Morgunblaðið - 24.01.2002, Síða 37
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 24. JANÚAR 2002 37
ÞEGAR ég var að alast upp á
Akranesi var þar starfandi uppfinn-
ingamaður. Við strákarnir gengum
gjarnan framhjá húsinu hans á leið í
og úr skóla og í hvert skipti sem mað-
ur sá hann að bjástra við eitthvað úti
á plani fékk maður fiðring í magann
og vonaðist til þess að sjá þarna einn
daginn fullbúna geimskutlu, tímavél
eða eitthvað enn stórkostlegra.
Þessi minning kom upp í hugann
þegar ég gekk inn á sýningu mynd-
listartvíeykisins Helga Hjaltalíns og
Péturs Arnar sem vinna sínar sýn-
ingar undir yfirskriftinni Markmið,
en þetta er sjötta Markmiðssýningin
þeirra á aðeins 11⁄2 ári.
Á sýningunni er ýmislegt sem get-
ur flokkast sem uppfinningalist, t.d.
fenjadreki í fullri stæð og sérsmíðað
geymslubox til að setja á toppgrind á
bíl.
List þeirra hefur reyndar verið
kölluð strákalist sem kemur ekki á
óvart. Verkin eru þess eðlis, eins og
allt mögulegt og ómögulegt dót verði
þeim að efniviði í vélar eða aðrar
uppfinningar sem þeir síðan gera til-
raunir með úti á víðavangi.
Þetta sést vel á myndbandi sem
gengur á sýningunni en þar sjáum
við listamennina við tilraunir sínar
og ekki gengur þar alltaf allt að ósk-
um. Einhverjir gætu kannski túlkað
sýninguna sem tilraun listamann-
anna til að færa leikaraskap og
strákalist upp á æðra plan undir
merkjum nútímamyndlistar en því
fer fjarri að verkin séu upphafin, það
er frekar látleysi sem einkennir upp-
stillinguna.
Öll verkin hafa tilvísun í hreyfan-
leika og ferðalög. Manni dettur helst
í hug að þeir Pétur og Helgi hafi sett
sér það „markmið“ að fara eitthvað
langt í burtu og koma kannski aldrei
aftur til baka og að þessar sýningar
og tilraunamennska séu aðeins und-
irbúningur undir það. Þannig má
skoða sýninguna sem myndlíkingu
fyrir leit manna að tilgangi lífsins og
verður tilefni vangaveltna um stefnu
fólks í lífinu, hvert sé „markmiðið“.
Það er jafnframt alþekkt hugmynda-
fræði í ýmsum trúarbrögðum að lífið
hér sé aðeins undirbúningur undir
ferðalag í annan heim og kannski er
það það sem listamennirnir ýja hér
að.
Það að sjá eina markmiðssýningu
hefur kannski ekki svo mikið að
segja en þegar sýningarnar eru
orðnar sex og þær skoðaðar í sam-
hengi vex gildi „Markmiða“ og mað-
ur kemst ekki hjá að spyrja sig hvort
eitthvað stórmerkilegt sé að gerast
eða hvort þeir séu bara að leika sér,
strákarnir!
Uppfinningalist
Fenjadreki þeirra Helga og Pét-
urs er óvenjulegt farartæki.
MYNDLIST
Galleri@hlemmur.is
Opið fimmtudaga-sunnudaga frá kl. 14-
18. Til 3. febrúar.
BLÖNDUÐ TÆKNI
HELGI HJALTALÍN EYJÓLFSSON OG
PÉTUR ÖRN FRIÐRIKSSON
Þóroddur Bjarnason
LYGILEGT en satt, Shallow
Hal, nýjasta mynd Farrelly
bræðra, fellur nánast undir skil-
greininguna rómantísk gaman-
mynd. Vissulega leika bræðurnir
sér á köflum að því hvað er boðlegt
og óboðlegt almennum siðalögmál-
um, jafnframt leggja þeir óvenju
mikla áherslu á manneskjulegar
tilfinningar og hlýju og gera góð-
látlegt grín að endalausri sókn
manna eftir hégóma og ekki síður
hræðslu við að horfast í augu við
staðreyndirnar.
