Morgunblaðið - 09.12.2001, Page 60
60 SUNNUDAGUR 9. DESEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ
GRANT LEE Buffalo varmeð efnilegri sveitum síð-asta áratugar vestur íBandaríkjunum. Fyrst
bar á henni með fyrstu plötunni,
Fuzzy, en titillag þeirrar plötu fór
býsna víða. Næstu plötur þóttu ekki
síðri, Mighty Joe Moon sem kom út
1994, Copperopolis 1996 og Jubilee
sem kom út 1998, en sú varð loka-
plata hljómsveitarinnar.
Grant Lee Buffalo naut virðingar
annarra tónlistarmanna, eins og sést
meðal annars á því að sveitinni var
boðið að hita upp fyrir hljómsveitir
eins og REM, Pearl Jam og The
Smashing Pumpkins, en þess má og
geta að í einni Evrópuferð Grant Lee
Buffalo var REM upphitunarsveit á
nokkrum tónleikum. Plötukaup-
endur voru aftur á móti tregari og þó
sveitin hafi átt þokkalega vinsæl lög
var það ekki nóg fyrir stórfyrirtækið
sem hún var samningsbundin. Á
endanum gafst leiðtogi Grant Lee
Buffalo, Grant-Lee Phillips, upp á
því að þrefa við útgáfustjóra og sleit
samstarfinu, sagði upp samningi við
umboðsmann sveitarinnar og kvaddi
hljómsveitarfélaga síðan. Sagði svo
fátt af einum að hann dúkkaði upp
með órafmagnaða sólóskífu á síðasta
ári sem aðeins var hægt að fá á Net-
inu og svo aðra sem var á endanum
gefin út á hefðbundinn hátt.
Krytur við Warner
Sagan af Grant-Lee Phillips er að
nokkru leyti dæmigerð um það
hvernig framfarir í tækni og fjar-
skiptum eru að breyta starfsum-
hverfi tónlistarmanna. Grant Lee
Buffalo var á mála hjá Warner-
risanum vestan hafs og þó sveitin
hafi selt hundruð þúsunda af plötum
var það ekki nóg til að það borgaði
sig fyrir fyrirtækið að hafa þá á sín-
um snærum. Phillips hefur lýst því
hvernig það varð að ásteytingar-
steini eitt sinn að hljómsveitin fékk
ekki nógu góðar undirtektir í síma-
könnunum þar sem hringt er í fólk
úti í bæ og það beðið að hlusta á sýn-
ishorn laga og gefa einkunn og ann-
að var í samræmi við það.
Þegar við þetta bættist að Warner
tók að losa sig við þá tónlistarmenn
sem ekki skiluðu skyndigróða óskaði
Phillips eftir því að fá að losna undan
samningnum. Þetta var árið 1999 og
Phillips segir að næstu mánuðir eftir
samstarfsslitin hafi farið í að verða
nýr maður, eins og hann orðar það,
að verða tónlistarmaður á öðrum for-
sendum. Það að vera einn síns liðs
segir hann að hafi marga kosti, ekki
síst að hann bregði sér í heima-
hljóðver þegar andinn kemur yfir
hann, tekur upp lög og vinnur á þann
hátt sem honum sýnist, en einnig
hefur hann verið iðinn við að taka að
sér annars konar verkefni, til að
mynda að semja tónlist fyrir kvik-
myndir og sjónvarp, leggja öðrum lið
við plötugerð, koma fram í sjón-
varpsþáttum og þar fram eftir göt-
unum. Eftir stutt hlé frá tónlistinni
settist hann síðan niður við að semja
lög og samdi þrjátíu lög fyrri hluta
síðasta árs sem hann tók upp sjálfur
og vann að öllu letyti og gaf svo út
úrvalið á plötunni Ladies’ Love
Oracle sem aðeins er hægt að kaupa
á Netinu, til að mynda á vefsetri
hans, www.grantleephillips.com, og
hjá cdbaby.com.
Ný sólóskífa
Ladies’ Love Oracle var óraf-
mögnuð að mestu, lágstemmd og
innileg plata og kærkomin þeim sem
haldið hafa upp á Grant-Lee Phillips.
Þegar kom að því að taka upp aðra
plötu lagði Phillips aftur meira í
púkkið. Hann sá reyndar um allan
hljóðfæraleik líkt og forðum en nú
urðu hljóðfærin fleiri, kassagítar,
ýmsir rafgítarar, bassi og hljómborð,
og útsetningar að sama skapi skraut-
legri. Hann fékk upptökumanninn
Carmen Rizzo til að sitja við takkana
og taka þátt í útsetningum en einnig
sá Rizzo um forritun á stöku töktum.
