Morgunblaðið - 09.12.2001, Page 2
FRÉTTIR
2 SUNNUDAGUR 9. DESEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ
EFSTA hæð gamla frystihússins í
Neskaupstað gereyðilagðist í
bruna í gærmorgun. Verið var að
kvikmynda eldsvoða fyrir kvik-
myndina Hafið, sem er í leikstjórn
Baltasars Kormáks, þegar eld-
urinn fór úr böndunum. Engan
sakaði.
Að sögn Þorsteins Guðjónssonar
varaslökkviliðsstjóra kom eldurinn
upp um fjögurleytið í nótt. „Það
var verið að kvikmynda myndina
Hafið og verið var að útbúa atriði
þar sem áttu að springa út gluggar
og loga eldur. Það var gert með
gasi og þetta varð afleiðingin.“
Slökkviliðsmenn voru til taks á
staðnum við íkveikjuna en það
dugði ekki til því eldurinn fór úr
böndunum og breiddist um alla
hæðina. „Við máttum þakka Guði
fyrir að þarna urðu ekki slys á
mönnum,“ segir Þorsteinn.
Gaskútar, sem notaðir voru við
íkveikjuna, voru fjarlægðir úr
brennandi húsinu en að sögn Þor-
steins varð aldrei veruleg hætta af
þeim.
Engar byggingar eru í nágrenni
frystihússins en það stendur við
Strandgötu innst í Neskaupstað.
Húsið er steypt og er ekki lengur
notað sem frystihús. Á hæðinni
sem brann var geymsla Síld-
arvinnslunnar þar sem hún geymdi
ýmsa muni. Ekki er vitað hvað
tjónið nemur miklu í krónum talið
en segir Þorsteinn ljóst að það sé
mikið.
Hlýraeldi og safnmunir sluppu
Á neðri hæð hússins er Sjó-
minjasafn Jósafats Hinrikssonar í
geymslu og að sögn Þorsteins urðu
ekki skemmdir á munum þar. Þá
er hlýraeldi á jarðhæðinni og slapp
það einnig.
Hann áætlar að um 30 manns frá
slökkviliðinu í Neskaupstað, Eski-
firði og Reyðarfirði auk björg-
unarsveitarmanna hafi tekið þátt í
slökkvistarfinu. Aðstæður til
slökkvistarfs voru þokkalegar að
hans sögn og veður sæmilegt. Að-
eins hafi vindað eftir að kviknaði í
en vindáttin hafi verið rétt og
gekk slökkvistarfið því greiðlega
fyrir sig. Var búið að ná tökum á
eldinum um sjöleytið en vakt var
yfir glóðum frameftir degi.
Það er Baltasar Kormákur sem
er leikstjóri og framleiðandi kvik-
myndarinnar Hafið og er fyrirtæki
hans, Hafsauga, tryggt fyrir atvik-
um sem þessum. Ekki náðist tal af
honum áður en blaðið fór í prent-
un en að sögn Agnesar Johansen,
framkvæmdastjóra Hafsauga, er
áætlað að tökum í Neskaupstað
ljúki í næstu viku. Gert er ráð fyr-
ir að myndin komi til sýninga á
næsta ári.
Stórtjón í bruna í gamla frystihúsinu í Neskaupstað í fyrrinótt
Eldur sem verið var að
kvikmynda fór úr böndunum
Morgunblaðið/Ágúst
Það skíðlogaði á efstu hæð frystihússins í Neskaupstað í fyrrinótt áður en slökkviliðsmenn náðu tökum á eldinum.
Morgunblaðinu í dag fylgir auglýs-
ingabæklingur frá Debenhams,
„Ákaflega gaman þá“. Blaðinu verð-
ur dreift um allt land.
TVÖ tilboð bárust í svonefndan
kjölfestuhlut í Landssíma Ís-
lands hf., annars vegar frá Tele-
Danmark í Danmörku og hins
vegar frá bandaríska fjárfest-
ingarsjóðnum Providence, sem
er meðal annars stærsti hluthaf-
inn í Eircom á Írlandi.
Þrír aðilar höfðu verið valdir á
grundvelli óbindandi tilboða til
að taka þátt í þessum síðasta
hluta söluferils fyrirtækisins.
Framkvæmdanefnd um
einkavæðingu mun fara yfir til-
boðin tvö á næstu dögum, en um
er að ræða 25% hlut í fyrirtæk-
inu og heimild til að kaupa 10%
til viðbótar á næsta ári. Tilboðin
fela í sér þrjá efnisþætti, verð,
lýsingu á áformum um áherslur
í rekstri og mögulega kosti sam-
legðaráhrifa í samstarfi Símans
við önnur símafyrirtæki. Frek-
ari upplýsingar um innihald til-
boðanna verða ekki veittar fyrr
en að loknum viðræðum við
bjóðendur.
Tvö tilboð í
kjölfestuhlut
Landssímans
RANNSÓKNARNEFND flugslysa
á Bretlandi mun aðstoða Rannsókn-
arnefnd flugslysa á Íslandi (RNF) við
rannsókn á tildrögum þess að Metro-
flugvél Flugfélags Íslands skrikaði til
á flugbrautinni á Höfn í Hornafirði í
lendingu síðastliðinn sunnudag. Að-
stoð breskra kollega RNF mun meðal
annars felast í lestri á upplýsingum úr
flug- og ferðaritum, sem RNF hefur
tekið í vörslu sína.
Atvikið varð með þeim hætti að í
lendingarbruni vélarinnar á Höfn
byrjaði vélin að skrika til hægri á
flugbrautinni. Nokkru frá lendingar-
stað hennar fór hægra aðalhjólið inn í
snjóruðning og við það snerist vélin til
hægri og rann þversum eftir braut-
inni þar til hún stöðvaðist á örygg-
issvæðinu hægra megin við brautina.
