Morgunblaðið - 24.01.2002, Page 4

Morgunblaðið - 24.01.2002, Page 4
FRÉTTIR 4 FIMMTUDAGUR 24. JANÚAR 2002 MORGUNBLAÐIÐ F í t o n / S Í A www.bi.is – Engar sveiflur milli mánaða – Enginn gluggapóstur – Engir dráttarvextir – Engar biðraðir – Engar áhyggjur Kynntu þér útgjaldareikning HeimilislínuLáttu þér líða vel ÞAÐ stirnir á Perluna í Öskjuhlíð í vetrarsólinni þessa dagana sem varpar einnig löngum skammdeg- isskuggum mannanna á allt sem fyrir verður. „Það er gæfa að dreyma um gleði og yl, meðan gust- ar um frostkalda jörð,“ segir í söng- texta einum. Þó að frostið bíti í kinnarnar og sumarið með hlýjum vindum virðist langt í burtu er ekk- ert því til fyrirstöðu að viðra sig og láta sig jafnvel dreyma um betri tíð með blóm í haga. Morgunblaðið/Kristinn Skugga- myndir í skammdegi „ÉG TRÚI því að við búum í rétt- arríki og að allar hugsanlegar að- gerðir stjórnvalda verði þar af leið- andi að lúta skilyrðum laga. Í því felst að ekki sé gengið að Baugi og fyrirtækið brotið upp aðeins á grundvelli órökstuddra sögusagna um misnotkun aðstöðu,“ segir Hreinn Loftsson, stjórnarformaður Baugs, um ummæli Davíðs Oddsson- ar um að til greina komi að skipta upp eignum stórra aðila í matvöru- verslunum. „Samkeppnisstofnun hefur skoðað ýmsa þætti í starfsemi Baugs á und- anförnum árum. Ekkert hefur þar komið fram um ólögmæta viðskipta- hætti fyrirtækisins. Sameiningar og kaup í tengslum við uppbyggingu fyrirtækisins hefðu hlotið viðeigandi samþykki samkeppnisyfirvalda,“ sagði Hreinn. Hreinn segist leyfa sér að efast um að Baugur hafi yfir 60% mark- aðshlutdeild á matvörumarkaði, „en jafnvel þó að svo væri þá nægir það eitt og sér ekki til þess að fyrirtækið verði hlutað í sundur. Ef svo væri yrði einnig að hluta í sundur önnur markaðsráðandi fyrirtæki t.d. í sjó- flutningum og flugi. Ég efast stór- lega um að slíkt muni leiða til lægra verðs á þeirri vöru eða þjónustu sem þessi fyrirtæki bjóða neytendum“. Hreinn segir að ef litið sé á við- skiptaumhverfi Baugs þá blasi við sú mynd að í mjólkurvörum og ostum er einokun og að fákeppni sé í sölu og dreifingu á íslensku grænmeti og að- eins einn aðili sinni sveppafram- leiðslu. Hann segir að einn gos- drykkjaframleiðandi sé með yfir 60% markaðshlutdeild, það sama gildi um pakkað brauð. Tveir eggja- framleiðendur séu samanlagt með yfir 90% markaðshlutdeild. Í kjöt- framleiðslu sé fákeppni; tveir kjúklingaframleiðendur hafi saman- lagt yfir 80% markaðshlutdeild og í svínakjötsframleiðslu sé fákeppni. „Þessar staðreyndir takmarka mjög möguleika Baugs til lækkunar vöruverðs þar sem fyrirtækið hefur ekki í nein önnur hús að venda varð- andi innkaup á mikilvægustu liðum matarkörfunnar.“ Hreinn telur að málefnaleg um- ræða um hátt matvöruverð á Íslandi sé óhugsandi ef menn eru ekki reiðu- búnir til að horfast í augu við stað- reyndir t.d. afleiðingar þess land- búnaðarkerfis sem hér sé við lýði. „Einnig verða stjórnmálamenn að hugleiða ofurálögur af margvíslegu tagi, sem sprengja matvöruverð upp úr öllu valdi.“ Hreinn tekur sem dæmi að sykur kostar 98 kr. kílóið í Bónus og vöru- gjald á sykri sé 30 kr. á kg. Virð- isaukaskattur af 98 kr. er rúmar 12 kr. Af þessum 98 kr. sem neytandinn greiðir fyrir sykur í Bónus fær ríkið því 42 kr., heildsalinn 52 kr. og Bón- us 3,23 kr. „Ef menn neita að við- urkenna slíkar staðreyndir komast þeir aldrei til botns í orsökum hás matvöruverðs í landinu hvað þá að sjá raunhæfar leiðir til að lækka verð.“ Þegar verið er að bera saman mat- vöruverð milli landa er nauðsynlegt að hafa hugfast að smásöluverslunin býr við önnur skilyrði en verslanir í samanburðarlöndunum, að mati Hreins. „Þar er yfirleitt heimilaður frjáls innflutningur á matvöru, þar með töldum landbúnaðarvörum, og þar hafa smásöluverslanir einnig heimild til að selja léttvín og bjór. Hvort tveggja er til þess fallið að létta mjög á rekstri og skapar þannig skilyrði hagstæðara vöruverðs en hér er,“ segir Hreinn að lokum. Getur varla beinst að Kaupási Ásmundur Stefánsson, stjórnar- formaður Kaupáss, segir að ummæli Davíðs Oddssonar geti varla beinst að Kaupási. „Kaupás er ekki með þá stærð á markaðinum að rökrétt væri að ræða um að skipta fyrirtækinu upp. Hlutdeild Kaupáss á matvöru- markaðinum er vel innan við 30%. Þannig að það segir sig nokkuð sjálft að það er varla verið að vísa til okkar. Mér dettur hins vegar ekki í hug að fara að rökræða um stöðu Baugs. Við mætum þeim á markaði en ekki með því að munnhöggvast við þá.