Morgunblaðið - 09.12.2001, Blaðsíða 64
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040,
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 SUNNUDAGUR 9. DESEMBER 2001 VERÐ Í LAUSASÖLU 190 KR. MEÐ VSK.
HUGMYND um frystingu launa
starfsfólks Flugleiða næstu átján
mánuði var varpað fram á fundi
stjórnenda félagsins með forsvars-
mönnum helstu stéttarfélaga starfs-
manna hjá félaginu á föstudaginn
var. Gert er ráð fyrir fundum með
hverju stéttarfélagi fyrir sig í næstu
viku.
Franz Ploder, formaður Félags ís-
lenskra atvinnuflugmanna, staðfesti
að á fundi forstjóra félagsins með
formönnum nokkurra stéttarfélaga
hefði þessari hugmynd verið kastað
fram. Ekki hefði verið um formlega
tillögu að ræða heldur því velt upp
hvort þetta væri möguleiki, þ.e.a.s.
að samningsbundnar launahækkanir
um þessi áramót og þau næstu
kæmu ekki til framkvæmda. Laun
yrðu þannig fryst fram á vorið 2003.
Á byrjunarstigi
Franz sagði aðspurður að á fund-
inum hefðu menn ekki verið tilbúnir
til þess að svara þessu á einn veg
eða annan, en gert væri ráð fyrir
fundum með hverju félagi fyrir sig í
næstu viku.
Franz sagði að um mikla breyt-
ingu á kjarasamningi væri að ræða
og það segði sig sjálft að stjórnir fé-
laganna gætu ekki tekið ákvarðanir í
þessum efnum. Þetta hlyti að þurfa
að fara út í félögin og afgreiðast þar
eins og hver önnur breyting á kjara-
samningi, ef af yrði, en málið væri á
algeru byrjunarstigi og hefði ekki
verið rætt innan félagsins. Sam-
kvæmt kjarasamningi FÍA hækka
laun flugmanna um 3% um áramót
og vaktaálag hækkar um 3% til við-
bótar.
Flugleiðir kynntu í lok nóvember
miklar skipulagsbreytingar á starf-
semi félagsins og kom þá meðal ann-
ars fram að óskað yrði eftir viðræð-
um við stéttarfélög starfsmanna til
að ná fram meiri hagræðingu í starf-
seminni. Sigurður Helgason, for-
stjóri Flugleiða, sagði þá í Morg-
unblaðinu að ef draga ætti verulega
úr rekstrinum þýddi það óhjá-
kvæmilega einhverjar uppsagnir
þegar að því kæmi auk þess sem
launalækkanir yrðu skoðaðar eins
og annað.
Fundur Flugleiða með forsvarsmönnum starfsfólks
Hugmyndir um
launafrystingu
LEIT að mönnunum þremur sem
saknað er af dragnótabátnum Svan-
borgu SH frá Ólafsvík hafði engan ár-
angur borðið þegar Morgunblaðið fór
í prentun í gær. Hátt í hundrað björg-
unarsveitarmenn leituðu í allan gær-
dag á svæðinu á vestanverðu Snæ-
fellsnesi. Einnig voru fimmtán til
tuttugu bátar við leit á sjó auk varð-
skips og TF-SIF, þyrla Landhelgis-
gæslunnar, kom einnig til leitar.
Skipverjinn, sem bjargað var við
mjög erfiðar aðstæður af strandstað
laust fyrir kl. 21 á föstudagskvöldið,
er vel á sig kominn líkamlega skv.
upplýsingum læknis og fékk hann að
fara heim að lokinni læknisskoðun á
heilsugæslustöðinni í Ólafsvík á föstu-
dagskvöld.
Að mati björgunarmanna var mikið
björgunarafrek unnið þegar sigmað-
ur þyrlu varnarliðsins bjargaði skip-
brotsmanninum af brú bátsins, sem
hafði rekið upp að klettóttri strönd-
inni og skorðast þar í foráttubrimi,
skammt sunnan við Skálasnagavita á
Öndverðarnesi. Hafði manninum þá
tekist að halda sér föstum uppi á brú
skipsins hátt í þrjár klukkustundir.
