Morgunblaðið - 09.12.2001, Qupperneq 4
FRÉTTIR
4 SUNNUDAGUR 9. DESEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ
Brian Pilkington / Jóhannes úr Kötlum
Jólasveinarnir arka til bygg›a
og lauma gjöfum og gó›gæti í
skó flægra barna. Sumir segja
a› mamma fleirra, hin hrikalega
Gr‡la, seilist eftir óflægu
börnunum. Brian Pilkington
varpar n‡ju ljósi á flessa
fur›ulegu fjölskyldu í máli og
myndum vi› hli› sígildra
jólakvæ›a Jóhannesar úr
Kötlum sem or›in eru
ómissandi hluti af a›ventunni.
Einnig fáanleg á ensku.
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
E
D
D
1
61
99
12
/2
00
1
Ófljó›al‡›ur fer á kreik!
HÖGNI Óskarsson geðlæknir hefur
ákveðið að kæra málsmeðferð Lúð-
víks Ólafssonar, setts landlæknis í
prófessorsmálinu svonefnda, til
heilbrigðisráðuneytis og ef þörf
krefur til dómstóla og krefjast
ógildingar, að því er fram kemur í
yfirlýsingu hans. Settur landlæknir
hefur með bréfi dagsettu 4. desem-
ber síðastliðinn áminnt Högna að
nýju fyrir að hafa í sjö atriðum
brotið 11. grein læknalaga, þar sem
kveðið er á um að lækni beri að
sýna varkárni og nákvæmni við út-
gáfu vottorða og annarra lækna-
yfirlýsinga. Skuli hann votta það
eitt sem hann veit sönnur á. Brotin
teljist alvarleg bæði vegna þess í
hverju þau séu fólgin og vegna þess
að um sé að ræða skýrslu sem not-
uð var í dómsmáli. Fyrri áminningu
hafði settur landlæknir dregið til
baka vegna þess að andmælaréttar
hafði ekki verið gætt, en í áminn-
ingunni nú kemur fram að and-
mælaréttar hafi verið gætt og ann-
arra málsmeðferðarreglna
stjórnsýslulaga.
Ekki réttur til andmæla
Í yfirlýsingu Högna, sem hann
sendi frá sér í gær, kemur fram að
úrskurður setts landlæknis hafi
verið birtur honum 5. nóvember sl.
án þess að réttur til andmæla sam-
kvæmt stjórnsýslulögum hafi verið
virtur. Nokkrum dögum síðar hafi
verið veittur frestur til andmæla til
26. nóvember, en á þeim tíma sem
liðinn sé hafi settur landlæknir á
markvissan hátt komið í veg fyrir
að hann fengi komið að efnislegum
andmælum. Þannig hafi ákæruat-
riði aldrei verið birt honum þrátt
fyrir formlega beiðni þar um á síð-
asta ári. Lúðvík Ólafsson hafi síðan
skilgreint ákæruatriðin og birt nið-
urstöður sínar án þess að gefa hon-
um færi á að sjá þau eða koma með
efnisleg andmæli. Þannig hafi hann
svipt hann lögbundnum andmæla-
rétti og brotið lög um stjórnsýslu.
Þá hafi settur landlæknir, eftir að
hann veitti frest til andsvara til 26.
nóvember, dregið áminningarbréfið
til baka en ekki greinargerðina sem
það byggðist á, og þannig haldið sig
við óbreyttar efnislegar niðurstöð-
ur.
Einnig kemur fram að þrátt fyrir
ítrekaða beiðni hafi settur land-
læknir ekki veitt nauðsynlegar upp-
lýsingar eða aðgang að þeim gögn-
um sem hann hafi stuðst við.
Þannig hafi hann gert Högna ill-
mögulegt að svara úrskurðinum
með þeim faglegu rökum sem máls-
meðferð hans krafðist. Þá hafi
beiðni lögmanns Högna um frest til
andmæla fram í miðjan desember
verið túlkuð eins og engin beiðni
hafi borist. Hann hafi ítrekað beiðn-
ina í bréfi 23. nóvember og getið
þess að hann yrði erlendis dagana
27. nóvember til 4. desember og
gæti á þeim tíma ekki unnið að
andmælum. Efnislega hafi svar
setts landlæknis verið á þá lund að
sá frestur sem hann fengi gilti að-
eins þá daga sem hann væri erlend-
is og gæti ekki unnið að svörum.
