Morgunblaðið - 07.07.2002, Side 23
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 7. JÚLÍ 2002 23
Bækur. Þær hefur mig sífellt
skort. Svo skrifaði skáldið
Stephan G. Stephansson í Drög
til ævisögu sem birt er í fjórða
bindi Bréfa og ritgerða. Nú er
á leiðinni veglegt tveggja binda
verk um skáldið, ævisaga og
það verða engin drög, heldur á að leysa úr skort-
inum á bók um Klettafjallaskáldið. Viðar Hreins-
son bókmenntafræðingur hefur frá árinu 1997 ver-
ið að afla efnis og skrifa um ævi Stephans G. og
verk. Fyrra bindið mun nefnast Landneminn
mikli og kemur út hjá Bjarti í haust, en fyrirhugað
er að síðara bindið komi út að ári, þegar 150 ár
verða liðin frá fæðingu skáldsins.
Viðar Hreinsson er vel kunnugur heimi Vestur-
Íslendinga, en hann kenndi við háskólann í Winni-
peg fyrir um áratug og síðan ritstýrði hann hinni
veglegu útgáfu Íslendinga-
sagnanna á ensku sem komu
út árið 1997. Nú er Viðar ný-
kominn úr ferð um þau svæði
Bandaríkjanna þar sem Steph-
an G. bjó og starfaði fyrst eftir
að hann kom til Vesturheims.
Á skrifstofu hans í Reykjavík-
urakademíunni eru opin kort á
borði, hverskyns handbækur
og möppur með ljósritum
liggja í stöflum; meira að segja
bók með kartöfluuppskriftum
frá Hall-fjölskyldunni í Norð-
ur-Dakóta, en hún er komin af
Jónasi Hall, besta og trygg-
asta vini Stephans.
„Ég fór til að krafsa í mold-
ina þar sem Stephan var,“ seg-
ir Viðar og sýnir á korti stað-
ina þar sem hann bjó. „Ég fór
reyndar öfugan hring, byrjaði í
Norður-Dakóta, en þar var stórt íslenskt landnám.
Þar sýndi Magnús Ólafsson mér allt sem merki-
legt má teljast í sambandi við sögu Íslendinganna;
það var gaman að upplifa. Ég kom þar sem bær
Stephans stóð, þar er eins og smávegis dæld í jörð-
ina við brekkurót. Ég rannsakaði þar skjalasöfn
og skoðaði ýmsa pappíra. Með viðkomu hjá Bill
Holm í Minneota, Minnesota, hélt ég síðan til Wis-
consin, en þangað kom Stephan með fjölskyldu
sinni árið 1873. Fyrsta árið bjuggu þau nálægt
Staughton en síðan námu þau land í skógi í Shaw-
ano County. Í dag er þar akur en maður sem átti
jörðina sýndi mér hvar bærinn stóð líklega.“
Viðar hefur áður skoðað hús skáldsins og safnið
sem í því er, í Markerville í Alberta, og hefur jafn-
framt rannsakað ýmis gögn í skjalasöfnum í Ed-
monton og Calgary.
„Það er eins og leynilögregluleikur að vinna
svona verk,“ segir Viðar. „Ég er að snuðra hér og
þar, spá í hitt og þetta. Ligg á skjalasöfnum og
leita að upplýsingum og heimildum um Stephan
sjálfan og umhverfi hans á hverjum tíma. Það er
óhemju gaman að reyna að setja sig í hans spor og
upplifa sögu þessa stórmerka manns.“
Það var árið 1997 sem hann ákvað að vaða í
verkið, en til að byrja með fór meiri tími í að afla
fjár til þess en í sjálft grúskið. Ýmsir aðilar styrktu
verkið á fyrstu árunum, til dæmis Skagfirðingar
og Landafundanefnd. „Vinna við svona bækur tek-
ur alltaf nokkur ár og mikilvægt að hafa reglu-
bundinn stuðning. Frá 1999 hef ég verið á kafi í
þessu og það sem gerði mér það kleift var stuðn-
ingur þriggja fyrirtækja, Eimskips, Urðar, Verð-
andi, Skuldar og Búnaðarbankans. Það var í raun
tímamótasamningur þegar þessi fyrirtæki fengust
til að styrkja verkið til loka. Ég fékk líka úthlutun
úr Launasjóði fræðirithöfunda, sem munaði mikið
um, en þann sjóð má efla til muna.“
Viðar hefur því síðustu árin eytt ótal stundum í
félagsskap Klettafjallaskáldsins, en hann segir fé-
lagsskapinn hafa verið afskaplega góðan. „Steph-
an G. var alveg einstakur maður. Hversdagsmenni
á ytra borði, venjulegur, óskólagenginn bóndi,
aldrei vel stæður en svo sannarlega andans stór-
menni.
Í verkinu reyni ég að draga upp víða mynd af
fólki, samfélagi og lífsháttum. Ég fæst við karakt-
erinn, rek þroskaferilinn, búsetusöguna og þessar
ytri aðstæður, en reyni jafnframt að koma hönd-
um yfir kveðskap hans, heimssýn og hugsunar-
hátt.
Saga Stephans G. er afskaplega fjölþætt. Þetta
er búskaparsaga sem nær yfir harðindatímabil í
íslenskum landbúnaði á 19. öld, þetta er Vestur-
farasaga, saga um búskap í tveimur heimsálfum;
það er alveg magnað að setja sig inn í þennan
heim. Að vera samferða manni sem eignast nýjan
jarðskika í september og stendur þar með ekkert
nema öxi, reku og 75 sent í vasanum, en verður síð-
ar stórskáld sem hefur svo margt að segja heim-
inum.“
Stephan G. byggði sér þrisvar bú vestanhafs en
Viðar segir að hann hafi ekki fundið sig fyrr en
hann var kominn norður til Kanada, kannski hafi
honum leiðst flatneskjan suðurfrá. Skáldskapur-
inn tók virkilega að blómstra þegar hann kom til
Alberta.
