Morgunblaðið - 09.12.2001, Blaðsíða 51
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 9. DESEMBER 2001 51
DAGBÓK Glæsilegur
samkvæmisfatnaður
allar stærðir
Mikið úrval af
brúðarfatnaði til leigu
Efnalaug og fataleiga
Garðabæjar
Garðartorg 3, sími 565 6688
Opið alla daga frá kl. 10-19,
laugardaga frá kl. 10-14.
Póstlistinn
sími 557-1960
Íslenski
www.postlistinn.is
auðvelt-hringdu!
Sérmerkt
handklæði
70x140 cm.
Margir litir.
Frábær fyrir hressa krakka
í íþróttirnar
Merking áberandi og endingargóð
10 ára reynsla
FLJÓT AFGREIÐSLA
Ertu með starfsemi
erlendis?
Viltu ÖRUGGT
netsamband allan
sólarhringinn?
Við höfum lausnina fyrir þig. Sítengt,
öruggt og óháð gagnasamband um
gervihnött, hvar sem er, hvenær sem er.
IOsat ehf.
Borgartúni 31 • 105 Reykjavík
Sími: 561 9600 • Fax: 561 9610
iosat@iosat.net • www.iosat.net
ÚRVINNSLAN í sex spöð-
um suðurs snýst að mestu
leyti í kringum svörtu drottn-
ingarnar, sem báðar liggja í
felum á höndum andstæðing-
anna:
Norður gefur; allir á
hættu.
Norður
♠ 643
♥ D97
♦ ÁK72
♣Á75
Suður
♠ ÁKG82
♥ --
♦ 943
♣KG1083
Vestur Norður Austur Suður
-- 1 tígull 1 hjarta 1 spaði
3 hjörtu * Pass Pass 4 lauf
Pass 4 spaðar Pass 5 lauf
Pass 5 tíglar Pass 6 spaðar
Pass Pass Pass
* Hindrun.
Útspil vesturs er hjarta-
gosi. Hvernig er best að
spila?
Eitt er allavega víst – það
borgar sig ekki að taka „æf-
ingasvíningu“ í spaðanum,
spila tígli á ás og spaða á gos-
ann. Hugtakið „æfingasvín-
ing“ er notað um svíningu
sem gefur ekkert í aðra hönd,
jafnvel þótt hún heppnist, en
leiðir til taps ef hún mis-
heppnast. Tromp varnarinn-
ar verður að skiptast 3-2 og
þriðja tromp blinds ber að
nota til að trompa tígul á síð-
ari stigum – þegar búið er að
finna laufdrottninguna.
Norður
♠ 643
♥ D97
♦ ÁK72
♣Á75
Vestur Austur
♠ D105 ♠ 97
♥ G10832 ♥ ÁK654
♦ G1065 ♦ D8
♣2 ♣D964
Suður
♠ ÁKG82
♥ --
♦ 943
♣KG1083
Best er að taka strax ÁK í
spaða og fara svo með líkum í
laufið, spila litlu á ásinn og
svína gosanum. Hvort sem
vestur trompar eða ekki,
mun sagnhafi nú geta svínað
aftur í laufi og hent síðan
tveimur tíglum blinds niður í
lauf og trompað svo tígul.
Vörnin fær aðeins einn slag á
spaðadrottningu.
BRIDS
Umsjón Guðmundur Páll
Arnarson
STJÖRNUSPÁ
eft ir Frances Drake
BOGMAÐUR
Afmælisbörn dagsins:
Þið eruð áræðin og útsjón-
arsöm og farið það sem þið
ætlið ykkur án þess þó að
troða öðrum um tær.
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Þið hafið orðið fyrir vonbrigð-
um og þurfið því að gera ykk-
ur grein fyrir hvaða vænting-
ar þið gerið til annarra. Verið
ekki ósanngjörn.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Það kæmi sér betur fyrir
ykkur að halda ykkur til hlés
og leyfa öðrum að ráða ferð-
inni um tíma. Þið þurfið að
hvíla ykkur og endurnæra
sálarlífið.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Öryggi í einkalífi og starfi er
ykkur afar mikilvægt en það
má ekki hindra ykkur í að tjá
skoðanir ykkar því þið hafið
ýmislegt til ykkar máls.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Þið verðið beðin um að leið-
beina öðrum í starfi og skuluð
taka því fegins hendi. Þið haf-
ið það sem þarf til að laða
fram það besta í öðrum.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Þótt ykkur leiðist að fara ofan
í saumana á málum aftur og
aftur er það nauðsynlegt ef
þið viljið hafa allt á hreinu.
Verið því þolinmóð.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Þið eruð örugg með sjálf ykk-
ur og þið vitið hvert þið stefn-
ið. Þið kunnið að raða hlut-
unum upp eftir mikilvægi
þeirra og nýtið tíma ykkar
vel.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Erfitt verkefni bíður ykkar
og þið þurfið að velja fólk í lið
með ykkur sem þið vitið að
má treysta og getur veitt
ykkur andlegan stuðning.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Þið búið yfir miklum fróðleik
sem þið getið miðlað til ann-
arra ef þið eruð tilbúin að
gefa af sjálfum ykkur.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Gerið ekki meiri kröfur til
sjálfra ykkar en þið eruð fær
um að standast. Enginn er
fullkominn og heimurinn
ferst ekki þótt eitthvað þurfi
að bíða.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Þið eruð ekki alveg eins og
þið eigið að ykkur og þurfið
að vera á varðbergi varðandi
hvað þið látið út úr ykkur svo
þið særið ekki tilfinningar
annarra.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Þið eigið auðvelt með að kom-
ast að kjarna hvers máls fyrir
sig því þið eruð lagin í því að
finna réttu stundina til að
spyrja réttu spurninganna.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Þið þurfið að koma lagi á fjár-
málin og þurfið því að beita
ykkur aga og sleppa öllu sem
kallar á óþarfa eyðslu.