“ Að- spurður segir Ásmundur að það sé tvímælalaust nokkuð hörð sam- keppni á matvörumarkaðinum. „Við höfum m.a. verið að bregðast við henni með því að gera breytingar á rekstri Kaupáss, t.d. með endur- skipulagningu Krónu-verslananna, sem eru okkar lágvöruverðsverslan- ir, og við höfum einnig tekið ákvörð- un um að fjölga Krónu-verslununum á næstunni þannig að við verðum sterkari í lágvöruverðsendanum. Þá stendur yfir endurnýjun á samning- um við alla birgja félagsins þar sem við viljum tryggja að okkur bjóðist alltaf bestu verðin og að gengis- breytingar skili sér strax í verðlækk- unum.“ Stjórnarformenn Baugs og Kaupáss um ummæli forsætisráðherra um samþjöppun verslana Efast um að skipting eigna leiði til lægra vöruverðs – Ofurálögur af margvíslegu tagi sprengja matvöruverð upp úr öllu valdi, segir stjórnarformaður Baugs Í NÝJU skattmati ríkisskattstjóra vegna ársins 2002 er að finna breytingar á útreikningi hlunninda vegna endurgjaldslausra afnota af íbúðarhúsnæði. Áður voru hlunnindin sama hlutfall af fasteignamati sama hvar á landinu húsnæðið var, en nú eru þau mismunandi eftir staðsetningu húsnæðisins, mest á höfuðborgarsvæðinu en minni út á landi. Hlunnindi metin til verðs Samkvæmt skattmati ríkisskattstjóra í ár skal meta endurgjaldslaus afnot af íbúðarhúsnæði til tekna sem jafngildi 4% af fasteignamati íbúðarhús- næðisins að meðtöldum bílskúr og lóð margfaldað með gildistölu þess svæðis þar sem húsnæðið er. Er gildistalan einn fyrir Reykjavík, Seltjarnarnes, Mosfellsbæ, Kópavog, Garðabæ, Bessastaðahrepp og Hafnarfjörð. Gildistalan er 0,80 fyrir Grindavík, Sandgerði, Gerðahrepp, Reykjanesbæ, Vatnsleysu- strandarhrepp, Akranes, Akureyri, Árborg, Hvera- gerði og Ölfus og 0,70 fyrir önnur sveitarfélög í landinu. Áður gilti hins vegar að hlunnindin voru metin til 2,7% af fasteignamati íbúðarhúsnæðis sama hvar það var á landinu. Indriði H. Þorláksson ríkisskattstjóri sagði í samtali við Morgunblaðið, aðspurður um rökin fyrir þessari breytingu, að embættinu bæri að meta þessi hlunnindi til verðs miðað við það sem gilti á hverj- um stað og tíma. Það sýndi sig og hefði komið fram í athugun sem embættið hefði gert að leiguverð væri mismunandi og væri munurinn meiri en næmi mis- muninum á fasteignamatinu sjálfu. Þó hlunnindin hefðu verið sama prósentutalan áður 2,7% þá hefði fasteignamatið verið mjög mismunandi til dæmis eftir því hvort um var að ræða eignir í Reykjavík eða út í dreifbýlinu. Könnunin hefði hins vegar sýnt fram á að munurinn á leiguverðinu væri meiri en næmi muninum á fasteignamatinu og því hefðu þessi hlunnindi verið endurmetin. Indriði sagði að þetta væri hliðstætt kerfi og gilti varðandi leigu á íbúðarhúsnæði í eigu ríkisins. Þar væri leiguverð hlutfall af brunabótamati og þar væri landinu einnig skipt upp í svæði, eins og hér, þó svæðaskiptingin væri ekki alveg sú sama. Ólíkir stuðlar fyrir mismunandi svæði landsins að við- bættum mun á fasteignamatinu endurspeglaði muninn á leiguverðinu og þar af leiðandi þau hlunn- indi sem telja bæri fram vegna endurgjaldslausra nota húsnæðisins. Breytingar í nýju skattmati ríkisskattstjóra vegna ársins 2002 Húsnæðishlunnindi eru mis- munandi eftir staðsetningu HÆSTIRÉTTUR staðfesti í gær úr- skurð Héraðsdóms Reykjavíkur þar sem því var hafnað að verjandi fyrr- verandi flugrekstrarstjóra Leigu- flugs Ísleifs Ottesens fengi að leggja fram sálfræðiskýrslu þar sem lagt er mat á trúverðugleika framburðar vitna í málinu. Er þetta í annað skipti sem Hæstiréttur fjallar um skýrsl- una. Lögreglustjórinn í Reykjavík hef- ur ákært flugrekstrarstjórann fyrir að fljúga með of marga farþega um borð í TF-GTX frá Vestmannaeyjum til Selfoss 7. ágúst 2000. Hæstiréttur lítur svo á að verjand- inn sé í reynd að leitast við að fá lagt fram fyrir dómi sérfræðiálit um trú- verðugleika vitnisburðar, sem enn hafi ekki verið gefinn fyrir dómi og sé því alls óséð hvers efnis verði. Að öðru leyti tekur Hæstiréttur undir sjónarmið héraðsdóms, en í úrskurði hans kemur m.a. fram að þau atriði, sem verjandinn óski að leggja í sál- fræðimat séu öll almenn atriði sem lúti að trúverðugleika vitna í málinu. Fær ekki að leggja fram sálfræðiskýrslu

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.