Morgunblaðið - 24.01.2002, Síða 38
UMRÆÐAN
38 FIMMTUDAGUR 24. JANÚAR 2002 MORGUNBLAÐIÐ
HAFNARFJARÐARBÆR hef-
ur á undanförnum mánuðum og ár-
um tekið í gagnið nýjungar á ýms-
um sviðum rafrænnar
þjónustu sveitarfé-
lagsins. Með þessum
nýjungum er mark-
visst stefnt að því að
færa sem mest af
starfseminni í þann
búning að viðskipta-
vinir okkar, bæjarbú-
ar og aðrir, geti rekið
sem mest af erindum
sínum í tölvunni
heima eða í vinnunni.
Þetta er stór hluti
þess sem kallað hefur
verið rafræn stjórn-
sýsla. Í framtíðinni
má gera ráð fyrir auk-
inni svokallaðri sam-
þættingu, þ.e. að með
samtengingu margra mismunandi
kerfa og gagnagrunna opinberra
fyrirtækja og stofnana skapist
möguleikar á sjálfkrafa gagnasöfn-
un, innskráningu, meðferð og af-
greiðslu í fjölmörgum málum.
Til þess að hnykkja á stefnumót-
un í rafrænni stjórnsýslu sam-
þykkti bæjarstjórn Hafnarfjarðar
nýverið nýtt ákvæði í upplýsinga-
stefnu Hafnarfjarðarbæjar.
Ákvæðið, sem tók gildi 1. janúar
sl., hljóðar svo:
Á öllum sviðum starfseminnar
skal veita rafrænt þá þjónustu sem
til þess er fallin, s.s. við móttöku
og afgreiðslu umsókna og erinda,
miðlun reikninga og annarra
gagna. Settar skulu almennar
starfsreglur sem miða að því að
upplýsingatækni verði
nýtt til þess að auka
skilvirkni og gagnsæi
í stjórnsýslunni, bæta
þjónustu og haga
starfsemi þannig að
viðskiptavinir Hafnar-
fjarðarbæjar geti
óháð stund og stað
rekið erindi sín raf-
rænt gegnum heima-
síðu sveitarfélagsins
að svo miklu leyti sem
það er tæknilega
unnt.
Meðal þess sem
gert hefur verið hjá
Hafnarfjarðarbæ er
þróun samstarfs við
Form.is varðandi raf-
rænar umsóknir og fleiri erindi,
samstarf við Netskil um rafræna
miðlun reikninga gegnum heima-
og netbanka og nú nýverið var tek-
ið í gagnið einstakt þjónustukort.
Þessir þættir og fjölmargt fleira er
aðgengilegt á heimasíðu bæjarins,
www.hafnarfjordur.is. Og nú er
verið að taka í gagnið nýtt innrit-
unarkerfi fyrir leikskólana þar sem
bæjarbúar geta skráð börn sín
með rafrænum hætti beint í leik-
skólakerfi bæjarins og fylgst síðan
með þróun mála á Netinu. Þannig
geta forráðamenn séð milliliðalaust
hvenær má vænta þess að barn
þeirra fái leikskólapláss.
Það er sérstök ástæða til þess að
hvetja Hafnfirðinga og aðra við-
skiptamenn bæjarsjóðs Hafnar-
fjarðar til þess að kanna hvaða
möguleikar eru fyrir hendi varð-
andi rafræna þjónustu gegnum
heimasíðu bæjarins. Með aukinni
notkun heimasíðunnar má síðan
örva tæknilega framþróun og
fjölga þeim möguleikum varðandi
sjálfsafgreiðslu sem möguleg er
með tölvu- og upplýsingatækni.
Rafræn
stjórnsýsla í
Hafnarfirði
Jóhann Guðni
Reynisson
Höfundur er upplýsingastjóri hjá
Hafnarfjarðarbæ.
Tölvur
Það er sérstök
ástæða, segir Jóhann
Guðni Reynisson, til
að kanna möguleika
rafrænnar þjónustu
á heimasíðu bæjarins.
