Morgunblaðið - 07.07.2002, Page 27
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 7. JÚLÍ 2002 27
Skráning hlutabréfa
Vátryggingafélags Íslands hf.
F
í
t
o
n
/
S
Í
A
F
I
0
0
5
0
2
3
Vátryggingafélag Íslands · Ármúla 3 · 108 Reykjavík · Sími 560 5060 · www.vis.is
Tilkynning um skráningu hlutabréfa
Vátryggingafélag Íslands hf., kt. 690689–2009, Ármúla 3,
108 Reykjavík, sími 560-5060.
Þann 12. júlí 2002 verður allt útgefið hlutafé Vátrygginga-
félags Íslands hf., 539.541.040 kr. að nafnverði, skráð á
Tilboðsmarkaði Kauphallar Íslands hf., að uppfylltum þeim
skilyrðum sem Kauphöllin setur. Auðkenni hlutabréfa
félagsins er VISHF.
Gengið hefur verið frá samningi við Landsbanka Íslands hf.
um viðskiptavakt með hlutabréf VÍS, svo sem reglur
Tilboðsmarkaðar Kauphallar Íslands kveða á um.
Landsbanki Íslands hf., kt. 540291–2259, Laugavegi 77,
155 Reykjavík.
Skráningarlýsingu og gögn sem vitnað er til í henni er hægt
að nálgast á heimasíðu Vátryggingafélags Íslands hf.,
www.vis.is og á heimasíðu Landsbanka Íslands hf.,
www.landsbanki.is eða hjá útgefanda eða umsjónaraðila.
Útgefandi
Milliganga við skráningu
Upplýsingar og gögn
Heildarnafnverð hlutafjár
Viðskiptavakt
SCHOLA cantorum efndi til tón-
leika sl. miðvikudagskvöld í Hall-
grímskirkju, en kórinn er á förum til
Ítalíu til þátttöku í alþjóðlegri keppni
í kórsöng. Efnisskráin var því tví-
skipt, þ.e. keppnislögin og svo íslensk
kórlög og hófust tónleikarnir á kór-
verkinu Sicut ovis eftir Gesualdo,
greifann frá Venosa, sem er sagður
hafa verið eitt frumlegasta tónskáld
sögunnar. Hann var sérstaklega
frægur fyrir að samtvinna króma-
tískt og kontrapunktískt tónferli á
einstaklega djarfan máta, svo að enn í
dag þykir tónmál hans allt að því nú-
tímalegt. Söngur Schola cantorum
var einstaklega glæsilegur og ekki
síður í næsta keppnisverki, mótett-
unni Warum ist das Licht gegeben,
op. 74, nr. 1 eftir Brahms, við biblíu-
texta, í þýðingu Marteins Lúters. Í
þessu margraddaða verki er Brahms
að leika sér með keðjubundinn (ca-
non) rithátt, með einstökum glæsi-
brag og var flutningur Schola cantor-
um afburða góður, sérstaklega í fyrri
hluta mótettunnar. Þriðja verkið í
þessum keppnisflokki var Peace I
leave with you, einstaklega fallegt
verk eftir Knut Nystedt og lokavið-
fangsefnið var María, Drottins liljan,
eftir Báru Grímsdóttur, einstaklega
fallegt verk og svo sem einnig kom
fram í öðru kórverki, Ef hjarta mitt
er valtast alls hins valta (Vorkvæði
eftir Laxness), þá er hér að taka til
máls frábært tónskáld.
Í síðari keppnisflokknum voru ein-
göngu nútímaverk, Ave maris stella,
glæsilegt verk eftir Trond Kverno,
Faðir vor eftir E. Rautavaara, Lau-
date eftir Nystedt og fallega Ave
Marían eftir Hjálmar H. Ragnars-
son. Það er einkennilegt hversu vel
Hörður og kór hans ná að nálgast
innviðu fegurðarinnar og við þeirri
spurningu, hvernig, er ekkert svar.
Það aðeins er.
Síðasti hluti söngskrárinnar voru
eingöngu íslensk kórlög, Maríukvæði
eftir Atla Heimi Sveinsson, Vorkvæði
eftir Báru Grímsdóttur, Vorvísa og
Hjá lygnri móðu eftir undirritaðan og
Hvert örstutt spor eftir Jón Nordal,
en öll þessi verk eru samin við texta
eftir Halldór Laxness. Tónleikunum
lauk svo með Smávinir fagrir eftir
Jón Nordal, sem er samið við feg-
urstu hendingarnar úr Hulduljóðum
Jónasar Hallgrímssonar.
