Morgunblaðið - 30.04.2002, Side 23
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 30. APRÍL 2002 23
Heilsubót vikunnar
Natracare
náttúrulegu dömubindin
Verð: 540
Áður: 720
Sterimar
Hreint nef - betri líðan
25%
afsláttur
Verð: 926
Áður: 1323
Verð: 760
Áður: 1013
Lýsi -D & kalk
Styrkir bein
Sterimar 50 mlSterimar100 ml
TEKIST hefur að tryggja fjármögn-
un vegna reksturs genabanka í Bret-
landi en gert er ráð fyrir að í bank-
anum verði geymdar upplýsingar um
erfðaefni hálfrar milljónar manna. Er
markmið þeirra, sem standa að verk-
efninu, að safna saman á einn stað
upplýsingum sem vonast er til að
muni nýtast í baráttunni við ýmsa
skæða sjúkdóma.
Sagt er frá því á fréttasíðu BBC að
von aðstandenda genabankans sé sú,
að á endanum verði mögulegt að nýta
upplýsingar úr bankanum til að þróa
ný lyf. Er haft eftir sir George Radda,
framkvæmdastjóra Læknarannsókn-
aráðsins breska, að stofnun gena-
bankans marki tímamót í læknis-
fræði. Verkefnið nýtur liðsinnis
breska ríkisins en heilbrigðisráðu-
neytið, læknarannsóknaráðið og
Wellcome-sjóðurinn svonefndi leggja
genabankanum til 45 milljónir
breskra punda, rúmlega sex milljarða
ísl. króna, í upphafi.
Sýnum verður safnað með þeim
hætti að sjálfboðaliðum af báðum
kynjum á aldrinum 45 og 69 ára verð-
ur gefinn kostur á að leggja inn erfða-
efni í bankann. Hafa samtökin Gene-
Watch UK farið fram á að lög verði
sett um málið nokkru áður en læknar
fari að safna sjálfboðaliðum til verk-
efnisins. Talsmenn samtakanna segja
að án skýrra ákvæða í lögum sé hætta
á því að erfðaupplýsingar komist í
hendur einkafyrirtækja, sem hugsan-
lega myndu misnota þær.
Aðstandendur verkefnisins segja
hins vegar að sett verði á laggirnar
óháð nefnd – sem væri ábyrg gagn-
vart almenningi í Bretlandi, þátttak-
endum í rannsóknum og öðrum sem
eiga hagsmuna að gæta – sem tryggja
eigi að farið verði með genaupplýsing-
arnar á ábyrgan hátt.
Kári Stefánsson, forstjóri Íslenskr-
ar erfðagreiningar, segir tilkomu hins
breska genabanka mikil gleðitíðindi.
Hana megi túlka sem stuðning við þá
hugmynd, sem liggur að baki þeim
gagnagrunni á heilbrigðissviði, sem
unnið er að hjá ÍE, þ.e. að safnað sé á
einn stað gögnum um mikinn fjölda
manna í því skyni að sækja þekkingu.
„Vilji breskra stjórnvalda til að setja í
þetta peninga bendir til þess að það
séu fleiri en við, sem trúum því að
þetta geti valdið byltingu í læknis-
fræðirannsóknum,“ segir Kári.
Kári segir gagnagrunn Bretanna
ekki eins áhugaverðan og þann ís-
lenska þar sem ekki sé gert ráð fyrir
að keyra þar saman heilbrigðisupp-
lýsingar við ættfræðiupplýsingar.
Einnig séu grunnarnir ólíkir að því
leyti til að breski gagnabankinn muni
ekki aðeins hýsa heilbrigðisupplýs-
ingar heldur einnig erfðafræðiupplýs-
ingar, þ.e. upplýsingar um breytileika
í erfðamengi.
Íslenski gagnagrunnurinn muni
eingöngu geyma heilbrigðisupplýs-
ingar en sá möguleiki verði fyrir
hendi að tengja þær við erfðafræði-
upplýsingar þeirra sem til þess hafa
gefið sérstakt leyfi.
Kári segir aðspurður að án efa
verði um samkeppni að ræða á milli
ÍE og bresku aðilanna en að hún verði
af hinu góða.
Bretar stofnsetja
genagagnabanka
Kári Stefánsson
segir samkeppn-
ina af hinu góða