Morgunblaðið - 09.12.2001, Síða 43
fjarðarár. Um verslunarmannahátíð-
ina árið 2000 var Kjarnaskógur
lokaður göngufólki, svo við urðum að
finna okkur nýja gönguleið og völdum
„Hjartaveginn“, sem svo er nefndur,
en hann liggur yfir gömlu brýrnar yf-
ir Eyjafjarðará. Ber hann nafn þeirra
hjartasjúklinga, sem þar glíma við
endurhæfingu á líkama sínum. Geng-
um við hjónin stundum að Kaupangi
að skoða kirkjuna eða upp að Knarr-
arbergi að skoða hið myndarlega hús,
er Sveinbjörn Jónsson reisti. Þess má
einnig geta, að Sveinbjörn teiknaði
kirkjuna í Kaupangi árið 1921 og hún
var vígð skömmu fyrir jól 1922. Afar
sérstætt og fallegt guðshús.
IV.
Forfeður mínir bjuggu í Öngul-
staðahreppnum, þeir Helgi Ólafsson á
Svertingsstöðum en sonur hans Ás-
mundur Helgason aftur á móti á
Syðra-Laugalandi. Sonur hans var
Hallgrímur Ásmundsson á Stóra-
Sandfelli í Skriðdal, en út af honum er
komin mikil ætt á Austfjörðum. Guð-
rún langalangamma mín var dóttir
Hallgríms og móðir langafa míns sr.
Sigurðar prests á Valþjófsstað og síð-
ar prófasts í Stykkishólmi. Við Har-
aldur bróðir minn komum fyrst til
Akureyrar á leið okkar til sumardval-
ar í Vogum í Mývatnssveit sumarið
1936. Gistum þá hjá frænku okkar frú
Sigríði Davíðsson í Höphnershúsinu.
Móttökurnar hjá henni og hinum
fimm börnum hennar voru með slík-
um hætti að aldrei gleymist. Hafa
tengsl mín við þetta frændfólk aldrei
rofnað þessi 65 ár, sem liðin eru síðan.
Skyldi það vera nokkur tilviljun, að ég
hefi heimsótt Akureyri og Eyjafjarð-
arsveit í 65 ár, þar af átt íbúð á Ak-
ureyri í 23 ár? Ræturnar virðast
liggja djúpt í ættarsálinni.
Ég mun aldrei verða svo gamall, að
ég gleymi Höphnersfólkinu, né held-
ur hinum dyggu hjúum fjölskyldunn-
ar, þeim Önnu „respekt“ og Bensa
fjósamanni, sem fullu nafni hétu Anna
Margrét Ólafsdóttir (1882–1957) og
Benedikt Björnsson (1881–1959).
Kristján Friðrik Þórhallsson er
fæddur í Vogum í Mývatnssveit 20.
júlí 1915. Reisti sér nýbýlið Björk úr
landi Voga I. árið 1960. Kona hans er
Anna Elinórsdóttir frá Akureyri (f.
1932). Kristján var fréttaritari Mbl. í
Mývatnssveit áratugum saman, en lét
af því starfi árið 1998.
Heimildir:
1) Hraunkotsættin eftir Skúla Skúlason frá
Hólsgerði,Reykjavík 1977.
2) Reykjahlíðarætt, Ættir Íslendinga VII.,
1–3, Líf og Saga bókaforlag, Reykjavík
1993.
3) Byggðir og bú, Búnaðarsamband Suður-
Þingeyinga 1963, POB, Akureyri.
4) Byggðir og bú Suður-Þingeyinga 1985.
Útg. BSSÞ, Oddi Reykjavík.
5) Páll Eggert Ólason, Íslenzkar æviskrár,
Reykjavík. II. bindi 1949, Leiftur.
6) Byggðir Eyjafjarðar 1990, I–II. Útg. Bún-
aðarsamb. Eyjafjarðar, Oddi 1993.
7) Byggingarmeistari í stein og stál, Saga
Sveinbjarnar í Ofnasmiðjunni 1896–1982.
Útg. Ofnasmiðjan og Fjölvaútgáfan,
Reykjavík 1996.
8) Landnáma I, 1 og I, 2, Hið Ísl. Fornrita-
félag, Jakob Benediktsson sá um útgáfuna.
Prentsmiðjan Hólar, Reykjavík 1968.
9) Indriði Indriðason, Ættir Þingeyinga I.,
Helgafell, Reykjavík 1969, Víkingsprent.
10) Jóhann Kristjánsson ættfræðingur, „Sig-
urður Gunnarsson prófastur“ handrit 1914.
Í eigu greinarhöfundar.
