Morgunblaðið - 02.12.2001, Blaðsíða 29
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 2. DESEMBER 2001 29
Langt
- fyrir lítið
út í heim
Val um 10 frábæra velli í nágrenni
JOMTIEN PALM BEACH, vandað 4* hótel
við ströndina skammt sunnan við Pattaya.
SÉRKJÖR
Ný, fersk golf-fararstjórn:
Kylfingurinn Steindór I. Ólafsson verður til
viðtals á skrifstofu okkar mánud. kl. 14-16.
Janúarferðir búnar, en 2 forfallas.
Laust 6. + 20. mars og einst. sæti.
GOLF
Í THAILANDI 2002:
Heimsklúbbsins
- Príma
Thailandsferðir
Alveg ótrúlegar nýjar
PÖNTUNAR-
SÍMI:
56 20 400 Austurstræti 17, 4. hæð, 101 Reykjavík, sími 562 0400, fax 562 6564,
netfang: prima@heimsklubbur.is, heimasíða: http://www.heimsklubbur.is
Gjafakort Heimsklúbbsins - fögur jólagjöf
4 - h j ó l a d r i f f y r i r v e t u r i n n
M. Benz 1998 E320 4Matic Elegance
(V6 221 hö), hlaðinn aukabúnaði: ASP
Auto Pilot System spólvörn, ESP
jafnvægisstilling, loftstilling í sætum,
regnnemi í framrúðu, ljósnemi í
innispegli, skíðapoki í gegnum
aftursæti, raddstýrður gsm sími, grænn
metallic, nýleg sumar- og vetrardekk,
litað gler, geislaspilari, nýr hvarfakútur
og pústkerfi. Reyklaus frá upphafi.
Til sýnis og sölu hjá Bílabúð Benna notaðir bílar, Bíldshöfða 10
S. 587 1000. Verð kr. 3.650.000.
OPIÐ Í DAG13-18 OPIÐ Í DAG13-18
Myndlistarsýning
Birgis Andréssonar
myndlistarmanns og
Magnúsar Reynis
Jónssonar ljósmynd-
ara var opnuð í Skaft-
felli, menningarmið-
stöð á Seyðisfirði, í
gær. Sýningin hefur
hlotið nafnið „Fossar í
firði“. Sýndar eru
myndir af 18 fossum
Fjarðarár í Seyðisfirði.
Hver foss birtist á
tveimur myndum, ann-
ars vegar á ljósmynd
Magnúsar Reynis og
hins vegar blýants-
teikningu Birgis sem
er nákvæm spegil-
mynd ljósmyndarinn-
ar. Skaftfell gefur út
bók í tengslum við sýninguna þar sem
12 myndir af sýningunni koma fyrir
auk texta eftir Gunnar J. Árnason.
Óður til Fjarðarár
Aðspurðir um tilurð sýningarinnar
verður Birgir aðallega fyrir svörum,
enda Magnús á fullu að ljúka frágangi
á römmum fyrir sýninguna. „Akkúrat
fyrir ári vorum við Magnús í bílnum
hjá Garðari Rúnari á leið hingað (til
Seyðisfjarðar) á opnun hjá Jóni Ósk-
ari. Ég segi þá við hann Magnús; „eig-
um við ekki bara að sýna saman,
Maggi minn“. Málið er það að ég hafði
verið að búa til svona samlokur, hvað
snýr fram og hvað aftur, hvað er
spegilmynd og hvað er eftirlíking og
allt það. Það hefur líka með þetta að
gera sem þú heldur að þú þekkir.
Þegar heimamenn keyra hérna upp
brekkurnar segja þeir „hérna er
Gufufoss og þessi foss“ og allt þar
fram eftir götunum, svo við ákváðum
að fara hinum megin.“ Hér bætir
Magnús inn í spurningu: „Og hvað er
foss? Hversu hátt vatnsfall er það?“
Birgir heldur áfram: „Þetta er svona
náttúruspekúlasjónir, hvernig náttúr-
an getur leikið sér. Þetta er óður til
Fjarðarár og hvernig hún leikur sér
og svo leikum við okkur með því að
spegla hana. Þá koma þessi element
inn í; þekkir þú þennan foss? Í ljóði
eftir Tómas Guðmundsson segir að
land væri lítils virði ef það héti ekki
neitt. Við erum að leika okkur svolítið
með það. Líka þessi endurspeglun.
Var Magnús búinn að snúa þessu við
þegar hann „kópíeraði“ myndirnar
eða geri ég það? Magnús neitar
þessu, segist hafa gætt vel að sér í
þeim málum, og bætir við; „það má
líka benda á að fossarnir eru mikið í
skugga. Þeir eru milli hárra fjalla og
oft í gljúfrum og ekki endilega í sólar-
ljós lengi í einu. Þeir eru duldir gagn-
vart ljósi. „Ég held,“ segir Birgir að
lokum, „að við Magnús séum með
þessari sýningu að búa Seyðfirðing-
um möguleika á annars vegar pikkn-
ikk, að labba upp með fossunum og
skoða þá.“
Sýningin stendur til 13. janúar.
Menningarmiðstöðin, Skaftfelli
Einn fossanna á sýningunni á Seyðisfirði.
Spegilmynd fossa
og lestur bóka
ÍSLENSKA óperan og Origo ehf.,
dótturfyrirtæki Tölvumynda hf.,
hafa undirritað samstarfssamning
um hönnun og smíði á vef, sem
opnaður verður á slóðinni www.-
opera.is snemma á næsta ári.
Á Óperuvefnum verður að finna
upplýsingar um dagskrá Íslensku
óperunnar, fréttir af starfsemi
hennar og úr óperuheiminum al-
mennt. Þar má einnig nálgast
upplýsingar um íslenska söngvara
og hvar þeir eru að syngja hverju
sinni, auk þess sem tengingar
verða yfir á alþjóðlega óperuvefi.
Origo sérhæfir sig í þróun sér-
hæfðra tölvukerfa með sérstaka
áherslu á notkun Netsins við að
samþætta tölvukerfi, einfalda
vinnslu og bæta aðgengi starfs-
manna og viðskiptavina að upp-
lýsingum og þjónustu.
Óperuvefnum verður viðhaldið í
vefumsjónarkerfinu WebMaster
sem er þróað af Origo.
Samið um
óperuvef
Einar Gunnar Þórisson, fram-
kvæmdastjóri Origo, og Bjarni
Daníelsson óperustjóri handsala
samninginn.
Sérblað alla
sunnudag