Morgunblaðið - 30.04.2002, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 30.04.2002, Blaðsíða 24
ERLENT 24 ÞRIÐJUDAGUR 30. APRÍL 2002 MORGUNBLAÐIÐ STJÓRN Ísraels hefur samþykkt með semingi tillögu Bandaríkja- stjórnar um að Ísraelar bindi enda á umsátur hersins um höfuðstöðv- ar Yassers Arafats, leiðtoga Pal- estínumanna, og veiti honum ferðafrelsi. Arafat hefur verið í stofufang- elsi í mánuð í höfuðstöðvum sínum í Ramallah á Vesturbakkanum og hann fær nú að ferðast um palest- ínsku sjálfstjórnarsvæðin og er- lendis, að sögn ísraelskra og pal- estínskra embættismanna. Hann hefur ekki getað farið frá Ramall- ah síðan í desember. Aðstoðarmenn Arafats sögðu að hann myndi ekki fara út úr höf- uðstöðvunum fyrr en sex Palest- ínumenn, sem Ísraelar hafa lýst eftir, yrðu fluttir þaðan í fangelsi í Jeríkó. Stjórn Ísraels samþykkti á sunnudag tillögu Bandaríkja- stjórnar um að sexmenningarnir yrðu sendir til Jeríkó og yrðu þar í fangelsi undir eftirliti bandarískra og breskra embættismanna. Fjórir Palestínumannanna eru taldir hafa myrt ísraelska ráðherrann Rehav- am Zeevi, einn fanganna er leið- togi hreyfingar þeirra og sjötti Palestínumaðurinn er aðstoðar- maður Arafats og grunaður um að- ild að vopnasmygli. Yasser Abed Rabbo, upplýsinga- málaráðherra palestínsku heima- stjórnarinnar, sagði að sexmenn- ingarnir yrðu fluttir til Jeríkó innan tveggja daga. Breskir og bandarískir embættismenn ræddu í gær við Arafat um hvernig standa ætti að flutningnum. Hátt- settur palestínskur embættismað- ur sagði að Bandaríkjamenn hefðu hafnað bráðabirgðaréttarhöldum, sem fóru fram í höfuðstöðum Ara- fats í vikunni sem leið yfir meint- um morðingjum ísraelska ráð- herrans. Bandaríkjamenn vildu að réttað yrði aftur yfir mönnunum, en þeir fengu frá eins árs til átján ára fangelsisdóma. Deilan um umsátrið í Betle- hem leyst með sama hætti? Binyamin Ben-Eliezer, varnar- málaráðherra Ísraels, sagði að ísr- aelsku hermennirnir yrðu fluttir frá Ramallah þegar sexmenning- arnir færu þaðan. Hann kvaðst vona að samkomulag næðist einnig á næstunni í deilunni um tugi vopnaðra Palestínumanna í Fæð- ingarkirkjunni í Betlehem sem ísr- aelskir hermenn hafa setið um í mánuð. Hugsanlegt er að deilan verði leyst með sama hætti og mál sexmenninganna í Ramallah, þ.e. að Palestínumennirnir verði fluttir í fangelsi utan Ísraels og verði undir eftirliti bandarískra og breskra embættismanna. Ísraelsk leyniskytta skaut Pal- estínumann til bana þegar hann fór út í garð Fæðingarkirkjunnar í gær. Þrír munkar báru lík manns- ins út fyrir garðinn síðar um dag- inn. Hafna samstarfi við rannsóknarnefnd SÞ Ísraelar samþykktu að veita Arafat ferðafrelsi gegn því að Bandaríkjastjórn styddi þá í deil- unni við Sameinuðu þjóðirnar um rannsókn nefndar á vegum sam- takanna á hernaði Ísraela í flótta- mannabúðum í Jenín. Ísraelar segjast hafna samstarfi við nefnd- ina nema Sameinuðu þjóðirnar verði við kröfum þeirra um sam- setningu og umboð nefndarinnar. „Ég tel að við verðum að vera ósammála Sameinuðu þjóðunum að þessu sinni,“ sagði Gideon Meir, embættismaður í utanríkisráðu- neyti Ísraels, og sakaði Sameinuðu þjóðirnar um að draga taum Pal- estínumanna. „Þær vilja leggja gildru fyrir okkur.“ Ísraelar hafa meinað nefndinni að fara til Jenín. Shimon Peres, utanríkisráðherra Ísraels, sagði formanni rannsóknarnefndarinnar að fresta þyrfti för hennar þar til deilan yrði leyst. Ísraelar saka Kofi Annan, fram- kvæmdastjóra Sameinuðu þjóð- anna, um að hafa svikið samkomu- lag við þá um rannsóknina. Þeir vilja að rannsóknin beinist einkum að starfsemi palestínskra hryðju- verkamanna í flóttamannabúðun- um og krefjast þess að nefndin verði skipuð sérfræðingum í bar- áttunni gegn hryðjuverkum. Palestínumenn saka Ísraela um fjöldamorð í flóttamannabúðunum en Ísraelar neita því og segja að nokkrir tugir Palestínumanna hafi fallið í hörðum átökum, flestir þeirra vopnaðir byssum. Arafat bindi enda á hryðjuverkin George W. Bush Bandaríkjafor- seti hringdi þrisvar sinnum í Ariel