Morgunblaðið - 09.12.2001, Page 25

Morgunblaðið - 09.12.2001, Page 25
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 9. DESEMBER 2001 25 Sjálfstætt apótek með persónulega þjónustu er góður nágranni Hátalarar frá Chario Ítalíu og Amphion Finnlandi. Til sýnis í Ármúla 19 Opið mán., mið., fös. kl. 17:15-18:00 laugardaga kl. 13:00-15:00 eða eftir samkomulagi. Heimasíða http://www.simnet.is/rafgrein/ Upplýsingar í síma 565-0808 565-1466. verji af landsfé þeirri fjárhæð, er ætla má að nægi piltinum til lífsvið- urværis erlendis í eitt ár, eða uns hann er orðinn 16 ára að aldri og fær um að vinna fyrir sér, og mætti telja slíkt til sóttvarna.“ Landlæknir sendi síðan til stjórn- arinnar svar Andrésar og segir að hann hafi „skrifað augnlækninum nánar um þetta mál og spurt hann um hvort hann teldi ókleift, með var- úð á heimilinu og lækniseftirliti, að komast hjá smitun, því ómannúðlegt væri að vísa drengnum úr landi nema brýn nauðsyn krefði. Þá hefur einnig verið leitað til Helga Skúla- sonar augnlæknis með þennan sjúk- dóm. Einnig hann telur greininguna ótvíræða og gerir engu minna úr smithættunni. Hann hyggur og nauðsynlegt að vísa sjúklingnum burtu. Mér er fullkunnugt um að tillögur augnlæknanna eru á góðum rökum byggðar. Þar sem sjúkdómur þessi ílendist er hann alvarlegur og hrein landplága. Meðferð á honum er mjög langvinn og margir missa sjón að meira eða minna leyti. Sérstaklega er hann talinn hættulegur þar sem húsakynni eru þröng, en svo er víð- ast hér á landi. Smithættan er þá meiri. Ég tel því sjálfsagt að banna sjúkl. að setjast hér að. Um þá tillögu augnlæknisins, að krefjast læknisvottorðs af öllum útlendingum, sem setjast hér að, að þeir hafi ekki þennan sjúkdóm, þori ég ekki að svo stöddu að gera ákveðna tillögu. Mér er það ekki full- ljóst hvort slíkt væri framkvæman- legt. Þá kæmu aðrir sjúkdómar til greina t.d. samræðissjúkdómar.“ Eins og kunnugt er var rússneski drengurinn sendur utan. Heilbrigð- isstjórnin var lengi eftir þetta á verði að trakóma bærist ekki til landsins. Sem dæmi má nefna að árið 1949 þegar Esja kom með fjölda þýskra verkamanna og -kvenna sem ráðin voru til landbúnaðarstarfa hér á landi voru augnlæknar sendir um borð til þess að kanna sérstaklega hvort nokkur væri með trakóma. Á Hvítabandinu við Skólavörðustíg fengu augnlæknar sem ekki störfuðu á Landspítala eða Landakoti inni með sjúklinga sína á árunum 1934–1968. Bókin Brugðið upp augum – Saga augnlækninga á Íslandi frá öndverðu til 1987 eftir dr. Guðmund Björnsson er gefin út af Háskólaútgáfunni. Bókin er 236 bls. að lengd og prýdd fjölda mynda.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.