Morgunblaðið - 24.01.2002, Page 55
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 24. JANÚAR 2002 55
DAGBÓK
SVEIT Þriggja Frakka
varð Reykjavíkurmeistari á
þriðjudaginn, en þá voru
spilaðar síðustu tvær um-
ferðirnar af tuttugu. Sigur-
vegararnir hlutu samtals
388 stig, eða 20,42 stig að
meðaltali úr leik. Glæsilegt
afrek hjá þeim Jónasi P. Er-
lingssyni, Steinari Jónssyni,
Stefáni Jóhannssyni, Krist-
jáni Blöndal, Hrólfi Hjalta-
syni og Oddi Hjaltasyni.
Subaru-sveitin varð í öðru
sæti með 374 stig (19,68 að
meðaltali) og sveit SPRON í
því þriðja með 363 (19,11 að
meðaltali).
Spilið að neðan kom upp í
17. umferð mótsins á sunnu-
daginn:
Norður
♠ ÁD102
♥ D954
♦ 73
♣K52
Vestur Austur
♠ G43 ♠ K8765
♥ Á1082 ♥ 3
♦ K1054 ♦ 92
♣G4 ♣D10976
Suður
♠ 9
♥ KG76
♦ ÁDG86
♣Á83
Á flestum borðum varð
suður sagnhafi í fjórum
hjörtum. Sem er sterkur
samningur, en margir sagn-
hafar misstu þráðinn í úr-
spilinu og fóru niður. Þetta
er dálítið sérkennilegt spil
að því leyti að besta spila-
mennskan er alls ekki aug-
ljós. Né heldur sú versta!
Gylfi Baldursson segir að í
sinni sveit byrji allar brids-
þautir á spurningunni:
„Hvernig er hægt að TAPA
þessu spili?“ Við skulum
gera eins Gylfi og félagar og
spyrja fyrst – hvernig tapast
fjögur hjörtu?
Svo umsjónarmaður svari
bara fyrir sjálfan sig, þá
gekk spilið þannig fyrir sig
þar sem hann var við stýrið:
Út kom spaði, sem tekinn
var með ás og tíguldrottn-
ingu svínað. Vestur drap og
skipti yfir í laufgosa. Kóng-
urinn í blindum átti slaginn
og næst var trompi spilað á
kóng, sem vestur gaf. Nú
kom trompgosi og vestur
tók þann slag og trompaði
aftur út. Nú er spilið hrein-
lega tapað, því vörnin á
laufslag og vestur fær alltaf
annan slag á hjarta.
Það er athyglisvert að
samningurinn vinnst ef
sagnhafi spilar ekki tromp-
gosa, heldur litlu hjarta að
drottningunni. Ef vestur
rýkur upp með ásinn og
trompar aftur út, verður
hægt að fríspila tígulinn
með trompun, fara heim á
laufás til að taka síðasta
hjarta vesturs og taka loks
tíunda slaginn á frítígul. Og
ef vestur dúkkar síðara
hjartað (sem er líklegt), þá
rúlla heim tíu slagir með
víxltrompun.
En er endilega rétt að
spila trompinu tvisvar? Eða
kemur til greina að svína
spaða í byrjun – hleypa á
níuna, til dæmis? Þetta er
margslungið spil og pirr-
andi.
BRIDS
Umsjón Guðmundur Páll
Arnarson
STJÖRNUSPÁ
eft ir Frances Drake
VATNSBERI
Afmælisbörn dagsins:
Þú ert kraftmikill og líflegur
og hefur mikið aðdráttarafl.
Þú nýtur virðingar annarra
en gerir þér ekki endilega
grein fyrir því.
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Þú sérð hvað vinir þínir eru
þér mikils virði. Þótt þú sért
ólíkur þeim og búir við aðrar
aðstæður breytir það engu.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Dagurinn hentar vel til að
ræða við yfirmann þinn. Hon-
um mun þykja mikið til at-
hugasemda þinna koma enda
seturðu mál þitt fram á skýr-
an og hlutlausan hátt.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Þú vilt halda að þér höndum í
fjármálum í dag. Þú vilt
standa vörð um takmarkaða
sjóði þína og forðast áhættu.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Þér hefur alltaf þótt skyn-
samlegt að leggja fyrir til
mögru áranna. Aðrir ættu að
fara að fordæmi þínu því þú
ert bæði hagsýnn og útsjón-
arsamur.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Þú kannt að meta áreiðanlegt
fólk sem hægt er að treysta.