11) Munnleg heimild: Kristján Friðrik Þór-
hallsson í Björk.
Höfundur er lögfræðingur í Reykjavík.
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 9. DESEMBER 2001 43
KIRKJUSTARF
NÚ MUN djassinn duna á sunnu-
dagskvöldið í Laugarneskirkju kl.
20:30. Tónlistin hefst þó strax kl.
20:00 svo að sjálfsagt er að mæta
snemma í góð sæti til að njóta þess
þegar snillingarnir Gunnar Gunn-
arsson á píanó, Matthías M.D. Hem-
stock á trommur, Sigurður Flosason
á saxófón og Tómas R. Einarsson á
bassa, leiða okkur inn í undraveröld
sveiflunnar. Auk þess munu þeir
Gunnar og Sigurður leika lög af ný-
útkomnum geisladiski sínum, sálm-
um jólanna. Einsöngvari með Kór
Laugarneskirkju verður Þorvaldur
Halldórsson, en Laufey Geirlaugs-
dóttir og Anna Hafberg munu
syngja tvísöng. Ungur og efnilegur
guðfræðingur, Hans Guðberg Al-
freðsson, mun prédika en héraðs-
presturinn okkar, sr. María Ágústs-
dóttir, mun þjóna við altarið. Svo
bíður heitt og ilmandi messukaffið
og kertaljósin í safnaðarheimilinu á
eftir.
Kórtónleikar í Laug-
arneskirkju
KÓR Laugarneskirkju hyggur nú á
jólatónleika sem haldnir verða í
Laugarneskirkju þriðjudagskvöldið
11. desember kl. 20:30.
Gunnar Gunnarsson er stjórnandi
kórsins en honum til aðstoðar verð-
ur Bjarni Þór Jónatansson sem leik-
ur á píanó. Einsöng flytja Laufey
Geirlaugsdóttir og Þorvaldur Hall-
dórsson. Sérstakur gestur tón-
leikanna verður Borgarkvartettinn,
en hann skipa Þorvaldur Hall-
dórsson, Þorvaldur Þorvaldsson,
Ásgeir Páll Ágústsson og Atli Guð-
laugsson, en kvartettinn hefur getið
sér gott orð að undanförnu. Er til-
hökkun að koma og njóta þess sem
fram verður borið á jólatónleikum
Kórs Laugarneskirkju.
Miðaverði mun stillt í hóf og mun
aðgangseyrir verða kr. 1000.- sem
rennur óskiptur til orgelsjóðs kirkj-
unnar. En eldri borgarar og ör-
yrkjar greiða kr. 500.-
Aðventutónleikar í
Hjallakirkju
KÓR Hjallakirkju verður með sína
árlegu aðventutónleika í kirkjunni
sunnudaginn 9. desember kl. 20.30.
Kórinn syngur fjölmarga jóla-
söngva og sálma frá ýmsum löndum
og ýmsum tímum. Auk kórsins syng-
ur Ólafur Kjartan Sigurðarson ein-
söng, Guðrún Birgisdóttir leikur á
flautu og Lenka Mátéová á orgel. Í
lok stundarinnar verða ljósin í kirkj-
unni slökkt og sungið verður við
kertaljós í höndum allra viðstaddra.
Boðið er upp á léttar veitingar í safn-
aðarsal kirkjunnar að hátíð lokinni.
Allir eru hjartanlega velkomnir.
Aðventuhátíð til
styrktar einstökum
börnum
ÖNNUR aðventuhátíð Digra-
neskirkju verður sunnudagskvöldið
9. des. kl. 20:30.
Þá mun Arnþrúður Karlsdóttir
kynna styrktarfélag „einstakra
barna“. Eftir dagskrána í kirkjunni
verður kaffisala til styrktar félag-
inu. Sóknarnefnd Digraneskirkju
mun sjá um stjórn og undirbúning.
Hún ásamt öðrum sjálfboðaliðum
mun leggja til meðlætið. Tónlist-
arflutningur er í höndum Senjorít-
anna úr Kvennakór Reykjavíkur
undir stjórn Sigrúnar Þorgeirs-
dóttur. Kjartan Sigurjónsson org-
anisti og kórstjóri mun leika á orgel
kirkjunnar og flytja frumsamið að-
ventuljóð.
Sunnudagaskóli verður kl. 11 ár-
degis í höndum starfsmanna sunnu-
dagaskólans Lellu, Önnu og Völu og
sr. Magnúsar B. Björnssonar.