Viðar efast um að fólk geri sér grein fyrir því
hvað skáldskapur Stephans var víðfeðmur. „Hann
var ekki hálfsnöktandi ættjarðarskáld sem sakn-
aði heimalandsins. Þegar hann orti „Langförul“,
eins og hann kallar það vel þekkta kvæði í bréfum,
var hann búinn að finna sinn stað í lífinu. Nátt-
úrukveðskapur blundaði alltaf í honum, en Steph-
an orti líka um söguleg efni frá ýmsum tímum, um
ýmsa viðburði, hann tíndi upp yrkisefnin úr sínu
nánasta umhverfi og viðraði lífsspeki sína í ljóðum,
pólitík og heimspeki, svo ekki sé minnst á öll fínu
erfiljóðin. Það hefur verið sagt að ekkert íslenskt
skáld hafi verið jafn víðfeðmt í skáldskapnum og
hann. Já, þessi sjálfmenntaði bóndi nær bæði hátt
og vítt. Mig hálflangar til að halda því fram að
hann sé einsdæmi í bókmenntasögu heimsins – en
ég þekki bara ekki allar heimsins bókmenntir,“
segir Viðar og brosir. „Í Kanada var sagt fyrir
miðja síðustu öld að ekkert annað kanadískt skáld
hafi dregið upp jafn góða mynd af lífinu í Vestur-
Kanada. Og prófessor við Harvard hafði um hann
mjög stór orð; sagði Stephan vera stærsta skáld
Vesturheims, og bar hann þá saman við skáld á
borð við Whitman og Poe.“
Viðar segir ágætar þýðingar hafa verið gerðar á
sumum kvæða Stephans yfir á ensku en mikið vanti
uppá að nóg hafi verið þýtt. Hinsvegar hafi Stephan
notið þess að vera vel gefinn út hér heima, og skipu-
lega. Ljóðasöfnin og einnig stór hluti þeirra bréfa
og ritgerða sem eftir hann liggja. Samt segist Viðar
hafa fundið ýmislegt sem ekki hefur ennþá ratað á
prent en á fyllsta erindi fyrir augu lesenda. Hann
hampar lítilli en nokkuð þykkri, innbundinni
kompu og segir margt merkilegt leynast í henni.
„Ég er hér með kver sem Guðni Jónsson, frændi
og vinur Stephans í Bárðardal, skráði í æskukveð-
skap eftir Stephan og einnig ljóð sem hann samdi á
fyrstu árum sínum fyrir vestan og sendi heim. Nán-
ast ekkert af þessu hefur verið prentað. Fyrstu 200
síðurnar í kverinu eru með skáldskap Stephans
héðan frá Íslandi og svo eru um fimmtíu síður í við-
bót með kveðskap frá Wisconsin. Þetta er ákaflega
dýrmætt efni sem hefur verið vel haldið uppá og er í
einkaeigu. Stephan segist sjálfur hafa brennt ein-
hverju af þessu æskuefni en hafi þá verið búinn að
gefa vini sínum afrit af því. Þessi kvæði eru fínasta
heimild um æskuárin hér og líf hans vestra. Hann
slarkaði þá víða og var meðal annars í skógarhöggi,
sem virðist hafa verið eitthvað svipað og þegar
menn voru að fara á vertíð á mínum ungdómsár-
um,“ segir Viðar og glottir við tönn. „En það er ekki
bara þetta sem er óbirt af skrifum Stephans; á
Landsbókasafninu er eitt heilt leikrit eftir hann og
brot úr öðrum, handskrifað sveitablað frá Norður-
Dakóta og margt smálegt. Það er þannig ýmislegt
sem ekki hefur verið prentað en er mikilvægt í
heildarmyndinni af lífi hans.“
Hann segir það kunna að koma á óvart að þetta
viðamikla verk komi út hjá Bjarti, sem hingað til
hefur einkum gefið út skáldskap. „Þeir eru orðnir
félagar og leiðist vonandi hvorugum, Stephan G. og
Harry Potter! Bjartur hefur gert marga góða hluti,
gefið út góðar og fallegar bækur. Þá gerir útslagið
að Jón Karl Helgason er að vinna þar; betri yfirles-
ara er ekki hægt að hugsa sér.“
Viðar segir að seinna bindið komi út 3. október á
næsta ári, en þá eru 150 ár liðin frá fæðingu Steph-
ans G. „Ég vildi óska þess að veglega verði haldið
upp á afmæli karlsins. Svo væri gaman að heyra
Þiðrandakviðu flutta. Það er kvæði sem hann orti
síðasta árið sem hann lifði fyrir Björgvin Guð-
mundsson tónskáld. Björgvin samdi svo við það
kantötu sem hann kallaði Örlagagátuna. Þá var
Stephan orðinn mjög sjúkur og það var afrek hjá
honum að ljúka verkinu.“
Ekkert nema öxi, reka
og 75 sent í vasanum
FÓLK
Eftir Einar Fal
Ingólfsson
efi@mbl.is
VIÐAR HREINSSON blaðar í kompunni með óbirtum æskukveð-
skap eftir Stephan G. Stephansson.