Þú gerir þér grein fyrir því að
það er óraunhæft að gera
kröfur sem ekki er hægt að
uppfylla.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Hikaðu ekki við að ræða
vandamál í vinnunni við sam-
starfsmenn þína. Þér til undr-
unar muntu komast að því að
þeir hafa lengi verið þér sam-
mála.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Ný ást byggir á alvöru og
trausti. Þótt hún sé látlaus
mun hún veita þér stöðug-
leika sem vermir hjarta þitt.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Þú átt kost á fjárhagslegri að-
stoð til umbóta á heimili þínu
í dag. Þessi aðstoð gæti falist
í láni eða framlagi maka.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Þolinmæði er stórlega van-
metin dyggð. Í dag muntu sjá
hvað það er mikils virði að
kunna lagið á öðrum og
hvernig þolinmæði getur
komið í veg fyrir átök.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Leitaðu öruggra leiða til að
auka tekjur þínar á næstu ár-
um. Allar fjármálaumræður
dagsins geta fært þér hagnað
þegar til lengri tíma er litið.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Þú ert minntur á það að ást-
vinir þínir eru mannlegir. Það
er ekki hægt að ætlast til ann-
ars en að þeir standi við
skuldbindingar sínar og að þú
gerir slíkt hið sama.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Þú færð tækifæri til að leita
ráða hjá einhverjum í dag.
Einhver eldri og vitrari bíður
þess að segja þér eitthvað
mikilvægt.
Stjörnuspána á að lesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi
eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
LJÓÐABROT
Í DÍSARHÖLL
Bumba er knúð og bogi dreginn,
blásinn er lúður og málgjöll slegin.
Svo glatt er leikið af gripfimum drengjum
sem gneistar kveikist af fiðlunnar þvengjum.
og hljómgeislinn titrar, án ljóss og án litar,
ljómar upp andann, sálina hitar
og brotnar í brjóstsins strengjum.
Allt hneigir og rís fyrir stjórnanda stafsins,
sem straumunum vísar til samradda hafsins,
sem hastar á unn þess, sem hljómrótið magnar,
sem hrærir hvern brunn þess til róms eða þagnar.
Hann vaggast í liðum með list og með sniði
og leikur hvern atburð á tónanna sviði,
svo augað með eyranu fagnar. –
– – –
Einar Benediktsson
1. c4 e6 2. d4 d5 3. Rc3 c5 4.
cxd5 exd5 5. Rf3 Rc6 6. g3
Rf6 7. Bg2 Be7 8. 0-0 0-0 9.
dxc5 Bxc5 10. Bg5 d4 11.
Bxf6 Dxf6 12. Rd5 Dd8 13.
Rd2 He8 14. Hc1 Bf8 15.
He1 Bg4 16. h3
Staðan kom upp í
A-flokki Corus stór-
meistaramótsins í
Wijk aan Zee. Rúss-
neska undrabarnið
Alexander Grischuk
(2.671) hafði svart
gegn hinum heillum
horfna Loek Van
Wely (2.697). 16.
...Bxh3! 17. Bxh3
Dxd5 18. a3 Hab8
19. Bg2 Dh5 20. Rb3
Hbd8 21. Bf3 Db5
22. Dd3 Db6 23.
Bxc6 bxc6 24. Hc2
c5 25. Rd2 Df6 26. Hc4 h5
27. Rf3 Hb8 28. b3 Hb6 29.
Hec1 a5 30. Hxc5 Bxc5 31.
Hxc5 h4 32. Rxh4 Hbe6 33.
Hc2 Hc6 34. Db5 Hec8 35.
Hxc6 Dxc6 36. Dxa5 De4
37. Rf3 d3 38. Dd2 Dxe2 39.
Df4 Dd1+ 40. Kh2 Dxb3 41.
Dd6 Dc2 42. Kg2 De2 43. a4
De4 44. a5 g5 og hvítur
gafst upp.
SKÁK
Umsjón Helgi Áss
Grétarsson
Hvítur á leik.
Árnað heilla
Ljósmyndastofa Bonni
Brúðkaup. Gefin voru sam-
an 25. ágúst sl. í Hafnar-
fjarðarkirkju af sr. Einari
Eyjólfssyni Bryndís Fanney
Guðmundsdóttir og Helgi
Hinriksson.