Leiðtogadeild KFUM
og KFUK kynnt
HIN NÝJA leiðtogadeild KFUM og
KFUK sem stofnuð var síðastliðið
haust verður kynnt á samkomu í
húsi félaganna í dag kl. 17:00. Hall-
dór Elías Guðmundsson, djákni, er
umsjónarmaður deildarinnar ásamt
sjálfboðaliðum. Markmið hennar er
að ala upp á skapandi hátt framtíð-
arleiðtoga í starfi KFUM og KFUK.
Þátttakendur í starfi leiðtogadeild-
arinnar koma hvaðanæva af landinu
og eru saman eina helgi í mánuði.
Halldór Elías mun segja frá starfi
deildarinnar í máli og myndum.
Hann mun einnig hefja samkom-
una með nokkrum orðum og bæn.
Gyða Karlsdóttir, framkvæmda-
stjóri Landssambands KFUM og
KFUK, verður ræðumaður samkom-
unnar og talar út frá yfirskriftinni
„Baráttan leiðir til vakningar“.
Barnastarf verður í þremur deild-
um, 0–5 ára, 6–9 ára og 10–12 ára á
meðan samkoman stendur yfir. Á
eftir samkomuna verður hægt að
staldra við og fá sér heitan mat á
fjölskylduvænu verði og bókaborðið
verður á sínum stað.
Engin Vaka verður um kvöldið.
Aðventuhátíð í Mel-
staðarprestakalli
AÐVENTUHÁTÍÐ verður haldin
sunnudaginn 9. desember kl. 20.30 í
félagsheimilinu Ásbyrgi á Laug-
arbakka. Þessi árlega hátíða-
samkoma er nú sameiginleg fyrir
sóknir í Miðfirði og Víðidal, og syng-
ur sameinaður kór þessara sókna
undir stjórn nýráðins organista El-
inborgar Sigurgeirsdóttur, tónlist-
arskólastjóra á Hvammstanga. Kór-
inn flytur aðventu- og jólalög af
léttara tagi, og börn úr Grunnskóla
Húnaþings vestra syngur einnig
nokkur barnalög. Hugvekju flytur
Gudrun Henneck-Kloes, ferðamála-
fulltrúi, Laugarbakka, og sögu fyrir
börnin les Jónína Sigurðardóttir á
Kolugili. Í lokin flytja ferming-
arbörn helgileik um ljós jólanna, og
sungið verður við kertaljós, en síðan
verður samvera yfir kakói og pip-
arkökum. Aðventuhátíðinni stýrir
sóknarprestur, sr. Guðni Þór Ólafs-
son á Melstað.
Aðventukvöld í Skál-
holtsdómkirkju
AÐVENTUKVÖLD verður í Skál-
holtskirkju sunnudagskvöldið 9.
des. kl. 21. Þar mun Össur Skarp-
héðinsson alþingismaður flytja hug-
vekju. Skálholtskórinn og barnakór
Biskupstungna flytja aðventu og
jólasöngva og leiða almennan söng
undir stjórn Hilmars Arnar Agnars-
sonar.
Sóknarpresturinn séra Egill Hall-
grímsson og Sigurður Sigurðarson
vígslubiskup annast ritningarlestur
og bæn. Eftir samkomuna býður
Skálholtsstaður kirkjugestum að
þiggja veitingar í Skálholtsskóla.
Óhætt er að fullyrða að margir
eiga góðar minningar um aðventu-
kvöldin hér í Skálholti undanfarin
sex ár og þá góðu gesti sem hafa sótt
okkur heim, og því horfum við með
eftirvæntingu fram til þessarar sam-
veru sem uppbyggilegs þáttar í
föstuiðkunum okkar á aðventu.
Sigurður Sigurðarson
Aðventukvöld í Eyr-
arbakkakirkju
AÐVENTUKVÖLD verður mánu-
daginn 10. desember kl. 20.30.
Ræðumaður er Árni Valdimarsson.
Kirkjukórinn syngur, einsöngur
Bylgja Dís Gunnarsdóttir. Ferming-
arbörn flytja aðventutexta.
Aðventukvöld í
Stokkseyrarkirkju
AÐVENTUKVÖLD verður í Stokks-
eyrarkirkju þriðjudaginn 11. desem-
ber kl. 20.30. Ræðumaður er sr. Ax-
el Árnason. Kirkjukórinn syngur,
einsöngur Bylgja Dís Gunnarsdóttir.
Fermingarbörn flytja aðventutexta.
Kvöldmessa á
aðventu í Laug-
arneskirkju
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Laugarneskirkja.
Hallgrímskirkja. Æskulýðsfélagið Örk
mánudagskvöld kl. 20.