- er þekkt fyrir rannsóknir á snyrtivörum
og rannsóknirnar halda áfram með frábærum árangri.
PROFUTURA 2000 byltingarkennda kremið kemur
núna léttara í gel form
PROFUTURA 2000 Gel með bylting-
arkenndum eiginleikum. NANOPART
2000 flytur ceramidið dýpra í epiderm-
is lög húðarinnar, það er fullt af A og E
vítamínum og áhrifarik virknin dregur úr
hrukkum og fínum línum. Á sama tíma
kemur hið áhrifaríka Anti A.G.E Comp-
le og hægir á öldrun húðarinnar. Ár-
angurinn verður einstakur með notkun
PROFUTURA 2000 krem eða gel,
húðin verður yngri, mýkri, teygjanlegri
og stinnari.
- Og fyrir nóttina
PROFUTURA 2000
Late Performance næturkrem.
Yfir daginn verður húðin fyrir gífurlegu
áreiti, stress, níkótin og önnur utanað-
komandi efni sitja á húðinni og ganga
inn í hana.
Afleiðingin er sú að húðin verður föl og
þreytuleg. Að auki verður húðin þrútin
vegna þess að hún nær ekki að endur-
nýja sig og losa sig við úrgangsefnin.
Þegar þetta heldur áfram verður húðin
slöpp og hrukkótt.
Þennan úrgang verðum við ákveðið að
losa okkur við, þannig að húðin endur-
nýist og ljómi aftur þegar að við vökn-
um.
GLÆSILEG TASKA AÐ GJÖF ÞEGAR KEYPT
ERU TVÖ KREM FRÁ MARBERT
Aðrir útsölustaðir
Libia Mjódd, Nana, Hólagarði, Laugarnes Apótek, Snyrtivörudeild Hagkaups Kringlunni,
Skeifunni, Smáratorgi, Spönginni, Snyrtistofa Hönnu Kristínar, Zitas Hafnafirði,
Árnes Apótek, Selfossi, Apótek Vestmannaeyja, Gallery Förðun, Keflavík, Húsavíkurapótek.
Snyrtivörudeild Hagkaups, Akureyri, Silfurtorg, Ísafirði. www.forval.is
MARBERT
Næstu kynningar verða:
24. jan Snyrtivörud. Hagkaups Skeifunni
25. jan Gallerý Förðun, Keflavík
31. jan og 1. feb Zitas, Firði Hafnarfirði
7. feb Laugarnes Apótek
8. feb Nana, Hólagarði
24. 25. og 26. jan. Snyrtivörud.
Hagkaups Smáralind
FLJÓTLEGA
munu liggja fyrir til-
lögur samgönguráð-
herra um skiptingu
fjármuna í nýfram-
kvæmdir í vegagerð
fyrir árið 2002.
Fjárfestingar í vega-
gerð hafa í för með sér
bættar samgöngur,
sem er undirstaða at-
vinnulífs, ferðaþjón-
ustu og afnáms ein-
angrunar einstaka
byggðarlaga, þ.e.a.s.
lykilatriði til að byggð
þrífist í landinu.
Fjármuna til vega-
gerðar er aflað með
þungaskatti annars vegar og sér-
stöku gjaldi á bensín hins vegar,
þannig að þeir sem nota vegina greiði
uppbyggingu og viðhald þeirra.
Áætlaðir fjármunir til nýfram-
kvæmda í vegagerð samkvæmt fjár-
lögum ársins 2002 eru 5,2 milljarðar
króna. Það mætti því
álykta sem svo að mest
af nýframkvæmdum og
viðhaldi færi til þess
svæðis, þar sem bílarnir
eru flestir. Ef litið er á
íbúafjölda þá sést að um
175 þúsund manns búa í
höfuðborginni og ná-
grannasveitafélögunum
eða ríflega 60% lands-
manna og ef suðvestur-
hornið sunnan Hval-
fjarðar er tekið með þá
er þessi tala 70%.