50 ÁRA afmæli. Nk.sunnudag, 27. jan-
úar, er fimmtugur Guð-
mundur B. Baldursson,
Kirkjuferju, Ölfusi. Í tilefni
afmælisins taka hann og
kona hans, Jónína Valdi-
marsdóttir, á móti ættingj-
um og vinum í Þinghúscafé,
Hveragerði, föstudaginn 25.
janúar frá kl. 20. Boðið verð-
ur upp á léttar veitingar.
MORGUNBLAÐIÐ birtir
tilkynningar um afmæli,
brúðkaup, ættarmót og
fleira lesendum sínum að
kostnaðarlausu. Samþykki
afmælisbarns þarf að fylgja
afmælistilkynningum og/
eða nafn ábyrgðarmanns
og símanúmer. Fólk getur
hringt í síma 569-1100, sent
í bréfsíma 569-1329, eða
sent á netfangið ritstj
@mbl.is.
Einnig er hægt að skrifa:
Árnað heilla,
Morgunblaðinu,
Kringlunni 1,
103 Reykjavík
40 ÁRA afmæli. Í dag,fimmtudaginn 24.
janúar, er fertugur Pétur
Guðmundsson, fram-
kvæmdastjóri bygginga-
félagsins Eyktar, Brúna-
stöðum 63, Reykjavík.
Eiginkona hans er Hólm-
fríður Lillý Ómarsdóttir.
Þau taka á móti ættingjum
og vinum á morgun, föstu-
daginn 25. janúar, kl. 20.30 í
Borgartúni 6 (Rúgbrauðs-
gerðinni).
60 ÁRA afmæli. Í dag,fimmtudaginn 24.
janúar, er sextugur Björn
Árdal barnalæknir. Kol-
brún Sæmundsdóttir, eigin-
kona hans, verður sextug í
apríl nk. Þau hjónin munu
sameiginlega halda upp á
þessi tímamót í vor.
Þrír Frakkar
Reykjavíkurmeistarar
Sveit Þriggja Frakka sigraði
nokkuð örugglega í Reykjavíkur-
mótinu í sveitakeppni sem lauk sl.
þriðjudagskvöld. Sveitin hlaut sam-
tals 388 stig eða 20,42 stig að með-
altali úr leik. Í sigursveitinni spiluðu
Kristján Blöndal, Steinar Jónsson,
Hrólfur Hjaltason, Oddur Hjalta-
son, Stefán Jóhannsson og Jónas P.
Erlingsson.
Lokastaðan varð annars þessi:
Þrír Frakkar 388
Subaru-sveitin 374
SPRON 363
Páll Valdimarsson 347
Símon Símonarson 342
Skeljungur 326
Ferðaskrifst. Vesturlands 322
Roche 313
Strengur 302
Íslenska auglýsingastofan 272
Ógæfumennirnir 264
Málning 264
Bergplast 251
Ofantaldar sveitir unnu sér rétt til
þátttöku í undankeppni Íslands-
mótsins sem fram fer í Borgarnesi.
BRIDS
Umsjón Arnór G.
Ragnarsson
Bridsfélag Kópavogs
Fimmtudaginn 17. janúar hófst
tveggja kvölda tvímenningur og
mættu tuttugu pör, meðalskor var
216, bestum árangri um kvöldið
náðu:
N/S
Georg Sverrisson – Ragnar Jónsson 277
Þórður Björnss. – Birgir Ö. Steingrímss. 251
Hertha Þorsteind. – Elín Jóhannsdóttir 249
A/V
Sverrir Þórisson – Aðalsteinn Sveinsson 249
Bernódus Kristinss. – Ingvaldur Gústafs.
238
Soffía Daníelsdóttir – Björn Friðriksson 219
Keppninni lýkur fimmtudaginn
24. janúar og síðan hefst aðalsveita-
keppni félagsins. Spilað er í Þinghól í
Hamraborginni og hefst spila-
mennska kl.19.30.
Sveit Páls á toppnum
í aðalsveitakeppni BA
Aðalsveitakeppni Bridsfélags
Akureyrar er tæplega hálfnuð og er
staðan jöfn og spennandi. Sveit Páls
Pálssonar hefur sex stiga forystu en
næstu sveitir eru í einum hnapp. All-
ir spila við alla einfalda umferð og
eru tveir 16-spila leikir á hverju
kvöldi. Staða þeirra efstu:
1. Páll Pálsson 84
2. Sparisjóður Norðlendinga 78
3. Ævar Ármannsson 72
4. Stefán Vilhjálmsson 70
5. Reynir Helgason 63
Grettir Frímannssson hefur staðið
sig best í bötlernum og vermir tvö
efstu sætin ásamt makkerum sínum.
