráðuneytum til
skoðunar undanfarna daga.
Meðal þess sem tekist er á um í
stjórnarflokkunum er hvort fresta
eigi gildistöku fæðingarorlofs að því
er varðar aukinn rétt feðra, ýmsum
byggingarframkvæmdum, svo sem á
stjórnarráðsreit, og jarðgangagerð.
Niðurskurður fjárlaga
Þingflokkar
funda í dag
Morgunblaðinu í dag fylgir
auglýsingablað frá Sindra-stáli,
„Sindrablaðið“. Blaðinu verður
dreift um allt land.
DAVÍÐ Oddsson forsætisráðherra
sagði á fundi Varðbergs og Samtaka
um vestræna samvinnu í gær að ekki
væri líðandi fyrir alþjóðasamfélagið
að Írak hindraði vopnaeftirlit Sam-
einuðu þjóðanna í landinu. Sagði Dav-
íð að eftir hryðjuverkin í Bandaríkj-
unum í september hlyti alþjóðlegur
stuðningur við eldflaugavarnakerfi og
aðgerðir til að hefta útbreiðslu ger-
eyðingarvopna að vaxa.
Í ræðu sinni fjallaði Davíð m.a. um
afleiðingar hryðjuverkanna og sagði
áríðandi að koma í veg fyrir að ger-
eyðingarvopn kæmust í hendur
hryðjuverkasamtaka. Sama gilti um
ríki sem lytu stjórn „siðlausra þrjóta
sem eru til alls vísir“.
Gagnrýni á viðskiptabann
illa ígrunduð
„Í þessu sambandi verður að nefna
að það er ekki líðandi fyrir alþjóða-
samfélagið að Írak neiti vopnaeftir-
litsmönnum Sameinuðu þjóðanna um
að sinna störfum sínum í landinu,“
sagði forsætisráðherra. Hann sagði
viðskiptabann Sameinuðu þjóðanna á
Írak oft verða fyrir lítt ígrundaðri
gagnrýni. Almenningur liði fyrst og
fremst fyrir harðstjórnina í landinu,
en valdhafar notuðu ekki til fulls und-
anþágu sína til að selja olíu og kaupa
mat og lyf.
„Framhjá því verður ekki litið að
gereyðingarvopn í höndum ríkja af
framangreindu tagi eru ógn. Þeirri
skoðun vex fiskur um hrygg að bregð-
ast þurfi við henni meðal annars með
eldflaugavarnarkerfi,“ sagði Davíð.
„Þetta var umdeilt mál fyrir árásirnar
á Bandaríkin þótt fjöldi ríkja, þar á
meðal Rússland, hefði viðurkennt að
ógnin væri til staðar. Afstöðu ís-
lenskra stjórnvalda í þessu efni var
lýst á leiðtogafundi Atlantshafs-
bandalagsins í júní síðastliðnum. Bent
var á að ný og vaxandi ógn væri að
verða til vegna útbreiðslu gereyðing-
arvopna og eldflaugatækni. Tekið var
fram að Ísland fagnaði frumkvæði
Bandaríkjanna að samráði í Atlants-
hafsbandalaginu um viðbrögð við
þessari ógn; viðbrögð sem byggðust
annars vegar á eldflaugavörnum og
hins vegar á samningum um tak-
mörkun vígbúnaðar og aðgerðum til
að hefta útbreiðslu gereyðingar-
vopna. Eftir hryðjuverkin í Banda-
ríkjunum er þess að vænta að alþjóð-
legur stuðningur við slíka stefnu
aukist verulega.“
Endurskoðun EES
„handavinna“
Davíð fjallaði stuttlega um endur-
skoðun EES-samningsins og sagði
rétt að huga að aðlögun samningsins
að samrunaþróun í ESB á öðrum
sviðum en lytu að innri markaði og
viðskiptum. „Það verk á ekki og má
ekki mikla fyrir sér, því að þar er nán-
ast um handavinnu að ræða. Jafn-
framt þarf að gæta þess að stækkun
sambandsins til austurs skaði ekki ís-
lenska viðskiptahagsmuni í umsókn-
arríkjunum. Ekkert bendir þó til að
svo verði enda ber ESB að leysa það
mál samkvæmt reglum Alþjóðavið-
skiptastofnunarinnar.“
Stuðningur við
eldflaugavarnir
hlýtur að vaxa
Davíð Oddsson segir ekki líðandi
að Írakar hindri vopnaeftirlit SÞ
STÚDENTAR héldu að venju upp á
fullveldisdaginn í gær, 1. desember,
með hátíðardagskrá. Að lokinni
messu í kapellu Háskólans lögðu
stúdentar blóm á leiði Jóns Sigurðs-
sonar í Suðurgötukirkjugarði. Á
myndinni heldur Þorvarður Tjörvi
Ólafsson, formaður Stúdentaráðs, á
blómsveig sem lagður var á leiðið.
Þar flutti Sveinn Ólafur Gunnars-
son íslenskunemi minni Jóns for-
seta. Hátíðarsamkoma var síðan í
hátíðarsal Háskóla Íslands.
Morgunblaðið/Jim Smart
Stúdentar
minntust full-
veldisdagsins
EIÐUR Smári Guðjohnsen inn-
siglaði sigur Chelsea á Manchester
United í ensku úrvalsdeildinni í
knattspyrnu á Old Trafford í gær.
Chelsea sigraði meistarana, 3:0, og
skoraði Eiður þriðja markið á 83.
mínútu. Eiður átti einnig stóran þátt
í öðru markinu sem Jimmy Floyd
Hasselbaink skoraði á 63. mínútu en
fyrsta mark Chelsea skoraði Mario
Melchiot strax á 6. mínútu.
Eiður á
skotskónum
♦ ♦ ♦
♦ ♦ ♦