Morgunblaðið - 02.12.2001, Page 28
LISTIR
28 SUNNUDAGUR 2. DESEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ
TILBOÐ ÓSKAST
Í Ford Econoline E 350 Turbo diesel
árgerð 1997 7,3 l (ekinn 50 þús km.),
Jeep Cherokee Classic 6 cyl. árgerð 1998
(ekinn 42 þús. mílur) sjálfskiptur
og aðrar bifreiðar,
er verða sýndar að Grensásvegi 9
þriðjudaginn 4. desember. kl. 12-15.
Tilboðin verða opnuð á sama stað kl. 16.
UMSÝSLUSTOFNUN VARNARMÁLA
SALA VARNARLIÐSEIGNA
AIR-CONDITION er ekki versta
heiti sem hægt er að finna á samsýn-
ingu, síst þegar í hlut eiga fjórir mál-
arar sem nota blandaða tækni sem
listkrydd við strigann. Í aðalsalnum á
efri hæðinni hafa þeir Gústav Geir
Bollason og Jóhann Ludwig Torfason
hreiðrað um sig og Sverrissal er að
finna tvo franska málara, þau Cather-
ine Tiraby og Vincent Chim.
Tiraby sýnir nokkra strigadregla
sem hanga niður úr loftinu, málaðir
dökkri næturstemningu. Tvö snöruð
myndbönd rúlla viðstöðulaust. Í einu
heldur veiðimaður í skóglendi í aft-
urlappir hunds og togar hann yfir
sviðið. Hitt bandið er jafnvel fyndn-
ara því þar syndir kona – ef til vill
listamaðurinn – skriðsund gegnum
mosaþembur og urð sem væri það
vatn. Þótt lítið rökrænt samhengi
virðist vera milli verka Tiraby tekst
henni að skapa óvænta spennu milli
allra þátta svo úr verður undarleg,
næsta súrrealísk dulúð.
Vincent Chim er öllu auðlæsari
sem listamaður. Paraðar portrett-
myndir hans – tvær af sömu sort með
smávægilegum litabreytingum – gefa
rækilega til kynna hver er eiginlegur
vandi málarans. Það er ekki endilega
fyrirmyndin heldur óendanlegir
möguleikarnir til túlkunar henni.
Þessu tekst Chim að miðla með mjög
einföldum en skýrum hætti.
Á efri hæðinni ber mest á Gústav
Geir Bollasyni með stóra heild sem
snýst um siglingaverkfræði í stóru og
smáu. Honum tekst að skapa mjög
sannfærandi andrúmsloft þar sem
menning og náttúra skarast, með
málverkum og ljósmyndum, auk lit-
aðra fjala sem gegna hlutverki hall-
andi ása í annarri mynd. Með óhefð-
bundnu upphengi, þar sem sum
verkin standa á plönkum á gólfi og
halla upp að veggnum, undirstrikar
Gústav Geir hendinguna – hið ófyr-
irséða – sem gengur eins og leiðarstef
gegnum verk hans. Vindátt ræður
hvernig skipið hallast og því krefst
það listar að stýra því. Með hliðstæð-
um hætti þarf listamaðurinn að stýra
verki sínu heilu gegnum hafsjó hend-
inga og ófyrirséðra brimboða.
Í útskotssalnum uppi hefur Jóhann
Ludwig Torfason raðað verkum sín-
um á báða veggi. Ef til vill mætti
segja að hann væri eini hreini mál-
arinn í hópnum, en þá væri ekkert til-
lit tekið til þess að hann vinnur mynd-
ir sínar gaumgæfilega í tölvu áður en
hann bregður þeim upp á sjálfan
myndflötinn. Sem fyrr eru myndir Jó-
hanns á þessari sýningu fjölglugga
auglýsingamyndir – minna gjarnan á
lokið á lokkandi hörðum jólapakka
með nýjasta fjölskylduspilinu – sem
reynast ísmeygileg gagnrýni á fé-
lagshegðun okkar.
