Morgunblaðið - 30.04.2002, Blaðsíða 31
ANNA Pálína Árnadóttir hefur ekki
tölu á þeim tónleikum sem hún hefur
sungið á á liðnum árum. Hún hefur
oft komið fram ein með sinni hljóm-
sveit, með Gunnari Gunnarssyni pí-
anóleikara eða öðrum, og maður
hennar Aðalsteinn Ásberg Sigurðs-
son er sjaldnast langt undan. Hann
er meir en liðtækur músíkant, því
hann þýðir og semur flesta texta
Önnu Pálínu, og semur lög fyrir hana
að auki. Nú er Anna Pálína enn á
ferð, með nýja plötu, Guð og gamlar
konur, og útgáfutónleikar verða í
Hafnarborg í Hafnarfirði í kvöld kl.
20. Þeir sem leika með Önnu Pálínu
þar verða Gunnar Gunnarsson, Jón
Rafnsson bassaleikari og Kristinn
Árnason gíarleikari og Pétur Grét-
arsson slagaverksleikari.
„Ég kalla diskinn Guð og gamlar
konur vegna þess að á honum er eitt
lag um guð og mörg um gamlar kon-
ur,“ segir Anna Pálína. „Flest lögin
eru búin að vera á efnisskránni minni
í mörg ár, en hafa af ýmsum ástæð-
um alltaf dottið út af borðinu þegar
ég hef verið að hljóðrita. Þó er ég
alltaf að flytja þessi lög á tónleikum.
Nú fannst mér bara kominn tími til
að taka þessi lög saman og gera þeim
hátt undir höfði og finna einhverjar
leiðir til að koma þeim frá mér í bún-
ingi sem hentaði þeim. Þau hafa aldr-
ei fallið í þann hljóðfæraramma sem
ég hef verið með; – píanó, trommur
og bassa, og þess vegna bætti ég gít-
ar við og píanóleikarinn fékk þau fyr-
irmæli að hann mætti spila á hvað
sem er annað en píanóið. Hann spilar
bæði á rhodes og hammondorgel, en
einnig gamalt fótstigið harmóníum.“
Lögin sem Anna Pálína syngur
koma héðan og þaðan úr heiminum,
frá Bandaríkjunum, Frakklandi,
Norðurlöndunum og Englandi. „Það
er óvenju lítið af lögum eftir Aðal-
stein Ásberg, bara eitt í þetta sinn,
en hann á hins vegar flesta textana.“
Veik fyrir gömlum konum
Gömlu konurnar komu óvart til
Önnu Pálínu. Það var ekki fyrirfram
ákveðið að setja saman disk með lög-
um um gamlar konur, þetta bara
æxlaðist svona.
„Ég var búin að leita að góðu
nafni, og allt í einu fékk ég hugljóm-
un. Lagið um guð er nýjasta lagið, ég
fann það í Frakklandi í fyrra, og það
er um leið eina lagið sem ég hef ekki
flutt mikið. Nokkur lögin eru úr dag-
skrá sem ég setti saman fyrir Kaffi-
leikhúsið í fyrra, Kvenna hvað? þar
voru nokkrir kvennatextar tíndir til,
annars held ég bara að ég sé mjög
veik fyrir gömlum konum. Ég fékk
mjög undarlegt uppeldi. Ég ólst upp
í hverfi þar sem nær öll börn voru
flutt í burtu, og vinkona mín í næsta
húsi var hæstaréttarlögmannsfrú á
eftirlaunum. Hún tók á móti mér á
hverjum degi, kenndi mér að halda
fallega á hnífapörum og skála í vín-
glasi, og það var alltaf mjög fínt hjá
henni. Mamma var líka í félagsskap
með mörgum eldri konum. Þannig
umgekkst ég gamalt fólk, og sérstak-
lega gamlar konur alveg frá því ég
var krakki. Í mínum huga ganga
gömlu konurnar guði næst. Þær eru
svo lífsreyndar og miðla manni af
sinni reynslu og þroska. Mér finnst
að það eigi að setja gamlar konur á
efsta stall í okkar þjóðfélagi.“
Það er ekki hægt að segja annað
en að viðhorf Önnu Pálínu stangist á
við það sem er í tísku í dag, þar sem
ungpíur, nánast enn á barnsaldri
tröllríða músíkheiminum. „Ætli
þetta sé ekki mitt framlag til þeirrar
umræðu, og mótvægi um leið. Lóð á
hina vogarskálina. Við megum ekki
gleyma því hvaða fjársjóð við eigum í
gömlum konum. Allar viljum við jú
verða gamlar konur þegar þar að
kemur, það er okkar draumur.“
Um næstu helgi ætlar Anna Pálína
að syngja með Átthagakór Stranda-
manna, en kórinn hefur látið útsetja
fyrir sig nokkur laga Önnu Pálínu, og
hún syngur einsöng með þeim. Þá
hefur Anna Pálína einnig fengið
styrk frá Hafnarfjarðarbæ til að
halda djasstónleika fyrir börn.
