Morgunblaðið - 05.12.2001, Page 23
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 5. DESEMBER 2001 23
ELLEFU menn frá suðurhluta
Rússlands létust í eldsvoða í rútu í
Moskvu í gærmorgun.
Eldurinn braust út eftir að gas-
hylki í rútunni sprakk, en það hafði
verið notað til að elda mat. Rútan
stóð á bílastæði við Izmailovo-
markaðinn í austurhluta Moskvu, en
þangað komu mennirnir til að selja
afurðir sínar. Þrettán manns voru í
rútunni en aðeins tveir komust lífs
af, bílstjórinn og einn farþegi.
AP
Ellefu
fórust í
Rússlandi
TILRAUN Bandaríkjahers
með eldflaug yfir Kyrrahafi í
fyrrinótt gekk samkvæmt áætl-
un, að því er bandaríska varn-
armálaráðuneytið greindi frá.
Gerviflugskeyti var skotið á loft
frá Vandenberg-herstöðinni í
Kaliforníu kl. 02:59 að íslenskum
tíma í fyrrinótt. Varnareldflaug
var skotið frá Kwajalein-rifinu í
Suður-Kyrrahafi 22 mínútum
síðar og hæfði hún flugskeytið í
232 km hæð kl. 03:30. Var þetta
fimmta tilraun Bandaríkjahers
með varnareldflaugar og sú
þriðja sem heppnast hefur. Í
ljósi góðs árangurs er talið að
hún varði veginn fyrir frekari
tilraunir með þróun eldflauga-
varnakerfis. Kostnaður við
hverja tilraun er um 100 millj-
ónir dollara, eða um 10 milljarð-
ar króna.
Mannskæðar
erjur í Ghana
AÐ minnsta kosti 50 manns hafa
látist og 150 slasast í ættbálka-
erjum í Bawku-héraði í norð-
austurhluta Afríkuríkisins
Ghana á síðustu dögum. Emb-
ættismenn telja þó að tala lát-
inna geti verið enn hærri.
Átökin standa milli ættbálkanna
Kusasi og Mamprusi og áttu
upptök sín á sunnudag. Meðlim-
ir Kusasi-ættbálksins kveiktu
þá í söluturni í eigu Mamprusi-
manns og svöruðu félagar hans
með því að leggja eld að kofa
Kusasi-fólks.
Franskir
í verkfall
GERT er ráð fyrir að mikil rösk-
un verði á flugi um Frakkland
næstu daga en samtök franskra
flugumferðarstjóra hafa boðað
36 klukkustunda verkfall frá kl.
18 í dag og fram til kl. 6 á föstu-
dagsmorgun. Sögðu yfirvöld að
flug um París og suðausturhluta
Frakklands yrði verst úti en
haldið verður úti lágmarksþjón-
ustu öryggisins vegna. Verkfall-
ið er boðað til að mótmæla
áformum samgönguráðherra
Evrópusambandsins um að
stuðla að samkeppni í flugum-
ferðarstjórn. Telja franskir flug-
umferðarstjórar að þetta muni
draga úr öryggi í flugi.
STUTT
Vel
heppnuð
tilraun
á nokkrum tegundum
af Amerískum ísskápum
meðan birgðir endast.
15-20%
afsláttur