Það þarf mikla skipulagshæfileika
til að raða öllum þeim boðum og upp-
lýsingum saman í eina mynd sem
leynast í hverju málverki Jóhanns. Að
auki vísar hann til allra átta, þar á
meðal í Gjörningaklúbbinn – Ice-
landic Love Corporation – þannig að
unun er á að horfa. Jóhann Ludwig
sannar svo um munar að málverkið
getur hæglega skákað bókmenntun-
um sem ádeiluform, það er ef maður
með óvenjulega hæfileika og innsæi
heldur um stjórnvölinn.
Þótt sýningin Air-Condition sé alls
ekki algóð gefur hún vel til kynna
hluta af því lífi og þeim möguleikum
sem felast í málverki samtímans. Hún
skákar þeirri þrálátu trú að málverkið
þurfi ætíð að vera samt við sig, eða
lúta einhverri rígbundinni hefð með
vænum skammti af afturbeygðum til-
vísunum í sjálft sig. Hver með sínum
hætti gangast listamennirnir fjórir
fyrir því að losa um þá spennitreyju
sem óvinir og elskendur málaralistar
reyna gjarnan að troða upp á hana.
MYNDLIST
Hafnarborg, Hafnarfirði
Til 3. desember. Opið miðvikudaga til
mánudaga frá kl. 11–17.
MÁLVERK & BLÖNDUÐ TÆKNI
CATHERINE TIRABY, GÚSTAV
GEIR BOLLASON, JÓHANN
LUDWIG TORFASON &
VINCENT CHIM
Loft-
ræsting
Frá sýningunni Air-Condition –
Loftræsting – í sölum Hafnar-
borgar, Hafnarfirði. Verk eftir
Catherine Tiraby.
Halldór Björn Runólfsson
UNGLINGAKÓR Selfosskirkju held-
ur aðventutónleika í Selfosskirkju í
kvöld kl. 20.00. Kórstjóri er Margrét
Bóasdóttir. Kórinn tók þátt í
kvennakórakeppni á Spáni í sumar,
og segir Margrét að þar hafi hún
fundið nótur að messu eftir Mozart
sem búið var að umrita fyrir kvenna-
kór og þrjá einsöngvara. „Þetta er
Missa brevis í B-dúr KV 275, og mér
fannst alveg kjörið að eftir sönginn í
hitanum þarna úti tækjum við til við
að æfa þetta verk. Við erum með
fjóra þætti fullæfða og ætlum að
syngja þá á aðventutónleikunum
með strengjasveit. Við verðum líka
með Laudate dominum og Ave ver-
um eftir Mozart og einsöngvarar
okkar verða allir úr röðum kórsins;
stelpur sem hafa verið að læra að
syngja. Kórinn fór allur í Óperuna
um daginn að sjá Töfraflautuna og í
framhaldi af því ákváðum við að
koma okkur upp „Töfraflautu-
drengjum“ þannig að við ætlum að
syngja það sem maðurinn kallaði
„þennan ágæta íslenska jólasálm,
sem Mozart notaði í Töfraflaut-
unni,“ en það er auðvitað lagið góða
Í dag er glatt í döprum hjörtum. Ég
lét útsetja það líka fyrir strengja-
sveit sem leikur með stúlkunum.“ Að
auki syngur kórinn norræn jólalög,
og syngur bæði á dönsku og finnsku
á tónleikunum. „Við vorum svo
heppin að okkur áskotnuðust tvær
stelpur, skiptinemar; önnur finnsk
og hin dönsk, þannig að við ætlum
að leggja okkar af mörkum til fjöl-
menningar á Íslandi.“
Finnskan léttari en danskan
Margrét segir að það hafi ekki
verið neitt mál fyrir stelpurnar að
takast á við þetta, enda vanar að
þurfa að syngja á erlendum tungu-
málum sem þær skilja jafnvel ekki.
„Það er þó gaman að segja frá því að
það reyndist okkur miklu erfiðara
að ná dönskunni en finnskunni, jafn-
vel þótt við skiljum hana betur. Það
er bara auðveldara fyrir Íslendinga
að syngja á finnsku en dönsku og
hljóðin þar ansi erfið sum, – og för-
um ekkert nánar út í það.“ Hljóð-
færaleikararnir í strengjasveitinni
koma bæði frá Selfossi og höfuð-
borgarsvæðinu og segir Margrét
fólk ekkert víla það fyrir sér að
leggja á heiðina fyrir svona
skemmtilegt verkefni. „Í tónleikalok
ætlum við svo að bjóða upp á kaffi og
Mozartkúlur í tilefni dagsins.“
Ljósmynd/Helgi Valberg
Unglingakór Selfosskirkju með stjórnanda sínum, Margréti Bóasdóttur.
Aðventutónleikar Unglingakórs Selfosskirkju
Mozart í
tónum og
kúlum
Grafarvogskirkja Sýning á 10
mósaíkmyndum Fannýjar Jón-
mundsdóttur ,,Óður til móður“
verður opnuð að lokinni guðsþjón-
ustu kl. 11.Sýningin stendur til
áramóta. Gefin hafa verið út kort
með myndum Fannýjar og fást
þau í helstu bókaverslunum.
Digraneskirkja Útgáfutónleikar
Kórs Snælandsskóla eru kl. 16.
Sungin verða lög af nýútkominni
geislaplötu, Jólanótt. Stjórnandi
kórsins er Heiðrún Hákonardóttir.
Bíósalur Mír, Vatnsstíg 10 Kvik-
myndin Bréf látins manns verður
sýnd kl. 15. Myndin var gerð í
Rússlandi árið 1986 undir stjórn
Konstantíns Lopúshanskí. Aðal-
leikari er Roan Bykov.Textinn er
á ensku. Aðgangur er ókeypis.
GUK, Ártún 3, Selfossi Nú
stendur yfir sýning Evu Koch og
verður hún opin kl 16-18.Einnig er
hægt er að sjá myndir frá sýning-
unni á http://www.simnet.is/guk.
Síðustu sýningar
í Þjóðleikhúsinu
Í kvöld, sunnudag, kl. 20 eru síð-
ustu sýningar á Bláa hnettinum
eftir Andra Snæ Magnason og
Laufunum í Toscana eftir Lars
Norén.
Mánudagur
Listaklúbbur Leikhúskjallar-
ans Guitar Islancio leikur tónlist
af nýjum geisladiski sínum, Guitar
Islancio III, kl. 20.30. Tríóið skipa
Björn Thoroddsen gítarleikari,
Gunnar Þórðarson gítarleikari og
Jón Rafnsson kontrabassaleikari.
Aðgangur er ókeypis.
Kaffileikhúsið Lesið verður úr
nýjum bókum kl. 20.30. Anna Hild-
ur Hildibrandsdóttir, Réttarsál-
fræðingurinn, Saga Gísla Guðjóns-
sonar, Sigrún Edda Björnsdóttir,
Með Bólu í bæjarferð, Vigdís
Grímsdóttir, Frá ljósi til ljóss og
Þórunn Valdimarsdóttir, Hvíti
skugginn.
Súfistinn, Laugavegi 18 Bóka-
forlagið Bjartur stendur fyrir
Ferða- og flökkusagnakvöldi kl.
20. Sigfús Bjartmarsson les úr bók
sinni, Sólskinsrútan er sein í
kvöld, Rakel Pálsdóttir les flökku-
sagnir úr bók sinni Kötturinn í ör-
bylgjuofninum. Gísli Marteinn
Baldursson, Hafliði Kristjánsson
og Sigurður Atlason segja spán-
nýjar flökkusagnir sem hafa enn
ekki ratað á bók.
Listaháskóli Íslands, Laugar-
nesi Halldór Ásgeirsson myndlist-
armaður flytur fyrirlestur kl.
12.30. Hann fjallar um þrjá staði
þar sem hann hefur starfað og
sýnt list sína á þessu ári, Ítalíu, Ís-
land og Japan. Sýndar verða
myndbandsupptökur af undirbún-
ingi og síðan endanlegri gerð
myndverka hans í þessum þremur
ólíku eldfjallalöndum.
Í DAG