Hvernig hefur skipt-
ing vegafjár verið?
Ef litið er á skiptingu
fjármuna til nýlagningar vega á höf-
uðborgarsvæðinu frá árinu 1991 til
ársins 2001 miðað við aðra hluta
landsins sést að hlutur höfuðborgar-
svæðsins hefur verið að aukast smám
saman eftir að ríkisstjórnir, sem
Davíð Oddsson hefur stýrt, hafa set-
ið við völd. En yfirleitt hefur hlutur
höfuðborgarsvæðisins verið heldur
rýr ef miðað er við íbúafjölda á svæð-
inu. (sjá töflu).
Helstu verkefni
Mörg mjög brýn verkefni í vega-
gerð bíða úrlausnar og verða nokkur
nefnd hér.
a) Tvöföldun Reykjanesbrautar
frá Fífuhvammsvegi og í gegnum
Hafnarfjörð.
b) Mislæg gatnamót, Reykjanes-
braut/Lækjargata, Hafnarfirði.
c) Mislæg gatnamót Stekkjar-
bakki/Reykjanesbraut.
d) Mislæg gatnamót Arn-
arnesvegur/Reykjanesbraut.
e) Mislæg gatnamót Vífilstaða-
vegur/Reykjanesbraut.
f) Álftanesvegur.
g) Tvöföldun Vesturlandsvegar
frá Víkurvegi gegnum Mos-
fellsbæ.
h) Mislæg gatnamót í Mosfellsbæ.
i) Arnarnesvegur.
j) Breikkun Miklubrautar.
k) Breikkun Hringbrautar.
l) Sundabraut.
m) Breikkun Reykjanesbrautar
frá Hafnarfirði til Reykjanes-
bæjar.
Það er ljóst að verkefnin eru fyrir
hendi, það skortir einungis nægjan-
legt fjármagn.
Gunnar I.
Birgisson
Réttlát skipt-
ing fjármuna
’91 ’92 ’93 ’94 ’95 ’96 ’97 ’98 ’99 ’00 ’01
Vegafé höfuðb.svæðis í millj. kr. 478 564 973 698 1.323 948 948 895 947 1.1261.147
Vegafé utan höfuðborgarsvæðis 3.161 3.357 4.250 3.962 3.218 2.682 2.743 3.097 3.638 3.9554.014
Höfuðborgarsvæði hlutfall 13% 14% 19% 15% 29% 26% 26% 22% 21% 28% 22%
(Verðlag ársins 2000, heimild Vegagerðin.)
UPPHAFIÐ að því
að ég fór að velta þess-
um málum fyrir mér,
var viðtal við gamlan
mann í Grímsey er svo
var komið hjá þeim að
þeir máttu ekki fara á
sjó á trilluhornunum
sínum. Þá sagði hann að
sér þætti einkennilegt
að hugsa til þess að ÚA
og Grandi ættu orðið
fiskinn er synti í kring-
um eyna þeirra sem
þeir væru búnir að lifa á
í gegnum aldirnar.
Réttindi sjávarjarða
til sjávarins eru nánast
eins og réttindi þeirra
til landsins þ.e. fyrst eru netlög sem
ná 115 m út frá stórstraums fjöru-
borði, innan þeirra á jarðeigandi eða
ábúandi allan rétt, líka veiðirétt. Þar
fyrir utan tekur við rekamark eða
fiskhelgi sem nær 300–600 m frá stór-
straums fjöruborði. Innan þeirra
marka á landeigandi allt dautt er flýt-
ur (er á reki). Þar fyrir utan tekur við
almenningur.
Fyrirkomulagið á eignarrétti jarða
höfum við varðveitt, en það er hið
sama og gilti í Noregi fyrir árið 900,
eða þar til Haraldur hárfagri setti sín
þjóðlendu og kvótalög. Þá gátum við
flúið til Íslands, (sjá 4. kafla Egils-
sögu Skalla-Grímssonar). Með lögum
um stjórn fiskveiða var menning okk-
ar við sjávarsíðuna sett í mikla hættu
og verður sennilega út-
rýmt ef fram heldur
sem horfir. Hverri þjóð
ber að varðveita menn-
ingu sína.
