Morgunblaðið - 30.04.2002, Blaðsíða 56

Morgunblaðið - 30.04.2002, Blaðsíða 56
56 ÞRIÐJUDAGUR 30. APRÍL 2002 MORGUNBLAÐIÐ                               BRÉF TIL BLAÐSINS Kringlunni 1 103 Reykjavík  Sími 569 1100  Símbréf 569 1329  Netfang bref@mbl.is Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga- safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt t i l að ráðstafa efninu þaðan, hvort sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni ti l birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi. GÓÐIR Reykvíkingar, senn líður að borgar- og sveitarstjórnarkosning- um og þessi lýðræðisréttur, að geta kosið á frjálsan hátt, án eftirlits, vopnaskaks, svindls og ann- arra enn meiri voðamála sem við getum lesið um í fjölmiðlum, (blöð- um) og séð í sjón- varpi. Varla mun nokkur Íslend- ingur vilja skipta við þjóðir þær sem þegnar eru algjörlega háðir ofbeld- isöflum, sem hika ekki við að svindla, ljúga og hóta þegnum sín- um, verði þeir ekki eins og „valdhaf- ar“ vilja. Mig langar til að benda á nokkur atriði sem ég held að okkur sé hollt að minnast, nú þegar kosningarnar fara í hönd. Án þess að halla á nokkurn annan, þá er ekki sennilegt að við getum bent á nokkurn annan mann sem verið hefur borgarstjóri okkar Reykvíkinga á ferli sínum, áður en hann sneri sér að stjórnmálunum og er nú okkar forsætisráðherra, Davíð Oddsson, sem hrint hefur í fram- kvæmd öðrum eins stórvirkjum og hann gerði í sinni borgarstjóratíð. 50 ára hugmynd, Perlan, ýtti hann úr vör og því er nú lokið og er senni- lega Reykjavíkur mesta prýði. Ráðhús Reykjavíkur sem allir andstæðingar Sjálfstæðisflokksins voru á móti, þetta átti að eyðileggja tjörnina, fuglalífið og ég veit ekki hvað annað, en viti menn, engum líð- ur nú betur í þessum húsakynnum heldur en þessum sömu andstæðing- um Sjálfstæðisflokksins sem nú vilja hvergi fara þaðan sem þeim líður svo vel. Í þeim húsakynnum sem þessi okkar fremsti oddviti og fram- kvæmdamaður Davíð Oddsson stóð fyrir og framkvæmdi, ekki bara tal- aði um, bla bla bla. Ég, og mjög margir aðrir, vonum nú að helmingur þjóðarinnar sem býr hér á Reykjavíkursvæðinu láti nú ekki blekkja sig einu sinni enn með þeim fagurgala og „engra flokka“ samansafni, ábyrgðarlausra aðila svo þeir geti nú endanlega gengið frá virðingu og fjármálum þessarar höfuðborgar Íslands, er virkilega einhver sem ekki getur séð þetta sjálf/sjálfur ef fólk reynir að skoða í einlægni loforð og efndir þessara „samtaka“ sem eiga það eitt sameiginlegt að halda Sjálfstæðis- flokknum, sem er eina aflið sem bæði getur og vill bæta allt mannlíf í þessari borg og mun gera það eftir næstu kosningar fái hann fulltingi til þess. Innan þessara núverandi valdhafa er aðeins eining um eitt og þeir eru aðeins sammála um eitt og það er: að vera ósammála um allt. Það sýna verkin. Að lokum, nýtum atkvæðisrétt okkar, hann er heilög réttindi allra lýðræðisþjóða. Ekki sitja heima, við skuldum þjóð okkar það. Við þurfum, kæru landsmenn, að lesa meira, og muna meira heldur en aðeins fyrirsagnir blaðagreina, við þurfum að taka heiðarlega afstöðu. Ég og fleiri höfum stundum sagt það, það er mikil ábyrgð að ganga til frjálsra kosninga. Kosningar snúast ekki um hver býður í besta „partíið“ að þeim loknum, kosningar eru mik- ið alvörumál og ekki „helgar- skemmtun“ með vöku fram eftir nóttu á „kosningavöku“ og tilheyr- andi „snakki og skemmtan“. Persónulega finnst mér mesta hneisa að nýta ekki sinn kosninga- rétt og ættum við að minnast þess að margar þjóðir hafa ekki einu sinni alvörukosningarétt þótt þegn- ar þeirra þjóða sannarlega vildu vera t.d. í okkar sporum, hvað frelsi varðar og lýðræði. En því miður getur einnig lýðræð- ið verið vandmeðfarið þegar óheið- arlegir aðilar notfæra sér þær „smugur“ sem vissulega eru á því að hika ekki við að nota lygar og blekk- ingar sínum málum til framdráttar og hugsa eingöngu um að komast í góðar stöður, há laun, en án þess að verðskulda það. Það er komið nóg af fjöl-„flokka“ óstjórn svokallaðs R-lista sem er skreyttur með því að kalla þetta „Reykjavíkurlistann“. Látið ekki blekkja ykkur lengur. Verum óhrædd að fela besta stjórnmálaafli landsins og mest virta um allan hinn vestræna heim okkar stjórnmál bæði borgar og ríkis, hættum að hlusta á alónýtan áróður andstæð- inga Sjálfstæðisflokksins um eitt- hvað „einræði“ og þessháttar. Við höfum misst gríðarlegan fjölda fólks úr borginni á liðnum ár- um, svo og stærstu fyrirtæki lands- ins, til Kópavogs, af hverju? Undirritaður er fæddur Reykvík- ingur, en hér á árum áður í eitt sinn sem „vinstri öfl“ komust til valda í Reykjavík og ráðinn var „óháður“ borgarstjóri þá var sett í gildi svo- kallað „punktakerfi“ í lóðaúthlutun og einhvernveginn passaði ég og mínir ekki inn í það og að lokum byggði ég í Kópavogi. Nú, borgarbú- ar áttuðu sig og þessi „borgar- stjórn“ sat ekki lengi, sem betur fór. En núverandi „borgarstjórn“ er búin að sitja 8 árum of lengi og nú breytum við til betri vegar öllum landsmönnum til heilla. Athugum það að Reykjavík er höfuðborg allra landsmanna, allt landið á hana! Við viljum ekki meira af „lóðaupp- boðum“ sem gera allt íbúðarhús- næði of dýrt, við viljum ekki meira af sérhagsmunafólki sem einungis er að koma sjálfu sér fyrir í kerfinu. Við viljum Sjálfstæðisflokkinn aftur til að stjórna bæði borg og landinu öllu, flokk með kristileg gildi sem er þjóð og landi til heilla. Megi það verða að við öll sjáum nauðsyn þess að skipta nú þegar um valdhafa, lýðræðis vegna. LEIFUR N. KARLSSON, sölufulltrúi. Látum ekki blekkjast Frá Leifi N. Karlssyni: Leifur N. Karlsson
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.