Morgunblaðið - 31.05.2002, Blaðsíða 66
Í KVÖLD frumsýna Sambíóin kvik-
myndina Queen of the Damned í
leikstjórn Michaels Rymer. Myndin
er byggð á þriðju sögunni í bóka-
flokknum Vampire Cronichles eftir
handritshöfundinn Anne Rice. Önn-
ur bókin í sama bókaflokki var kvik-
mynduð árið 1994 og bar hún heitið
Interview With a Vampire. Myndin
sú er eflaust mörgum í fersku minni
en þar fór Tom Cruise með hlutverk
vampýrunnar ódauðlegu Lestat sem
svífst einskis til að verða sér úti um
það sem honum þykir best, manns-
blóð. Í slagtogi með Lestat voru svo
þau Louis og Claudia sem síðhærður
Brad Pitt og barnung Kirsten Dunst
léku.
Í Queen of the Damned er Lestat
enn kominn á kreik og fer leikarinn
Stuart Townsend með hlutverk
hans. Townsend hefur áður leikið í
kvikyndum á borð við Shooting Fish
og About Adam.
Að þessu sinni er Lestat rokk-
stjarna í New York og nær með tón-
list sinni að vekja frá dauðum kollega
sinn, vampýruna Akasha, sem er
drottning allra vampýra, máttugust
þeirra allra. Söng- og leikkonan Aal-
iyah fór með hlutverk drottningar-
innar en eins og flestum er kunnugt
lést hún í flugslysi í ágúst á síðasta
ári.
Frumsýningu myndarinnar var
því frestað um nokkra mánuði vegna
sviplegs dauða Aaliyuh og var bróðir
hennar, Rashad Haughton, fenginn
til að tala inn á myndina fyrir systur
sína í nokkrum þeirra atriða sem eft-
ir átti að hljóðsetja.
Aaliyah var einnig byrjuð að leika
í framhaldsmyndum Matrix, númer
2 og 3, er hún lést.
Reuters
Aaliyah sem drottning allra vampýra, Akasha.
Lestat og Akasha láta fara vel um sig. Stuart
Townsend og Aaliyah í hlutverkum sínum.
Drottning
allra vampýra
Kvikmyndin Queen of the Damned frumsýnd í kvöld
FÓLK Í FRÉTTUM
66 FÖSTUDAGUR 31. MAÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ
VEITINGASTAÐ í eigu leikkon-
unnar Cameron Diaz hefur verið
lokað vegna brota á heilbrigðis-
reglum veitingahúsa.
Diaz hefur einungis átt staðinn
Bambu, sem er á Miami Beach, í
hálft annað ár en heilbrigðiseft-
irlitið þar á bæ sá ástæðu til að
veita honum ekki áframhaldandi
leyfi til veitingareksturs vegna
óþrifnaðar.
Óþrifnaður
hjá Diaz
Reuters