Um flutning Schola cantorum og
stjórn Harðar Áskelssonar er það eitt
að segja, að þar fellur allt að einu,
fegurð og listfengi, en auk þess sem
kórstjórinn leggur til, býr kórinn að
fögrum röddum, sópran sem er jafn
þýður á öllu styrkleika- og raddsvið-
inu, einstaklega fögrum altröddum,
„clarino“-hljómandi tenórum og
hljómmjúkum bassaröddum, er öll
leiða hlustendur til hásala fegurðar-
innar, þar sem mannsröddin, feg-
ursta hljóðfærið og hreinast í túlkun
mannsins, ríkir ein.
Mannsröddin,
fegursta hljóðfærið
TÓNLIST
Hallgrímskirkja
Schola cantorum, undir stjórn
Harðar Áskelssonar, flutti íslensk
og erlend kórverk. Miðvikudagurinn 3.
júlí 2002.
KÓRTÓNLEIKAR
Jón Ásgeirsson
Sólarkaffi, Laugavegi 85 Fríða
Kristín Gísladóttir opnar sýningu á
níu nýlegum olíuverkum kl. 15. Fríða
stundaði nám í Myndlista- og hand-
íðaskóla Íslands og er þetta hennar
fyrsta einkasýning.
Um sýningu sína segir hún m.a.: „Að
skynja fegurðina sem er allt í kring-
um okkur byggir okkur upp og veitir
okkur styrk til að takast á við lífið í
sínum ófullkomleika og gefur okkur
aðra sýn á erfiðleikana.“
Sýningin stendur til 1. ágúst.
Garður, Ártún 3, Selfossi Sýning-
arstaðurinn GUK+ verður opinn í
dag kl. 14–16, milli kl. 16–18 í Dan-
mörku og Þýskalandi. Þar stendur
nú yfir sýning Gunnhildar Unu Jóns-
dóttur, Spaceman. Í garðinum á Sel-
fossi má leika á skjá fartölvunnar
tölvuleikinn Spaceman.
Á vefsíðu GUK+ http://www.sim-
net.is/guk er hægt að skoða ljós-
myndir og hreyfimyndir af sýning-
unni, hlusta á upptökur og fara í
leikinn Spaceman. Þar má einnig
fræðast meira um Yuri Gagarin og fá
frekari upplýsingar um listakonuna.
Sýningin stendur yfir til 25 ágúst.
Aðgangur er ókeypis og eru allir vel-
komnir.
Skriðuklaustur Hallfríður Ólafs-
dóttir flautuleikari og Ármann
Helgason klarinettleikari halda tón-
leika kl. 17. Á efnisskrá eru einleiks-
verk fyrir flautu eftir Øistein Som-
merfeldt, Philip Selby, Claude
Debussy og Arthur Honegger. Verk
fyrir einleiksklarinett eftir Heinrich
Sutermeister, Igor Stravinskí og
Paul Harvey. Og verk fyrir flautu og
klarinett eftir Johann Sebastian
Bach og Heitor Villa-Lobos.
Í DAG
Tár eftir Fríðu Kristínu Gísladóttur.
NÝR bókaklúbbur hefur hafið göngu
sína hjá bókaútgáfunni Sölku. Klúbb-
urinn nefnist Hugur, líkami og sál og
fá félagar gjöf og sjálfsræktarbók árs-
fjórðungslega.
Fyrsta bókin nefnist Láttu ljós þitt
skína eftir Victoriu Moran í þýðingu
Hildar Hermannsdóttur og Rögnu Sig-
urðardóttur.
Victoria Moran er einnig höfundur
bókarinnar Fegraðu líf þitt sem Salka
gaf út á sínum tíma.
Salka hefur opnað nýja vefsíðu á
slóðinni www.salkaforlag.is auk þess
sem forlagið hefur flutt í nýjar höf-
uðstöðvar að Skólavörðustíg 4. Þar er
einnig er starfrækt bókabúð sem sel-
ur allar þær bækur sem gefnar hafa
verið út af forlaginu, auk ýmissa
handbóka og gripa fyrir erlenda ferða-
menn.
Sjálfsrækt