Morgunblaðið - 30.04.2002, Side 41
UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 30. APRÍL 2002 41
Ömmubakstursle ikar
Keppnisgreinar
Smur› flatkaka; besta uppskriftin af flatkökum og áleggi
Smur› skonsa; besta uppskriftin af skonsum og áleggi
Sendu uppskrift á 0mmubakstur.is fyrir 3.maí.
Eina skilyr›i› er a› innsendar uppskriftir geri rá› fyrir heitri
e›a kaldri flatköku e›a skonsu frá Ömmubakstri.
Úrslitin ver›a tilkynnt á Bylgjunni.
Glæsileg ver›laun
1. ver›laun: Ævint‡rafer› fyrir tvo til höfu›borgar
smurbrau›sins, Kaupmannahafnar
2.-3. ver›laun: Smurbrau›sveisla á Jómfrúnni
4.-10. ver›laun: Gjafakarfa frá Ömmubakstri
ommubakstur.is
N
O
N
N
I O
G
M
A
N
N
I
Y
D
D
A
•
s
ia
.is
fyrir 3.
maí
U p p s k r i f t a s a m k e p p n i
Stanislas Bohic
garðhönnuður
Sími 525 3000 • www.husa.is
verður til skrafs og ráðagerða í
timburverslun Súðarvogi sem hér segir:
Fimmtudaginn 2. maí 13 - 18
Föstudaginn 10. maí 13 - 18
Mánudaginn 13. maí 13 - 18
Vinsamlegast pantið tíma í
síma 525 3000.
Í TILEFNI af held-
ur sérkennilegri svar-
grein bæjarstjórans á
Seltjarnarnesi í Mbl.
24. apríl við grein minni
um 585 milljóna króna
skaðabótakröfu á hend-
ur bænum vil ég árétta
eftirfarandi.
„Ábyrgðarleysi“ það
sem mér er gefið að sök
í greininni felst í því að
upplýsa bæjarbúa um
tilvist umræddrar
skaðabótakröfu og ég
sé með því að „gera
málstað Seltjarnarnes-
bæjar tortryggilegan í
augum bæjarbúa“.
Þetta eru makalausar ásakanir og
eiga ekki við nokkur rök að styðjast,
lýsa fremur örvæntingu þess sem
setur þær fram. Ég er einfaldlega
þeirrar skoðunar að hér eins og oftast
sé sannleikurinn sagna bestur. Bæj-
arstjórinn fráfarandi deilir greinilega
ekki þeirri skoðun minni.
Það skal skýrt tekið fram að ekkert
lögfræðilegt mat hefur verið lagt á
efni kröfunnar og að ég hef hvergi
tekið undir kröfu Jóns Steinars
Gunnlaugssonar hrl. f.h. ÁHÁ-verk-
taka í máli þessu. Að sjálfsögðu vona
ég eins og aðrir Seltirningar að þessi
krafa nái ekki fram að ganga. Það
breytir þó ekki því að krafan er fram
komin og verður ekki leyst með þögn-
inni.
Ljóst er að meirihlutinn skilur
engan veginn kjarna þessa máls og er
full ástæða til að vekja athygli á því.
Það sem ég hef fyrst og síðast gagn-
rýnt er sú staðreynd að meirihlutinn
hefur með margvíslegum hætti reynt
að halda þessu máli leyndu fyrir bæj-
arbúum og með því brotið grundvall-
arreglur í opinberri stjórnsýslu.
Það hefur heldur aldrei þótt bera
vott um sterkan málstað þegar varnir
felast í því að skjóta sendiboðann,
boðbera hinna válegu tíðinda.
Rangfærslur
Meirihlutinn lét bóka framkomna
skaðabótakröfu sem „erindi“ og er
það augljóslega mjög villandi svo
ekki sé kveðið fastar að orði. Í sam-
þykkt um stjórn og fundarsköp Sel-
tjarnarnesbæjar er
skýrt kveðið á um hlut-
verk forseta bæjar-
stjórnar. Sá sem gegnt
hefur því embætti að
undanförnu er Jón-
mundur Guðmarsson,
bæjarstjóraefni Sjálf-
stæðisflokksins. Hlut-
verk forseta bæjar-
stjórnar er ekki síst að
sjá til þess að allt fari
löglega fram á bæjar-
stjórnarfundum, að rétt
og nákvæmlega sé bók-
að í fundargerðum.
Misvísandi eða röng
bókun í fundargerð er
alvarlegt mál. Er
ástæða til að efast um að sá sem ekki
skilur þetta grundvallaratriði í opin-
berri stjórnsýslu sé starfi sínu vax-
inn.
Fram hefur komið að áheyrnar-
fulltrúum var vísað á dyr þegar þetta
mál var tekið til umræðu sem er fá-
heyrt og á skjön við þá almennu reglu
að bæjarstjórnarfundi skal halda í
heyranda hljóði og almenningi heim-
ilaður aðgangur að þeim.
Sannar þetta tvennt með óyggj-
andi hætti hvernig meirihlutinn ætl-
aði að halda þessu máli leyndu fyrir
bæjarbúum. Ekki ber sú viðleitni vott
um mikla virðingu fyrir kjósendum.
Tillitssemi við bæjarbúa?
Bæjarstjóri lætur að því liggja að
komandi kosningar hafi ráðið því að
ég hafi greint frá umræddri skaða-
bótakröfu. Hitt mun sanni nær að til-
raunir hans og meðreiðarsveina hans
til að hylma yfir málið séu einmitt til-
komnar vegna þess að kosningar eru
á næstu grösum.
Af hverju leggur meirihluti bæjar-
stjórnar ofurkapp á að leyna þessu
máli með röngum bókunum og brott-
vísun áheyrnarfulltrúa af fundi? Af
hverju telur hann það ábyrgðarleysi
af mér að upplýsa bæjarbúa um mál-
ið? Það er greinilegt að meirihlutinn
metur það svo að ekki sé „heppilegt“
fyrir kjósendur að vita af þessu máli.
Hagsmuna hverra er verið að gæta?
Mér sýnist augljóst að hér hafi meiri-
hlutinn sett flokkshagsmuni ofar
hagsmunum bæjarbúa.
Það sem vakti fyrir mér með að
upplýsa um þetta alvarlega mál var
sú vissa mín að bæjarbúar eigi lög-
varinn rétt á að fá undanbragðalaust
vitneskju um málefni bæjarfélagsins
svo að þeir geti sjálfir mótað sér
skoðun á þeim. Svo einfalt er það!
Að skjóta boðbera
válegra tíðinda
Guðrún Helga
Brynleifsdóttir
Seltjarnarnes
Mér sýnist augljóst,
segir Guðrún Helga
Brynleifsdóttir, að hér
hafi meirihlutinn sett
flokkshagsmuni ofar
hagsmunum bæjarbúa.
Höfundur skipar 1. sæti Neslistans
á Seltjarnarnesi.