Vinirnir Hal (Jack Black) og
Mauricio (Jason Alexander), lifa í
endalausri blekkingu. Hvorugur
mikill fyrir mann að sjá, þó enda-
laust að eltast við stærri fiska en
þeir ráða við á veiðislóðum
skemmtistaðanna. Væru þar sjálf-
sagt enn, borubrattir á yfiirborð-
inu, en vansælir og kvenmanns-
lausir, ef örlögin hefðu ekki fært
Hal á fund Tonys nokkurs Robb-
ins, landfrægs ráðgjafa í sáluhjálp.
Tony bendir Hal, sem í raun er
vænsti drengur, á að hann verði á
endalausu, hamingjusnauðu hring-
sóli eftir innihaldslausum umbúð-
um, ef hann kúvendi ekki og hefji
leit að kynnum við konur sem hafa
uppá innri fegurð að bjóða. Dáleið-
ir Hal til að orð hans hrífi hinn
villuráfandi manninum og veiti
honum sálarró. Sem færir Hal á
fund hinnar góðhjörtuðu Rosemary
(Gwyneth Paltrow), sem í augum
allra annarra er þrjúhundruð
punda boldúngskvenmaður, en af-
leiðingar af fundum þeirra Robb-
ins, gera það að verkum að Hal sér
fegurðardís. Verður yfir sig ást-
fanginn og alsæll með sitt gjör-
breytta gildismat. Rosemary vinn-
ur að góðgerðar- og
mannúðarmálum, en er jafnframt
dóttir auðkýfingsins, eiganda risa-
vaxinnar peningamaskínu þar sem
Hal er pínulítið og auvirðilegt
tannhjól.
Bræðurnir halda vel á efni sem
byggist að langmestu leyti á skopi
að grunnhyggjunni, kalla til nokkr-
ar skemmtilegar aukapersónur líkt
og milljarðamæringinn, faðir Rose-
mary (Joe Viterelli, sem að þessu
sinni er írskur en ekki ítalskur
mafioso). Mægðirnar skapa ófáar,
meinfyndnar uppákomur. Þá kem-
ur að venju við sögu óvenjulegt
fólk, einsog Walt (Rene Kirby),
fjölfatlaður maður, sem bræðurnir
gera einfaldlega að sannkallaðri
hversdagshetju sem lætur bækl-
unina ekkert standa í vegi fyrir sér
og er gott dæmi um þá væntum-
þykju sem Farrellybræður sýna
þeim sem minna mega sín í þessari
og reyndar fleiri myndun sínum.
Þrátt fyrir meiri mýkt eru ósvik-
in, gamalkunn Farrelly-gullkorn
inná milli, líkt og óborganlegt at-
riði er Hal, fyrir misskilning,
kjamsar á miðaldra húshjálp í stað
sinnar heittelskuðu, en rómantíkin
er yfirsterkari. Ekki síst vegna
þess að Gwyneth Paltrow er dýrð-
leg sem Rosemary, og ennfrekar
sem hún sjálf, gullfalleg, jafnt að
utan sem innan, og sýnir smitandi
gamanleikhæfileika. Black, sem er
einkar minnisstæður úr High Fide-
lity, sýnir að hann er ekki aðeins
fær um að túlka einhliða furðu-
persónur heldur hinn frambærileg-
asti, alhliða gamanleikari. Þau tvö
sýna einkar trúverðuglega að fleira
býr að baki en augað greinir og
myndin þörf lexía þeim stóra hóp
okkar sem lifir í oftrú eða blekk-
ingum á eigin ágæti og eftirsókn
eftir vindi.
Maður, líttu þér nær!
KVIKMYNDIR
Smárabíó, Laugarásbíó, Regn-
boginn, Borgarbíó Akureyri
Leikstjórn og handritshöfundar: Bobby
og Peter Farrelly. Kvikmyndatökustjóri:
Russell Carpenter. Tónlist: Sheryl Crow.