Hafi hann reyndar gert honum að
skila andmælum sínum degi áður
en hann kom að utan.
Síðan segir: „Þegar hér var kom-
ið sögu, og reyndar áður, var orðið
ljóst að settur landlæknir væri orð-
inn vanhæfur til að geta lokið mál-
inu á þann hlutlæga og sanngjarna
hátt sem honum bar skv. lögum
Settur landlæknir hefur áminnt Högna Óskarsson geðlækni á ný
Málsmeðferðin kærð til
heilbrigðisráðuneytis
SIGMAÐUR þyrlu varnarliðsins, sem tókst að
hífa skipbrotsmanninn sem bjargaðist af Svan-
borgu SH á föstudagskvöldið, vann mikið björg-
unarafrek við erfiðar aðstæður að mati björg-
unarsveitarmanna sem fylgdust með björgun
varnarliðsþyrlunnar. Þetta kemur fram í frétta-
tilkynningu Slysavarnafélagsins Landsbjargar
þar sem lýst er aðgerðum björgunarsveita vegna
sjóslyssins.
Kl. 17:43 barst kall frá Steinunni SH um að Svan-
borg SH sé að reka upp og að Svörtuloftum á vest-
anverðu Snæfellsnesi. Tilkynningarskyldan hafði
strax samband við Landhelgisgæsluna og óskaði
eftir að þyrla yrði send á vettvang. Einnig voru all-
ar björgunarsveitir á Snæfellsnesi kallaðar út.
Kl. 17:47 sendi Svanborg SH út neyðarkall um að
hana væri að reka upp og þurfi aðstoð strax. Nær-
staddir bátar fóru þegar til aðstoðar. Veður var
slæmt, vestan 20 m/s, éljahraglandi og 200 metra
skyggni.
KL. 18:02 fer Björgunarskipið Björg frá Rifi af
stað með björgunarmenn. Skip sem komin eru á
staðinn geta ekki komið Svanborgu til aðstoðar
vegna veðurs og þess að hún er komin upp í klett-
ótta ströndina sunnan við Skálasnagavita á Önd-
verðarnesi. Foráttubrim er á staðnum. Skipin ætla
að reyna lýsa upp slysstað.
Kl. 18:29 staðfestir Landhelgisgæslan að TF-LÍF
sé komin í loftið. Veður fór versnandi var komið í
suðsuðvestan 22–24 m/s en skyggni orðið betra.
Kl. 19:20 tilkynnir TF-LÍF að hún þurfi að snúa
frá vegna bilunar.
Kl. 19:37 tilkynna björgunarsveitarmenn að þeir
séu lagðir af stað fótgangandi frá vitanum og bera
þeir fluglínutæki og annan búnað. Björgunarsveit-
arbílar komast ekki nær slysstað.
Kl. 19:45 fara tvær varnaliðsþyrlur í loftið.
Kl. 20:00 fer TF-SIF, minni þyrla Landhelg-
isgæslunnar í loftið.
Kl. 20:05 eru björgunarsveitarmenn komnir á
slysstað. Sjá þeir einn mann uppi á brú bátsins og
undirbúa þegar í stað björgunaraðgerðir.
Kl. 20:29 tilkynnir TF-SIF að varnarliðsþyrla sé
komin á svæðið. Eru bátar á svæðinu beðnir um að
lýsa alls ekki á þyrluna og draga úr lýsingu þar
sem varnarliðið notar næturgleraugu og sjónauka
við aðgerðina.
Kl. 20:42 biður TF-SIF björgunarsveitir að
skjóta ekki línu meðan varnarliðið er að hífa frá
borði.
Kl. 20:55 er tilkynnt að varnarliðsþyrlunni hafi
tekist að ná einum manni frá borði. Skipbrotsmað-
urinn gengur með björgunarsveitarmönnum um
tveggja km leið yfir hraun að sjúkrabíl og er hann
fluttur á Heilsugæslustöðina í Ólafsvík.
Kl. 21:00 halda þyrlur og björgunarsveitir áfram
leit að þremur skipbrotsmönnum.
Kl. 22:30 komið er með skipbrotsmanninn á
heilsugæslustöðina í Ólafsvík. Fær hann að fara
heim að lokinni læknisskoðun.
Kl. 23–24 fara bátar í höfn og þyrlur fara aftur til
bækistöðva sinna. Björgunarsveitarmenn halda
áfram leit. Björgunarsveitarmenn frá Akranesi og
Borgarnesi bætast í hóp leitarmanna. Leitað var
alla nóttina í nágrenni slysstaðar.