Skrúfublöð vélarinnar rákust í snjó-
ruðning meðfram brautinni og braut-
arljós. Hvorki farþega né áhöfn sak-
aði við atvikið.
Í fréttatilkynningu frá RNF segir
að rannsóknin beinist meðal annars
að verklagi við aðflug og lendingu, við
krefjandi aðstæður þar sem snjór,
vatn eða krapi er á flugbrautinni.
Einnig beinist rannsóknin að fram-
kvæmd snjóhreinsunar, sandburði og
mælingu á bremsuskilyrðum.
Flugóhappið á Höfn
Bretar að-
stoða við
rannsókn
VOPNAÐUR maður var yfirbugað-
ur í heimahúsi á Akureyri í fyrrinótt
eftir að nágrannar tilkynntu að hann
væri að skjóta þar út um glugga.
Að sögn lögreglunnar á Akureyri
skaut maðurinn nokkrum skotum út
um glugga og á skilti sem þar var
fyrir utan. Engin slys urðu á fólki og
var maðurinn einsamall í íbúðinni.
Vandræðalaust gekk að handtaka
manninn, sem var undir áhrifum
áfengis eða vímuefna að sögn lög-
reglu. Ekki er vitað hvað honum
gekk til með skothríðinni.
Yfirbugaður
eftir skothríð
ÞREMUR haglabyssum var stolið
úr versluninni Ellingsen við Granda-
garð eftir að brotist var þar inn um
sjöleytið í gærmorgun.
Viðvörunarkerfi, tengt Securitas,
fór í gang við innbrotið og fóru ör-
yggisverðir þaðan á staðinn til að at-
huga hvað um væri að vera. Voru
þjófarnir þá á bak og burt og tóku
þrjár haglabyssur með sér. Höfðu
þeir spennt upp útidyrahurð til að
komast inn í verslunina.
Ekki hefur náðst til þjófanna og er
málið í rannsókn að sögn lögreglu.
Stálu þremur
haglabyssum
♦ ♦ ♦
GERT var ráð fyrir að Alþingi sam-
þykkti fjárlög fyrir árið 2002 á fundi
sínum í gær, sem stóð enn þegar
Morgunblaðið fór í prentun. Áður
hafði Davíð Oddsson forsætisráð-
herra mælt fyrir frumvarpi til laga
um ráðstafanir í ríkisfjármálum,
bandorminum svokallaða, en þar eru
lagðar til ýmsar breytingar á lög-
bundnum útgjöldum og tekjum rík-
isins, sem eiga að samanlögðu að
leiða til 1.008 milljóna kr. betri af-
komu ríkissjóðs á næsta ári.
Forsætisráðherra sagði frum-
varpið og þær breytingar, sem gerð-
ar voru á fjárlagafrumvarpinu fyrir
síðustu umræðu þess, taka mið af
þeirri staðreynd að staða efnahags-
mála hefði heldur færst til verri veg-
ar. Þar gætti í senn áhrifa lakari
efnahagshorfa á alþjóðavettvangi,
m.a. í kjölfar hryðjuverkanna í
Bandaríkjunum, auk þess sem verð-
lagshorfur hefðu heldur versnað í
kjölfar gengislækkunar krónunnar
að undanförnu. „Forsendur fjárlaga
hafa því breyst á þann veg að útgjöld
hafa óhjákvæmilega hækkað og
tekjur lækkað,“ sagði Davíð. „Rík-
isstjórnin hefur hins talið afar mik-
ilvægt að áfram verði fylgt aðhalds-
samri stefnu í ríkisfjármálum og að
unnt verði að viðhalda þeim afgangi
sem ákveðinn var í fjárlagafrum-
varpinu. Með því eru send afar skýr
skilaboð til allra aðila um að leitað
verði allra leiða til þess, að megin-
markmið stjórnvalda um að viðhalda
stöðugleika og að treysta stöðu efna-
hagslífsins nái fram að ganga.“
Yfirlýsing um að
góðærinu sé lokið
Jóhanna Sigurðardóttir, þingmað-
ur Samfylkingar, gagnrýndi tillögur
stjórnarflokkanna harðlega og sagði
að eins og vanalega hygðust þeir
seilast í vasa þeirra sem minnst
ættu. Sagði hún afar mikilvægt við
núverandi efnahagsaðstæður að
tryggja að forysta verkalýðshreyf-
ingarinnar teldi sig ekki knúna til að
segja upp launaliðum kjarasamninga
á næsta ári. Þessar tillögur væru
hins vegar því miður ekki til þess
fallnar, nema síður væri.
Jóhanna gagnrýndi einnig sér-
staklega boðaða hækkun bifreiða-
gjalds og benti á að álögur á bifreiða-
eigendur hefðu hækkað gífurlega á
síðustu árum, í formi tryggingaið-
gjalda og hærra bensínverðs.
Steingrímur J. Sigfússon, formað-
ur VG, sagði að í bandormi ríkis-
stjórnarinnar væri fólgin yfirlýsing
forsætisráðherra um að góðærinu
væri lokið. Hér hefðu því orðið
vatnaskil í umræðu um efnahagsmál.
Sagði Steingrímur aðgerðir ríkis-
stjórnarinnar hins vegar sýna mikið
ráðleysi og eins og við hefði mátt bú-
ast af þessari ríkisstjórn hefði verið
ráðist gegn þeim sem lökust hefðu
kjörin, þ.e. sjúklingum og náms-
mönnum.
Atkvæði greidd um
fjárlögin á Alþingi
♦ ♦ ♦