Sharon, forsætisráðherra Ísraels, um helgina til að hvetja hann til að binda enda á umsátrið í Ramallah. Samkomulag náðist loks eftir sex klukkustunda stormasaman fund í stjórn Ísraels sem lauk með at- kvæðagreiðslu um hvort veita ætti Arafat ferðafrelsi. Atkvæðin féllu hnífjafnt og Sharon hefði getað fellt tillöguna með oddaatkvæði, en gerði hlé á fundinum til að ræða aftur við Bush, að sögn ísr- aelska dagblaðsins Haaretz. Bush sagði Sharon að ef Ísrael- ar samþykktu tillöguna myndu Bandaríkjamenn styðja þá í deil- unni um rannsóknina í Jenín. Arafat hefur sagt að hann geti ekki orðið við kröfu Ísraela um að hann bindi enda á hryðjuverk Pal- estínumanna vegna þess að hann sé lokaður inni í Ramallah og nú þegar hann fær ferðafrelsi hefur hann ekki þá afsökun lengur. Bush sagði eftir að samkomulagið náðist að Bandaríkjastjórn myndi nú leggja fast að Arafat að binda enda á hryðjuverkin og Colin Po- well, utanríkisráðherra Bandaríkj- anna, hringdi í palestínska leiðtog- ann til að leggja áherslu á þá kröfu. Bush bauð Sharon í heimsókn til Washington innan hálfs mánaðar og verður það fimmta ferð ísr- aelska forsætisráðherrans til Bandaríkjanna. Ekkert bendir hins vegar til þess að Arafat verði boðið til Washington á næstunni, en hann hefur aldrei farið þangað frá því að Bush tók við forseta- embættinu. Ísraelar samþykkja að veita Arafat ferðafrelsi Stjórn Bush lofar að styðja Ísraela í deilunni um rannsókn í Jenín AP Ísraelskur hermaður fylgist með þremur munkum og palestínskum samningamanni bera lík þrítugs Palest- ínumanns, sem ísraelsk leyniskytta skaut til bana við Fæðingarkirkjuna í Betlehem í gær. Hebron, Washington. AP.  !  "#! $ %& &'$% - "  "!!% &* !* !! $   ! ." "%"!) "   &""# /!& " !))0  !  ! %&   .   1))+ !  %*!# " &%  ! 0&0%!&*" ! "  "   ! % /  .0 !1   21  3'3    4  % 5    0 %     5% '   5   6!    7   0 %  $ %$ SEXTUGUR sögukennari, Rainer Hese, er nú þjóðhetja í Þýskalandi en hann kom í veg fyrir að fórnarlömb unglingsins, sem gekk berserksgang í gagn- fræðaskóla í borginni Erfurt á föstudag og myrti sextán manns, yrðu fleiri. Hese sagði frá því um helgina hvernig hon- um tókst að hrinda ódæðis- manninum, Robert Steinhäuser, inn í skólastofu og loka hann þar inni. Steinhäuser, sem var 19 ára og fyrrum nemandi í skól- anum, réð sjálfum sér bana stuttu síðar. Atburðurinn vakti mikinn óhug í Þýskalandi. Skapari Barbie látinn RUTH Handler, konan sem skapaði Barbie-dúkkuna, lést um helgina, 85 ára að aldri. Handler, sem stofnaði einnig leik- fangafyrir- tækið Matt- el, hið stærsta sinnar teg- undar í heiminum, setti Barbie- dúkkuna fyrst á markað árið 1959 en hún átti eftir að verða vinsælasta brúða sinnar tegund- ar. Hefur meira en milljarður Barbie-dúkkna verið seldur til þessa dags. Barbie, sem nefnd var eftir dóttur Handler, Barb- öru, ávann sér þó fyrirlitningu femínista sem töldu dúkkuna slæma fyrirmynd fyrir ungar stúlkur. Vinsældir Barbie urðu hins vegar til þess að Handler mótaði margar útgáfur af brúðunni, auk þess sem hún setti á markað karlbrúðuna Ken til þess að veita Barbie félagsskap. Fer fram á aðstoð EDÚARD Shevardnadze, for- seti Georgíu, fór í gær fram á að- stoð erlendra ríkja og góðgerð- arsamtaka eftir að jarðskjálfti lék höfuðborg Georgíu, Tbilisi, grátt sl. fimmtudag. Sex menn fórust í skjálftanum og hundruð manna eru heimilislaus en meira en eitt hundrað byggingar eru sagðar ónýtar eftir skjálftann. Khattab látinn STAÐFEST hefur verið að stríðsherrann Khattab, leiðtogi íslamskra skæruliða í Kákas- uslýðveldinu Tsjetsjeníu og í Dagest- an, er látinn en rúss- neska leyni- þjónustan, FSB, greindi frá því í síðustu viku að Khattab hefði verið ráðinn bani í leynilegri aðgerð. Segir bróðir Khattabs að hann hafi haft í bí- gerð að flytja höfuðstöðvar sínar frá Tsjetsjeníu til Palestínu. Rússneska leyniþjónustan hefur fullyrt að Khattab hafi átt sam- starf við Sádí-Arabann Osama bin Laden. STUTT Sögu- kennarinn þjóðhetja Ruth Handler Khattab
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.