Háteigskirkja. Félagsvist fyrir eldri borg-
ara í Setrinu á neðri hæð safnaðarheimilis
mánudag kl. 13. TTT-klúbburinn kl. 17. Lif-
andi og fjölbreytt starf fyrir börn úr 4.-6.
bekk í umsjón Andra, Gunnfríðar, Guðrún-
ar Þóru og Jóhönnu. Öll börn velkomin og
alltaf hægt að bætast í hópinn.
Neskirkja. 6 ára starf mánudag kl. 14. Öll
börn í 1. bekk velkomin. 10-12 ára TTT-
starf mánudag kl. 16.30. Öll börn í 4.-5.
bekk velkomin. Aðventutónleikar mánu-
dag kl. 20. Amensty International efnir til
tónleika á mannréttindadaginn. Vönduð
og fjölbreytt dagskrá. Litli kórinn, kór eldri
borgara, þriðjudag kl. 16.30. Stjórnandi
Inga J. Backman.
Árbæjarkirkja. Mánudagur: TTT-klúbbur-
inn frá kl. 17-18.
Fella- og Hólakirkja. Mánudagur: Starf fyr-
ir 11-12 ára stúlkur kl. 17-18. Starf fyrir 9-
10 ára drengi kl. 17-18. Unglingastarf á
mánudagskvöldum kl. 20.30.
Grafarvogskirkja. Bænahópur kl. 20. Tek-
ið er við bænarefnum alla virka daga frá kl.
9-17 í síma 587 9070. Mánudagur: KFUK
fyrir stúlkur 9-12 ára kl. 17.30-18.30.
Jólafundur Safnaðarfélags Grafarvogs-
kirkju kl. 20. Sr. Helga Soffía Konráðsdótt-
ir segir frá jólahaldi í Japan. Þorvaldur Hall-
dórsson söngvari flytur jólalög. Jólaföndur
frá versluninni Litum og föndri á Skóla-
vörðustíg (hafið með ykkur skæri, nál og
tvinna). Jólalegar veitingar.
Hjallakirkja. Mánudagur: Æskulýðsfundur
fyrir unglinga 13-15 ára kl. 20.30.
Seljakirkja. Mánudagur: KFUK fundur fyrir
stelpur á aldrinum 9-12 ára kl. 17.15 í
kirkjunni. Fjölbreytt fundarefni. Allar stelp-
ur velkomnar.
Vídalínskirkja. Fjölbreytt kristilegt starf
fyrir 9-12 ára drengi í Kirkjuhvoli á mánu-
dögum kl. 17.30 í umsjón KFUM.
Fríkirkjan í Hafnarfirði. Mánudagskvöld
kl. 20-22 eldri félagar.
Lágafellskirkja. Mánudagur: Fjölskyldu-
samvera fyrir foreldra og börn þeirra frá kl.
13.30-15.30 í safnaðarheimilinu, Þver-
holti 3, 3. hæð. Al-Anon fundur í kirkjunni
kl. 21. Bænahópur á mánudagskvöldum í
Lágafellskirkju kl. 20.
Þorlákskirkja. TTT-starf í kvöld, sunnu-
dag, kl. 19.30.
Hvammstangakirkja. KFUM&K starf kirkj-
unnar í Hrakhólum mánudag kl. 17.30.
Krossinn. Almenn samkoma í Hlíðasmára
5 kl. 16.30. Allir velkomnir.
Landakirkja, Vestmannaeyjum. Mánudag-
ur: Kl. 16.45 barnastarf fatlaðra, yngri
deild.
Vegurinn. Aðventuhátíð kl. 16. Ýmsar
uppákomur, tónlist og kakó og smákökur
á eftir. Allir hjartanlega velkomnir. Ath. að
bæði morgun- og kvöldsamkomurnar falla
niður.
KFUM&K, Holtavegi 20. Samkoma kl.
17. Yfirskrift: Baráttan leiðir til vakningar.
Upphafsorð: Halldór E. Guðmundsson.
Ræðumaður: Gyða Karlsdóttir. Sagt verð-
ur frá leiðtogadeild KFUM og KFUK. Barna-
starf í þremur deildum. Bókaborð og mat-
sala eftir samkomuna.
Kristskirkja í Landakoti. Biblíulestrar-
námskeið séra Halldórs Gröndals verður
mánudaginn 10. desember kl. 20 í safn-
aðarheimili kaþólskra við Hávallagötu 16.
Aðgangur er ókeypis og allir hjartanlega
velkomnir.
