Morgunblaðið - 02.12.2001, Qupperneq 48
48 SUNNUDAGUR 2. DESEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ
BRÉF
TIL BLAÐSINS
Kringlunni 1 103 Reykjavík Sími 569 1100
Símbréf 569 1329 Netfang bref@mbl.is
Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga-
safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt t i l að ráðstafa efninu þaðan, hvort
sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni
ti l birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.
1990
Mörgun aldrei verður vært,
veginn sjaldnast finna,
ef þeir hafa aldrei lært
öðrum neitt að sinna.
1991
Öllum kemur eitthvað við
afdrif jarðarþegna –,
biðjum því um betri frið,
barnanna okkar vegna!
1992
Hungurdauði herjar á,
heimsfrið allir þráðu –.
Fórnum okkur fyrir þá
fátæku og hrjáðu –!
1993
Jólavísan er í ár
um þann mikla vanda:
Eiturlyf og annað fár
ungu fólki granda!
1994
Leysum gott úr læðingi,
lífsins skoðum gildi
nú, í vetrarnæðingi
njótum drottins mildi!
1995
Allt, sem kallast ógn og stríð,
ætti’að vera bannað.
Vingjarnlega væn og blíð
verum hvert við annað!
1996
Jólin boða flestum frið,
færa mörgum gleði.
Látum börnin lifa við
ljós, í þeirra geði!
1997
Allir góðir þjóðarþegnar
þykja ætíð mikils virði.
Flesta daga vel þeim vegnar,
verða sjaldan öðrum byrði.
1998
Engan finn ég á því hæng,
að þú skulir vera
undir drottins verndarvæng,
viljir kross Hans bera!
1999
Þótt menn beri þungan kross,
þýðir ekki’að kvarta.
Kærleikurinn kennir oss
Krist að geyma’í hjarta.
2000
Ríkir hátíð ljóss á láði,
lof sé drottni fyrir það!
Verum öll með réttu ráði,
ræktum trú í hjartastað!
Ef mér endist aldur til, sendi ég þættinum kort um næstu jól, ásamt ætt-
ingjum og vinum eins og hingað til, með enn einni vísunni, sem enn er óráðið
hvernig verður. Með kærri þökk fyrir birtinguna!
SIGURGEIR ÞORVALDSSON,
Mávabraut 8c, Reykjanesbæ.
Jólahugleiðing
Frá Sigurgeiri Þorvaldssyni:
ALLAR götur síðan 1990, hef ég ort vísu til að setja í jólakort, undir fyr-
irsögninni: Jólahugleiðing, sem ég hef sent ættingjum og vinum um hver jól
síðan þá, á bilinu 50–60 kort árlega, (hef ekki efni á að senda fleiri) og hefur
þetta fallið í góðan jarðveg hjá viðtakendum og lífgað upp á tilveruna.
Ég vildi gjarnan, að fleiri en ættingjar mínir og nánustu vinir, mættu njóta
þess að lesa þessar vísur og þegar ég las í Bréfi til blaðsins í Morgunblaðinu,
hinn 11.02. 2001, undir fyrirsögninni: Vísnabréf að vestan, frá Indriða Að-
alsteinssyni, bónda, Skjaldfönn v/Djúp, kviknaði sú hugmynd hjá mér, að
senda vísurnar til birtingar í þættinum ykkar, í þeirri von, að þær næðu til
flestra landsmanna. Ég raða þeim í réttri röð frá árinu 1990.
HVERNIG stendur á því að
Bandaríkjamenn kjósa svo hægri-
sinnaða stjórnmálamenn meðan
Evrópumenn kjósa mun vinstri-
sinnaðri?
Flestir Bandaríkjamenn deila
ameríska draumnum. Draumnum
um að stofna eigið fyrirtæki og
verða ríkur. Og mörgum tekst það,
því leitun er að löndum í heiminum
þar sem frumkvöðlar eiga auðveld-
ara uppdráttar. Þess vegna kjósa
þeir stjórnmálamenn sem verja
hagsmuni hinna ríku því það ætla
þeir að verða.
Evrópumenn eiga sér ekki þenn-
ann draum. Í reglugerðarfrum-
skógi álfunnar er næsta ómögulegt
að fara út í sjálfstæðan rekstur.
Fólk veit því að það mun ætíð til-
heyra núverandi stétt og kýs því
þann flokk sem ver hagsmuni
þeirrar stéttar.
Hvernig mundu bandarísk
stjórnmál breytast ef ameríski
draumurinn yrði tekinn frá almúg-
anum, og nýliðun hindruð í helstu
atvinnugreinum Bandaríkjanna?
Hvernig mun fylgi Sjálfstæðis-
flokksins breytast ef hann heldur
áfram að hindra nýliðun í sjávar-
útvegi?
GUÐMUNDUR ÖRN
JÓNSSON,
Laugalind 1, Kópavogi.
Ameríski
draumurinn
Frá Guðmundi Erni Jónssyni: