Morgunblaðið - 24.01.2002, Side 53
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 24. JANÚAR 2002 53
Dúndur
útsala
25-70%
afsláttur
Yfirhafnir
í úrvali
Allt á að seljast
Mörkinni 6, sími 588 5518
Opið laugardag
frá kl. 10-15
Upplýsingar og innritun í símum
544 4500 og 555 4980 og á www.ntv.is
Hólshrauni 2 - 220 Hafnarfirði - Sími: 555 4980
Hlíðasmára 9 - 201 Kópavogi - Sími: 544 4500
Eyravegi 37 - 800 Selfossi - Sími: 482 3937
Póstfang: skoli@ntv.is - Veffang: www.ntv.is
Helstu námsgreinar
n
t
v
.
is
nt
v.
is
n
tv
.i
s
K
la
p
p
a
ð
&
k
lá
rt
/
ij
AutoCad &
3D Studio Max
Kennd er teiknun með AutoCad og hönnun í þrívídd
með 3D Studio Max. Eftir námskeiðið sem er 180
stundir eiga nemendur að þekkja flesta hluta
kerfanna og geta leyst krefjandi verkefni á eigin
spýtur. Næsta kvöldnámskeið hefst 29. janúar.
Þeir sem hyggja á þetta nám þurfa að hafa
sæmilega góða tölvu- og enskukunnáttu.
AutoCad teikningar (54)
Viðmót í AutoCad (6)
Viðmót í 3D Studio Max (6)
Tvívíð og þrívíð líkanagerð (36)
Flutningur á milli forrita (6)
Lýsing og efnisáferð (30)
Hreyfimyndagerð og myndsetning (12)
Lokaverkefni og próf (30)
RUSLAN Ponomariov (2.727) er
heimsmeistari FIDE í skák eftir að
hafa sigrað landa sinn, Vassily Iv-
anchuk (2.717), með 4½ vinningi gegn
2½ í einvígi um heimsmeistaratitilinn.
Ponomariov er langyngsti heims-
meistari skáksögunnar, er einungis 18
ára gamall. Til samanburðar má hafa
að fyrra aldursmet átti sjálfur Garry
Kasparov, en það vakti mikla athygli
þegar hann varð heimsmeistari 22 ára
að aldri.
Þótt ýmsum þyki kominn helst til
mikill heppnisbragur á heimsmeist-
arakeppnina með styttri tímamörk-
um, færri einvígisskákum o.s.frv. þá
er ekki hægt að líta á Ponomariov sem
óboðinn gest meðal sterkustu skák-
manna heims. Skákferill hans hefur
verið einstaklega glæsilegur og lík-
lega eru það einungis Kasparov og
Kramnik sem hafa verið sterkari
skákmenn á þessum aldri. Í meðfylgj-
andi töflu eru tilgreindir ýmsir merkir
áfangar á skákferli hans, en fjölmörg
fleiri afrek mætti nefna. Hann tefldi
t.d. átta skáka einvígi við harðjaxlinn
Viktor Korchnoi í fyrra og skildu þeir
jafnir, 4-4. Hann hefur einnig staðið
sig vel í liðakeppnum. Á Ólympíu-
mótinu í Istanbul árið 2000 fékk hann
verðlaun fyrir bestan árangur á öðru
borði og þá varð lið hans, Úkraína,
heimsmeistari landsliða í skák í fyrra.
Ponomariov átti drjúgan þátt í þeim
sigri með góðri frammistöðu sinni, en
hann fékk 5½ vinning af 7 á öðru
borði.
Ponomariov hefur verið líkt við
Anatoly Karpov, fyrrum heimsmeist-
ara, hvað varðar skákstíl, framkomu
og jafnvel útlit. Ponomariov lítur á þá
samlíkingu sem hrós, en þeir Karpov
hafa reyndar æft saman. Hann er
hæglátur og greinilega mjög tauga-
sterkur eins og sést á viðureign hans
við Ivanchuk. Hann býr yfir miklum
sigurvilja og hefur margoft tekist að
bjarga sér út úr gjörtöpuðum stöðum
gegn sterkum skákmönnum. Sigur
hans gegn Ivanchuk í fimmtu skák-
inni er ekki eina dæmið um það. Metn-
aðurinn er mikill eins og sést á því að
þegar hann var spurður 16 ára gamall
hvort hann stefndi á heimsmeistara-
titil unglinga þá sagðist hann hafa
miklu meiri áhuga á að verða heims-
meistari fullorðinna. Nú er því marki
náð og pilturinn enn á táningsaldri.
Eins og gefur að skilja skipar skák-
in stóran sess í lífi Ponomariov. Faðir
hans kenndi honum að tefla þegar
hann var sjö ára. Hann segist æfa
skák í um 6 klukkustundir á dag,
nema um helgar þegar hann kýs
fremur að nota tímann í annað, hitta
kunningjana o.s.frv. Hann hefur gam-
an af lestri bóka og klassískri tónlist
og segist heldur ekkert hafa á móti því
að taka til hendinni í garðinum. Hann
stundar lögfræðinám og segir að lög-
fræðin sé ein virtasta starfsgreinin í
Úkraínu. Hann telur að háskólanámið
þurfi ekki að hafa slæm áhrif á skák-
ferilinn og nefnir því til stuðnings að
bæði Kasparov og Karpov hafi há-
skólapróf.
Varðandi stöðu skákarinnar al-
mennt segir Ponomariov að hann vilji
gjarnan sjá ein sterk samtök sem allir
bestu skákmennirnir eigi góða sam-
vinnu við. Með því móti sé auðveldara
að fá stuðningsaðila og stuðla að auk-
inni atvinnumennsku. Ponomariov
segist hlynntur styttri tímamörkum í
skák og hefur meiri áhuga á keppn-
isþætti skákarinnar heldur en að
finna „hinn eina rétta leik“ í hverri
stöðu. Hann vill einnig nýta Netið til
hins ýtrasta við kynningu á skákinni
og eins og margir aðrir telur hann
meiri umfjöllun í sjónvarpi vera lyk-
ilatriði.
Það hlaut að koma að því að tán-
ingur yrði heimsmeistari í skák. Þeg-
ar aldursþróun tíu stigahæstu skák-
manna heims er skoðuð sést mikil
breyting frá því á fyrstu áratugum
síðustu aldar. Þá var allt að helmingur
af 10 stigahæstu mönnum heims yfir
fertugu og hluti þeirra yfir fimmtugs-
aldrinum. Nú er Kasparov aldursfor-
setinn á topp-tíu listanum og er enn
ekki orðinn fertugur. Það eru því sí-
fellt yngri skákmenn sem berjast um
æðstu metorð í skákheiminum.
Í lokaskák einvígis þeirra Ponom-
ariov og Ivanchuk hafði sá síðarnefndi
svart og kaus að verjast með Aljékíns-
vörn. Þetta kom mörgum á óvart, ekki
síst með tilliti til stöðunnar í einvíg-
inu.
Hvítt: Ponomariov
Svart: Ivanchuk
Aljékínsvörn
1. e4 Rf6
(Þessi byrjun hefur ekki verið tefld
í heimsmeistaraeinvígi, síðan Bobby
Fischer beitti henni í tvígang, í 13. og
19. skákinni, gegn Spassky í Reykja-
vík 1972.)
2. e5 Rd5 3. d4 d6 4. Rf3 Rc6
(Algengara er 4. ...Bg4 5. Be2 e6
o.s.frv.)
5. c4 Rb6 6. e6! –
(Afbrigðið, sem Ivanchuk er kom-
inn út í, leiðir til mjög erfiðrar stöðu
fyrir svart, eins og framhaldið í skák-
inni sýnir vel.)
6. – fxe6 7. Rc3 g6 8. Be3 –
(Önnur leið fyrir hvít er 8. h4 Bg7 9.
h5 e5 10. d5 Rd4 11. hxg6 Bg4 12. gxh7
Dd7 13. Bd3 0–0–0 14. Be3 Hdf8 15.
Bxd4 exd4 16. Re4 Bxf3 17. gxf3 e6 18.
dxe6 Dxe6 19. De2 d5 20. c5 dxe4 21.
cxb6 Dxb6 22. Bxe4 d3 23. Dxd3 Hd8
24. Dc4 Dxb2 25. 0–0 Df6 26. Hfc1 c6
og skákinni, Kindermann-Fleck,
Þýskalandi 1983, lauk með jafntefli.)
8. ...Bg7 9. h4 –
9. ...0–0
(Kóngsstaða svarts er mjög veik,
eftir þennan leik. Önnur leið er 9. ...e5,
t.d. 10. d5 Rb4 11. a3 Ra6 12. Rg5 e6
13. dxe6 0–0 14. Rd5 Rxd5 15. cxd5 c6
16. Bc4 b5 17. Ba2 c5 18. h5 Hf5 19.
Dg4 Rc7 20. hxg6 hxg6 21. Re4 og
hvítur vann (Coenen-Rodriguez, San
Sebastian 1995).
Eða 9. ...d5 10. c5 Rc4 11. Bxc4 dxc4
12. Da4 Dd7 13. 0-0-0 b5 14. Dxb5 Hb8
15. Dxc4 Rb4 16. Re5 Bxe5 17. dxe5
Ba6 18. Hxd7 Bxc4 19. Hhd1 Hc8 20.
Bg5 og hvítur vann (Nunn-Vaganian,
London 1986).)