Kl. 06:20 kemur seinasti leitarhópur í bækistöð.
Kl. 07:00 fer björgunarskipið Björg aftur út til
leitar. Varðskip er komið á staðinn.
Kl. 09:00 fara 60 björgunarsveitarmenn aftur til
leitar. Leitaðar voru fjörur frá Brimnesi suður fyr-
ir Arnarstapa.
Kl. 09:30 fara bátar frá Ólafsvík og Rifi til leitar
með björgunarbátnum Björgu. Leitað var frá
Brimnesi út undir Bervík. Veður á svæðinu var
suðvestan 10–15 m/s og rigningarsuddi með 4
metra ölduhæð. Mikið brim við ströndina torveld-
ar leit.
Umfangsmiklar björgunaraðgerðir vegna strands Svanborgar SH við Snæfellsnes
Sigmaður þyrlunnar vann
mikið björgunarafrek
Morgunblaðið/Alfons
Aðstæður til björgunar voru afar erfiðar á föstudagskvöld vegna óveðurs.
FIMM ungmenni voru hætt
komin á höfninni á Ísafirði í
fyrrinótt þegar fólksbíll sem
þau voru í fór hálfur fram af
bryggjukantinum og vó þar
salt. Að sögn lögreglunnar á
Ísafirði munaði ekki miklu að
bíllinn færi fram af bryggjunni.
Krakkarnir fimm, sem voru í
bílnum, náðu að komast út úr
honum af eigin rammleik áður
en lögregla kom á staðinn. Bíll-
inn fór ekki í sjóinn en aftur-
hluti hans hékk fram af
bryggjusporðinum. Brá lög-
regla á það ráð að hengja spilið
úr einum lögreglubílnum í bif-
reiðina til að halda við svo hún
færi ekki fram af bryggjunni en
síðar var fenginn krani til að
lyfta bílnum upp. Segir lög-
regla að sennilega hafi hálku
verið um að kenna að svona fór.
SJÓPRÓF verða haldin í næstu
viku vegna Ófeigs II VE 325,
sem sökk skammt frá Vík í
Mýrdal aðfaranótt miðviku-
dags. Beiðni um sjópróf barst
Héraðsdómi Suðurlands í gær
frá Tryggingamiðstöðinni hf.
og Stíganda ehf,. útgerðar-
félagi Ófeigs.
Sjóprófin verða haldin hjá
sýslumanninum í Vestmanna-
eyjum fimmtudaginn 13. des-
ember.
Eins manns er enn saknað af
Ófeigi og átti að leita hans á
flugvél Landhelgisgæslunnar í
gær og hætta í kjölfarið skipu-
lagðri leit úr lofti og sjó. Vegna
veðurs var hætt við leitarflugið
og því frestað uns betur viðrar.
Sömuleiðis var leit björgunar-
sveitamanna, á Mýrdalssandi
og Meðallandssandi frestað
vegna veðurs.
Sjópróf í
næstu
viku
Vó salt á
bryggju-
sporðinum
FYRRUM sjóðsstjóri hjá fjár-
málafyrirtækinu Kaupþingi hf.
var látinn laus úr gæsluvarð-
haldi á föstudag. Efnahags-
brotadeild ríkislögreglustjóra,
sem annast rannsókn á því
hvort hann hafi brotið gegn
lögum um verðbréfaviðskipti
og gegn almennum hegning-
arlögum, fór ekki fram á fram-
lengingu á gæsluvarðhaldinu.
Sjóðsstjórinn var handtek-
inn hinn 19. nóvember ásamt
starfsmanni Íslandsbanka og
framkvæmdastjóra lífeyris-
sjóðsins Hlífar en hinum
tveimur síðarnefndu var
sleppt að loknum yfir-
heyrslum.
Sjóðsstjór-
inn laus
úr haldi
TENGIVAGN valt á hliðina í
Bakkaselsbrekku á Öxnadals-
heiði um hálfsjöleytið í gær-
morgun. Engin meiðsl urðu á
fólki. Ekki var óskað eftir að-
stoð lögreglu en björgunar-
sveitin Súlur á Akureyri var
kvödd á vettvang til að aðstoða
við að losa varning úr tengi-
vagninum. Mikil hálka og
hvassviðri voru á heiðinni þeg-
ar óhappið varð.
Tengivagn
á hliðina