Jókst ágjöfin á bátinn eftir því sem á
kvöldið leið.
Björgunarsveitarmenn, sem komn-
ir voru fram á bjargbrúnina um kl. 20
á föstudagkvöldið, höfðu búið sig und-
ir að skjóta fluglínu út í bátinn við
mjög erfið skilyrði þegar tvær þyrlur
varnarliðsins og TF-SIF, þyrla Land-
helgisgæslunnar, komu á svæðið.
Slökkt var á öllum ljóskösturum á
meðan önnur varnarliðsþyrlan und-
irbjó staðsetningu og björgun manns-
ins af bátnum með nætursjónaukum.
Lagði sig í mikla hættu
Samkvæmt lýsingum björgunar-
manns sem fylgdist með aðgerðinni
lagði sigmaður þyrlunnar sig í mikla
lífshættu er hann seig niður til
mannsins en björgunin gekk fljótt
fyrir sig og var maðurinn settur niður
á bjargbrúnina hjá björgunarsveitar-
mönnunum og lækni sem kominn var
á slysstað. Gekk hann með þeim yfir
stórgrýtt hraun að sjúkrabíl sem var í
nokkurra km fjarlægð frá slysstað.
Umfangsmikilli leit að mönnunum
þremur sem saknað er var einnig
haldið áfram í allan gærdag. Leituðu
björgunarsveitarmenn fjörur frá
Brimnesi og suður fyrir Arnarstapa.
Aðstæður til leitar voru erfiðar en
veður gekk þó niður þegar leið á dag-
inn.
Björgunarskipið Björg frá Rifi fór
út kl. sjö í gærmorgun til að kanna að-
stæður til leitar og fjöldi skipa leitaði
á sjó frá Brimnesi út undir Bervík í
allan gærdag. Varðskip var einnig
komið á staðinn snemma í gærmorg-
un auk TF-SIF, þyrlu Landhelgis-
gæslunnar, sem tók þátt í skipulagðri
leit úr lofti. Skv. upplýsingum Slysa-
varnafélagsins Landsbjargar var suð-
vestan tíu til fimmtán metra vindur
og rigningarsuddi á leitarsvæðinu,
um fjögurra metra ölduhæð og mikið
brim við ströndina sem torveldaði
leit.
Ekki er unnt að birta nöfn mann-
anna sem saknað er og skipverjans
sem bjargað var af Svanborgu að svo
stöddu.
Afrek unnið við björgun skipverja af Svanborgu SH að sögn sjónarvotta
Morgunblaðið/RAX
Aðstæður til leitar voru afar erfiðar á slysstað í gærmorgun. Báturinn sést ekki lengur en brak úr honum er í klettunum.
Hélt sér á þaki stýrishúss-
ins hátt í þrjá klukkutíma
Sigmaður/4
BRÚARFOSS kom inn til Fær-
eyja um tíuleytið í gærmorgun
og hófst þá strax dæling úr
bakka og bógskrúfurými skips-
ins, en sjór komst þar inn
seinnipart föstudagsins er skip-
ið var á leið til Englands frá Ís-
landi í slæmu veðri.
Dælingu var lokið um miðjan
dag í gær og voru rafmótorar í
bógskrúfurýminu yfirfarnir í
kjölfarið, en búist var við að
skipið gæti haldið áfram för
sinni í gærkvöldi.
Væntanlega lek lúga
Haukur Már Stefánsson, yf-
irmaður skiparekstrardeildar
Eimskips, sagði að ekki væri al-
veg vitað hvernig sjór hefði
komist í þetta rými, sem væri
fremst á skipinu, en væntan-
lega hefði einhver lúga lekið.
Búið væri að dæla sjónum úr
skipinu og rafvirkjar ynnu við
að setja rafmótora aftur í lag
sem þarna væru og eftir það
myndi skipið halda áfram.
Haukur sagði að mjög slæmt
veður hefði verið á þessum slóð-
um. Það væri auðvitað óþægi-
legt þegar svona gerðist, en
skipið hefði ekki verið í hættu
Sjónum
dælt úr
Brúarfossi í
Færeyjum