Þetta er sú menning
sem mundi henta hvað
best, til menningar-
tengdrar ferðaþjón-
ustu.
Áður en lögin voru
sett áttu og eiga enn
sjávarjarðirnar og þétt-
býlisstaðir sem byggst
hafa á sjávarjörðum
auðlindina, og eru búin
að nýta hana og lifa á
henni í 1.100 ár.
Ég álít að stjórnvöld
hafi fyrir löngu verið búin að viður-
kenna eignarrétt jarða á auðlindinni
sem kölluð er, fyrst var útræði skráð
inn í jarðabækur, síðar í jarðamöt og
þá um leið sem fasteignatengd verð-
mæti. Það að taka veiðiréttinn af
jörðum og færa hann á báta má líkja
við að ef settur væri kvóti á rjúpur,
veiðirétturinn væri síðan tekinn af
jörðunum og settur á byssur. Bátar
eru ekkert annað en veiðitæki.
Óheimilt er að aðskilja hlunnindi frá
jörðum.
Með lögum um stjórn fiskveiða var
framinn stærsti þjófnaður, sem fram-
inn hefur verið á norðuhveli jarðar.
(En að mati sumra löglegur eins og
frændur mínir á Núpsstað sögðu í
DV 8. september 2001 um þjóðlendu-
málið). Ég vil minna á að öll sjávar-
þorp og kaupstaðir við sjávarsíðuna
sem flest eða öll standa á gömlum
sjávarjörðum hafa byggt afkomu sína
á þessum gömlu réttindum. Menn
einfaldlega fluttu á þá jörð er hafði
bestu aðstöðuna frá náttúrunnar
hendi, leigðu sér aðstöðu við sjóinn
þar sem útræði var gott. Þá fór fyrst
að verða veruleg verkaskipting þegar
myndast hafði sjávarþorp. Menn áttu
báta og sóttu fisk í sjóinn, aðrir smíð-
uðu báta og gerðu við, enn aðrir verk-
uðu aflann, og enn þá aðrir sáu um
verslun og svo má lengi telja. Þegar
veiðirétturinn var settur á bátana og
gerður framseljanlegur fengu eig-
endur þeirra rétt til að selja lífsbjörg-
ina frá heilu sjávarplássunum sem
eru í dag mörg hver á niðurleið, og
húseignir manna lítils virði og óselj-
anlegar sem í mörgum tilfellum er
aleiga fólks. Þetta er sambærilegt við
það að þegar búið er að selja kvótann
af bújörðunum, þá eru þær einskis
virði í flestum tilfellum.
Eignarréttindi fyrnast ekki þótt
sett séu lög um stjórn fiskveiða.
Eignarréttindi fyrnast ekki.
Ef hið forna fyrirkomulag um
veiðiréttinn fengi að gilda áfram, álít
ég að eignarréttur okkar væri mun
betur tryggður til frambúðar gagn-
vart öðrum þjóðum en með núver-
andi fyrirkomulagi.
Ekki má gleyma loforðum núver-
andi stjórnmálaflokka fyrir síðustu
kosningar um þjóðarsátt um auð-
lindina, hún getur aðeins orðið að
veruleika, að henni sé skilað aftur til
réttra og löglegra eiganda, og það án
allra undanbragða því hér var um
þjófnað að ræða.
Þar sem við erum sjálfstæð þjóð
ber þingmönnum lýðveldisins skylda
til að leysa þetta mál innan veggja Al-
þingis.
Sigurður
Filippusson
Réttindi
Stjórnvöld virða
hvorki, segir Sigurður
Filippusson, réttindi
sjávarjarða til sjávar
né til landsins.
Höfundur er bóndi á Dvergasteini,
Seyðisfirði.
Réttindi sjávarjarða
MENNTAMÁL