Aðalleikendur: Gwyneth Paltrow, Jack
Black, Jason Alexander, Joe Viterelli,
Rene Kirby, Bruce McGill. Sýningartími
113 mín. 20th Century Fox. Bandaríkin
2001.
SHALLOW HAL (GRUNNHYGGNI HALLUR)
Sæbjörn Valdimarsson
LJÓSMYNDARINN Inger Hel-
ene Bóasson lítur um öxl á sýningu
með samnefndu nafni í Gallerí Fold
við Rauðarárstíg. Á sýningunni eru
verk frá 1972–1975 þegar Inger, sem
er norsk en á ættir að rekja til Ís-
lands, dvaldi á Íslandi og starfaði fyr-
ir ljósmyndarann Mats Wibe Lund.
Inger hefur síðan þá lært auglýs-
ingaljósmyndun og starfað við fagið
sl. 2–3 áratugi. Þetta er þriðja einka-
sýning Inger og ef sýningarnar eru
allar skoðaðar í samhengi sést lítið
samhengi í þeim, enginn sterkur
þráður sem tengir eina við þá næstu.
Fyrsta einkasýning Inger innihélt
svarthvítar myndir af hljóðfæraleik-
urum Drammens Byorkester og í
fyrra hélt hún gjörólíka sýningu sem
hét Digital Natur, eða Stafræn nátt-
úra, en þar sleppir hún fram af sér
beislinu í Photoshop-myndvinnslu-
forritinu með misjöfnum árangri. Í
þessari þriðju einkasýningu, í gallerí
Fold, er kominn þriðji stíllinn í jafn-
mörgum sýningum. Tækifærismynd-
ir teknar á ferðalagi um Ísland og í
Reykjavík.
Myndir Inger í Fold eru nokkuð
misjafnar að gæðum. Í nokkrum
þeirra tekst henni reglulega vel upp á
meðan þær lakari eru vart betri en
myndir úr fjölskyldualbúmi meðal-
jónsins.
Inger tekst best upp þegar hún
myndar fólk og tekst þá oft að fanga
skemmtileg andartök á filmu. Þetta
kemur vel í ljós í myndum eins og
„Hannamamma og Anna“, „Fyrir
malbik“, þar sem við sjáum tvær
manneskjur við Volkswagen-bjöllu í
ansi döpru ásigkomulagi, fórnarlamb
holóttra vega fyrri tíma, og í „Fjör í
Vesturbæjarlauginni“ en þar nær
Inger mjög góðu sambandi við hóp af
börnum í heitum potti.
Inger kann að gefa myndum sínum
nafn og húmorinn er aldrei langt und-
an. Mynd númer 20 af brúði að gægj-
ast út úr Árbæjarkirkju heitir t.d.
„Hvenær kemur hann?“
Á þessari sýningu eru nokkrir góð-
ir sprettir en til bóta hefði verið að
fækka myndunum aðeins eða flokka
þær eftir efnisatriðum eða tímabilum.
Litið um öxl
MYNDLIST
Gallerí Fold
Opið daglega frá kl. 10 til 18, laugardaga
frá 10 til 17 og sunnudaga frá kl. 14 til
17. Til 3. febrúar.
LJÓSMYNDIR
INGER HELENE BÓASSON
„Hvenær kemur hann?“ eftir Inger Helene Bóasson.
Þóroddur Bjarnason
Hallgríms-
kirkja Nem-
endatónleikar
á vegum Tón-
skóla Þjóð-
kirkjunnar
verða kl. 18.
Þar leika org-
elnemendur
Tónskólans á
orgel Hall-
grímskirkju.
Mörg verk-
anna á efnis-
skránni voru
til umfjöllunar á námskeiði sænska
orgelprófessorsins Hans-Ola Er-
icsson fyrr í mánuðinum, en meg-
intema þess var frönsk orgeltónlist.
Í DAG
Hallgrímskirkja
í Reykjavík.