Safnaðarstarf
Bridsfélag Hafnarfjarðar
Þann 3. desember var spilað
fyrsta kvöldið í aðalsveitakeppni
Bridgefélags Hafnarfjarðar, mjög
góð mæting var en 10 sveitir mættu
til leiks og spiluðu tvo 16 spila leiki.
Staða efstu sveita eftir fyrsta
kvöldið.
Friðþjófur Einarsson 50
Hulda Hjálmarsdóttir 44
Unnar Atli Guðmundsson 42
Beðist er velvirðingar á því að
ein villa slæddist inn í skráningu á
síðustu úrslitum en 3. sæti í a-v
urðu Atli Hjartarsson og Sverrir
Jónsson með 168 stig.
Við birtum því aftur úrslitin
26. nóvember sl. en þá var spilað
þriðja kvöld af þremur í þriggja
kvölda mitchell-tvímenningi.
Spiluð voru 28 spil og meðalskor
var 168.
Efstu pör í N-S.
Andrés Þórarinss. – Halldór Þórólfss. 207
Helga Sturlaugsdóttir – Stefán Jónsson185
Hulda Hjálmarsd. – Hafþór Kristjánss.178
Efstu pör í A-V.
Njáll G. Sigurðsson – Guðni Ingvarsson214
Guðbrandur Sigurb. – Friðþjófur Ein. 204
Atli Hjartarsson –Sverrir Jónsson 168
Lokastaðan eftir þrjú kvöld:
Halldór Einarsson – Einar Sigurðsson
með meðalskor 56,83%.
Andrés Þórarinsson – Halldór Þórólfsson
með meðalskor 56,55%.
Njáll Sigurðsson – Guðni Ingvarsson
með meðalskor 56,50%.
Guðbrandur Sigurbergsson – Friðþjófur
Einarsson 55,47%.
BRIDS
Umsjón Arnór G.
Ragnarsson
Bridsfélag
Kópavogs
Annað kvöldið af þremur í jólatví-
menningi félagsins var haldið sl.
fimmtudag. Alls mættu 28 pör sem
verður að teljast mjög góð mæting.
Hæsta skor kvöldsins hlutu:
N/S:
Guðmundur Grétarss. - Þorsteinn Berg 372
Baldvin Valdimarss. - Steingrímur G. Pét-
urss. 356
Elín Jóhannsd. - Herta Þorsteinsd. 347
Leifur Kristjánss. - Gísli Tryggvas. 344
A/V:
Jón Steinar Ingólfss. - Loftur Péturss. 388
Erla Sigurjónsd. - Sigfús Þórðars. 368
Guðlaugur Sveinss. - Erlengur Jónss. 349
Sofía Danielsd. - Björn Friðrikss. 342
Meðalskor var 312
Í þessari keppni gilda tvö kvöld af
þremur og efstir eftir fyrstu tvö
kvöldin eru: % samanlagt
Guðlaugur Sveinss. og Erl. Jónss. 112,87
Jón St. Ingólfss. og Loftur Péturss. 111,95
Leifur Kristjss. og Gísli Tryggvas. 110,22
Næsti fimmtudagur er síðasta
spilakvöld félagsins á þessu ári
og verður af því tilefni boðið upp á
veitingar.
Spiluð verður seinasta umferð
þessa jólatvímennings og þar sem
um sjálfstæð kvöld er að ræða er öll-
um frjálst að mæta.
Spilamennska hefst kl. 19.30 í
Þinghóli.
Bridsdeild félags
eldri borgara í Reykjavík
Tvímenningskeppni spiluð í Ás-
garði, Glæsibæ, fimmtud. 29. nóv.
2001. 21 par. Meðalskor 216 stig.
Árangur N-S:
Magnús Oddss. – Jón Stefánss. 296
Aðalbj. Benidiktss. – Leifur Jóhanness. 249
Bragi Björnss. – Auðunn Guðmundss. 241
Árangur A-V:
Alda Hansen – Margrét Margeirsd. 257
Ólafur Ingvarsson – Björn E. Péturss. 244
Viggó Nordquist – Þórólfur Meyvantss. 239
Tvímenningskeppni spiluð mánud.
3. desember. 20 pör. Meðalskor 216
stig.
Árangur N-S:
Sæmudur Björnss. – Olíver Kristóferss. 249
Friðrik Hermannss. – Kristján Ólafss. 233
Ingibjörg Stefánsd. – Þorsteinn Davíðss. 231
Árangur A-V:
Þorsteinn Laufdal – Magnús Halldórss. 240
Björn E. Péturss. – Hilmar Ólafss. 238
Ólafur Ingvarss. – Albert Þorsteinss. 236
Veggklukka
aðeins 2.000 kr.
NETVERSLUN Á mbl.is