Morgunblaðið - 09.12.2001, Side 56
FÓLK Í FRÉTTUM
56 SUNNUDAGUR 9. DESEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ
Mörkinni 6, sími 588 5518
Pelsar stuttir
og síðir
Úlpur
Ullarkápur
Hattar
og húfur
Mikið úrval
Jólagjöfin hennar
Opið laugard. frá kl. 10-18 og sunnud. kl. 13-17
langömmu,
ömmu, mömmu
og ungu stúlkunnar
„ELSKU besta mamman í öllum
heiminum. Viltu vera svo væn að
leyfa okkur að hlusta á Snuðru og
Tuðru?“ sífra tvær
litlar systur og
toga til skiptis í
sitthvort kápulafið
á mömmu sinni í
þungbúnu skamm-
degi í desember.
Mamman er ekki lengi að smokra
sér úr skónum, fiska geisladiskinn
uppúr föggum sínum og tylla á spil-
arann í þeirri veiku von að fá ef til vill
frið til að taka upp úr pokunum.
Eldri stelpan notar tækifærið á með-
an mamman setur græjurnar í gang
til að útskýra fyrir hinni að Snuðra
og Tuðra séu í til í alvörunni. Einu
sinni þegar hún var lítil hafi hún
nefnilega séð þær í leikhúsinu. Hin
kinkar ósjálfrátt kolli því að frá því
að hún kynntist samnefndum bókum
um Snuðru og Tuðru eftir Iðunni
Steinsdóttur og Gunnar Karlsson
hefur hún ekki efast eina mínútu um
að systurnar óstýrlátu væru til í
raun og veru. Ef haldin væri vin-
sældakosning á heimilinu væri nokk-
uð víst að bókin Snuðra og Tuðra
halda jól yrði kosin bók mánaðarins í
desember.
Skemmst er frá því að segja að
diskurinn góði með Snuðru og Tuðru
róaði ekki aðeins andrúmsloftið á
heimilinu rétt á meðan mamman var
að koma vörunum fyrir inni í eldhúsi
heldur alveg fram að háttatíma
kvöldið góða. Systurnar hlustuðu
gagnteknar á diskinn og létu ekki á
sér bæra nema rétt til að biðja um að
hann yrði endurtekinn. Fyrr en
varði voru þær líka farnar að taka
undir í grípandi lögum eins og „Í
Hrollaugsdal“ og „Trítiltoppur“.
Diskurinn er reyndar bæði þéttur og
vandaður frá upphafi til enda. Lögin
eru langflest grípandi og skemmti-
leg. Flutningurinn og textarnir ná
vel til yngri barna – á að giska frá 2
ára upp að grunnskólaaldri – og sér-
staklega ef börnin hafa orðið þeirrar
ánægju aðnjótandi að kynnast per-
sónunum í Möguleikhúsinu. Þó er
alls ekkert nauðsynlegt að hafa farið
á sýningarnar því að börnin eru sett
inn í frásögnina með skemmtilegum
millitextum. Fyrsti textinn þar sem
systurnar eru að tala um hvað sé
gaman að koma fram á geisladiski
vakti alveg sérstaka kátínu hjá
systrunum hér á undan.
Ég efast ekki um að margir for-
eldrar hafi velt því fyrir sér hvers
vegna Snuðra og Tuðra eigi jafn
miklum vinsældum að fagna meðal
yngstu kynslóðarinnar og raun ber
vitni og eflaust er ekki til neitt eitt
svar við þeirri spurningu. Systurnar
eru náttúrlega alveg með eindæmum
óstýrilátar og galsafengnar. Þar
liggur hundurinn kannski einmitt
grafinn því að í samanburði við þær
geta venjulegir krakkar virst algjör-
ir englar. Systurnar vilja heldur eng-
um illt frekar en börn almennt. Þær
ætla hvor aðra ekki að meiða,/en
ætíð það gleymast vill svo./Þær
heyra ekki í mömmu er hún hrópar,/
en hamast þá dótinu í./ Hún enda-
laust eftir þær sópar/en ekkert þær
skilja í því, eins og segir í laginu
Systurnar. Því má heldur ekki
gleyma að lögin eru úr fjölmörgum
öðrum sýningum Möguleikhússins,
t.d. vöktu lögin úr Langafa prakkara
mikla kátínu á heimilinu. Möguleik-
húsið á hrós skilið fyrir framlag sitt
til barnamenningar í 11 ár.
Plötuumslagið er sérlega vandað.
Framan á er mynd af þeim Snuðru
og Tuðru – ekkert annað hefði held-
ur komið til greina. Inni í er hægt að
finna allar nauðsynlegar upplýsing-
ar. Ekki aðeins textana heldur ítar-
legar upplýsingar um Möguleikhús-
ið, flytjendur og úr hvaða sýningum
og leikþáttum lögin eru komin. Sem
sagt prýðisdiskur fyrir börn á leik-
skólaaldri og alla aðra sem varðveita
enn barnið í sjálfum sér.
Tónlist
Óstýrilátar
systur
taka lagið
SNUÐRA OG TUÐRA
Uppáhaldslög Snuðru og Tuðru
EDDA – MIÐLUN OG ÚTGÁFA 2001
Texti í kynningum Snuðru og Tuðru eru
eftir Iðunni Steinsdóttur. Snuðra er Ingi-
björg Stefánsdóttir og Tuðra er Hrefna
Hallgrímsdóttir.
Söngur Aino Freyja Jarvela, Alda Arn-
ardóttir, Árni Tryggvason, Bjarni Ingvars-
son, Ingibjörg Stefánsdóttir, Hrefna Hall-
grímsdóttir, Linda Ásgeirsdóttir og Pétur
Eggertz. Útsetningar og hljóðfæraleikur:
Vilhjálmur Guðjónsson. Valgeir Guð-
jónsson leikur á gítar í lögunum. Upp-
tökur fóru fram hjá Vilhjálmi Guðjónssyni
á ýmsum tímum á árunum 1995–2001.
Anna G. Ólafsdóttir
„Prýðisdiskur fyrir börn á leik-
skólaaldri og alla aðra sem varð-
veita enn barnið í sjálfum sér,“
segir Anna G. Ólafsdóttir um
nýjan hljómdisk systranna
Snuðru og Tuðru.
Klapparstíg 44,
sími 562 3614
Expresso kaffikönnur
PÓSTSENDUM
fyrir
rafmagnshellur
og gas
6 stærðir
Verð frá kr.
995.
Vöggusæn
gur
vöggusett
PÓSTSENDUM
Skólavörðustíg 21 sími 551 4050 Reykjavík