Tónleikarnir í Hafnarborg hefjast
sem fyrr segir í kvöld kl. 20.
Anna Pálína Árnadóttir með tónleika í Hafnarborg
Gamlar konur
ganga guði næst
Ljósmynd/Gréta Guðjónsdóttir
Anna Pálína í stofunni hjá einni af mörgum eldri vinkonum sínum.
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 30. APRÍL 2002 31
LANDBÚNAÐARHÁSKÓLINN Á HVANNEYRI
Hvanneyri - 311 Borgarnesi - 437 0000 - lbh@hvanneyri.is - www.hvanneyri.is
www.hvanneyri.is Viltu læra um landbúnað?
Umsóknarfrestur um nám í Bændadeild
(búfræðinám) er til 30. júní.
Búfræðinám
Búfræðinám við LBH er tveggja ára starfsmenntanám á framhaldsskólastigi.
Þar af er ein önn á kennslubúi, en skólinn hefur samninga við um 80 bú víða
um land. Viðfangsefni eru fóðuröflun og fóðurrækt fyrir búfé, fóðrun,
kynbætur, húsvist og velferð þess. Einnig nytjajurtir, jarðvegsbætur og
umhverfi ýmissa búgreina, t.d. sauðfjár-, nautgripa- og hrossaræktar.
Fjarnám
Boðið er upp á búfræðinám í fjarnámi fyrir starfandi fólk í landbúnaði.
Í fjarnámi er unnt að ljúka búfræðiprófi eða taka einstaka áfanga.
Þannig getur hver og einn aðlagað námið eigin aðstæðum.
KRINGLUNNI • sími 568 4900
LAUGAVEGI 32 • sími 552 3636
Sumarið
kemur
vertu
tilbúin
Rafeindavirkjar
Til sölu er eitt elsta rafeindaverkstæði landsins, þar sem sami
eigandi hefur verið og starfað síðan 1969. Sérhæfir sig í talstöðv-
um og þess háttar tækjum og er með gott umboð fyrir þekkt tæki
sem hann selur mikið af. Er mjög þekktur á sínu sviði og vel tækj-
um búinn. Húsnæðið fylgir ekki með. Er með gott safn varahluta
sem hann flytur einnig inn. Trygg og góð atvinna og tekjulind fyrir
rétta aðila. Laust strax vegna veikinda. Selst ódýrt.
Í TILEFNI sýningar Reykja-
víkurAkademíunnar á verkum
einfarans Hjálmars Stefáns-
sonar frá Smyrlabergi verður
haldið málþing um naívisma í
listum í kvöld. Flutt verða stutt
erindi um naívisma í listum og
velt vöngum um hvort og
hvernig það hugtak eigi við aðr-
ar greinar en myndlist. Mál-
þingið stendur frá kl. 20–22.
Eftirtaldir munu flytja er-
indi: Aðalsteinn Ingólfsson list-
fræðingur ræðir um einfara í ís-
lenskri myndlist og list
Hjálmars Stefánssonar, Davíð
Ólafsson sagnfræðingur leitar
naívista í íslenskri dægurtón-
list, Geir Svansson bókmennta-
fræðingur fjallar um naívisma í
bókmenntum, Haraldur Ing-
ólfsson heimspekingur kynnir
naívíska heimspeki Brynjúlfs
Jónssonar frá Minnanúpi og
Halldór Gíslason arkitekt og
Guðmundur Oddur Magnússon
myndlistarmaður munu fjalla
um naívisma í íslenskri bygg-
ingalist.
Að erindum loknum fara
fram pallborðsumræður með
þátttöku málþingsgesta.
Aðgangur er ókeypis.
Málþing um
naívisma
AUGLÝSINGADEILD
netfang: augl@mbl.is eða sími 569 1111