Stjörnuspána á að lesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi
eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
Í Reykjavíkurbréfi Mbl.
25. nóv. sl. rakst ég á
tveimur stöðum á eftir-
farandi orðalag: „Þegar
horft er til baka má ætla,
að menn í viðskiptalífinu
hafi byrjað að marka
samdrátt í verzlun og
þjónustu undir lok síð-
asta árs.... “ Nokkru síð-
ar stóð þetta: „Breytingu
á viðskiptaháttum al-
mennings ... mátti líka
marka í byrjun ársins“.
Hér er það notkun so. að
marka, sem kom mér
ókunnuglega fyrir sjónir,
enda minnist ég ekki að
hafa fyrr rekizt á hana í
þessu sambandi. Á báð-
um þeim stöðum, sem
hún kom fyrir, hefði ég
notað annað sagnorð, þ.e.
so. að merkja. Þess
vegna vil ég vekja athygli
á þessum sagnorðum.
Samkv. OM (1983) eru
fjórar merkingar í so. að
marka: 1) afmarka, draga
markalínu, setja takmörk
... , 2) gera, setja mark
(merki) á e-ð, 3) taka eft-
ir e-u og síðast er so.
ópersónulegt: það mark-
ar fyrir e-u. Helzt gæti
sú merking átt við ofan-
greint orðalag, og þó
ekki, þegar að er gáð. Ég
held, að höfundur bréfs-
ins hafi hér ruglazt svo-
lítið í ríminu og í raun
haft í huga so. að merkja
í sérstakri merkingu, þ.e.
að taka eftir e-u. Hún á
einmitt vel við í þessum
dæmum. Þá tölum við um
að merkja samdrátt í
verzlun og þjónustu. Og
svo aftur: Breytingu á
viðskiptaháttum almenn-
ings ... mátti líka merkja
í byrjun ársins. Ég býst
við, að margir geti verið
mér sammála um þetta.
Ég tel, að óþarft sé að
rugla merkingum þess-
ara sagnorða saman og
því hafi verið ástæða til
að fjalla um þennan rugl-
ing í ofangreindu bréfi og
þá ekki sízt, ef hann
skyldi vera orðinn eitt-
hvað útbreiddur meðal
þorra fólks. – J.A.J.
ORÐABÓKIN
Marka – merkja
LJÓÐABROT
STÖKUR
Sunna háa höfin á
hvítum stráir dreglum.
Veröld má sinn vænleik sjá
í vatna bláum speglum.
Sólin klár á hveli heiða
hvarma gljár við baugunum.
Á sér hár hún er að greiða
upp úr bárulaugunum.
– – –
Sigurður Breiðfjörð
1. d4 d5 2. c4 c6 3. Rf3 Rf6 4.
Rc3 e6 5. e3 Rbd7 6. Dc2
Bd6 7. Bd3 O-O 8. O-O dxc4
9. Bxc4 b5 10. Be2 Bb7 11.
Hd1 Dc7 12. Bd2 a6 13. b4 a5
14. a3 axb4 15. axb4 Rd5 16.
Rxd5 exd5 17. Df5
Rf6 18. Dc2 De7 19.
Db2 Rd7 20. Hxa8
Hxa8 21. Ha1
Hxa1+ 22. Dxa1
Rb6 23. Re5 Dc7 24.
h3 Rc4 25. Bc3 Db6
26. Bg4 Rxe5 27.
dxe5 Be7 28. Bd7
Dd8 29. e6 f6 30.
Da7 Da8 31. Db6
Bd6 32. f4 h6 33.
Bd4 Be7 34. Kh2
Kh8 35. Bc5 Bd8
Staðan kom upp í
Heimsmeistara-
keppni FIDE sem
stendur nú yfir í Moskvu.
Alexander Beljavsky (2659)
hafði hvítt gegn indverska
táningnum P Harikrishna
(2522). 36. e7! Bxb6 37.
Bxb6 c5 38. Bd8 og svartur
gafst upp enda fátt til varn-
ar. Hægt er að nálgast nán-
ari upplýsingar um mótið á
skak.is en í dag er frídagur.
SKÁK
Umsjón Helgi Áss
Grétarsson
Hvítur á leik.
Árnað heilla
80ÁRA afmæli. Á morg-un, mánudaginn 10.
desember, er áttræð Mál-
fríður Einarsdóttir, Jökul-
grunni 4, Reykjavík. Af því
tilefni taka hún og eiginmað-
ur hennar, Herbert Guð-
brandsson, á móti ættingj-
um og vinum milli kl. 16 og
19 í dag, sunnudag, í Helga-
felli, samkomusal á 4. hæð
Hrafnistu í Reykjavík.
50 ÁRA afmæli. Í dagsunnudaginn 9. des-
ember er fimmtugur Sig-
urður Sigurðsson, Sléttu-
vegi 9, Reykjavík. Hann
tekur á móti gestum í dag kl.
15-17 á heimili sínu, Sléttu-
vegi 9, íbúð 301.
Þetta er svipað og á
verkstæði þar sem
gert er við bíla.