10. h5 e5 11. d5 Rd4
(Svartur fær lítið mótvægi, eftir 11.
...Hxf3 12. Dxf3 Rd4 13. Dd1 Df8 14.
Bd3 Df7 15. hxg6 hxg6 16. Re4 e6 17.
Rg5 og hvítur á yfirburðatafl.)
12. Rxd4 exd4 13. Bxd4 g5?!
(Nýr leikur, sem virðist lakari en
13. ...Bxd4, sem kom upp í skákinni,
Lau-Fleck, Þýskalandi 1984: 14. Dxd4
e5 15. dxe6 Df6 16. Dxf6 Hxf6 17. hxg6
hxg6 18. Re4 Hf4, jafntefli.)
14. Bxg7 Kxg7 15. h6+ Kg8 16.
Dd2 e5
(Eða 16. ...Hf5 17. Hh5 He5+ 18.
Be2 e6 19. f4 gxf4 20. Dxf4 Hxh5 21.
Bxh5 De7
22. 0–0–0 e5 23. Dg3+ Kh8 24. Hf1
og hvítur hefur yfirburðastöðu.)
17. Hh5 g4 18. Dg5+ Dxg5 19.
Hxg5+ Kh8 20. Hg7 Hf6
(Svartur á ekki betri leik, t.d. 20.
...Rd7 (20. – Bd7 21. c5) 21. Bd3 Hf6
(21. – Rf6 22. Hxc7 b6 23. Rb5 e4 24.
Bc2) 22. Hxh7+ Kg8 23. Ke2 Rf8 24.
Hg7+ Kh8 25. Hxc7 Hxh6 og hvítur á
yfirburðastöðu.)
21. Hxc7 Hxh6 22. b4 –
(Keppendur sömdu um jafntefli, en
það dugir Ponomariov til sigurs í ein-
víginu. Hann hefði vafalaust teflt
skákina áfram við aðrar aðstæður, því
að hann á unnið tafl. Til dæmis 22.
...a5 (22. ...Hg6 23. c5 Rd7 24. Bd3
Hg7 25. cxd6 Rf6 26. He7 g3 27. f3
Kg8 28. Hc1 Kf8 29. Hxe5) 23. bxa5
Hxa5 24. Hb1 Hc5 25. He7 Rxc4 26.
Re4 Ra3 27. Hb3 Hc1+ 28. Kd2 Hxf1
29. Hxa3, ásamt Ha3-a8 o.s.frv.)
Sjö stórmeistarar
á Íslandsmótinu í atskák
Íslandsmótið í atskák fer fram um
helgina og verður eitt sterkasta at-
skákmót hér á landi í langan tíma, en
meðal keppenda verða sjö íslenskir
stórmeistarar. Mótið, sem er útslátt-
arkeppni, verður haldið 25.–27. janúar
og úrslitaviðureignin verður tefld í
beinni útsendingu í sjónvarpssal. Hin-
ar viðureignirnar eru tefldar í félags-
heimili TR.
Þátttökulisti:
1. Jóhann Hjartarson 2.625
2. Helgi Ólafsson 2.600
3. Hannes H. Stefánsson 2.595
4. Þröstur Þórhallsson 2.530
5. Helgi Áss Grétarsson 2.505
6. Friðrik Ólafsson 2.485
7. Jón L. Árnason 2.465
8. Arnar Gunnarsson 2.425
9. Jón G. Viðarsson 2.410
10. Jón Viktor Gunnarsson 2.395
11. Guðmundur Gíslason 2.380
12. Stefán Kristjánsson 2.375
13. Davíð Ólafsson 2.330
14. Bragi Þorfinnsson 2.255
15. Magnús Örn Úlfarsson 2.235
16. Ingvar Þór Jóhannesson 2.070
Varamaður úr undanúrslitum er
Björn Þorfinnsson og varamaður af
stigalista er Ágúst Sindri Karlsson. Í
fyrstu umferð mætast: 1-16, 2-15
o.s.frv. en hafa ber í huga, að enn geta
orðið breytingar á keppendalistanum.
Ponomariov lang-
yngsti heimsmeistari
skáksögunnar
SKÁK
Moskva
HEIMSMEISTARAEINVÍGIÐ Í SKÁK
16.1.–24.1. 2002
!""!
!""!
!""7
!"""
788?
7889
788@
788:
##$%&&'&()*+)+,(%+-
$$ %&'(
)"* + , %&'(
-$ . /00
1
), 2 , 3,
4, #$ 2$
$$ , 3,
(#0 $ , 3,
$$ , 3,
7?0
7?0
7?0
7@0
7#0
760
7!0
770
>
>
%
Daði Örn Jónsson
Bragi Kristjánsson
Ruslan Ponomariov