Grettir og Hörður Blöndal eru með
2,47 að meðaltali eftir 32 spil en Páll
Pálsson-Grettir Frímannsson eru
með 1,91 eftir jafnmörg spil. Jónas
Róbertsson-Sveinn Pálsson eru hins
vegar efstir þeirra para sem hafa
spilað allt mótið saman. Þeir eru með
1,61 úr 64 spilum.
FRÉTTIR
BÆJARFULLTRÚAR Samfylking-
arinnar vilja benda á eftirfarandi
vegna umræðu um bága fjárhagstöðu
Hafnarfjarðarbæjar.
„Í ljósi ummæla Magnúsar Gunn-
arsson, oddvita Sjálfstæðisflokksins
og bæjarstjóra, í fréttum á RÚV sl.
helgi, um að fjárhagsvanda Hafnar-
fjarðarbæjar mætti einkum rekja til
einsetningar grunnskólans og mikilla
fjárfestinga vegna leikskóla og vegna
þess að Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson,
formaður Sambands ísl. sveitarf. og
borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins,
tók undir að nokkru leyti með Magn-
úsi í frétt Morgunblaðsins 22. janúar
og ver slæma fjárhagsstöðu Hafnar-
fjarðarbæjar, er rétt að benda á eft-
irfarandi.
Nær allar framkvæmdir á þessu
kjörtímabili á sviði grunn- og leik-
skóla hafa átt sér stað í formi einka-
framkvæmda. Kostnaður vegna
þeirra framkvæmda hefur ekki verið
færður inn í efnahagsreikning Hafn-
arfjarðarbæjar og hefur hann því
engin áhrif á mat á fjárhagsstöðu
bæjarsjóðs Hafnarfjarðar í talna-
grunni þeim sem er lagður til grund-
vallar á mati eftirlitsnefndarinnar.
Þar er um skuldbindingar upp á
milljarða króna að ræða.
Umræddar framkvæmdir eru eft-
irtaldar:
1. Áslandsskóli
2. Leikskólinn Áslandi
3. Leikskólinn Háholti
4. Grunnskóli sem verið er að reisa á
Hörðuvöllum
5. Leikskóli sem verið er að reisa á
Hörðuvöllum
6. Fimleikahús sem byggt er við
gamla Haukahúsið
Áætlaður byggingarkostnaður um-
ræddra skóla, leikskóla og íþrótta-
mannvirkis er 3–4 milljarðar króna.
Þeim skuldbindingum er með öllu
haldið utan bæjarreikninga og aðeins
minnst á þá í framhjáhlaupi í skýr-
ingum. Þrátt fyrir það hafa skuldir
Hafnarfjaðarbæjar um það bil tvö-
faldast á þessu kjörtímabili úr um 4
milljörðum króna í um 8 milljarða
króna. Ef framangreindur kostnaður
yrði færður til bókar lætur nærri að
heildarskuldir Hafnarfjarðarbæjar
hafi þrefaldast á kjörtímabilinu.
Þá er rétt að geta þess að þær fjár-
hagsáætlanir sem meirihluti bæjar-
stjórnar hefur samþykkt á kjörtíma-
bilinu hafa ekki staðist og sama er að
segja um langtímaáætlanir, þrátt fyr-
ir að þær hafi í tvígang verði teknar
til endurskoðunar á nýliðnu ári.“
Athugasemd frá
Samfylkingunni
RYDENS-KAFFI á Íslandi færði
Mæðrastyrksnefnd Reykjavíkur ný-
lega ávísun að upphæð kr.
1.020.000 í tilefni þess að Rydens-
kaffi verður 75 ára á þessu ári.
Fyrirtækið ákvað í byrjun desem-
ber sl. að gefa nefndinni 15 kr. af
hverjum seldum rauðum Gevalia
kaffipakka. Á myndinni eru með-
limir Mæðrastyrksnefndar, Kristín
Gísladóttir, Guðrún Magnúsdóttir,
Unnur Jónasdóttir, Ragna Rósants,
Bryndís Guðmundsdóttir varafor-
maður, Ásgerður Jóna Flosadóttir
formaður og Gísli Vagn Jónsson
sölustjóri Gevalia á Íslandi.
Morgunblaðið/Golli
Rydens-kaffi styrkir
Mæðrastyrksnefnd