Til að undirstrika að fyrirbærið væri
sólóskífa gerði hann meira að segja
umslagið sjálfur, enda drátthagur.
Upphaflega segist Phillips hafa
hugsað sér að gefa plötuna út sjálfur,
en þegar henni var lokið óskaði und-
irfyrirtæki Rounder-útgáfunnar,
Zoë Records, eftir því að fá að gefa
hana út sem varð. Platan Mobilize
kom síðan út í ágúst síðastliðnum og
hefur fengið afbragðs viðtökur vest-
an hafs.
Grant-Lee Phillips segist fá hjá
útgáfunni þá þjónustu sem hann þarf
og ekki skipti minnstu að á þeim bæ
séu menn sáttir við það að selja
„bara“ tugþúsundir af plötum og
skipti sér ekki af því hvað hann sé að
gera þar fyrir utan.
Eins og getið er kom Mobilize út í
haust og hægt að kaupa hana á Net-
inu, til að mynda á cdbaby.com. Hún
verður einnig gefin út í Evrópu
snemma á næsta ári og þeir sem ekki
treysta sér til að kaupa yfir Netið
geta þá beðið í von um að einhver
verði til að flytja hana inn.
Tónlist á sunnudegi
Árni Matthíasson
Sannkölluð
sólóskífa
Grant Lee Buffalo lagði upp laupana fyrir tveimur
árum eftir forvitnilegan feril. Árni Matthíasson
segir frá því sem höfuðpaur sveitarinnar, Grant-
Lee Phillips, hefur haft fyrir stafni síðan.
Súrefnisvörur
Karin Herzog
Silhouette
Sýnd kl. 2 og 4.
Mán kl. 4 og 6.
Ísl. tal. Vit nr. 292
Sýnd kl. 8 og 10.30.
Sýnd í Lúxus VIP kl. 5.30, 8 og 10.30. B.i. 16. Vit nr. 296
Kvikmyndir.is
DV
Strik.is
Sýnd kl. 1, 2, 4, 6, 8 og 10.
Mán kl. 4, 6, 8 og 10. Vit 307
Fyrsta ævintýrið um töfradrenginn Harry Potter er nú
loks komið til Íslands eftir að hafa slegið öll met sem
hægt er að slá allstaðar þar sem hún hefur verið sýnd.
Harry Potter er leyfð öllum aldurshópum.
Sýnd kl. 4 og 6. Vit nr. 297
1/2
Kvikmyndir.com
Allur heimurinn
mun þekkja
nafn hans
Sýnd kl. 8 og 10.30. B.i.14. Vit 291
1/2
Kvikmyndir.is
ÓHT Rás 2
strik.is
MBL
Sýnd. sd kl. 2.
Ísl. tal. Vit 271
FRUMSÝNING
Með Thora Birch úr „American
Beauty“. Rafmagnaður spennutryllir
sem fær hárin til að rísa.
SV Mbl
Sýnd sd kl. 2.
Ísl. tal. Vit 265.
Ath! aukasýning kl.1 eftir hádegi
Sýnd kl. 5.45, 8 og 10.15.
Mán kl. 5.45, 8 og 10.15. B.i. 16 ára Vit 314
Kringlunni 7,
sími 5 88 44 22
Jólagjafirnar
í
Málverkasýning á verkum Sveins Björnssonar fyrir bíógesti í innri forsal
Sýnd kl. 6 og 8. B.i.14.Sýnd kl. 3.
SV Mbl
Sýnd kl. 10. B. i. 16.
1/2
Kvikmyndir.com
1/2
Kvikmyndir.is
Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10. Mán kl. 6, 8 og 10.B. i. 16.Sýnd kl. 12 á hádegi, 3, 6 og 9. Mán kl. 3, 6 og 9.
MÁLARINN
og sálmurinn hans um litinn.
Kvikmynd eftir Erlend Sveinsson
Ó.H.T Rás2 SV Mbl
Kvikmyndir.com
ÞÞ Strik.is ÓHT Rás 2
HL Mbl
SG DV
Sýnd kl. 2, 4, 6, 8 og 10. Mán kl. 4, 6 og 8.
Sýnd kl. 2, 4, 6, 8 og 10.
Mán kl. 4, 6, 8 og 10.
Kvikmynd eftir Ágúst Guðmundsson
HJ Mbl
ÓHT RÚV
Allur heimurinn
mun þekkja
nafn hans
strik.is
MBL
Edduverðlaun6
Sýnd kl. Mánudag kl. 10.30.
BROTHERHOOD
OF THE WOLF